Fréttablaðið - 07.06.2001, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 07.06.2001, Blaðsíða 18
18 FRÉTTABLAÐIÐ HVAÐ BORÐAÐIR ÞÚ f KVÖLDMAT? Jóhannes Felixson, bakari Ég borðaði soðna ýsu með hrísgrjónum. Hjá mér er hollustan í fyrirrúmi. Ég borða fisk minnst tvisvar i viku. Svo var náttúrlega brauð með; það er engin máltið án brauðs. Bæjarferð: Karneval- stemmning á Laugaveg- inum kaupmENNSKA í kvöld veröa margar verslanir við Laugaveginn opnar til kl. 20 í tengslum viö nýtt átak sem kaupmenn viö þessa rómuöu verslun- argötu standa fyrir. Átakið nefnist „bæjarferð" og byrjar það fyrsta fimmtudag í hverjum mánuöi og nær hámarki á löngum laugardegi. Dans- arar frá Dansstúdíói Jóhanns Arnars dansa um Laugaveginn, harmonikku- leikarar frá Harmonikufélagi Reykjavíkur spila fyrir gesti og gangandi, fimleikadeiid Stjörnunnar sýnir dansa og gefur blöðrur og ann- að góðgæti. ■ SÆMUNDUR NORÐFJÖRÐ Tækifærin eru til staðar í dag. Spurningin sem við þurfum að velta fyrir okkur er hvernig virkjum við þekkinguna best. Ráðstefna í Salnum í Kópavogi: Virkjun þekkingar pekkingariðnaður. Sæmundur Norð- fjörð, framkvæmdastjóri RSN, segir nú sóknarfæri fyrir íslendinga að huga að nýjum tækifærum og þekk- ingariðnaður sé eitt sem horft er til. Á ráðstefnu, sem er í Salnum í Kópa- vogi kl. 13 í dag, verður fjallað um hvaða ytri aðstæður í þjóðfélaginu séu forsendur þess að við náum að virkja þekkinguna sem best og skapa sem mestu verðmæti. Æðsti yfirmaður Nokia í markaðs- og þróunarmálum, Matt Wisk, mun meðal annarra f jalla um vöxt og þró- un Nokia, en það fyrirtæki var eitt sinn þekkt fyrir skógarhögg og fram- leiðslu vaðstígvéla og er nú leiðandi á fjarskiptamarkaðnum. Að sögn Sæ- mundar hefur hann mikið álit á krafti íslendinga og uppbyggingu íslenskra fyrirtækja. Matt þessi Wisk hefur yf- irumsjón með 700 milljörðum ís- lenskra króna til að fjárfesta í mark- aðs- og þróunarmálum fyrir Nokia Networks. ■ 7. júní 2001 FIMMTUPAGUR Sumarsýningar Kj arvalsstaða: Ekki bara saklaus skreyting MYNDiisT „Söfnin gera það gjarnan að vera með sýningar á sumrin sem eru meira fyrir ferðamenn og fólk sem kemur til Reykjavíkur og eru með yf- irlit á hlutum í eigu safnsins," segir Einar Garibaldi Eiríksson sem hefur sett upp aðra af tveimur sumarsýn- ingum Listasafns Reykjavíkur - Kjarvalsstaða. Sýningin ber nafnið Flogið yfir Heklu. „Eg hélt eitt sinn fyrirlestur undir þessu nafni þar sem ég fjallaði um náttúruskynjun og ákvað að koma með hann hingað á Kjarvalsstaði sem hugmynd að sýningu," segir Einar. „Ég valdi Heklu af því að hún er kannski það í náttúru íslands sem til eru elstu myndirnar af. Þannig er hægt að nota hana sem einhvers kon- ar fókuspunkt til þess að lesa sögu sjónskynsins í gegnum tíðina. Það hefði verið mjög einföld og auðveld leið að velja allar helstu og fallegustu Hekiumyndirnar okkar og láta þær standa hérna í einhverju þöglu sam- þykki. Það vill oft gleymast að mynd- listin er ekki bara einhver saklaus skreyting til þess að setja upp á vegg heldur aðferð til þess að benda á hluti sem eru mikilvægir í umræðunni." ■ EINAR GARIBALDI OG HEKLUMYND KJARVALS „Það má segja að þessi sýning sé næstum því eins og fyrirlestur eða dálitil útlegging." FIMMTUDAGURINN __________7. JUNÍ__________ Fundir_____________________________ 16.00 Síðasti fundur Landverndar um áhrif og afleiðingar Kárahnjúka- virkjunar. Kristín Einarsdóttir líf- eðlisfræðingur og fyrrverandi al- þingismaður, kynnir samantekt sína á helstu niðurstöðum fundaraðarinnar, en hún hefur tekið að sér að stjórna þessari umfjöllun fyrir hönd Landverndar. 16:15 mun Catherine O. Ringen pró- fessor við Háskólann í lowa held- ur fyrirlestur í boði íslenska mál- fræðifélagsins í stofu 304 í Árna- garði. Fyrirlesturinn verður á ensku og nefnist „The Feature [spread glottisj in German". Catherine O. Ringen hefur skrifað fjölda greina þar á meðal um sér- hljóðasamræmi í finnsku og ung- versku og íslenska hljóðkerfis- fræði og er nýorðínn ritstjóri tíma- ritsins Nordic Journal of Linguist- ics. 17.00 George Eisler mun flytja fyrirlest- ur um þróun ethernets á vegum IEEE á íslandi í húsakynnum verkfræðideildar Hl, VR-II stofu 158. Fyrirlesturinn er öllum opinn. George Eisler hefur meira en 30 ára reynslu sem frumkvöðull í há- tækniheiminum og hefur verið virkur þátttakandi í tölvu- og fjar- skiptabyltingunni. Hann hefur unnið að þróun staðla fyrir stað- arnet (LAN) og víðnet (WAN) og leiddi m.a. hóp innan IEEE 802 staðlanefndarinnar sem þróaði gigabit ethernet yfir tvinnaðan koparvír. Gönguferð__________________________ 20.00 Þjóðminjasafn fslands stendur fyrir gönguferð um Hólavallagarð, gamla kirkjugarðinn við Suður- götu. Lagt verður af stað frá þjón- ustuhúsinu við Ljósvallagötu. Sjá nánar hér á opnunni. Tónleikar__________________________ 19.30 Lokatónleikar starfsárs Sinfóníu- hljómsveitarinnar. Tónleikarnir eru að venju f Háskólabíói og til- heyra gulri áskriftaröð. Á efnis- skránni eru 6. sinfónía Beet- hovens, Pastoralsinfónfan, og Vor- blótið eftir Igor Stravinskí. Hljóm- sveitarstjóri er aðalhljómsveitar- stjóri hljómsveitarinnar til margra ára, Petri Sakari. 21.00 Szymon Kuran fiðluleikari, Hafdís Bjarnadóttir rafgítarleikari og Kuran kompaní með tónleika í kvöld: Piparbræðingur Kurans tónlist „Við Szymon höfum verið að starfa saman sem Kuran kompaní í eitt ár,“ seg- ir Hafdís Bjarnadóttir gítar- leikari. Þau Szymon Kuran fiðluleikari halda tónleika í kvöld ásamt Þórdísi Claessen slagverksleikara í Húsi mál- arans. „Við tvö höfum verið uppistaðan í Kuran kompaní, gítar og fiðla, en stundum hafa fleiri spilað með okkur.“ Hafdís segir erfitt að skil- greina tónlistina sem þau ætla að leika í kvöld. „Þetta er blanda úr mörgum tónlistar- stefnum. Við köllurn músíkina piparbræðing. Núna ætlum við að leika okkur með ein- hvern latín-fíling Það er af því Þórdís er vel inni í þeirri tónlist og hún passar vel við slagverkið. En svo verðum við með einhvern graut, með áherslu á frjálsan spuna og oft gerist eitthvað mjög óvænt á tónleikunum," segir Þórdís. Szymon Kuran er nýkom- inn frá Póllandi þar sem hann var að flytja tónverkið sitt Requiem, sem nýlega kom út á geisladisk og hefur hvar- vetna fengið góða dóma. „Samstarf okkar Szymons Kuran byrjaði fyrir ári þegar HAFDÍS BJARNADÓTTIR OG ÞÓRDÍS CLAESSEN Þær leika með Szymon Kuran á annarri hæð í Húsi málarans. við hittumst á tónleikum og fórum að kjafta saman,“ heldur Hafdís áfram. „Þá kom í ljós að við vorum með svipaðar hugmyndir í gangi. Svo hringdi hann í mig og var þá með tónleikaröð á Næsta bar þar sem hann spilaði með ýmsum í ýmsum samsetningum og hann hringdi í mig og spurði hvort ég væri til í að glamra með sér. Það var ekki nema viku fyrirvari en ég sagði já þótt við hefðum aldrei spilað saman. Svo mættum við bara á svæðið og tókum einhverj- ar æfingar og þetta gekk mjög vel, það var skemmti- leg stemmning, mikið spunn- ið á staðnum og okkur fannst svo gaman að við ákváðum að halda þessu áfram. Við náum einhvern veginn svo skemmtilega að fylgja hvort öðru þegar við erum að spin- na, þá eltum við einhvern veginn hvort annað í spunan- um. Það er einmitt mjög auð- velt að ná svona tengingu þegar það eru bara tveir að spinna eða fáir.“ Kuran kompaní verður með tónleika fyrsta fimmtu- dag hvers mánaðar nú í sum- ar í Húsi málarans. ■ Þórdís Claessen slagverksleikari leika tónlist sem þau kjósa að kalla piparbræðing. Szymon og Hafdís mynda saman í dúettinn Kuran Kompaní, en hugmyndin á bak við kompaníið er að það geti stækkað og minnkað eftir stemn- ingu hverju sinni og orðið stór- hljómsveit ef svo ber undir. 21.00 Hip hop kvöld á Gauk á Stöng. Fram koma Ty og DJ Biznizz. Subterranen (kemur saman á ný í þetta eina skipti) og M.A.T. sjá um upphitunina. Aldurstakmark er 18 ár og það kostar 850 krónur inn. Leiksýningar________________________ 20.00 Seinni aukasýningin á Platanov eftir Anton Tékov í Hafnarfjarð- arieikhúsinu. Útskrifarhópur leik- listarnema við Listháskóla fslands hefur að undanförnu sýnt þetta verk við miklar vinsældir, en leik- ritið fjallar um samkvæmi á óð- alssetri ekkju nokkurrar sem áður en dagur rís fer gersamlega úr böndunum. 20.00 Píkusögur eru sýndar á þriðju hæð Borgarleikhússins. Höfund- ur leikritsins er Eve Ensler og Sig- rún Edda Björnsdóttir leikstýrir. Með hlutverkin fara leikkonurnar Halldóra Geirharðsdóttir, Jóhanna Vigdís Arnardóttir og Sóley Elías- dóttir. 20.00 Feðgar á ferð er sprellfjörug kvöldstund í Iðnó sem feðgarnir Árni Tryggvason og Örn Árnason hafa samið og flytja einnig. Þetta er upprifjun á brotum úr gömlum revíum sem voru ein vinsælasta skemmtun Islendinga um miðja síðustu öld. Gönguferð um gamla kirkjugarðinn: Best varðveitti 19. aldar garður Evrópu minjar Þjóðminjasafn íslands stendur í dag fyrir gönguferð um Hólavallagarð, kirkjugarð- inn við Suðurgötu. Gangan hefst klukkan 20 og verður lagt af stað frá þjónustuhúsinu við Ljósvallagötu. Hólavallagarður, eða kirkjugarðurinn við Suður- götu, eins og hann er oft nefnd- ur, er af mörgum talinn einn best varóveitti 19. aldar kirkju- garður í Evrópu. Þar gefur að líta flestallar tegundir og formgerðir minningarmarka og má fylgja þróun á gerð þeir- ra allt frá því að fyrst var graf- ið í garðinum árið 1838 til dagsins í dag. Gunnar Bollason sagnfræðingur hjá Þjóðminja- safninu fer fyrir gönguhópn- um og lýsir nokkrum merkum minningarmörkum, formgerð- um þeirra, smíði og táknmáli þeirra auk þess sem persónu- sögu verða gerð nokkur skil. Gert er ráð fyrir að göngu- ferðin taki um 40 mínútur. Lagt er til að göngumenn komi vel skóaðir þar sem stígar eru víða mjóir og torfærir og klæddir eftir veðri. Gangan verður endurtekin á sunnu- daginn, á sjómannadaginn, og verður lagt upp frá sama stað klukkan 16. ■ HÓLAVALLAGARÐUR Um þessar mundir er nýlokið skráningu og Ijósmyndun allra minningarmarka í garðinum sem náð hafa hundrað ára aldrí.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.