Heimskringla - 06.07.1938, Blaðsíða 2

Heimskringla - 06.07.1938, Blaðsíða 2
2. SÍÐA HEIMSKRINCLA WINNIPEG, 6. JÚLí 1938 NÝSTÁRLEGT RÆÐU- SAFN OG MERKILEGT Eftir próf. Richard Beck Guðmundur Finnbogason: Mannfagnaður. — Útgef- andi: — fsafoldarprent- smiðja h. f. Reykjavik, 1937. Þarflaust er að fræða íslend- inga vestan hafs um það, að dr. Guðmundur Finnbogasort, lands- bókavörður íslands, er manna málsnjallastur og orðhagastur; þeim er það í fersku minni — að minsta kosti eldra fólkinu — frá þeirri tíð, er hann kom vestur hingað til fyrirlestrahalda, þó að tveir áratugir séu liðnir síðan. Einkum hefir verið til þess tekið, hversu snjallar tækifærisræður dr. Guðmundar væru; enda hefir óspart verið til hans leitað með ræðuhöld í veislum og á allskon- ar mannamótum. Nú hefir hann góðu heilli, safnað úrvali af tæki- færisræðum sínum og gefið þær út í ofannefndri bók. Eru þær 52 talsins, frá ýmsum tímum, hin fyrsta flutt sumarið 1902 en hin síðasta í júlímánuði 1936. í niðurlagi hins gagnorða formála síns kemst höfundur svo að orði: “Eg gef þessar ræður út vegna þess, að þær fjalla um margvís- leg efni, sem mér hafa verið hug- stæð. Og þó að þær taki yfir 35 ára skeið, segja þær það eitt, er eg vil enn sagt hafa. Örfáar endurtekningar koma þar fyrir, en eg hefi ekki felt þær burt, af því að eg vildi láta ræðurnar birtast eins og þær voru samdar. Sumar ræðurnar get eg nú ekki dagsett, en set þær sem næst þeim tíma, er eg held þær séu frá. “Heyrt hefi eg þeirri skoðun hreyft ,að ræður nytu sín ekki á prenti, þær væru töluð orð og lifðu ekki fullu lífi nema um leið og þær liðu af vörum ræðu- manns. Mín skoðun er sú, að þær ræður, sem ekki þola prent- svertuna, séu ekki annað en hljómandi málmur og hvellandi bjalla”. Þessi or höfundar eru hin eft- irtektarverðustu, og mættu vel vera öðrum íslenzkum ræðu- mönnum, beggja megin hafsins, til varnaðar og áminningar. — Jafnframt skal því bætt við, að svo jafnvígur er dr. Guðmunddr á umræðuefnið frá nýju sjónar- miði og ljósi brugðið á það með nýjum hugmyndum og samlík- ingum. Um eitt eiga þó allar þessar ræður sammerkt öðru fremur: — frábært vald og næm- an skilning á íslenzkri tungu og ágæti hennar; enda festi dr. Guðmundur ungur brennandi ást á henni og hefir kröftuglega sýnt í verki víðáttu hennar, hæð og dýpt. f ræðusafni þessu er því af miklu og kjarngóðu að taka. Á- gætlega nýtur málsnild höfundar og djúphyggja hans sín í ræð- unni “Bogastrengurinn” en sem er ein af hinum elztu í safninu. Næm og djúpstæð er sú “skynj- andi samúð”, sem er hinn heiti undirstraumur í ræðum eins og “Barnseðlið” og “Útburðir”, en þannig er fyrri hluti seinni ræð- unnar: “Einu sinni var verið að halda brúðkaup. Þar var fjölmenni mikið og gleði. Brúðurin var ung og fríð og þótti hinn besti kven- kostur. Þegar leið á veizluna heyrðu menn, að komið var á gluggann í veizlustofunni og kveðin þessi vísa: Kasta átti eg kirnum, reisa átti eg bú, til manns var eg ætluð eins og þú. Menn ætla, að þessi vísa hafi verið kveðin til brúðarinnar, og að systir hennar hafi kveðið hana; því móðir hennar hafði borið hana út.—Mér hefir altaf fundist þessi saga átakanleg: Rödd utan úr myrkrinu — mitt í gleðiglaumnum, rödd frá þeim, sem kastað var út á hjarnið. — Rödd frá systurinni, sem rænd var rétti lífsins, mannréttinum, kvenréttinum: “Kasta átti eg kirnum”. — Það er andvarp mannsefnisins, sem ekki varð að manni, hæfileikanna, sem heftir voru, neistans, sem ekki varð að björtu báli. Og mér finst sögurn ar um útburðina, sem hrekjast um allan aldur á sömu stöðvum, útburðina, sem skríða á öðru hnénu og öðrum olnboganum, með krosslagðar hendur og fæt- ur, og villa vegfarandann með veini sínu — mér finst þær svo ömurlegar, af því að þær eru svo sannar — ef ekki í sinni bók- staflegu merkingu, þá eftir and- anum. Því að það er margur út-, á ræðuhöldin, og svo vel í safnið > burðurinn í heiminum, ef að er valið, að þar er engin ræða, sem gáð. Eg á ekki við börnin, sem ekki “þolir prentsvertuna” — og langt fram yfir það. Ræðurnar hafa allar mikið til síns ágætis; mæðurnar bera út og fyrirfara — eg á við öll þau börn, sem sett eru á hjarnið og lifa hálfu þær bera fagurt vitni fágætri h,fi alla æfi ’ eg a við börnin, sem mælsku höfundar og víðtækum , ^átæktin og mentunarleysið lærdómi, andagift hans og frum-, neyðir til að skríða á olnbogan- leik, málfimi hans og orðhepni. Ium °£ hnenu með krosslagðar Þá ber hitt ekki sízt af, hversu hendur °S fætur, af því að þeim gagnorðar ræður þessar eru og hefir ehhi verið kent að ganga kjarnmæltar; í því efni eru þær,ems °£ nianninum er áskapað, hreinasta fyrirmynd öðrum þeim £an#a hein og bera höfuðið hátt sem við ræðuhöld fást. Hitt er, y nota rett hu£ °8 hendur. Eg annað mál, þó ræður þessar njóti ia við aha ha menn, sem sakir ills sín óvenjuvel á prenti, þá eiga uPPeldis verða a,drei nema halfir þær ekki á pappírnum það líf og j menn> °% verða að ráfa á villi- þau litbrigði, sem sérkendu þær £ötum, og leiða stundum sak- í snildarflutningi ræðumannsins. lausa menn í tortímingu, þegar Mikillar fjölbreytni kennir íjversf viðrar. Af slíkum mönn- safni þessu. Dr. Guðmundur um er mar&t í hverju landi, hefir frá fyrstu tíð verið djúp- mannsefnum> sem aldrei verða skygn og samúðarríkur túlkur skálda vorra og skáldskapar, og hefir um aðra samtíðarmenn fram smekklegar og heppilegar tilvitnanir þaðan á reiðum hönd að manni, fyrir ræktarleysi þeirra, sem betur mega. Hver, sem gengur um fátækustu göt- ur erlendra stórborga sér slíka útburði í hverju spori; og hávað- um. Hér eru þá einnig fjölmörg iinn a^ heim gtæPum, sem unnir minni hinna fremstu skálda ieru’. stafa fra Þeim- Og það er vorra frá Hallgrími Péturssyni engin furða, þó að útburðirnir til Kristmanns Guðmundssonar, |homi a hreih> þegar illa stendur í að ógleymdum minnum annara listamanna og afreksmanna ís- lenzkra eða erlendra. Hér eru einnig, að aðrar séu nefndar, ræður fyrir minni íslands og bælið þeirra, og verði þá til tjóns Iþeim, sem koma í námunda við !þá.” i S Og svo að eg beri annarsstað- ar niður. Frumleg, spakleg og háskáldleg og þeirra Björn- annara landa, minni héraða og tímabær, er ræðan “Á réttar- stétta, minni fánans, vígsluræð- ve&£” (1927); ur, og síðast en ekki sízt mörg djuPsæ minni minni kvenna. En þó ýmsar ræð- j stjerne Björnsons og Kjarvals urnar fjalli um hið sama eða (1909 og 1935); drengilega svipað efni, verður þar örsjaldan j hreinskilin og aðlaðandi svar- vart endurtekninga; hver ræð- ræða höfundar á sextugsafmæli an er sér um svip og blæ, horft hans> “Sextugur” (1933). Auðugar eru því ræður þessar að alvarlegum hugleiðingum; þær vekja mann ósjaldan til um- hugsunar um vandamál samtíð- arinnar og lífið sjálft. En grunt er þó altaf öðrum þræði á .gam- anseminni; dr. Guðmundur kann að leika jafn fimlega á strengi gleði og alvöru; orðhepni hans og hugkvæmni í samlíkingum sýnast óþrjótandi. Þétta kemur jeftirminnilega fram í ræðu hans “Minni kvenna” (1929), en í henni eru hin fornu kvenna heiti (kenningar) bæði uppistaða og ívaf; myndi það hafa orðið þur- meti í flestra höndum, en hjá dr. Guðmundi verður þetta efni bráðfjörugt, iðandi af lífi og litagnægð. Hann nemur staðar við kenninguna silkihlíð: “Hvert sem eg lít, þá eru hér alstaðar sannar silkihlíðar. Og það hygg eg, að ef við karlmennirnir nú værum dæmdir í útlægð hér úr salnum í kvöld og yrðum að hafa okkur á ról, þá myndum við allir ósjálfrátt líta við, horfa upp til silkihlíðanna og segja einum rómi: “Fögr er hlíðin, svá at mér hefir hon aldri jafnfögr sýnst — ok mun ek snúa aftr ok fara hvergi.” Það er á allra vitorði, að dr. Guðmundur Finnbogason er ein- hver hinn ágætasti og áhrifa- ríkasti talsmaður vor Vestur- fslendinga austan hafs; kemur það fagurlega fram í ýmsum ræðum hans í umræddu safni: “Stephan G. Stephansson”, “Um- boðsmaður Vestur-íslendinga”, er hann flutti þeim Alþingishá- tíðarsumarið. Fölskvalaus er hlýjan í vorn garð í þessum orð- um: “Enginn veit þó eins vel og sá, sem eins og eg hefi átt því láni að fagna að heimsækja ís- lendinga í Vesturheimi, hve inni- legan og sterkan hug þeir bera til ættlands síns. Það hugarþel er svo elskulegt, að eg fyrir mitt leyti tel margt af þeim kveðj um, sem eg var beðinn að flytja til gamla landsins, meðal fegurstu endurminninga minna. Eg tel það einhverja dýrmætustu reynslu mína, að hafa heyrt hjörtu Vestur-íslendinga slá og séð ástúðina til lands og þjóðar skína í döggvuðum augum þeirra”. Margt er það einnig um þjóðerni vort, í nefndum ræð- um, sem vér vestur hér megum leggja oss á hjarta, og kem eg ef til vill, að því annarsstaðar. Mannfagnaður dr. Guðmundar er því hin prýðilegasta og at- hyglisverðasta bók að efni til. Og hún er nýstárleg í bókment- um vorum, fyrsta íslenzkt safn af tækifærisræðum, svo talist geti. Er þar svo vel úr hlaðí farið, að örðugur verður eftir- leikurinn. Eins og sæmir slíku merkisriti, er það með afbrigð- um vandað að öllum frágangi, hin mesta prýði í hverjum bóka- skáp. Bók sem allir ættu að eiga Bókin heitir, “The Claimant’s Fire Insurance Guide” eftir John A. MacLennan. Hún er um skaðabótarkröfu til eldsábyrgð- aréflaga. Fæstir eru heima í þeim sökum, og eru því árlega stórir hópar, er verða fyrir eignatjóni af völdum elds, snuð- aðir um stórfé, sem þeir eiga fult tilkall til, ef þeir kynnu með að fara. Bókin kostar 75c send með pósti hvert sem er. Þessu riti' hefir verið mikið hrósað. Það er glögt og greinilegt og þó ná- kvæmt og fylgir fyrirmælum laganna í öllum greinum. Pant- anir má senda á skrifstofu “Heimskringlu.” Það er álit vort að enginn ætti að vera án þessa rits, það kostar lítið en getur vemdað menn fyr- ir ágangi umboðsmanna eldsá- byrgðarfélaganna sem jafnan fara eins langt og þeir komast þegar um skaðabótar mat er að ræða. FRÉTTABRÉF FRÁ ISLANDI (Eftirfarandi bréf hefir Mr. John Hall í Winnipeg verið svo ' góður að sýna oss og leyfa að birta í Hkr. Er blaðið honum þakklátt fyrir það. Ritstj. Hkr.) Fagurhólsmýri, 15. maí 1938 | Herra John Hall, Kæri vinur: Bestu þökk fyrir tilskrifið sem mér þótti verulega vænt um að fá, og heyra um ferðalag þitt, og sérstaklega að ferðin gekk vel, og að þú sást ekki eftir að koma hér um Ör- æfin, þótt erfitt sé að ferðast um þetta bygðarlag, enda mjög óvanalegt að ferðamenn komi hingað sjóveg. Það hefir nú dregist lengur fyrir mér en eg ætlaði í fyrstu að senda þér línur, en nú ætla eg að reyna að láta verða af því, þótt fátt sé í frásögur fær- andi síðan þú varst hér á ferð í fyrrasumar. Síðast liðið sumar var eins og þú komst að raun um, með óvenju litlu af sólskini, en því meira af rosa og rign- ingu og því leiðinlegt veðurlag og óhentugt um hábjargræðis- tíman, enda varð heyfengur fremur lítill og lélegur, en þó er nú á þessu nýbyrjaða vori útlít fyrir fremur góða afkomu á fén- aði, enda bætir það nú mikið um, að bændur gefa alment síldar- mjöl með heyjunum, sem reynist mjög vel, sérstaklega með hrökt- um heyjum og vetrarbeit. Síld- armjöl er aðallega gefið kúm og ám, og verða dilkar mikið vænni til frálags þegar síldarmjöl er gefið, 1 sekkur, 100 kg. af því kostar á höfnum kr. 22.00 en kominn heim alt að kr. 30.00 flutt með bílum, t. d. í Suður- sveit, en hingað með “Skaftfell- ing”. 1 sekkur af síldarmjöli nægir 20—40 ám yfir veturinn. Nú er búið að reisa nýja verk- smiðju sem býr til fóðurmjöl úr þara, blandað með síldarmjöli eða karfamjöli. Þessi nýja verk- smiðja er í Hveragerði í Ölfusi, og tekur þaran á Stokkseyri og selur sekkinn, 100 kg. á kr. 20.00. Þetta nýja fóðurmjöl kvað reyn- ast fremur vel, má það teljast framför þegar hægt er að hag- nýta innlend fóðurefni, sem hafa farið að mestu til ónýtis að þessu. Afkoma hjá okkur bændum var með besta móti á s. 1. ári hvað verzlun snertir, en mun lakari við sjóinn þó að undan- skildum síldarafla sem var mjög góður og síldarafurðir í góðu verði, en nú eru horfur á að verzlun verði óhagstæð á þessu ári. Fiskveiðin á Hornafirði hefir verið mjög rýr á þessari vertíð, svo annað eins fiskileysi muna menn ekki og mun aflin ekki vera nema 20—40 skippund á bát en hefir venjulega verið 100— 200. Lengst af í vetur urðu bát- ar ekki varir við neinn fisk, nema lítið eitt af óvenju stórum þorski, en annars er venjulegt þó fisklítið sé, að eitthvað aflast af trosfiski, t. d. ísu, keilu og steinbít, o. fl. Þetta aflaleysi verður mjög tilfinnanlegt, fyrst og fremst fyrir sjómenn, og einnig fyrir búendur á Höfn sem hafa haft all mikla atvinnu við fiskverkun, því kaupfélagið tekur mikinn fisk í húsaleigu o. fl, þegar vel aflast. Annars hjálpar Hafnarbúum, og yfirleitt sveitarmönnum aust- an Breiðamerkursands í þessari sýslu, kartöflu ræktin, sem yfir- leitt hefir hepnast vel, þó heldur yrði hún lakari síðast liðið sum- ar, uppskeran af þeim, enda nokkuð vart ýmsa kvilla í þeim, einkum kartöflumyglun, en verð- ið er all gott eða kr. 16 tunnan, 100 kg. í haust, en kr. 24.00 nú í vor. En bændur selja mikið af þeim á vorin. Næst dilkasölunni hafa bændur hér í sýslu mestar Það er auðséð að eg vafði þenna “vindling” með Vogue Af því hann er eins og “vafinn í vél.” VOGUE HREINN HVÍTI R Vindlinga Pappír TVÖFALT sjálfgert hefti tekjur af kartöfluræktinni. Hér í sveit eru þær ekki ræktaðar til sölu, enda all erfitt með flutn- inga á þeim héðan. Hér hugsa bændur til þess að rækta loðdýr, silfurrefi, til þess að hafa til viðbótar með sauðfjárræktinni, en sauðféð liggur nú undir á- föllum vegna svonefndrar mæðu- veiki, sem hefir drepið fé í sum- um sýslum landsins í hrönnum, en hingað hefir hún ekki komið .enn. Silfurrefaræktin hefir hepnast illa í vor og óvenju mikið drepist af tófu hvolpum; aðallega vegna þess að læðurnar hafa fengið júfurbólgu; annars eru silfur- refaskinn í háu verði og útlit fyrir að refaræktin svari góðum arði ef hún gengur vel, það er að segja að læðurnar koma upp hvolpum, en á því er oft mikill misbrestur. Síðast liðinn vetur var hér fremur góður; oft þýður og hlý- indi, en nokkuð breytileg veðr- átta og fljótt að kólna í veðri, með frosti og bráðajéljum. — Vorið byrjaði vel um sumar- málin, en kólnaði í annari viku sumars og þá voru næturfrost og kuldar og nokkur snjókoma, svo gróður er enn lítill, enda er nú víst mikill hafís norður í höf- um og nokkur hafís komin að norðurlandi ;.en þó hafa ekki enn hindrast samgöngur á sjó. Nú eigum við von á “Skaftfel!- ingi” hér að sandinum á morgun, og er eg að hugsa um að senda þessar línur með honum til Reykjavíkur, þetta er fyrsta ferð bátsins hingað á þessu ári. Nú er ný komin út árbók ferðafélags fslands; hún kom út í haust, og er ritið í þetta sinni aðallega um Austur-Skaftafells- sýslu, og prýdd fjölda af falleg- um myndum úr sýslunni. Eg tel víst að þér þætti gaman að sjá bókina ef þú ert ekki búinn að fá hana. Hún er handhæg fyrir þá sem búnir eru að ferð- ast um sýsluna til þess að rifja upp endurminningar héðan, en svo mun vera um þá menn sem fluttir eru til Ameríku eða ann- ara landa, að flestum muni hlýna um hjartað eins og Þorsteinn heitinn Erlingsson kemst svo fallega að orði í kvæði sínu Jör- undur Hundadagakonungur, þar segir: “Þá reis það úr ægi mitt fannhvíta Frón, með fjöllin sín blikandi hrein. Það fanst hon- um Jörundi svipmikil sjón er sólin á jöklana skein.” — Það munu allir fslendingar taka und- ir þetta með Þorsteini hvort sem þeir sjá sitt fannhvíta Frón í anda eða í raun og veru. Af okkur er alt gott að segja, allir við góða heilsu, Helgi bróð- ir er nú að smíða turbínu fyrir bændur í Borgarhöfn í Suður- sveit, og er nú langt komin með hana. Eg held eg hafi þessar línur ekki fleiri, gaman væri að sjá línur frá þér því það mun ávalt gleðja mig ef eg heyri að þér líði vel. Þó eg sé latur að skrifa hefi eg reglulega gaman af því að fá bréf frá öðrum. Hjartanlegar kveðjur til þín og konu þinnar frá heimilisfólk- inu hér og á Kvískerjum. Þinn einl., Sig. Arason VATNSLILJAN Táknmvnd af útsýn vonarinnar. (Útdráttur úr dagbók jurtafræð- ings, á vordegi nálægt stórri á). Að rannsaka hafði eg hugsað Og hraðaði ferð minni að sjá; f bakkanum litfögur lilja Ljómaði vatnsstraumnum hjá. Aðdáun anda minn snerti. Undarlegt, hugsaði eg, Er framleidd af for og bleytu Fegurð svo óskiljanleg. “Ó, stjarna á elfunnar barmi, Svo undraverð, dásöm og skær, Hefir þú fallið af himni, Þar helgasta litprýðin grær? Þú hrein ert sem englanna hugs- un, Þitt hjarta er af sólunni fætt. Grérirðu í guðfagra reitnum? Að göfgi þér enginn fær mætt.” “Nei, frá himni eg hefi eigi fall- ið, Mitt helgiskart gaf mér ei neinn, Það gréri á niðdimmrí nóttu, Þar niðri er gróðurinn seinn. Frá leðjunni undir í ánni Mína ágætu prýði eg vann, Hreinleik er háleitrar ættar, Og himins sér lyftir í rann. Ef þú vilt eðli hans kynnast Og í honum hlutdeild fá: Sólbjörtum ávöxtum andans fklæðast verðurðu þá. Engin má ógöfug hugsun Umráð í sál þinni fá. Á ljósbylgjum lifandi vonar Lyftu þér duftinu frá. Forðastu ódygðir allar, Iðkaðu kærleik og frið; Farbréf þá óbrigðult áttu Inn um hið gullna hlið. Þar verða lög til að lesa, Lög, sem að þola enga rýrð Og himneskar málfræðis myndir, Sem mannsandans auglýsa dýrð. Þar muntu flokk þeirra fylla, Sem fara um ónumin lönd Með ljóssins og lífsorða fræði, Að ieiðrétta vansæla önd. Með vermandi vonanna fylling Að viðreisa kalin strá, Andlegan ódáins gróður Þar yndislegt verður að sjá. Þar vaxandi vordaga Ijómi Vitnar um sigrandi þrótt, Þá bjart er um blómreiti lífsins, En burt horfinn vetur og nótt. Sólin þar sezt ei að kveldi, Því sjálfur er Drottinn á ferð, Ritningin svona frá segir Sagan er athyglis verð.” Kristín D. Johnson í ,Belgrad fóru nýlega fram réttarhöld í morðmáli: Ákærði var fundinn sekur og dæmdur til dauða. Þegar dómarinn hafði les- ið upp dómyin, hneigði hinn dæmdi sig djúpt, dró djúpt and- ann og byrjaði að syngja þyrni- aríuna úr “Tosca” hárri rödd. Fólkið stóð orðlaust af undrun. En fangaverðirnir áttuðu sig fljótlega og búndu fljótt enda á þessa utandagsskrárskemtun.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.