Suðri - 23.10.1886, Blaðsíða 1

Suðri - 23.10.1886, Blaðsíða 1
Af „Suðra'1 koma 3-4 blöð út á mánuði. Uppsögn með 3ja mánaða fyrirvara frá áramótum. Argangurinn (40 blöð alls) kostar 3 kr. (erlendis 4kr.)’ sem borgist fyrir júlilok ár hvert. ~4r. ár*g. Reykjavík, 23. október 1886. 28. blaö. Frá Hornströiidum. Eptir þorvalil Thoroditsen. [Niðurl.]. Byggðin á Hornströnd- um (frá Trðkyllisvík norður á Horn) telst undir 3 kirkjusóknir; Árnessókn nær norður að Geirólfsgnúpi, pá tekur við Grunnavíkursókn að Hornbjargi, en bæirnir par tyrir norðan og vestan eru í Aðalvíkursókn. í»ví má geta nærri, að pað er enginn hægðarleik- ur að sækja kirkjur á pessum út- kjálka, par sein jafn langt er á milli bæja og vegir ákaflega torsóttir, og pó par se nú ekki eins illt og munn- mælin segja «að börnin á Hornströnd- um verði að fara sjálf gangandi til kirkju til pess að láta skírast», pá er prestpjónusta öll pó mjög örðug bæði fyrir bændur og presta. Yíðast geta menn eigi farið til kirkju nema einu sinni á ári í blíðasta sumarveðri, og eru pá sumstaðar 4—5 daga á kirkju- ferðinni og jafnvel lengur, ef illa viðrar. Erfiðast af öllu er að koma líkum til kirkju, og á vetrum er pað opt alveg ómögulegt, svo menn verða að láta líkin liggja í snjó pangað til veðrið og færðin verður betri. I fyrra vetur dó maður í Bjarnanesi og var færður að Stað í Grunnavík, en ferðin gekk æði skrykkjótt. Fyrst varð að fara um sveitina til pess að fá lík- menn, en pað er nú ekki svo sem hlaupið að pví í jafn strjálbyggðu héraði. jj>egar líkmennirnir voru komnir að Bjarnanesi, urðu peir veð- urtepptir í viku, en svo var haldið á stað með kistuna á sleða; setluðu peir að draga hana yfir fjöllin, sem eru 2000 feta há, niður í botninn á Lónafirði. Á fjallinu gerði á pá öskr- andi bylog var eigi hægt að komast á- fram fyrir ófærð og illviðri. Skildu peir pá kistuna eptir á fjallinu og komust við illan leik heim aptur. Á fjallinu lá kistan í 3 vikur, pá dó annar rnaður í Smiðjuvík. Var nú efnt til nýrrar ferðar og fengnir 6 röskustu mennirnir í sveitinni til far- arinnar. Komust peir upp á fjallið og fundu eptir nokkra leit kistuna í fönninni og klöngruðust stórslysalítið með báðar kisturnar niður í botninn á Lónafirði; pað er einn af Jökul- fjörðum. ís lá á firðinum og gekk greitt að draga sleðana út eptir, en pá praut ísinn og var autt fyrir fram- au. Urðu menn nú á nvjan leik að skilja eptir kisturnar á ísnum, fóru peir síðan norður og vestur fyrir Lóna- fjörð að Kvíum, fengu par bát og fluttu kisturnar fyrir framan mynnið á Hrafnfirði og Leirufirði, og kom- ust pær svo loks eptir langa mæðu á kirkjustaðinn. Ekki voru menn of heimtufrekir fyrir vinnu sína, og pó kostaði flutningurinn á líkinu frá Bjarnanesi að Stað 142 krónur. |>að er mesta nauðsyn á pví, að gerð væri kirkja eða bænahús á Horn- ströndum; pað hefur komið til orða, að gjöra bænahús í Eurufirði, en ekki hefur pað orðið meir eu umtalið enn pá, veldur pví mest ósampykki sveit- armanna;\ peir geta ekki orðið á eitt sáttir, pó petta sé mesta nauðsynja- mál fyrir pá. Furufjörður liggur vel við fyrir alla pá, er búa norðarlega á Hornströndum, og pangað er hægt að komast fyrir prestinn, enginn fjall- vegur á milli neina Skorarheiði, og er pað lægsti 'og greiðfærasti heiðar- vegur á Hornströndum. Áður á dög- um var kirkja í Reykjarfirði hinuin nyrðri og á öldinni sem leið var grafreitur vígður í Höfn við Hafnar- bás. j>að er ekki pægilegt fyrir prestana að fara um sóknir sínar hér nyrðra; peir verða víðast hvar að fara gangandi, og eru margar liættur og torfærur á leiðinni. Fyrir fáum árum var snjóflóð nærri pví búið að gera út af við prestinn í Grunnavík og 3 menn, sem með honum voru; pcir voru pá á ferð fram með Bol- ungarvíkurbjargi. Mannfundir eru fágætir á Horn- ströndum, pó eru brúðkaupsveizlur all-fjölmennar; er pá veitt sem bezt eru föng til, og stendur veizlan stund- uin í 2—3 daga. Eins og alkunn- ugt er, pá er liér á landi allstaðar siður að veizlan byrjar undir eins og brúðhjónin eru komin lir kirkjunni sama daginn, en af pví svo hagar til um kirkjuvegina hér á Ströndum, sem fyr er sagt, pá leiðir af pví, að brúðhjónin eru stundum búin að vera gipt í nokkra daga — á ferðinni yfir fjöll og klungur — áður en pau eru komin heim til sín eða pangað sem veizlan er haldin. Brúðkaupið stend- ur pá stundum yfir í viku með öllu ferðalagi brúðhjóna 0g boðsmanna. 109 Veizlukosturinn er náttúrlega hinn gamalklassiski íslenzki, grauturinn, steikin og lummurnar, nema hvað röðin á réttunum getur verið mis- munandi, og að hver réttur er stund- um eins og sérstök máltíð. Borðgest- irnir borga fyrir sig pegar peir fara, 2—10 krónur, eptir efnum og á- stæðum. Bókleg menntun er eigi mikil á Hornströndum enda verður varla við pví búizt, par sem hvorki eru sam- göngur manna á milli né póstferðir ; pó kann allt yngra fólk að lesa og flest að skrifa, en til er gamalt fólk ólesandi pó ekki sé pað margt. Hvergi er fréttablað keypt par sem eg fór um nema 1 Bjarnanesi, bækur pjóð- vinafélagsins eru til í Smiðjuvík, en af öðrum bókum er varla nokkuð til nema hvað guðsorðabækur eru á hverj- um bæ og rímur sumstaðar. Menn Vita sáralítið um pað, sem gerist í heiminum og ekki varð eg var við pólitiskt líf eða hugsanir í pá átt. I skammdeginu skemmta rnenn sér með pví að kveða rímur; rímurnar eru par enn pá í svo miklum metum, að börnin eru látin heita rímnanöfnum t. d. Bæringur, Reimar, Falur og Ang- antýr. Ekki hafa rímurnar verið miður metnar á öldinui sem leið; Olavius getur pess, að bóndi nokkur hafi látið grafa með sér bænabók og Úlfarsrímur; bóndi pessi var jarðaður í grafreitinum í Höfn og mælti svo fyrir, að leiði sitt skyldi snúa frá suðri til norðurs og svo var gert. j>að er opt til pess tekið, að málið sé ein- kennilegt á Hornströnduin, og að par heyrist bæði orðskrípi og hjákátlegir talshættir; eg varð pess ekki var, að málið væri í neinu verulegu frábrugð- ið vanalegri íslenzku; eg heyrði par að eins fáein orð, sem eg ekki hafói heyrt áður; eg hefi heyrt mildu fleiri einkennileg orð í ýmsum öðrum af- skekktum héruðum. Garnli karlmanna- búningurinn, stuttbuxurnar, úlpan (stutthempan) og skotthúfan hefur víst haldist lengur á Ströndum en annars- staðar; fyrir fáum árum dó kaíl í Skjaldbjarnarvík, sem allt af var í stuttbuxum. j>egar Eggert Ólafsson fór um Strandir, var par fullt af hjátrú og hindurvitnum, nú er slíkt að mestu leyti um garð gengið; pað sögðu mér

x

Suðri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Suðri
https://timarit.is/publication/118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.