Norðurljósið - 01.01.1976, Blaðsíða 182
182
NORÐURLJÓSIÐ
að þú þakkar honum fyrirgefningu, hreinsun og sigur yfir synd-
inni.
Um syndir slíkar sem hina síðastnefndu er ekki þörf á, að
minnst sé á þær við aðra. En hafi einhver ekki kraft til að sigra
syndina, má biðja þá um fyrirbæn, sem sterkari eru og andlega
þroskaðri.
Megi náð Guðs hvíla yfir ykkur.
(Þýtt úr „Kirkeklokken).
btvarpsstöðin á Aktireyri
Rétt norðan við húsið „Sjónarhæð", Hafnarstræti 63, Akur-
eyri, stendur lítið einlyft timburhús með járnklæddu risþaki.
í daglegu tali á Sjónarhæð er það alltaf nefnt mótorhús.
Þetta hús eru síðustu minjar þess, að fyrir nálega 50 árum
var útvarpsstöð reist á Akureyri. Segir nánar frá því máli í grein
þeirri, sem fylgir hér:
Á þeim árum, er verið var að undirbúa málið og smíða stöð-
ina, sagði Arthur heitinn Gook frá þessu útvarpsmáli lesendum
„Nlj.“ En tiltölulega fáir af núverandi lesendum munu hafa séð
það, sem skrifað finnst um þetta mál í Nlj. og opinberum blöð-
um frá þeim tímum. Þess vegna birtist frásögn þessi nú, sem
fylgir hér á eftir- — S. G. J.
ÍSLENDINGUM BOÐIN STÖRGJÖF.
„Þráðlausar“ firðtalsstöðvar í hverjum kaupstað og víða um
sveitir.
Ofangreindar setningar blöstu við á forsíðu janúar-blaðs
„Norðurljóssins“ á Akureyri árið 1925. Er Nlj. að mestu leyti
heimild þess, sem hér er skráð.
Ritstjóri blaðsins, Arthur Gook trúboði og síðar brezkur vara-
ræðismaður á Akureyri, hafði þessar merku fréttir að færa les-
endum sínum og um leið alþjóð manna á Islandi.
Eins og vænta mátti vakti slík frétt mikla athygli, ekki hvað
sízt úti um sveitir. Fjöldi manna skrifaði ritstjóranum bréf til
að fá nánari upplýsingar en þær, sem greinin í blaðinu veitti.
Tildrög þess, að íslendingum var boðin slík gjöf, voru þau,