Lögberg - 30.10.1919, Blaðsíða 2
Bls. 2
LÖGBERG, FWÍTUDAGINN 30. OKTÓBER 1919
T
t
t
t
t
t
t
T
t
t
?
T'
t
‘ Ý
T
t
t
t
t
ti
t
t
t
t
❖
❖
t
t
t
t
♦♦♦:
:f
t
?
t
t
t
,f
lf
:f
f
f
f
f
f:
f
f
❖
f
f
f
f
f
f
f!
m
Hvort Heldur
Ætlardu ad Hafa?
S45. eða $82.50
Eigir þú $ 1 00 á sparibanka, þá gefa þeir af sér
3 per cent í rentu, eöa á fimtán árum $45.00.
Ef þ ú tekur þá upphæð út úr sparibankanum,
og kaupir fyrir hana Victory Bonds, greiðir Canada
þér 5 2 per cent í rentu, sem nemur á sama tímabili
$82.50.
Þarna er aðeins bent á ein hlunnindin sem því fylgja, að
kaupa Victory Bonds Canada-þjóðarinnar, í stað þess að láta pen-
ingana liggja óarðberandi, eða því sem næst, með aðeins 3 per cent.
rentu á sparibanka.
En það er einnig önnur ástæða fyrir því að þér, umfram alt
annað, eigið að kaupa Victory Bonds.
Þér eruð eigi innfæddir hér. Þér eruð Canadiskir kjörborg-
arar. Með þ ví að kaupa Victory Bonds, sýnið þér öðru fremur jljós-
ar, hve mikils þér metið forréttindi þau, sem yður er veitt með því að
gerast hluti af hinni miklu Dominion of Canada.
HAFIÐ ÞETTA HUGFAST ÞEGAR YÐUR VERÐUR B0ÐIÐ AÐ
KAUPA
VICTORY B0NDS
og fáið hærri rentur af peningum yðar.
.Gefið út af Canada’s Victory Loan Committee, í samráði við
Fjármála ráðgafa Sambandsfstjórnarinnar í Canada
f
f
f
f
f
f
f
:♦:♦
f
f
f:
f
f
f
f
f;
f
f
f
♦;♦:
f
f
f
f
f
f
f
f
f
f
f
f
f
f
f
f:
f
♦;♦!
L 4^4 4^4 4^4 4^4 4^4 4^4 4^4 4^4 4^4 4^4 4^4 4^4
Frá Islandi.
(Eftir Vísi, 5.—21. sept.)
Af síldveiðum kom í gærkvöldi
mk. Faxi. Hann hefir stundað
síldveiði frá Siglufirði og fengið
1700 tunnur, og varð hæstur allra
báta, sem þaðan gengu. Mk. Bolli
kom í morgun; hefir aflað um 800
tunnur; hann var á Siglufirði,
meðan aflinn var mestur á Vest-
fjörðum, og veiddi þá lítið; ann-
ars hafði hann bækistöð sína á
Flateyri við önundarfjörð.
í Skólavörðuholti mun mjög
hráðlega rísa upp mikil bygð. Nær-
allar Ióðir við Baldursgötu eru
seldar eða leigðar og við Freyju-
götu, pórsgötu og Óðinsgötu hefir
mikið verið látið úti af leigulóð-
um, t.d. undir 8 hús á síðasta bæj-
arstjórnarfundi, og var þó mikið
leigt áður.
Radium stofnunin er nú tekin
til starfa undir stjórn Gunnl.
Claessens læknis, sem manna mest
hefir unnið að því, að koma henni
a stofn, með aðstoð margra veg-
lyndra manna hér í bæ og víðar.
Sá viðburður hefir svo hljótt um
sig, að honum er minni gaumur
gefinn en vera ætti, en lengi mun
það talinn merkilegur viðburður í
sögu íslenzkrar læknislistar.
Fjórir valir sáust á flugi í einu
hér yfir bænum í gærmorgun. —
Annars eru þeir orðnir mjög sjald
séðir víða um land, en þó einkum
hér.
Fiskifélagið Haukur hefir feng-
ið leyfi bæjarstjórnarinnar til að
breyta bryggju sinni í hafskipa-
bryggju.
Nýjar götur er nú verið að
leggja um skólavörðuholt og verða
þær nefndar þessum nöfnum: —
Freyjugata, framhald af Bjargar-
stíg, og pórsgata, framhald af
Spítalastíg. Á Grímsstaðaholti
er verið að leggja nýja götu, sem
heitir Fálkagata.
Húsið nr. 15 við Vesturgötu hef-
ir nú verið fært frá götunni vegna
breikkunar, sem verið var að gera
á gangstéttinni. Eigandi hússins
Oddur Bjarnason, leyfði flutning-
inn án allra bóta. Er það óvenju
leg sanngirni og öðrum til eftir-
breytni.
Dúkskot og Gróubæ, gömlu torf-
bæina, sem standa hvor hjá öðrum
við Vesturgötu, ætlar bærinn að
kaupa. Dúkskot verður rffið í
haust, en Gróubær liklega að
sumri. Falla þar einhverjir síð-
ustu torfbæir innanbæjar og væri
gaman að láta taka ljósmynd af
þeim áður en farið verður að
hrófla við þeim.
Hey er heldur að lækka í verði
síðustu dagana, því að mikið hefir
borist af því til bæjarins.
Listasýningin er fjölsótt hvern
dag. Nokkur listaverk hafa þeg-
ar verið seld og fer hér á eftir
skrá yfir nöf þeirra og verð, ásamt
nöfnum höfunda: — Ásgr. Jóns-
son: Morgun, 800 kr. Emil Thor-
oddsen: Modell, 50 kr., Bryggja,
50 kr. Guðm. Thorsteinsson:
Siglufjörður, 700 kr., Kvöld í ver-
inu, 300 kr. Jón Helgason, Hrúta-
dalur, 75 kr. Jón porleifsson:
Kvöld í Hornafirði, 200 kr. Rík-
arður Jónsson: Aleiga, 100 kr.,
Gvendur á ferðalagi, 100 kr., Stú-
dent, 2 myndir, 60 kr. Svb. Svein-
björnsson, 5 myndir, 150 kr., ppr-
arinn porleifsson: Kvöldsól á
Skarðsheiði, 800 kr.
8. sept. var hiti í Reykjavík 7.5
st., á ísafirði 6.2 st., Akureyri 6,
grímsstöðum 2.8, Seyðisfirði 7.2
og í Vestmannaeyjum 7.6 stig.
Á tólfta þúsund tunnur síldar
hafa veiðst frá stöð Elíasar Stef-
ánssonar í Djúpvík við Reykjar-
fjörð. Nokkuð af síldinni hefir
veiðst í reknet og alveg nýlega
fengust 500 tunnur í lagnet inni
í firðinum.
Dr. Jón biskup Helgason hefir
orðið fyrir þeirri sæmd, að guð-
fræðideild Khafnar háskólans hef-
ir boðið honum þangað, til þess að
halda fyrirlestra um kirkjusögu
íslands. Biskup hefir þekst boð-
ið og mun innan skamms fara
utan.
Botnvörpungar Kveldúlfsfélags-
ins komu allir í gærmorgun frá
Hjalteyri, Snorri goði með 3,200
tunnur, Skallagrímur með 2,500
tn., Egill Skallagrímss með 2,800
tn. og Snorri Sturluson með 2,200
tunur.
Skarjatssótt hefir verið að
stinga sér niður hér í bænum að
undanförnu, en sjúklingar verða
ekki einangraðir, því að “yfirvöld-
in” leyfa ekki sóttavarnarhúsið.
Rosaveður hefir verið hér tvo
undanfarna daga og hefir snjóað
í Skarðsheiði 17. sept.
Laugardaginn 13. þ.m. andaðist
á Landakotsspítala ekkjan Mar*
grét Guðmundsdóttir, systir Guð-
mundar Guðmundssonar frá Vega-
mótum.
Sjaldan hefir verið jafn síð-
sprottið í maturtagörðum sem í
sumar. Uppskera verður ekki í
rneðallagi, nema þar sem allra bezt
er sprottið.
Frá Isafirði var símað í gær, að
síldveiði væri nú alveg hætt þar.
Um 40 þús. tunnur munu vera
komnar þar á land.
Síra ólafur ólafsson prófastur
frá Hjarðarholti kom til bæjarins
< gær, alfluttur hingað.
Faber flugmaður flaug austur
yfir fjall í gær, um Kaldaðarnes
til Eyjarbakka. Lenti hann tvisv-
Ósjálfbjarga af gigt.
PAR TIL HANN TÓK “FRUIT-A-
TIVES”, AVAXTA LYFIÐ.
R. R. No. 1, Lorne, Ont.
“í þrjú ár hafði eg verið rúm-
fastur af gigt. Eg leitaði lækna
og reyndi næstum öll ráð, án á-
rangurs.
Loksins reyndi eg “Fruit-a-
tives”. Áður en eg hafði lokið úr
hálfri öskju, fór mér að batna,
verkirnir minkuðu og bólgan
þvarr. Eg held áfram að nota
þetta ávaxtalyf og hefir batnað
það mikið, að nú get eg gengið
2 mílur og unnið talsvert heima.”
Alexander Munroe.
Hylkið á 50c., 6 fyrir $2.50 og
reynsluskamtur 25c., fæst í öllum
búðum eða gegn fyrirfram borg-
un beint frá Fruit-a-tives, Limit-
ed, Ottawa, Ont.
ai í Kaldaðarnesi en ekki á Eyr-
arbakka. í ferð þessari var Faber
rúman klukkutíma. Síðan fór
hann til pingvalla en lenti þar
ekki. Farþegar voru með honum
báðar þessar ferðir; Ernst Peter-
sen heildsali fór aðra og Friðþjóf-
ur Thorsteinsson hina. í dag ætl-
ar Faber til Vestmannaeyja, en
lendir þar ekki.
Ljóðmæli Jóns Thoroddsens
koma út á aldarafmæli hans 5. okt.
n.k. TJtgefandi er prófessor por-
valdur Thoroddsen. Allur frá-
gangur bókarinnar verður hinn
vandaðasti. iMynd höfundarins
verður fyrir framan kvæðin og
æfiisaga eftir Jón Sigurðsson, sú
er prentuð er í 1. útgáfu kvæð-
anna.
COPEMHAGEN
Munntóbak
Búið tilúr hin-
um beztu. elstu,
safa- mestu tó-
baks blöðum, er
Þetta er tóbaks-askjan sem ábyrgst að vera
hefir að innibalda heimsin algJÖrlega hremt
bezta munntóbek
Hjá öllum tóbaksíölum
LÆRID VJELFRŒDl
VULCANIZING BATTERIES og WELDING
Lærðir bifreiðamenn, gas-dráttvélastjórar, tire aðgerð-
armenn og oxy-welders, fá hátt kaup fyrir vinnu sína Eft-
irsurn eftir slíkum mönnum er margfalt meiri en nemur
þeim fjölda, sem læra slíkar handiðnir. Vér kennum þær til
fullnustu á hinum ágæta skóla vorum. Bezti og fulíkomn-
asti skólinn í Canada. Vér höfum komið öllum vorum $25,
000 útbúnaði fyrir í einu lagi í stað þess að láta þá upphæð
dreifast á sjö eða átta skóla. Engin stofnun í Canada jafn-
ast á við skóla vorn eins og hann nú er. Kensluaðferðirnar
hinar beztu sem þekkjast og eftir kröfum tímans. — Hjá
oss má greiða kenslugjald út í hönd eða með afborgunum.
Skrifið til Dept. X.
GARBUTT MOTOR SCHOOL, LIMITED
City Public Market Bldg. CALGARY, ALTA.
Frá Kristjaníu er símað, að
verksmiðja hafi brunnið þar og er
skaðinn metinn 10 miljónir kr.
Capt. Faber flaug austur að
Kaldaðarnesi í gær á 20 mín., og
þaðan til Vestmannaelja, en sett-
ist þar ekki og flaug aftur til
Kaldaðarness. Var 1 klt. og 15
mín. fram og aftur. Frá Kaldað-
arnesi og hingað hrepti hann and-
viðri og var 45 mín. Skrifari flug-
félagsins, cand. Halldór Jónas-
son, flaug með Faber til Eyja, en
vélameistarinn kom austan frá
Kaldaðarnesi með honum.
Jónatan porsteinsson, kaupm.,
hefir fengið leigða 2,000 fermetra
lóð við Laugaveg ofanverðan, inn-
an við Mjölni, til að koma þar upp
geymslu undir bifreiðar, bensín,
olíur o. fl. þ. h. par verður einn-
ig viðgerðarstöð bifreiða.
Gasverð verður ekki lækkað að
svo stöddu. pað hafði kchnið til
mála, en var felt á bæjarstjórar-
fundi í gær.
Frú Guðrún Pálsdóttir, móðir
séra Friðriks Friðrikssonar, var
áttræð í gær. Sonur hennar er nú
á leið hingað með “íslandi”. Með-
limir K. F. U. M. buðu henni til
veizlu í gærkveldi og voru þar
haldnar margar ræður og frúnni
afhentar 600 kr. að gjöf.
Fisklítið hefir verið undan-
farna daga, en von að rætist út
því með kvöldinu, því að bátar eru
rú ó sj.
Frá Alþingi.—Frv. um vatnorku
sérleyfi, sem vatnamálanefnd
þingsins flutti, var felt í n. d. í
, gær með rökstuddri dagskrá frá
séra Sigurði Stefánssyni og stjórn-
inni falið að leggja fyrir næsta
þing frv. til samfeldra vatnalaga.
Með dagskránni Voru greidd 17
atkv. en 4 á móti: Bjarni frá Vogi,
Ben. Sv., Jón Jónsson og ólafur
Briem. — Umræðunni um tillög-
una um atkvæðagreiðslu um bann-
ið varð ekki lokið. •— í e. d. var
lokið 2. umræðu um fjárlögin.
Feldi deildin niður 15 þús. kr. fjár
veitingu til flugfélagsins, en setti
inn í hennar stað jafnháa fjár-
veitingu til kolanáms í Bolungar-
vík. Samþyktur var 12. þús. kr.
styrkur til Olympiufarar.
Ungur lifa og deyja.
Yfir húm og harma
Harpan mín skal óma,
par sem vorið varma
Vekur gleði hljóma.
Inn með alt hið bjarta,
Árdags fjör og varma.
Út með alt hið svarta,
Efa, víl og harma.
Gegn um kóf og klungur
Knátt skal stríðið heyja,
Óðinn syngja ungur,
Ungur lifa’ og deyja.
Ljósið æsku ára,
Engill minn á brautum,
Gaf við tökin tára
Táp 'í öllum þrautum.
Pegar síðsta sinni
Svellur dauðans boði,
Ljómar andans inni, *
Æsku minnar roði.
M. Markússon.
[Jér eroð VTSS með að fá meira brauð
betra brauð með því að brúka
Skrifið oss um upplýsingu
Westeru Canada Flour Mills Co., Limited
Winnipeg, Brandon, Calgary, Edmouton.
Ceral Llcense No. 2-009.
Flour License No. 15, 16, 17, 18
Vísur
Til heimkominna hermanna og
hjúkrunarkvenna, fluttar á sam-
komu í Winnipeg, 3. okt. ’19.
I.
Heiðra og þakka hetjufjöld,
af hreinum kærleiks anda
endurtaka enn í kvöld
ættmenn Norðurlanda.
Hetjur eruð þið okkur hjá,
eins og fyr á tímum, —
bragna val, sem bent er á
í Bernódusar nímum.
Leiðir hvar sem liggja’ um storð
lífstíð það skal muna:
fest er við ykkur frægðarorð
fyrir hergönguna.
II.
Hermeyjar með hetjum tel,
sem hjúkruðu’ á storðum nauða
og gengu fram í verki vel
á vegum Krossins Rauða,
Líknarndi með dáð og dug
hjá dauða’ og neyðar báli,
Bergþóru þær beittu hug,—
sem brenna hlaut með Njáli.
Loks þá komið hér er heim,
hrelling dvín og kvíði,
góða hjálp skal þakka þeim
í þessu alheims stríði.
Sagan geymist ykkur af
öllum, vinir góðir,
sem fóruð yfir Atlanzhaf
og austur um Heljarslóðir.
» G. H. Hjaltalín.
pakkarorð.
Mismunandi sagnir hafa borist
út um bygðir, af hinu mikla slysi
er mig henti í sumar; finn eg mér
því skylt að geta hins sanna. —
pegar mótorvagninn, sem eg var
keyrð í, féll ekki að stjórn sökum
bilunaV, rann hann með geysi-
hraða af brautinni, nam staðar í
akri þá reiddi mig til falls, kom
niður á trjástofn, með þeim af-
leiðingum, að í mér brotnuðu sex
rif. pað varð ljóst að uppskurð-
ur, er læknar á Edinburg gjörðu,
bjargaði lífi mínu.
Með þakklæti og hrærðu hjarta
minnist eg hinna mörgu, sem tóku
innilega hlutdeild tí kjörum mín-
um. Mig bresta orð til að þakka
þeim sem verðugt er, og tvísýnt
er um það, að eg hefði getað hald-
ið áfram námi mínu við Park
River háskólann, hefði eg ekki
notið göfuglyndis þeirra. Mr.
Kristján Indriðason og Thorlákur
Thorfinnsson gengust fyrir gjöf-
um Goodtemplara á Mountain,
Miss María Einarsson gekst
og fyrir gjöfum Rauðakross fé-
lagsins, kvenfélagið á Eyford tók
ríflegan þátt í gjöfinni, og Miss
Leifur á Mountain, sem ekki til-
heyrir nefndum félögum, afhenti
mér $25; alls námu gjafir þessar
yfir $150. Allar þessar gjafir og
allan þann kærleik, sem bakvið
þær felast, þökkum við gefendun-
um innilega og biðjum guð að
Iauna þeim, nær sem hann sér
þeim hentast.
Guðrún Thorsteinsson,
Kr. Thorsteinsson.
Mrs. Kr. Thorsteinsson.