Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1972, Blaðsíða 56
60
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
verið til að hita húsið og þvottavatn, enda er líklegt, að steinarnir,
sem lágu á vestanverðu gólfi, hafi verið hitaðir á ofninum og settir
síðan í vatn til hitunar. Einnig er sennilegt, að vatn hafi verið
gefið á ofninn til að gera gufu, en óhreinu vatni síðan veitt burt
um lokræsið. Varla hefur verið ástæða til að hafa slíkt ræsi, ef
ekki hefði verið borið talsvert vatn í húsið. — Bekkir úr tré hafa
síðan verið meðfram veggjum, þar sem menn gátu setið á eða legið.
Önnur skýring á notkun hússins er vart líklegri. Þótt erlendis
finnist oft kljásteinar eða aðrir smáhlutir, sem benda til hannyrða
kvenna í slíkum húsum, var því vart til að dreifa hér. Að vísu
fannst einn og einn kljásteinn, eða steinn sem gæti hafa verið kljá-
steinn, en þeir voru nánast lausafundir og segja lítið um það, hvort
vefstaður hafi verið í húsunum eða ekki.
Hin jarðhúsin í Hvítárholti voru nánast að kalla eins og hið
fyrsta, að því undanteknu, að ræsi voru ekki frá þeim. Eldstæðin
voru einnig misjafnlega vönduð, sums staðar aðeins leifar einar
eftir, eða að umbúnaður hefur nánast enginn verið í upphafi, en í
einu húsi öðru, húsi IV, var myndarlegur ofn úr grjóti, þó mjög
einfaldur. Er heldur ólíklegt, að húsin hafi verið höfð til fastrar
íveru; þau hafa verið loftlaus og rakasöm að ætla má og virðist því
mega telja, að þau hafi aðeins verið notuð skamma stund í einu,
og þá kemur baðstofan mjög til greina. Virðist mér næst að ætla,
að húsin hafi öll verið baðstofur, notaðar á ýmsum tímum. Til þessa
bendir einkum ofninn eða eldstæðið í húsunum, ræsið í einu þeirra
og ummerkin, þótt lítil væru, eftir palla meðfram veggjum12.
Erfitt er að segja um innbyrðis tímaröð jarðhúsanna, enda eru
þau næsta lík hvert öðru. Greinilegt er þó, að hús X er eldra en
skálinn, hús IX, að minnsta kosti eldra en útbyggingin, þar sem
það var undir henni, en hún er að öllum líkindum jafngömul skálan-
um. Líklegt má telja, að þetta hús tilheyri elzta byggingarskeiðinu,
skálanum, húsi III, en um innbyrðis aldur hinna húsanna er erfið-
ara að segja. Aðeins eitt þeirra, hús IV, var greinilega fyllt með
eldösku og sorpi, og hefur hún sennilega komið frá skálanum,
húsi VIII, þar eð jarðhúsið er svo skammt frá honum. Ætti það því
einnig að vera frá elzta byggingarskeiðinu. Að vísu er það nokkurn
spöl frá elzta skálanum, en ekki þarf beinlínis að breyta neinu,
enda má benda á, að enginn skáli fannst nærri austasta jarðhúsinu,
húsi VII, þótt auðvitað sé ekki loku fyrir það skotið, að skáli kynni
að hafa verið enn austar, þar sem nú var búið að rækta upp tún