Fjallkonan


Fjallkonan - 19.08.1896, Blaðsíða 4

Fjallkonan - 19.08.1896, Blaðsíða 4
132 FJALLKONAN. XIII 32 20 ál. langt, og er því vonandi að ekki verði skortr á góðri beitu eftirleiðis’. Skagafjarðarsýslu, 8. ágúst. , Tiðin má beita góð sið- an sláttr byrjaði; flestir búnir að hirða tún; töðufengr er i meðallagi, enn votengi snögg. — Allgóðr fiskafli er oftast hér á firðinum og beita. — Tvö timbrskip hafa komið á Sauðárkrók í sumar, annað norskr timbrmaðr og keypti hótelhaldarinn á Sauð- árkrók alt það sem hann kom með hingað og selr svo út frá sér með uppsettu verði. — Nú er Sigurðr Thoroddsen hér á staðnum til þess að mæla þá fyrirhuguðu akbraut fram Skaga- fjörðinn; óvíst þykir, hvort meira verðr gert á þessari öldinni að þeirri vegagerð. — Búfræðingr Albert Kristjánsson á Páva- stöðum hefir i sumar fengið sér sláttuvél og rakstrarvél. — í orði er nú, að bygð verði 2 íshús hér, annað á Sauðárkrók, enn hitt austan fjarðarins; það er gott ef framkvæmt verðr. Bréfkafli frá presti. [Höíundrinn minnist á bók Balfours Foundations of belief og segir meðal ann- ars:] — Einkennilegt er, að Balfour gerir svo mikið úr hefðarvaldinu (vanans, álitsins o. s. frv.), enn lít- ið úr skynserainni. Þess ber vel að gæta, að tbelief’ er að taka hjá honum í altækum skiiningi, þ. e. alls konar trú: trú i daglegu lífi á hverjum málefnum sem vera skal og í hverri vísindagrein, svo sem nátt- úrufræði, félagsfræði, siðfræði o. s. frv., enn engan veginn eingöngu í guðtrúarmálum. Vísindalega sönnun kallar hann í rauninni naumast nokkuð annað enn það, sem Englendingar halda mest fram og heitir (Induction’ í rökfræðinni, sem Stuart Mill hefir skarað svo mikið fram úr i. Hún er fólgin í því, að finna altækt lög- mál, framsett í altækum eða yfirleitum máisgreinum, út úr sérstökum viðburðum eða staðreyndum, svo sem: allar hvrndar dýrategundir eru jótrdýr. Reynsl- an fræðir oss um þetta lögmál, enn vísindin geta eigi fundið hér neitt orsakasamband. Ég hefi lesið í vetr meðal annars heimstrúarþings- bókina (The Worlds Parliament of Religions). f henni er óendanlegr vísdómr, eigi að eins um trúar- brögð flestra þjóða, heldr og um helztu stefnur guð- fræðiskenslunnar nú. Flestir leggja áherzluna á sið- fræðiskenninguna, og er það alveg rétt, og alvarleg viðleitni er hjá mjög mörgum, að sætta og sameina trúarbrögðin, að leita upp hið sameiginlega, finna kjarnann, enn sleppa sem mest öllum lítilsverðum á- greinings atriðum. Þetta virðist . Verði Ijós' eigi þekkja, eða eigi samþykkja. Yfirlýsing. Eg hefi ekki ritað fréttir af Eyrar- bakka 22. f. m. í [Fjallkonuna’ (XIII, 30), eins og svo margir hafa borið mér á brýn. Eyrarbakka, 15. ágúst 1896. Jón Pálsson, organisti. í>aK.pappa selr Th. Thorsteinsson (Liverpool). Steinolíutunnur tómar kaupir Th. Thorsteinsson (Liverpool). Óróna sjóvetlinga kaupir Th. Thorsteinsson (Liverpool). Tómar hálfflöskur undan öli og hvitar heil- flöskur undan whisky kaupir Th. Thorsteinsson (Liverpool) Hurðarlamir Hurðarskrár Húnar Gluggahjörur Borar af öilum teg. Sveifar. fást í verzlun Th. Thorsteinsson (Liverpool). I' verzlun Magnúsar Einarssonar á Seyðis- flrði fást ágæt vasaúr og margskonar smekhleg- ar, fásénar og vandaðar vörur með mjög sanngjörnu verði. Agætt nærf atavaðmál er til sölu 1 Eúngholtsstræti 18. Myndarleg stúlka getr fengið vist í góðu húsi í Reykjavík 1. október i haust. Ritstjóri vísar á. íslenzk umboðsverzlun. Fyrir áreiðanlegt verzlunarhús erlendis kaupi ég sérstaklega með hæsta verði, vel verkaðan málsjisk óhnakkakýldan (18 þuml. og þar yfir, hér um bil 1400 skpd.). Borgunin verðr greidd strax og hleðslu- skjalið (Connossementet) er komið, sem sýni að fiskr- inn sé í skipinu, og send í peningum hvort sem vera skal, eða útlendum vörum með lægsta verði, ef þess er óskað. Jakob (xiumlögsson. Cort Adelersgade 4. Kjöbenhavn K. íslenzk umboðsverzlun. Eins og að undanförnu tek ég að mér að selja allskonar íslenzkar verzlunarvörur og kaupa inn út- lendar vörur og senda á þá staði, sem gufuskipin koma á. Glögg skilgrein send i hvert skifti, lítil ómakslaun. Utanáskrift: Jakob Gunnlögsson. Cort Adelersgade 4. Kjöbenhavn K. Til leigu: Brúkaðr reiðskapr, söðlar hnakkar, klifsöðl- ar og koffort. Brúkaðir söðlar seldir með hálf- virði. Vesturgötu 55. Samúel ólafsson. 3NTokkrir hestar af töðn óskast til kaups í Þingholtsstræti 18. Útgefandi: Yald. Ásmundarson. Félagsprentsmiöj an.

x

Fjallkonan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjallkonan
https://timarit.is/publication/122

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.