164 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS Þetta er höfðinglegasta gjöf, sem Þjóðminjasafninu hefur nokkurn tíma borizt. Svo ríflegur er sjóðurinn, að hann á fyllilega að standa undir einu slíku fræðimannsboði árlega, og væntir safnið sér hins bezta af starfsemi hans. Er það mikilla þakka vert, þegar menn láta svo ríflega af hendi rakna til menningarmála, og hefur frú Ása gengið hér myndarlega fram fyrir skjöldu öðrum til góðs eftirdæmis. Fyrir stórgjafir hennar allar til Þjóðminjasafnsins svo og til Vísindafélags íslendinga, sem hún gaf aðra eins upphæ'ð, sæmdi forseti íslands frú Ásu riddarakrossi hinnar íslenzku fálkaorðu. Þ.M. >