158 ÁRBÖK FORNLEIFAFÉLAGSINS beiðni stjórnar byggðasafnsins þar til athugunar og ráðlegginga um innréttingu og fyrirkomulag á viðbótarhúsnæði safnsins á lofti sund- laugarinnar. Gerði hann uppdrátt af húsnæðinu og lauslega niðurröð- un væntanlegra safnmuna, en síðan mun hann fara öðru sinni vestur á öndverðu árinu 1969 til nánari athugana í þessu máli. Jóhann Gunn- ar Ólafsson fv. bæjarfógeti, sem verið hefur stoð og stytta bygg'ða- safnsins, lét af embætti á árinu og fluttist frá ísafirði, en Jón Páll Halldórsson framkvæmdastjóri tók við yfirstjórn safnsins af honum. Húsrými Byggðasafns Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga í Skóg- um er fyrir löngu orðið of lítið, og er í ráði að auka það á næstu árum. Hefur verið tekin ákvörðun um að byggja upp nokkur gömul bæjarhús í nágrenni safnhússins, og var haustið 1968 hafizt handa um undirbúningsvinnu að því að koma upp baðstofu frá Arnarhóli í Landeyjum, sem tekin var ofan fyrir nokkrum árum og geymd hefur verið í safninu síðan, en fleiri gömul hús eru austur þar, sem flutt munu verða að Skógum og látin mynda samstæða bæjarheild. Með þessu má skapa dæmigerðan bæ úr þessum landshluta jafnframt því sem léttir á núverandi sýningarhúsnæði og nýtt skapast, en auðvitað verður þessi bær nokkuð óekta sem heild, þótt hvert hús sé raunveru- legt. Skógasafn hefur alla tíð verið mjög vel sótt, og er það ekki sízt að þakka ötulli forsjá Þórðar Tómassonar safnvarðar. Önnur byggðasöfn störfuðu á sama hátt og áður. Ekkert nýtt safn er í uppsiglingu sem stendur, sbr. þó það, sem segir um Dalasýslu, en nokkrar umræður hafa orðið um byggðasafnsmál á Austfjörð- um. Safnið á Skriðuklaustri mun ekki hafa verið opið til sýningar um nokkurra ára skeið, en allt er í óvissu um það, hvort þetta safn verður eitt fyrir Austfirði í framtíðinni eða hvort einhver bygg'ðar- lög stofni eigin söfn. Þyrftu viðkomandi héruð sem fyrst að leggja hreinar línur í þeim efnum. Fornleifarannsóknir og fornminjavarzla. Vegna þeirra breytinga, sem urðu á starfsliði safnsins á árinu, var'ð minna um fornleifarannsóknir en gert var ráð fyrir. Aðalverkið í þeim efnum var rannsókn lítillar kirkjutóftar á Varmá í Mosfells- sveit. Ráðgert hafði verið að hefja byggingu skólahúss við gömlu bæjarrústirnar á Varmá, og var safninu gert viðvart, ef það vildi athuga þær. Rústirnar þóttu ekki sérlega athyglisverðar, en í nánd við þær virtist móta fyrir kirkjutóft í kringlóttum garði, en getið er kirkju á Varmá í Vilkinsmáldaga 1397 og síðan í skjölum allt fram um 1600. Var þeim Sveinbirni Rafnssyni fil. kand. og Helga H. Jónssyni