Fjallkonan - 26.07.1900, Blaðsíða 4
4
FJALLKONAN.
milli 3. og 4. rifs og hj&rtahjúpurinn opnaður,
svo að hjartað varð bert. Tuffier tók með
hendinni um hjartað, og gat fengið Jað til að
þrýsta saman hjartahólfunum 60—80 sinnum á
mínútu.
Eftir nokkrar mínútur fóru slagæðarnar að
flytja blóðið um líkamann; hinn dauði maður
lauk upp augunum, hreyfði höfuðið og þekti
þá sem vóru í kringum hann.
Hjartað starfaði nú af sjálfu sér nokkrar
minútur; en síðan dró smásaman af æðaslætt-
inum og loks hættu þær • að slá. — Maðuriun
var dáinn í annað sinn.
Það tókst enn tvisvar sinnum, að vekja
manninn til lífs. Hann hafði í hvort skifti
fulla meðvitund, og gat svarað spurningum lækn-
anna. En ekki gátu þeir haldið lífinu í hon-
um nema örfáar mínútur í senn.
Þegar líkið var skorið upp fanst blóðkökkur
í vinstri kvísl lungna slagæðarinnar og halda
læknarnir að fyrir þá sök hafi þeir ekki getað
vakið hann til lengra lífs.
Nú verða fleiri slíkar tilraunir gerðar.
Uppfundningar.
Hinn frægi rafmagnsfræðingur Tesla hefir
ritað grein í tímaritið Century Magazine um að
taka kraft (energi) sólarinnar í þjónustu mann-
anna.
Hann vill þar meðal annars losa mannkynið
við stríðin, og gerist það þannig, að í stað her-
mannanna komi drápvélar, sem hreyfa sig sjálf-
ar. Hann hefir þegar búið til torpedobát, sem
er stjórnað af rafmagnsbylgjum.
Hann álítur, að jörðin sé ótæmandi rafmagns-
uppspretta, og er nú að finna áhöld til að nota
sér það afl.
Landi vor Frímann B. Anderson hefir fyrir
nokkrum árum sett fram svipaðar skoðanir um
kraft sólarinnar og jarðarinnar í tímariti, sem
kom út í New York, „ Twenteenth Centurya.
Banskur leiðangur til Grrænlands. Yfir-
lautenant í sjóliðinu danska, Amdrup, lagði af
stað i miðjum f. m. á skipínu „Antarctic“ í
nýja Grænlandsför. Hann ætlar að rannsaka
austurströnd Grænlands.
Fyrst er ferðinni heitið til Jan Mayen, og
á að skafa þar sjávarbotninn til að rannsaka
sjávarlífið. Þaðan á að fara til norðaustur-
strandar Grænlands á 75. mælistigi norðarbreidd-
ar og reyna að kanna þær og gera uppdrátt
af þeim. Þaðan á &ð reyna að komast suður
á bóginn. Á að reyna að fara á skipinu suður
að 69° norðurbreiddar og er ætlast til, að Am-
drup og félagar hans þrír fari þar í land og
reyni svo að komast á landi alla leið til Ang-
mags&lik, en ströndin þar suður af hefir áður
verið ranusökuð. Þar sem farið verður í land
á að byggja skýli til veturvistar, ef auðið yrði
fyrir landkannendurna að komast þangað aftur
áður en vetrar að.
Á hinni fyrri ferð sinDÍ tókst Amdrup að
komast norður á 67° 45' n. br. fyrir norðan
Angmagsalik. Á þeirri leið skildi hann eftir
vistir, sem hann ætlar sér nú að nota, þó þeir
félagar fjórir sé útbúnir með 20 mánaða nest’.
Þegar iandkannendurnir eru komair í land,
ætla þeir sem á skipinu eru, kaud. mag. Hartz
og stýrimaðuriun Köhier, að rannsaka þar með
fram ströudinni og fara svo til ísiands (Dýra-
fjarðar), skila þar bréíum og setja þar í land
moskusnxa, sem sendimaður frá dýragarðinum
í Kaupmannahöfn, Joh. Madsen á að veiða.
Frá Dýrafirði L skipið að fara aftur í byrjun
septembermánaðar og reyua að ná landkann-
endunum í Angmagsalik eða þar i grend. Tak-
ist það ekki, snýr skipið heim aftur til Dan-
merkur og verða þeir félagar þá að bíða á
Grænlandi næsta sumars.
Hvað kostar Búastríðið Englendinga? Eft-
ir síðustu skýrslum brezku stjórnarinnar frá
miðjum f. m.— og eftir það höfðu ekki orðið
neinir bardagar sem teljandi er þangað til síð-
ast fréttist, — hafa Englendingar þegar mist yfir
80000 manns í Búastríðinu. Þeir vóru að visu
ekki allir dauðir, því í þessari tölu vóru sjúkir
hermenn, sem lágu veikir í skæðum sjúkdóm-
um í Afríku og menn sem sendir hafa verið
heim til Englands sem ófærir eftir stríðið.
Talið er víst að Búar hafi ekki mist svo mikið
sem tíunda hlutann af þessari tölu.
Engin tannpína framar. Tvö ný iyf eiu
fundin gegn tannpínu. Frá öð?u þeírra er
skýrt i „Wiener Medicinische Presse“; það er
eins konar ‘orthoform* og stillir á augnabliki
hverskonar tannpínu, og er auk þess rotverjandi
(antiseptiskt); það er ekki eitrað og er ekki ó-
þægilegt á bragð eða iykt. Hitt heitir „nir-
vanin“ og tekur burtu tilkennisguna þegar því
er hieypt inn í tannholdið, svo að draga má
tönnina út þjáningarlaust 3—5 mínútum eftir
að lyfinu hefir verið hleypt inn.
Allsherjar póstsamhandið. Fyrstu dagana í
þ. m. var haldin á Svisslandi (í Bern) 25 ára
minning „allsherjarpóstsambandsins“. Það mynd-
aðist upp úr póstsambandi því, er komst á 1850
milli Prússlands og Ansturríkis; það var fyrsti
vísirinn, en 1874 var allsherjar póstsambandið
stofnað á fundi í Bern eftir uppástungu Stephans
ríkisskrifara í póststjórn þýzka ríkisins. Og þá
komst á jöfauður sá í burðareyri, sem hefir svo
stórkostlega greitt fyrir öllum póstflatningi
milli landa og þjóða og yfirleitt í viðskiftalífi
haft ósegjanlega margt gott í för með sér
Yatnsskrímsli. í vatni því á Jamtalandi
er Stórisjór nef'uist heflr einatt sést vatnsdýr eitt
(storsjö-odjuret), vatnsskrímsli mundum vér
kalla það, og er ekki ólíkt um það og orminn
í Lagarfljóti. Það sást nú síðast 17. f. m.
skamt undan landi fyrír framan eimskipabryggju
þar sem Öneudde heitir, og sáu það ýmsir, og
eru fráskýringar þeirra er séð hafa prentaðar í
blöðunum. Dýrið er svart að lit og sást vel
hausinn og sporðuriun; það hringaði sig og setti
upp kryppu og gaf frá sér hvæsandi hljóð, en
það hefir aldrei heyrst til þess áður. Það er
um 30 fet á lengd. Það sást að eins 3 eða 4
mínútur, fór með viðlíka ferð og eimbátur, og
hvarf á aug&bragði. Náttúrufræðingur einn
hefir getið til, að dýr þetta mundi eitthvað lík-
jast selakyni, en að öðru leyti vaða allir í villu
um þenna merkilega fyrirburð.
Druknanir. Tveir drengir druknuðu um
miðjan júní i stöðuvatni í Vatnsfjarðarsveit;
var annar þeirra frá Skálavík, smali Halldórs
bónda þar, en hinu frá Vatnsflrði; höfðu þeir
farið út á bátgarmi, sem hafði hvolft undir
þeim.
Seint í júní hvarf maður af Þiageyri, Guð-
mundur Guðtnnadsson: hafði áðar búið í Álfa-
dal. HaJdið að hann hafi druknað i Sandá.
Dys á Þórsmörk. 25. maí 1 vor fanst upp-
blásin dys á Þórsmörk. Þar fundust manns-
bein: upphandleggur, kjálkar með jöxlum og
tönnum í og hiygguriun saman haugandi. Rétt
þar hja vouar fyrir gamalli rúst, Nauðsynlegt
væri að rannsaka þetta nákvæmar.
(Vesta’ kom í gærkveldi frá útlöndum norðan
og vestan um land.
^Cuzco’, enskt lystiskip, kom í dag.
Hér incð leyfuin við okkur, að tilkynna heiðruðum
almeimingi, að eftiruákvæma yflrvegun höfum við kom-
ist að þeirri niðurstöðu, að það mundi ekki horga sig
fyrir okkur, að kaupa lifandi fé á íslandi, og að við
mununi því ekki lialda markaði í liaust.
Parker & Fraser,
Liverpool.
Nýprentuð
Ijóðmæli
eftir
Qudmund Suðmundston
Skraut-útgáfa með mynd
höf. Fæst eftir 1. júlí hjá
Sig. Kristjánssyni bóksala.
Verða send út um land í
|j sumar.
3
i
Tækifæri.
Hvergi fá menn eina ðdýrt og vand-
að saumuð föt aín eins og í
Saumastofunni í Bankastræti.
Þar fást líka alls konar fataefni
pantað með innkaupsverði og sent
• koBtnaðarlauat.
5—600 ljómandi sýniahorn.
Gliðiii. Siííiirðsson.
Í.H.
I
I
Sundmaga kaupir hæstu
verði sem að undanförnu
fyrir peninga
V. Christensens verzlun.
AfcViii.tAs*AA.VvAsV
Heiðruðum neytendum
hins ekta Kínalífselixírs
&ð athuga &ð á flöskuseðlinum
| staudi vörumarki mitt: Kínverji
með glas i hendi og þar fyrir
neð&n firmanafnið Waldemar
Peterseu, Fiederikshavn, Dan-
í mark, og á tappanum wpF-í grænu
lakki. Öllu, sem ekki er auð-
| kent á þennan hátt, eru menn
beðnir að vísa á bug svo sem
óvönduðum eftirstælingum.
frá Waldemar Peterseu í Frið-
rikshöfn er hér með gert við-
vart um að elixírina fæst hver-
vetna á íslandi án nokkrar toll- £j
hœkkunar, svo að verðið er eins
og áður aðeins kr. 1,50 flaskan K
og er afhent frá aðalforðabúr-
inu á Fáskrúðsfirði, ef menn
enúa sér til aðalumboðsmauns
mins, herra Thor E. Tulinius,
Köbenhavn K.
Til þess að sneiða hjá föla-
unnm eru menn vandlega beðnir E
1
I
♦
K
s
«
v
M
ö
7.
Sundmagar
vel verkaðir verða keyptir íyrir pen-
inga við verzi. „EDINBORG“ í
Keflavík, Stokkseyri og Reykjavík.
Ásgeir Sigurðsson.
er tii sölu.
stræti 18.
mjög vel vandað
Upplýsingar i Þingholt-
Saltfiskur
vel verkaður, stór og smár, og ýsa,
verður keyptur í sumar fyrir pen-
inga við verzl. „EDINBORG“ í
Keflavik, Stokkseyri og Reykjavík.
&i<^ut3óoon.
Ullarhand norðienzkt, mjög vaud-
að, tvinnað og þriunað, mórautt og
grátt er til sölu í Þingholtsstræti 18.
Leiðarvísir til lífsáhyrgðar fæst
ókeypia hjá ritstjórunum og hjá dr.
med. J. Jónassen, sem einnig gefur
þeim, sem vilja tryggja líf sitt, allar
nauðsynlegar upplýsingar.
„F j ö 1 n i r“.
6. áryang af „Fjölni kaupi eg háu
verði.
Vald. Ásmundsson.
Útgefandi: Yald. Asmundarson.
Félagsprentsmiðjan.