Fréttablaðið - 02.05.2001, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 02.05.2001, Blaðsíða 18
FRÉTTABLAÐIÐ 2. maí 2001 ÍVIIÐVIKUDACUR HVERJU MÆLIR ÞÚ MEÐ? Magnús Þór Gylfason Framkvæmdastjóri SUS Ég mæli með að menn finni sér reglulega tækifæri til að gera sér glaðan dag og bregða út af vananum. Til dæmis með þvf að sækja listviðburði og flagga íslenska þjóð- fánanum á hátíðisdögum. Fyrirlestur um japanskt handverk Helgiathafnir sem tengjast smíðum fyrislestub Arkitektinn Michael And- erson, sern er sérfræöingur í japönskum arkitektúr og smíðaað- ferðum, verður með fyrirlestur og sýnikennslu á vegum umhverfis- og byggingarverkfræðiskorar Háskóla íslands, í kvöld kl. 16, í húsi verk- fræðideildar Hjarðarhaga 2-6, í stofu 158. Michael Anderson lærði sjálfur hjá frægum japönskum trésmíða- meistara og hefur rekið arkitekta- stofu í Osaka. Hann hefur einnig starfað víða um lönd og verið kennari við Berkeley- og Cambridge háskóla. Michael mun lýsa hefðum og helgiat- höfnum sem smíðunum tengjast og loks verður sýning á verkfærunum og sýnt hvernig þau eru notuð. Ef áhugi væri á að stuðla að byggingu japansks tréhúss á íslandi, væri gott að taka það til umræðu í lok fyrirlest- ursins. Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Fundarstjóri er 'frausti Valsson, arki- tekt og skipulagsfræðingur. ■ Breakbeat.is á Gafé 22 Allt það nýjasta í drum & bass tónlist Stöðugustu klúbbakvöld Reykjavíkur eru Breakbeat.is-kvöld- in sem haldin eru á Café 22. Fyrsta miðvikudagskvöld hvers mánaðar er hægt að ganga að nýjustu og fersk- ustu jungle; drum & bass og break- beat tónunum vísum á staðnum og í kvöld er engin undantekning. Þá mun Breakbeat.is hópurinn snúa skífum ásamt sérstökum gestum. Á efri hæðinni leika þeir plötu- snúðarnir Addi, Eldar og Reynir ásamt MC Sezar A. Gestaleikari verður dj. Óskar. Á neðri hæðinni leika dj. Kristinn og Gauti „tjill og grúv“ tónlist. Aðgangseyrir er 300 krónur fyrir 23 en 500 krónur eftir það. Kvöldið hefst klukkan 21 og er 18 ára aldurs- takmark. ■ Listasafn Reykjavíkur: Húmoristi hversdagsins sýninc Bandaríkjamaðurinn John Baldessari er eitt af stóru nöfnunum í samtímalistasögunni, og af þeirri ástæðu einni er full ástæða til þess að skoða sýningu hans í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu. Yfir- skrift sýningarinnar er: „Á meðan eitthvað er að gerast hér, er eitthvað annað aö gerast þar“. Baldessari hef- ur verið nefndur ljóðskáld hinnar öf- ugsnúnu fagurfræði og húmoristi hversdagsleikans. Sýningin er opin til kl. 19 í kvöld, en hún stendur til 17. júní. 18 Myndasýning í Nanoq Göngu- og trukkaferðir í 83 löndum mynpasýninc Myndasýning verður haldin í versluninni Nanoq í Kringl- unni í kvöld kl. 20.30. Þar verða kynntar ferðir á vegum Exodus sem er stærsta ævintýraskrifstofa í heimi en þessi myndasýning er sú stærsta sem Nanoq hefur staðið fyrir hingac til. Kynnir á myndasýningunni verð- ur Paul Goldstein en hann er þekktur fararstjóri og atvinnuljósmyndari. Ævintýraferðaskrifstofan Exodus er þekktu'st fyrir göngu-, skoðunar- og trukkaferðir í 83 löndum, auk ann- arra ferða í öllum álfum heims. ■ MIDVIKUDACURINN 2. MAÍ FUNDUR______________________________ 16.15 María B. Steinarsdóttir heldur fyrirlestur í dag um 4. árs-verkefni sitt: Líffræðí ættkvíslarinnar Harpacticus (Copepoda; Harpact- icoida) í flotþangi og mikiivægi hennar sem fæðu hrognkelsa- seiða (Cydopterus lumpus) Fyrir- lesturinn verður haldinn í stofu C- 6 að Grensásvegi 12. TÓNLIST_____________________________ 20.00 Hljómsveitin Dúndurfréttir leikur í kvöld á Gauki á Stöng. Hljóm- sveitin Dúndurfréttir mun hrista fram hvern slagarann á fætur öðr- um. Ekki missa af því. 21.00 Jungle, breakbeat og drum & bass tónar og víbrar verða í aðalhlut- verki á Café 22 f kvöld. Tilefnið er að hið mánaðarlega BreakbeaLis kvöld. Plötusnúðar Breakbeatis eru; Dj. Addi og dj. Eldar (Skýj- um ofar) og dj. Reynir (Tækni/El- ectronica). Auk þeirra munu svo dj. Óskar og MC Sezar A snúa skífum. Dj. Kristinn og dj. Ingvi verða með „tjill" og „grúv" á neðri hæðinni. Aðgangseyrir á Break- beatis er 300 krónur (500 krónur eftir 23) og aldurstakmarkið mið- ast við 18 ár. 22.00 Dj Tommi White og félagar hans halda uppi grúvaðri djúp hús stemmningu á Café Ozio á mið- vikudagskvöldum. Enginn að- gangseyrir. LEIKLIST____________________________ 10.00 Möguleikhúsið er á ferð um landið með Lómu. I dag verður hún á Sæluviku í Skagafirðinúm og sýnir þar leikrið Mér er alveg sama þótt einhver sé að hlæja að mér. 20.00 Nemendaleikhúsið og Hafnar- fjarðarleikhúsið sýna í kvöld Platanof eftir Anton Tsjekhov. Miðaverð 700 kr. 20.00 i Þjóðleikhúsinu er sýning á leik- ritinu Laufin í Toscana eftir Lars Norén. Leikritið fjallar í stuttu máli um skandinavíska stórfjölskyldu sem kemur árlega saman á Ítalíu til að treysta böndin, en smám saman áttar hún sig á því að heimurinn er að breytast. Meðal leikenda eru Erlingur Gíslason og Valdimar Flygering. Leikstjóri er Viðar Eggertsson. 20.00 í anddyri Borgarleikhússins í kvöld fjallar Hrafnhildur Hagalín Guð- mundsdóttir um Dag vonar eftir Birgi Sigurðsson. 20.00 Með fulla vasa af grjóti eftir Marie Jones verður sýnt í kvöld í Þjóðleikhúsinu. Leikritið fjallar á gamansaman hátt um samskipti írskra statista við framleiðendur Waldoifskólinn Listrænt og verklegt nám lagt að jöfnu sýning Waldorfleikskólinn Ylur og Waldorfskólinn Lækjarbotnum fagna 10 ára starfsafmæli um þessar mund- ir. Af því tilefni er kynning á starf- semi skólanna í Borgarbókasafni Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, til 6. maí. Skólarnir starfa út frá hug- myndum Rudolf Steiners þar sem listrænt, verklegt og bóklegt nám er lagt að jöfnu. BÖRN AÐ LEIK Ein myndanna sem sjá má á sýningunni. Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir fjallar um leikrit aldarinnar: „Hafði mikil áhrif á mig“ leiklist Borgarleikhúsið hefur í vet- ur fengið valinkunna rithöfunda til þess að velja sér leikrit til að fjalla um. í kvöld er komin röðin að Hrafnhildi Hagalín Guðmundsdótt- ur, sem ætlar að fjalla um Dag von- ar eftir Birgi Sigurðsson. Leikfélag' Reykjavíkur frum- sýndi Dag vonar í Iðnó 11. janúar 1987, á 90 ára afmæli Leikfélags Reykjavíkur. Leikstjóri var Stefán Baldursson og leikarar voru Mar- grét Helga Jóhannsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Valdimar Örn Flygenring, Guðrún S. Gísladóttir, Sigríður Hagalín og Sigurður Karlsson. „Auðvitað er erfitt að tína eitt leikrit út og segja að það sé besta leikrit aldarinnar," segir Hrafnhild- ur. „En þegar ég sá að það mætti líka vera leikrit sem hefði haft mik- il áhrif á mig sem höfund, þá kom bara eitt verk upp í hugann.“ - Hafði þetta verk mikil áhrif á þig? „Á sínum tíma, já. Þetta er frá- bært verk, mjög vel skrifað, og sýn- ingin í Iðnó var líka virkilega fín. Þetta var áður en ég byrjaði skrifa og það hafði mjög mótandi áhrif á mig,“ segir hún. „Ég las það aftur núna. Auðvitað er hefðbundið form á því og maður er kominn sjálfur út í aðrar pælingar. En mér finnst verkið samt ekkert hafa fölnað. Það er svo óvenjulegt að sjá íslenskt leikrit þar sem höfundurinn leggur svona mikið undir. Hann er mjög einlægur í þessu verki." Uppákoman hefst kl. 20 og verð- ur í forsal Borgarleikhússins. ■ ÚR UPPFÆRSLU LEIKFÉLAGS REYKJAVÍKUR Á DEGI VONAR Valdimar Örn Flygering og Sigríður Hagalín í hlutverkum sínum. og leikara stórrar Hollywood- myndar. Leikarar eru aðeins tveir: Stefán Karl Stefánsson og Hilm- ir Snær Guðnason. MYNPUST__________________________ Höskuldur Skagfjörð hefur opnað myndlistarsýningu í Ráðhúsi Reykjavík- ur. Höskuldur er sjálfmenntaður lista- maðar og málar aðallega akrýl- og pastelmyndir. Sýningin stendur til 2. maí. Jón Gunnarsson, listmálari, hefur opn- að sýningu á olíu- og vatnslitamyndum f Hafnarborg í Hafnarfirði. Jón er þekktur fyrir sjávarmyndir sinar þar sem hann sýnir störf við fiskveiðar og -vinnslu. Á undanförnum árum hefur Jón ( auknum mæli sótt efnivið sinn í íslenskt landslag, ekki sist í uppland Hafnarfjarðar. Sýning- in er opin milli kl. 11 og 17 alla daga nema þriðjudaga og lýkur 14. maí nk. Jean Posocco sýnír í Sverrissal, Hafnar- borg. Yfirskrift sýningarinnar er Stemmn- ing eða „Ambiance". Á sýningunni eru vatnslitamyndir, flestar unnar á þessu ári. Posocco stundaði nám í Myndlista- | MÁLVERKASÝNING Hugrekki til að Eftir að hafa séð Odd Nedrum í Silfri Egils vissi ég að ég þyrfti að sjá sýningu hans á Kjar- valsstöðum. Þetta var maðurinn sem bað gagnrýnendur sína afsök- unar á því að hafa kallað sig lista- mann! Hann hefur lýst listsköpun sinni sem skítnum í baðkerinu eft- ir að listamenn fóru að þrífa af sér allt það óþægilega og tendra verk sín fallegri ásýnd modernis- mans, sem Odd fyrirleit. Odd er greinilega hugsjóna- maður. Hann heldur uppi hugsjón- um manna til að geta hlaupið aftur til einhvers sem var. Hvort sem það er ríkisvaldið, listagagn- ; rýnendur eða sýningastjórar, þá Kjarvalstaðir: opið fimmtd.-þriðjud. 10-17 Sýningin stendur til 27. maí Aðgangseyrir: kr. 400 fullorðnir. var allt til fyrir þeirra tíma - þeir skipta engu máli og hafa tilhneig- ingu til að kæfa það sem satt er. Ríkið kæfir tjáninguna, gagn- rýnendur frumleikann og sýninga- stjórar djarfleikann. Björgvin Guðmundsson Verkín eru laus við upphafn- íngu uppskafninga; foringja herja eða stjórnmálaflokka. Ínmhmmhwm Þjóðarbókhlaða: Sýning á útsaumuð- um smámyndum sýning Sýningin Myndir úr Maríu sögu eftir Elsu E. Guðjónsson er haldin í Þjóðarbókhlöðu. Á sýning- unni eru átján útsaumaðar smámyndir ásamt frum- sömdum vísum sem skír- skota til sögu hinnar helgu meyjar eins og hún er sögð í Maríu sögu, íslenskri helgisögu frá 13. öld. Þá er á sýning- unni veggteppi með sömu myndum. Myndirnar eru allar unnar í stramma eftir reitarmunstrum, ísaumsbandið er íslenskt kambgarn og saumgerðin gamli krosssaumur- inn sem tíðkaðist hér á landi undir lok miðalda og fram á 19. öld. Elsa E. Guðjónsson lauk BA-prófi í textíl- og bún- ingafræðum og list- og listasögu frá Washington háskóla í Seattle í Banda- ríkjunum 1945 og MA-prófi í sömu aðalgreinum ásamt miðaldarsögu frá sama háskóla 1961. Elsa starfaði sem sérfræðingur og síðar deildarstjóri Textíl- og búninga- deildar Þjóðminjasafns íslands í rúm þrjátíu ár þar til hún fór á eftirlaun 1994. ■ ) l ¥i wfi!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.