Fréttablaðið - 23.04.2001, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 23.04.2001, Blaðsíða 11
MÁNUPAGUR 23. april FRÉTTABLAÐIÐ 11 Húseigendur vildu styrk: Bærinn vill ekki borga garðabær Eigendur hússins að Lyng- móum 2 í Garðabæ, hafa leitað til bæjaryfirvalda í Garðabæ og óskað þess að bæjarsjóður greiði rúmar 600 þúsund krónur vegna lagfæringa eft- ir að svalahandrið féll af einum svöl- um hússins. Nauðsynlegar lagféhiúngar kost- uðu 663 þúsund krónur og hefur bæj- arráð hafnað óskum íbúanna. í erindi húseigendanna er getið um að heildarkostnaður vegna við- gerða hússins sá langtum hærri - eða 2,5 milljónir króna á hverja íbúð hússins. ■ LYNGMÓAR 2 í GARÐABÆ HÚSIÐ ÞAR SEM SVALAHINDRIÐIÐ FÉLL Húseigendurnir leituðu til bæjarins í von um styrk - en var hafnað. Danskt sjúkrahús flytur út líffæri í trássi við lög: Danir græða gnótt á hornhimnum líffæri Líffærabanki á sjúkrahúsi Ár- ósa í Danmörku græðir á útflutningi danskra líffæra á alþjóðlegan mark- að. Viðskiptin eiga sér stað þrátt fyr- ir að bannað sé með dönskum lögum að hagnast af líffærasölu. í fyrra dreifði líffærabankinn í Árósum um 200 hornhimnum til sjúkrahúsa utan Danmerkur og var verðið á hverri þeirra 1000 dkr., um 11 þús. ísl. kr., hærra en dönsk sjúkrahús greiddu fyrir himnurnar. Hornhimna kostar 4000 dkr. á danska markaðnum en líffærabankinn fær 5000 dkr. fyrir hana á alþjóðlegum markaði. Niels Ehlers forstöðumaður bankans telur að gróðinn á ári á sölu hornhimna úr landi nemi um 200.000 dkr. Dönsk löggjöf kveður á um að söluverð líffæris megi ekki vera hærri upphæð en sc-m neinur kostn- aði við geymslu, eftirlit og dreifingu en Ijóst er að ekki er farið að þessum lögum á sjúkrahúsinu í Árósum. Heil- brigðisyfirvöld í Árósum hafa farið fram á skriflega greinargerð um mál- ið frá stjórn Árósasjúkrahússins. ■ ISLENSKIR NYBUAR ,,Hef sótt um ótal mörg störf en alltaf verið hafnað“ Salah Karim er 31 árs Kúrdi sem hefur búið á Islandi síðan 1996. Hann er menntaður tæknifræðingur en hefur ekki fengið starf hér á landi sem tengist menntuninni nýbúar Fljótlega eftir að Salah Karim kom til Island sótti hann um inn- göngu í Tæknifræðingafélag íslands. Hann fékk sent félagskírteinið sköm- mu síðar. Síðan þá eru liðin nokkur ár og enn er Salah að vinna á sama stað og hann byrjaði, Kassagerðinni. „Ég hef sótt um ótal störf en alltaf verið hafnað," segir Salah. „Auðvitað er það mjög erfitt að fá alltaf neitun en ég er eigi að síður viss um að þetta mun ganga að lokum.“ Salah er mjög látlaus og rólegur þegar hann segir sögu sína. Ekki gætir beiskju hjá hon- um þrátt fyrir að svo erfiðlega gangi að finna vinnu og honum sýnist reyndar að „íslendingar geti skipt um vinnu einu sinni í mánuði." ...^... Salah segir að honum hafi oft „Stundum hefur verið tekið mjög verið sagt við ve] þjá þeim fyrir- mig að ég eigi tækjum sem hann 75°/o líkur á starf- hefur sótt um inu sem ég er að vinnu hjá. „Stund- sækja um en á um hefur verið endanum hef ég sagt við mig að ég ekki fengið það." eigi 75% líkur á starfinu sem ég er að sækja um en á endanum hef ég ekki fengið það.“ Aðspurður hvort að hann telji að hann fái ekki vinnu vegna þess að hann er nýbúi og talar ekki lýta- lausa íslensku segir Salah að sú skýring sem vinnuveitendur gefi honum ávallt sé sú að hann hafi enga reynslu í faginu, þeir hafi margir sagt honum að þeir hafi áður verið með útlendinga í vinnu hjá sér, sum fyrirtæki krefjist reyndar þekkingu á Norðurlanda- málum vegna samstarfs við fyrir- tæki þar í landi. Aðrir benda honum á að bæta við sig námi í háskólum hér á landi. „Ég var í tveggja mánaða fríi í vinnunni í vetur og fór á tölvunámskeið," segir Salah sem segist vissulega hafa áhyggjur af því að hann gleymi ein- hverju því sem hann lærði í háskólan- um. „Ég held samt í vonina um að þetta muni ganga að lokum, að mér verði gefið tækifæri, þannig var þetta hjá bróður mínum, sem einnig er tæknifræðingur, hann kom hingað á undan mér og fékk eftir margra ára leit vinnu á Orkustofnun." Salah fet- aði nefnilega í fótspor bróður síns á sínum tíma þegar hann flutti til ís- lands. Flúði er kannski réttara því ekki á hann afturkvæmt á heimaslóð- ir sínar sem eru í þeim hluta Kúrdist- an sem lýtur stjórn íraka. SALAH KARIM Hann heldur I þá von að fái að lokum starf þar sem menntunin nýtist. Bróðir hans kom hingað nokkru á undan honum og eftir nokkurn tíma fékk hann starf. Á síðasta ári kom eiginkona hans svo til landsins, hún er menntaður enskukennari en vinnur eins og stendur við hlið eiginmanns síns, í Kassagerðinni. sigridur@frettabladid.is Kóreumenn stefna Islend- ingum fyrir meiðyrði Þeir segja Heilsuverslun Islands ekki aðeins hafa nýtt kóreskt eðalginseng - heldur einnig oflofað kínverkst ginseng. Löngum hefur ágæti þessarar jurtar valdið deilum hér á landi - nú fer mál í fyrsta sinn fyrir dóm dómsmAl Hrafnkell Ásgeirsson hæstaréttarlögmaður hefur stefnt forráðamönnum Heilsuverslunar ís- lands til að fá ummæli dæmd dauð og ómerk. Það er að ósk kóreska fyr- irtækisins, Korea Ginseng Corp., sem Hrafnkell stefnir. Ástæða máls- ins er að í auglýsingu, sem birtist í Morgunblaðinu 11. febrúar, kom eft- irfarandi fram: í Kóreu er notuð svokölluð Nin- tensivei ræktun sem þýðir að jurtin vex f 4-6 ár til að ná hæstu gæðum áður en hún er tekin og unnin. Þá líða önnur 2-3 ár áður en nýjum fræjum er sáð en biðtíminn stafar af hreinsun jarðvegsins sem hefur skaðast af völdum eiturefna sem ginsengrótin gefur frá sér. Hins vegar er ekki nóg að aðeins líði nokkur ár til þess að lífrænn jarð- vegur öðlist örverufræðilegt jafn- vægi aftur. í Kóreu er jarðvegurinn því oft á tíðum bættur með kemísk- um efnum, bæði skordýrareitri og tilbúnum áburði þar sem örveru- fræðilegt jafnvægi er ekki til staðar verður ginsengið mun viðkvæmara fyrir skaða af völdum skordýra og sveppa og kallar það á enn frekari notkun skordýraeiturs. Þetta segja Kóreumenn vera örg- ustu öfugmæli og krefjast þess að þessi ummæli verði dæmd dauð og ómerk. Þetta er reyndar ekki allt. Kóreska fyrirtækið vill einnig að dæmd verði dauð og ómerk orð í sömu auglýsingu þar sem segir: Mun- urinn er hins vegar sá að í Kína notum alls engan áburð og því engin köfn- unarefni, í flestum tilfellum ekkert skordýraeitur en ef þurfa þykir skordýraeitur, þá í algjöru lágmarki. Kóreumenn telja sig vita betur og vilja þess vegna að hvoru tveggja verði dæmt dautt ómerkt - hrakyrð- in sem þeir segja vera viðhöfð um þeirra vöru og oflof sem þeir segja vera um samkeppnisvöru frá Kína. Auk ómerkingarinnar vilja þeir fá málskostnað greiddan svo og 250 UMDEILD HOLLUSTA Langvinnar deilur um gæði kóresks og kín- versks ginsengs eru nú komnar til dóm- stóla að frumkvæði kóresks fyrirtækis. þúsund krónur til að standa straum af kostnaði við birtingu dómsins í fjölmiðlum. -sme@frettabladid.is Demantar í Kongó: Umdeildum samningi rift KINSHASA (AP) Ríkisstjórn Kongó tilkynnti um helgina að hún hefði ógilt einokunarsamning um demantaútflutning sem fyrrverandi forseti, Laurent Kabila, gerði í júlí á síðasta ári. Samingur Kabila, sem myrtur var í janúar, við fyrirtækið er einn sá umdeildasti sem hann gerði í embættistíð sinni. Kongó, er þriðji stærsti demantaútflytjandi heims. Talið er að fyrirtækið, sem er ísra- elskt, hafi fallist á að greiða ríkis- stjórn Kabila andvirði tæplega 2 milljarða ísl. kr. fyrir samninginn. Samkvæmt skýrslu SÞ var samning- urinn „stórslys" fyrir demantaversl- un í Kongó. ■ Heimsókn fyrrverandi forseta Tævan til Japans: Kínverjar reittir til reiði Lee Teng-hui, fyrrverandi forseti Tævan, kom til Japans í gærkvöld að staðartíma. Hætta er á að heimsókn- in muni hafa alvarleg áhrif á tengsl Japan og Kína en kínversk stjórnvöld hafa gagnrýnt japönsk harðlega fyrir að veita Lee vegabréfsáritun. Þau saka Lee um að hafa staðið í vegi gegn því markmiði að sameina Tæv- an Kína. Lee leitar sér lækninga í Japan. Ríkisstjórn Japan klofnaði í afstöðu sinni til leyfisveitingarinnar vegna andstöðu Kínverja. ■ IlögreglufréttirI Andrésar andar leikunum var slit- ið á laugardag og að sögn lög- reglunnar á Akureyri urðu engin óhöpp á fólki og fóru leikarnir í alla staði vel fram. Annars var helgin ró- leg hjá lögreglunni og að sögn eins lögreglumanns þótti honum líklegt að fólk væri enn að jafna sig eftir páskahelgina. Lögreglan á Eskifirði rannsakar lát tvítugrar stúlku sem fannst um miðjan dag síðastliðinn miðviku- dag í einbýlishúsi á Neskaupstað. Dánarorsök er talin lyfjaofneysla. Ekki fékkst staðfest um hvaða lyf hafi verið að ræða en enn er beðið réttarfræðilegra rannsókna. Að sögn lögreglunnar á Eskifirði er málið vel á veg komið og að ekkert bendi til þess að stúlkan hafi fengið lyfið með ólöglegum hætti á sjúkra- húsinu þar sem hún starfaði. Bensínsprengju eða Molotov-kok- teil var varpað á Sendiráð Bandaríkjanna við Laufásveg að- faranótt laugardagsins. Lögreglan handtók tvo menn á fimmta tíman- um sem grunaðir voru um verknað- inn. Skemmdir urðu óverulegar. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík hefur mönnunum verið sleppt úr haldi en lokayfirheyrsla yfir einum þeirra átti að fara fram í gær. Málið telst að fullu upplýst.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.