162 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS Minningarsjóður Ásu Guðmundsdóttur Wright. Á þessu ári var stofnaður sjóður, sem heitir Minningarsjóður Ásu Guðmundsdóttur Wright, og skal hann vera í vörzlu Þjóðminjasafns- ins og efla tiltekinn þátt í starfsemi þess. Svo sem þráfal'dlega hefur komið fram í ársskýrslum undanfarinna ára, hefur frú Ása G. Wright, búsett á Trinidad í Vestur-Indíum, gefið safninu fjölmargar góðar gjafir í gripum og bókum. Hefur þjóðminjavörður staðið í nokkuð óslitnum bréfaskiptum við hana í sambandi við þessar gjafir. Loks talaðist svo til milli þjóðminjavarðar (K. E.) og hennar á síðastliðnu ári og þessu, að hún gæf i saf ninu sj óð, sem til þess væri ætlaður að gera áð veruleika gamlan draum, nefnilega að safnið hefði óháð peninga- ráð til þess að bjóða hingað heim á sínum vegum einum erlendum safnmanni eða fræðimanni á ári til þess að flytja fræðilegan fyrir- lestur, og yrðu síðan fyrirlestrarnir gefnir út jafnharðan sem rit- röð. Eru víða fordæmi um slíka sjóði og svipað fyrirkomulag. Frú Ása stofnaði síðan sjóðinn með 20 þúsund Bandaríkjadala framlagi og eru peningarnir ávaxtaðir í bönkum í Bandaríkjunum. Var tilkynnt um sjóðinn hinn 1. des. 1968, og hafði þá verið gengið frá skipulags- skrá, sem rétt þykir að birta hér, enda kemur þar nánar fram, hvernig ætlað er að sjóðurinn vinni og nái tilgangi sínum: Skipulagsskrá fyrir Minninga-rsjóð Ásu Guðmundsdóttur Wright 1. gr. Sjóðurinn heitir Minningarsjóður Ásu Guðmundsdóttur Wright og er stofnáður árið 1968 með 20 þús. Bandaríkjadala framlagi til minn- ingar um eftirtalda ættingja hennar og vandamenn: Foreldra hennar Arndísi Jónsdóttur háyfirdómara Péturssonar (18571936) og Guðmund Guðmundsson lækni (18531946). Mann hennar Henry Newcome Wright, LL.D., F.R.G.S., F.L.S., F.R.A.S. (18841955). Systkini hennar Sturlu Guðmundsson (d. 1910), Sigþrúði Guð- mundsdóttur (d. 1905), og Þóru Guðmundsdóttur Hermannsson (d. 1918). Móðursystur hennar Þóru Jónsdóttur (d. 1947) og Jón Magnússon forsætisráðherra (d. 1926). Móðurbræður hennar Friðrik Jónsson, cand. theol., (18601938) og Sturlu Jónsson kaupmann (18611947).