SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1968 157 gerðina, en henni þarf að reyna að halda áfram eitthvað árlega til þess að þráðurinn slitni ekki. Þessi viðgerð er að vísu ekki á vegum safnsins, en það hefur þó styrkt hana með fjárframlagi og öðrum ráðum, enda er þarna um að ræða eitt merkasta hús á landinu. ByggSasöfn. Á árinu voru veittar kr. 500.000,00 til byggðasafna og fóru um 123 þús. kr. af þeirri upphæð til að kosta gæzlu gömlu bæjanna og annarra bygginga á vegum safnsins. Meginhluta þess, sem eftir var, var skipt niður milli þriggja byggðasafna. Til' Minjasafnsins á Akureyri runnu kr. 100.000,00. Til nýbyggingar byggðasafnsins á Akranesi voru veitt- ar kr. 50.000,00 eftir ákvörðun Alþingis. Til nýbyggingar Byggða- safns Þingeyinga á Húsavík runnu kr. 135,000,00, en þar af 50.000,00 einnig samkv. ákvörðun Alþingis. Safnhúsið þar er nú fokhelt. Afgangurinn af þessari upphæð, um kr. 90.000,00, rann til endur- byggingar Glaumbæjar, þar sem Byggðasafn Skagfirðinga er til húsa. Sú viðgerð reyndist mun meiri og kostnaðarsamari en gert var ráð fyrir, og þar sem þetta er eina sýningarhúsnæði byggðasafnsins, kem- ur f járveitingin því til góða. Nokkuð var talað á árinu um væntanlega nýbyggingu eða kaup á húsnæði fyrir Byggðasafn Borgarfjarðar í Borgarnesi, en safnið er í bráðabirgðahúsnæði Kaupfélags Borgfirðinga, sem þarf nú senn á húsnæðinu að halda. Hefur húsnæðisskortur staðið þessu safni fyrir þrifum og því nauðsynlegt að það eignist eigið, varanlegt húsnæði. Engin ákvörðun hefur þó enn verið tekin í þessu máli. Undirbúningi undir nýbyggingu Byggðasafnsins á Akranesi mun nú vera lokið, og væntanlega verður hafizt handa um byggingarfram- kvæmdir snemma á árinu 1969. Þar er gert ráð fyrir allnýstárlegu safnhúsi, eða öllu heldur húsum, sem byggð verða í áföngum og síðan tengd saman. Safnið hefur verið til húsa í gamla steinhúsinu í Görð- um, sem verður varðveitt framvegis og notað jafnframt sem sýn- ingarhús. Magnús Gestsson kennari fór um flestar sveitir Dalasýslu á vegum byggðasafnsnefndar og safnaði munum til væntanlegs byggðasafns. Varð honum allvel ágengt, safnaði milli 600 og 700 munum, sem geymdir eru í félagsheimilinu í Búðardal. Ekki er þó fullráðið um staðsetningu væntanlegs safns þar eða hvort Dalamenn slá sér saman við Snæfellinga um byggðasafn, sem væri að mörgu leyti skynsam- legt. 1 desembermánuði fór Gísli Gestsson safnvörður til ísafjarðar skv.