Fréttablaðið - 24.04.2001, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 24.04.2001, Blaðsíða 1
MANNLÍF Eg hef sótt um 500 störf segir Erzjana bls 11 FÓLK Fjölskylda NBA- stjörnu laus úr gíslingu bls 12 b- MENNING Gerla situr og saumar í Ný listas afninu bls 18 ► Cheenos - einfaldlega hollt! FRETTABLAÐIÐ 1: 2. tölublað - 1. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Þriðjudagurinn 24. apríl 2001 ÞRIÐIUDAGUR Enskupróf hjá 10. bekk Samræmdu prófin halda áfram í dag. Nú er komið að ensku en 92- 98% 10. bekkinga eru skráðir til prófs. bls. 4 Aðalfundur Línu.Nets Hið umdeilda fyrirtæki Lína.Net heldur aðalfund sinn í dag. Á blaða- mannafundi var tilkynnt um að á næstu vik- um bjóði fyrirtækið internet- aðgang um rafmagnssnúrur. bls. 6 [ VEÐRIÐ I DAC | REYKJAVÍK Hæg suðlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og stöku skúrir. Hiti ___________ á bilinu 3-8 stig. ísafjörður VINDUR (5 3-8 ÚRKOMA skúrir HITI 02 Akureyri O 2-5 skúrir 03 Egilsstaðir © 2-5 skúrir 04 Vestmannaeyjar ©25 skúrir ©6 ísland U21 og Malta leika í Gozo Ungmennalið íslands og Möltu mætast í undankeppni Evrópu- keppninnar á Möltu kl. 14 að ís- lenskum tíma. bls. 14 !KVÖLDIÐ í KVÖLDT Tónlist 18 Bíó 16 Leikhús 18 íþróttir 14 Myndlist 18 Sjónvarp 20 Skemmtanir 19 Útvarp 21 Þríburar fæddust í Reykjavík í gær Þrír hraustir drengir teknir með keisaraskurði 2 mánuðum fyrir tímann. Fyrstu börn foreldra sinna. Þrír drengir komu í heiminn á fæðingardeild Landspítalans rétt fyr- ir klukkan sjö í gærmorgun. Drengirnir sem eru fyrstu börn for- eldranna, Halldórs Gerhards Meyer og Sifjar Svavarsdóttur, voru teknir með keisaraskurði en þeir fæddust nær tveimur mánuðum fyrir tímann. „Það kom í ljós þegar við fórum fyrst í sónar, eftir 19 vikur, að börnin voru þrjú en ekki eitt eins og við höfð- um búist við,“ segir alsæl móðirin. „Það sást lítið sem ekkert á mér og því áttum við alls ekki von á þessu. Við erum búin að fara í gegnum allan tilfinningaskalann eftir að við frétt- um af þessu. Við höfum bæði fundið til ofsagleði og velt því fyrir okkur hvernig þetta geti gengið upp.“ Það er ljóst að það gjörbreytir lífi þeirra Sifjar og Halldórs að eignast þrjá syni á einu bretti. „Við vorum ný- búin að standsetja íbúð á fjórðu hæð í ENGIN TÆKNIFRJÓVGUN Kári, Logi og Máni eiga þeir að heita litlu bræðurnir sem flytja um mánaðamótin úr Álftamýri í rúmbetra húsnæði. blokk í Álftamýrinni þegar kom í ljós að Sif væri ófrísk,” segir Halldór. „Ég var búinn að segja að þarna kynni ég vel við mig og að það kæmi ekki til greina að ég flytti á næstu árum. Dag- Aukin afnotagjöld Langmikilvægasti grundvöllur fjármögnunar RÚV, segir í greinargerd útvarpsstjóra rúv Markús Örn Antonsson útvarps- stjóri hefur ritað 10 síðna tillögur um framtíð Ríkisútvarpsins þar sem sú framtíðarsýn kemur fram að afnota- gjöld og opinberir styrkir verði ásamt auglýsingatekjum áfram helsti fjár- hagslegi grundvöllur Ríkisútvarpsins. Skoðun Markúsar er sú að efla verði þessa tekjuleið útvarpsins. „Fjár- mögnun með afnotagjöldum verður áfram langmikilvægasti grunsdvöllur fjármögnunar RÚV,“ segir í tillögun- um. „Það verður í ríkari mæli nauð- synlegt aö gefa fyrirtækjum í al- mannaþjónustu aukið svigrúm og hvatningu, þar með talin fjármögnun, þannig að veita megi viðnám gegn sókn stórra alþjóðlegra fyrirtækja inn á íslenskan markað.“ I skýrslu Markúsar er birt sóknar- áætlun Rikisútvarpsins i samfélagi örrar tækniþróuna og ljóst er að út- MARKÚS ÖRN ANTONSSON. I tillögum sem Mark- ús Örn Antonsson hefur ritað kemur fram að stofnunin ætlar að taka fullan þátt í örri tækniþróun. varpsstjórinn ætlar stofnun sinni að nýta til fulls þau tækifæri sem tæknin býður upp á til að auka fjölbreytni bæði í efni og möguleikum á miðlun þess. Búist er við að nettófjölgun greið- enda afnotagjalda verði árlega um 1000 næstu fimm árin. „Það er því ljóst að hækkun gjaldskrár í krónutölu hefur afgerandi áhrif á heildartekjur á tímabilinu 2001-2005, segir þar. ■ 3L inn eftir að ljóst varð að börnin væru þrjú fórum við og settum íbúðina á sölu. Skömmu síðar vorum við búin að 1 ÍPRÓTTIR Svifflugurfá uppreisn æru SÍÐA 14 ► | FÓLK 1 Hleypur til aö efna kosningaloforð SÍÐA 16 ► selja og festa kaup á nýrri íbúð sem hentar betur við þessar aðstæður. Við fáum nýju íbúðina afhenta um mán- aðamót og ætluðum að vera flutt áður en börnin kæmu í heiminn enda var von á þeim um miðjan maí. En það gekk ekki alveg eftir.” Halldór og Sif voru ekki búin að reyna lengi að eignast börn. „Sif var nýhætt á pillunni þegar börnin komu undir,” segir Halldór. „Þegar fólk frétti af því að Sif gengi með þríbura gerðu flestir ráð fyrir því í fyrstu að við hefðum farið í glasafrjóvgun. Svo var ekki en við þurftum samt að leið- rétta þann misskilning.” Sif og Halldór segja langt síðan þau hafi ákveðið nöfnin. Ár er nú liðið frá því þau ákváðu að það væru þrjú nöfn sem kæmu til greina: Kári, Logi og Máni. Þau áttu hins vegar alls ekki von á því að þeim gæfist tækifæri til að nota þau öll eftir fyrstu fæðingu. ■ 1 PETTA HELST | Maðurinn sem lést í vélsleðaslysi síðastliðinn laugardag hét Þor- lákur Sigtryggsson til heimilis að Svalbarði í Þistilfirði. Hann lætur eftir sig eiginkonu og sex börn. Slysið varð skamnlt frá Öxafjarðar- heiði, en Þorlákur var á leið á björg- unarsveitaræfingu þegar vélsleði hans hafnaði ofan í gilskorningi. Hann lést samstundis. —♦— A' fundi framkvæmdastjórnar Framsóknarflokksins sem hald- inn var í hádeginu í gær var ákveðið að ráða Árna Magnússon, aðstoðar- mann utanríkisráðherra, sem fram- kvæmdastjóra Framsóknarflokks- ins. Hann mun jafnframt verða framkvæmdastjóri þingflokks fram- sóknarmanna samkvæmt því er kveðið er á um í nýjum lögum flokksins sem samþykkt voru á síð- asta flokksþingi. Egill Heiðar Gísla- son sem verið hefur framkvæmda- stjóri flokksins síðustu ellefu ár mun hverfa til annarra starfa.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.