Lögberg - 05.04.1934, Blaðsíða 1

Lögberg - 05.04.1934, Blaðsíða 1
47. -\RGANGUR ' WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 5. APRÍL 1934 FRA ISLANÐI KOMMÚNISTAR A AKUREYRI í gær var haldinn bæjarstjórnar- fundur á Akureyri. Kommúnistar fjölmentu þangað og höfðu ærsl í frammi og hótanir viS bæjarfulltrú- ana. Síðan lokuðu þeir bæjarfulltrúana inni í fundarsalnum og sleptu þeim ekki út fyr en eftir tvær klukku- stundir. Ekki urðu fulltrúarnir fyrir nein- um aðsúg þegar út kom, en komm- únistar létu þá vita, að þeim mundi velgt betur næst.—Mbl. 7. marz. AFLI I GRIMSEY varð áriÖ sem leið 52,390 kg. stór- fiskur og 101,200 kg. smáfiskur í salt, en töluvert var hert. Róðra stunduðu 7 smátrillur og 3 árabátar. —Lúðuafli var meiri en nokkuru sinni áður og var mest af lúðunni selt til Akureyrar. Hákarl fekst enginn, hvernig og hvar sem reynt var. Mestallur sumaraflinn var verkaður, metinn og pakkaður í eynni. Telst það nýlunda, en gafst ágætlega. HÆST ARÉTTARDÓM U R var í morgun kveðinn upp í máli því, sem Lárus Jónsson fyrv. læknir á Kleppi, höfðaði gegn rikissjóði, til skaðabóta fyrir, að honum hefði ranglega verið vikið úr stöðu sinni. Með undirdóminum voru L. J. dæmdar allmiklar bætur, en þeim dómi var hrundið í hæstarétti. Sýkn- aði hæstiréttur ríkissjóð algerlega af kröfum Lárusar og dæmdi hann til að greiða málskostnað fyrir báð- um réttum, samtals 500 krónur. —Vísir 7. marz. ÚTVARPSNOTENDUM fjölgar ár frá ári í öllum sveitum Borgarf jarðaif. Af 28 bæjum i Reykholtsdalshreppi hafa nú 20 út- varpstæki. Lík hlutföll eru í fleiri sveitum Borgarf jarðar. Mestum erfiðleikum veldur það, að koma rafgeymum í hleðslu og verða flest- ir að senda þá til Borgarness. —Alþbl. ' FLÖSKUSKEYTI fann Adolf Ásbjörnsson frá Ólafs- vik í gær rekið á f jörum vestan við Ólafsvíkurenni. Skeytið var merkt: nr. 78 frá vísindastofnuninni Yak- utsk og hafði því verið varpað í sjó við Síberíuströnd árið 1927. Ólafsvík, 6- marz. STARFSMENN LANDSBANKANS Nokkurar breytingar hafa verið gerðar á starfsmannahaldi Lands- bankans, og mun hér vera um bráða- birgðaráðstafanir að ræða. Hilmar Stefánsson, útbússtjóri á Selfossi, verður aðalféhirðir fyrst um sinn, en Guðmundur Guðmundsson hefir fengið lausn frá aðalféhirðisstörf- um um stundarsakir. Skift hefir og verið um starfsmenn i útbúinu á Klapparstíg. Mun Haukur Vig- fússon verða starfsmaður þar, en Ingvar Sigurðsson tekur við starfi 1 aðalbankanum. Þá hefir verið skift um aðstoðargjaldkera aðalfé- hirðis og gegna þeir öðrum störf- um, a meðan rannsókn stendur yfir út af seðlahvarfinu. — Rannsókn í þvi máli heldur enn áfram, en ekk- ert hefir enn upplýst i því, sem leitt hafi grun að nokkrum einstökum starfsmanni eða orðið til upplýs- ingar um það með hverjum hætti peningarnir hafi horfið. —Vísir'6. marz. AFLABRÖGÐ Sæmilegar gæftir og ágætur afli var á Sandi og í Ólafsvík síðastliðna viku. Áður var gæftaleysi og afli mjög tregur. Allir bátar úr þessum veiðistöðvum voru á sjó í dag. Ólafsvík, 6. marz. ARSHATIÐ MENTASKÓLANS á Akureyri var haldin að venju á Jónsmessu Hólabiskups. Skóla- meistari setti hátíðina og bauð gesti vellcomna og mintist íslands. Því næst flutti Þórarinn Bijörnsson er- indi um kenningu Bergsons um hlát- urinn, eðli hans og hlutverk. Óskar Magnússon frá Túngunesi signdi minni Jóns helga. Bárður Jakobs- son frá Bolungarvík mælti fyrir tninni skólans, Árni Jónsson á Ak- ureyri mintist kvenna, en Steingrím- ur Jónsson bæjarfógeti þakkaði skól- anum gestanna vegna. Tvöfaldur kvartett, undir stjórn Guðmundar Matthíassonar úr Grímsey, söng yfir borðum. Dans var stiginn fram undir morgun. Hátíðin hófst kl. 8 að kvöldi. Skólinn var skreyttur málverkum listfengra nemenda og fjölbreyttum ljósum. Steindór kennari Sigurðsson sá um skreyt- ingu.—Hátíðina sóttu um 300 manns eða fleiri en nokkru sinni fyr. Skeyti barst frá háskólastúdentum útskrifuðum úr Mentaskólanum á Akureyri.—N. Dagbl. 2. marz. FRA VIK I MÝRDAL 5. MARZ Að undanförnu hefir veðrátta verið mjög umhleypinga- og storma- söm. Tíðir suðvestanstormar hafa valdið talsverðum sandágangi í Víkurkauptúni, þótt ekki séu nærri eins mikil brögð að því ennþá, eins og í fyrravetur. Garðar þeir, sem hlaðnir voru í haust á sandgræðslu- svæðinu hafa og dregið nokkuð úr sandfoki inn í kauptúnið.— í suð- vestanáttinni seint í siðasta mánuði kom allmikill timburreki á fjörur í Mýrdal og víðar. Trjáviður þessi er einkúm plankar, og er talið að þeir muni skifta hundruðum, sem rekið hafa á Mýrdalsf jörur og þykir þetta góður fengur. Annars virðist þetta hafa legið allengi í sjó og því orðið misjafnt að gæðum, og fúi kominn í suma plankana. — Vegna kartöflu- sýkinnar, sem síðastliðið haust ónýtti uppskeru manna unnvörpum í Mýr- dal og víðar, hefir verið gerð fyrir milligöngu hreppsnefndar Hvamms- hrepps stórfeld pöntun á útsæðis- kartöflum fyrir vorið, og er búist við að Búnaðarfélag íslands fái þær frá útlöndum. — Tófuvargur gerir nú mjög vart við sig í sveitum aust- an Mýrdalssands, einkum í Skaft- ártungu og Útsíðu. Vita menn ó- gerla hvaðan tófa hefir komið, nema ef kynni að vera utan af Landi eða Rangárvöllum. Hefir hún nokkuð bitið fé manna, en mest hefir þó enn borið á slóða og troðningi eftir dýrið. Hefir nú verið tekin upp eitrun allsstaðar á þessu svæði, sem menn ætla að komi að haldi, því svo var fyrrum, að það eitt dugði, er tófu var útrýmt úr Skaftafellssýsl- um nálægt aldamótum síðustu. — Nýlátnar eru í Skaftafelssýslum Guðfinna Björnsdóttir ljósmóðir, miðaldra, kona Lofts Guðmunds- sonar oddvita á Strönd í Meðallandi og Kristín Vigfúsdóttir á Borgar- felli i Skaftártungu, hún var ekkja Sæmundar Jónssonar, er þar var hreppstjóri og látinn fyrir mörgum árum. Kristín var nær 89 ára. —N. Dagbl. KOLANAMUR VIÐ AKLAVIK Kolalög hafa fundist í jörðu í nánd við þorpið Aklavík, N. W. Territories. Þótti það happafundur, því lítið er um eldsneyti þar um slóðir og erfitt aðdráttar, én kuld- inn mikill, þar sem þorpið er á strönd Norðuríshafsins. Kolin eru talin jafngóð þeim beztu, er fundist hafa í Albertafylki. Alt til þessa hafa íbúar Aklavíkur höggvið skóg til brenslu, en nú mun hann á þrotum þar í grend. Allmik- ið af olíu hefir einnig fundist þar norður frá en hreinsunartæki eru svo ófullkomin, að ekki fæst nóg til hitunar. Verð á kolum í Aklavík er um $25 tonnið, og verður það mikill sparnaður, ef hin nýju kol reynast eins vel og af er látið. Flestum kom á óvart að kol skyldu finnast á þessum stað, þþ kemur það heim við niðurstöður Alexanders McKenzie, landkönnunarmannsins fræga, er svæði þetta rannsakaði 1789. FORN LEIFAFUND UR 1 síðastliðin þrjú ár hafa nokkrir vísindamenn frá Harvard háskól- anum verið að rannsaka merkan fornleifafund í grend við Panama- skurðinn. Mið-Amcríka var um eitt skeið bygð af Indíánum á mjög háu menn- ingarstigi. Þeir voru náskvldir Tncunum, sem bjuggu í Suður-Ame- riku og Aztekum í Mexico. Colum- bus komst í kynni við þjóðflokk þennan á fjórðu og síðustu ferð sinni T502, og flutti til Spánar sagn’- ir af auðlegð þeirra og menning. Nokkru seinna fóru Spánverjar að venja komur sínar til landsins, og fóru, eins og þeirra var siður, hvar- vetna með ránum og gripdeildum. Ýnisa skartgripi fluttu Spánverjar heim með sér, en þeir voru jafnan bræddir niður og gullið síðan notað til annara þarfa. Aðeins á stöku stað i sögu Spán- verja, finnast nú sagnir um þessa merku þjóð, sem bjó i Codé-hérað- inu, skamt frá þar sem nú er Pan- amaskurðurinn. Svo mikið vita menn samt að þjóðin var hraust og harðfeng, og varðist yfirgangi hvítra manna. Árið 1531 hörfuðu þó nokkrir þeirra undan og leituðu hæl- is í Sierras-f jöllunum. Þar búa af- komendur þeirra enn í dag. Fyrir svo sem 30 árum síðan breytti Codé fljótið (Rio Grande de Codé) um farveg og ruddi sér braut i gegnum fornan grafreit. Fyrir fimm árum síðan áttu nokkrir Indíánar ferð eftir fljótinu, sem þá var mjög vatnsb'tið sökum þurka. Þeir sáu þá glitra á einhverja hluti á árbakkanum og reyndust þeir vera úr skýru gulli. Indínarnir seldu gersemar þessar og keyptu sér brennivín fyrir. Nokkru seinna fréttist til Harvard að mjög sér- kenmlegir og fornlegir hlutir væru til sölu í skranbúðutn í Panama- borg. Þá var gerður út leiðangur til að rannsaka þetta nánar. For- ingi leiðangursins var Dr. Samuel Kirkland Lothrop. Nú var leitað í þessum æfagamla grafreit og fundust í einni gröfinni sex beinagrindur, sem lagðar höfðu verið á stórar hellur, og yfir 2,000 forngripir af ýmsu tægi þar hjá Þar á meðal voru hálsmen og arm- bönd úr gulli, sett með dýrum stein- um. Einnig brjóstverjur úr gulli með alls konar drekamyndum, og eyrnahringir, mjög haglega gerðir. Þarna fundust líka speglar úr fægð- um steini eða krystalli, ýmsar mynd- ir telgdar úr hvalsrifjum, spjóts- oddar úr fiskbeinum, hálsbönd úr hákarlstönnum og villigaltartennur greyptar í gullumgerðir. SELAVEIÐl Árlega er gerður út floti selveiða- | skipa frá Nýfundnalandi, og er ! hann að veiðum mánuðum saman í ! Norðurishafinu. Nú er bráðlega | von á flotanum heim aftur með stærstu veiði, sem fengist hefir í f jöldamörg ár. I St. John’s, höfuð- borg Nýfundnalands, er uppi fótur og fit, og verður veiðimönnunum fagnað með veizlum og hátíðahöld- um, þegar heim kemur. Yfirmaður flotans er Abraham Kean, fyrrum fiskimálaráðgjafi í stjórn Nýfundnalands, og skipstjóri á skipinu Beothic. Hann er 79 ára gamall og hefir stundað selveiðar i 62 ár. Kean hefir veitt yfir miljón seli á skip sin. Átta gufuskip eru í flotanum og hefir “Imogene” mestan afla, eða 52 þúsund seli. Næst er “Beothic” með 40 þúsund seli. Stærsta skipið er “Thetis” með 100 manna skips- höfn. Það skip lenti í ís og brotnaði skrúfan á því á dögunum, og berst það nú fyrir straum og vindi. Þó er skipið ekki sagt í hættu og verður dregið í höfn, þegar nógu stórt skip fæst til þeirrar ferðar. Enn mun nóg af sel á ísaflóunum þar norður frá, og veiðast stundum alt að fjögur þúsund selir á dag. STAVISKY HNEYKSLIÐ Enn er verið að rannsaka Stavisky tnálin í Frakklandi, en lítið er enn örðið uppvíst í því máli, og lítið hefir gerst, nema hvað nokkrir lægri em- bætismenn bæði í Paris og Bayonne hafa orðið að láta af störfum sínum. Aðal sökudólgarnir ganga enn lausir þrátt fyrir öll ósköpin, sem á hafa "engið. Franska stjórnin er völt í sessi og miáfeir eflaust völd, ef ekki verður látið til skarar skríða. Ýmsir færustu menn úr leynilögregluliði Frakka hafa verið skipaðir í rann- sóknarnefndina, og hafa þeir sér til aðstoðar tvo færustu leynilögreglu- menn Breta, þá Fredrick Wensley, fyrrum yfirlögregluþjón við Scot- land Yard og Sir Basil Thomson, sem frægur varð fyrir handtöku Mata Hari, spæjarans nafnkunna. Sir Basil átti mestan þátt í þvi að hún varð sönnuð að sök. Margt er nú komið i ljós, sem áður var hulið. Til dæmis þykir nú sannað, að Stavisky hafi verið inyrt- ur, en hafi ekki framið sjálfsmorð, eins og ætlað var í fyrstu. Morðingjar dómarans Albert Prince eru enn ófundnir, en lög- reglan segist vera á hælum þeirra. Tveir menn hafa svarið fyrir rétti að skrifari Staviskys, Gilbert Ro- manigno, hafi vaktað bústað dóm- arans í nokkra daga fyrir morðið. Gimsteinar þeir, sem Stavisky kom undan, áður en Bayonne búð- inni var lokað, hafa nú fundist, að minsta kosti nokkuð af þeim. I hinni velþektu veðlánabúð Suttons í Lundúnum fundust gimsteinar, sem Stavisky hafði átt. Þeir eru metnir á hálfa miljón dollara. Þá fekk lögreglan grun um að eitthvað af verðmætum Staviskys væri að finna í húsi einu í Fontenay-saos- Bois. Þar var leitað og fanst þá ekkert nema tvær nýgrafnar holur, önnur í kjallaranum en hin i garð- inum framan við húsið. Þóttust menn vita að einhverjir, annað hvort úr lögregluliðinu eða dómsmála- ráðuneytinu, hefðu gert húseigend- unum aðvart. Svo er æsing manna mikil út af þessu hneyksli að fangar nokkrir, sem teknir höfðu verið i sambandi við mál þetta, voru teknir af skriln- um og næstum drepnir, meðan verið var að flytja þá frá Bayonne til París. _________________ SAKAMAÐUR FUNDINN James Fahey, Jasper, Alta., var fyrir skömmu tekinn fastur fyrir brot á friðunarlögum Albertafylkis. Hann hafði verið að veiða dýr i NÚMER 14 Eldgos í Skeiðarárjökli Óljósar fregnir hafa borist hingað vestur um eldgos í Skeiðarárjökli. Umbrot i jöklinum byrjuðu á föstu- daginn var og heyrðust drunurnar í 155 mílna fjarlægð. Svo mikið kvað að eldgosinu á þriðjudaginn, að aska féll um alt Austurland. Samkvæmt skeyti frá íslandi á þriðjudaginn, var talið að upptökin væru einhversstaðar í Vatnajökli, norðan við Skeiðará. Ekki verður enn sagt hvað alvar- legt þetta gos kann að vera, en um- brot í gýgnum hafa ágerst undan- farna daga. leyfisleysi, og komst það upp er fingraför hans fundust á gildrunum. Við nánari rannsókn kom í ljós að Fahey heitir réttu nafni Frank Grigware og hafði hann, fyrir 24 ár- um siðan, brotist út úr Leavenworth fangelsinu í Bandarikjunum. Hann hafði verið dæmdur til lífstíðar fangavistar fyrir póstrán. Nú heimtar stjórn Bandaríkjanna að Fahey sé framseldur, en það mæl- ist illa fyrir, þar sem hann hefir þótt hinn mesti sómamaður öll þau ár er hann hefir dvalið í Albertafylki. Enn hafa engar ráðstafnir verið gerðar þessu viðvíkjandi, en málið kemur fyrir um miðjan þenna mán- uð. Þingmenn Albertafylkis hafa látið i ljó meðaumkun sína með manni þessum og hafa skorað á Roosevelt forseta að sýna vægð í þessu til- felli. DAFOE OTNEFNDUR TIL KANZLARAEMRÆTTIS T. W. Dafoe, aðalritstjóri-Winni- peg Free Press, verður, að öllum likindum, næsti kanzlari Manitoba háskólans. Ejrlcibiskup Matheson hefir gegnt þvi heiðursembætti til margra ára, en hefir nú sagt af sér sökum elli og lasleika. Dafoe er löngu orðinn þjóðkunn- ur maður fyrir skrif sín. Hann er einn af áhrifamestu ritstjórum þessa lands og er honum með út- nefningu þessari verðugur sómi sýndur. STÆRSTI STJÖRNU-SJÓN- AUKI HEIMSINS í borginni Corning í New York ér verið að steypa glerið í stærsta stjörnu-sjónauka heimsins. Sjón- glerið er 16 fet og 8 þumlungar að þvermáli, um 2 fet á þykt, og veg- ur um 34 smálestir. Glerið er brætt við 1500 stiga hita, mældan á Cel- cius, og er svo helt í mótið. Um 4 þúsund manns höfðu komið saman til að horfa á meðan spegillinn yrði steyptur og stóð það fólk á háum palli ofan við bræðsluofninn, 50 í senn. Hingað til hafa slík gler verið steypt í Evrópu, og þykir það hinn mesti vandi, en nú eru Ameríku- menn svo langt komnir í þessari list, að óhætt var talið að treysta þeim fyrir verkinu. Dr. George Vest Mc- Cauley, eðlisfræðingur, hafði um- sjón með smíðinni. Stærsti stjörnu-sjónauki, sem áð- ur var til, er sá í stjörnuturninum á Mount Wilson, Cal., og er sjóngler hans réttum helmingi minni en það sem nú er í smíðum. Það verða að minsta kosti f jögur ár þangað til glerið er fullgert. Fyrst þarf að kæla glerið, og tekur það tiu mánuði; síðan þarf að slípa það mjög vandlega, og verður það að gerast smám saman svo það ekki hitni og aflagist. Alt þetta verk mun taka um þrjú ár, að minsta kosti. Sex miljónir dollara voru veittar fyrir nokkru úr Rockefeller-sjóðn- um (Rockefeller Foundation) svo að hægt væri að ráðast í þetta fyrir- tæki. Ótal stjörnu- og eðlisfræðing- ar voru kvaddir til ráðagjörða, og tókst þeim að lokum að ráða fram úr þeim örðugleikum, sem í vegi voru. Þegar sjónaukinn verður full- smíðaður, verður hann -sendur til Californiu og settur i stjörnuturn California Institute of Technology i Pasadena. Með sjónauka þessum ætti að sjást þrisvar sinnum lengra út í him- ingeiminn en áður hefir sést. ÍSLENDINGUR SKIPAR FORSÆTI Mr. S. E. Johnson, 1083 Dowm- ing St., Winnipeg, var nýlega kos- inn forseti United Commercial Tra- vellers of America. Mr. J. Snydal frá Shoal Lake var forseti þessa félags á undan Mr. Johnson. Mr. S. E. Johnson er Islendingur, sonur þeirra Mr. og Mrs. Einar Johnson, 1083 Downing St., Win- nipeg. Þau bjuggu fyr við Lundar, Man. Mr. Johnson er dugnaðar- og gáfumaður og mun standa vel í stöðu sinni. Hann er einn af um- boðsmönnum Codvilles félagsins hér í fylki. RORG RRENNUR FellibylUr og eldur gerðu stór- tjón í borginni Hakodate í Japan, síðustu viku. Vindurinn kom með 70 mílna hraða á klukkustund utan af sjó og lagði í rústir timburhjalla og vörtiskýli við höfnina. Þegar þök fuku af húsum, kviknaði þegar eldur og barst hann með geisihraða um borgina. Slökkviliðið fékk ekki við neitt ráðið og brunnu þarna um 23 þúsund hús. Fimtán hundruð manns dóu og tvö þúsund meiddust. Tuttugu og þrjár þúsundir urðu húsnæðislausar. Þetta er stærsti eldur, sem komið hefir upp í Japan, síðan Takio brann 1923. Herskip voru þegar send til Hako- date og fóru þau með klæðnað og vistir til íbúanna. I borginni var ljótt um að litast eftir eldinn og flóðið. Lík í hundraðatali láu í fjörunum; hafði bylurinn valdið vatnsflóði í borginni og hafði það skolað líkunum til sjávar með út- falli. Hópar af hröfnum komu fljúgandi ofan úr fjöllunum, morg- uninn eftir, og flögruðu þeir yfir borginni. Hakodate er níunda stærsta borgin i Japan. SAMUEL INSULL TEKINN FASTUR Loks mun nú komið að því að Bandaríkin handsami Insull. Skipið Maiotis, sem Insull leigði á dögun- um, var sett fast í Marmarahafinu af tyrknesku yfirvöldunum, og tóku þau Insull og fóru með hann til Istambul (Konstantinopel), og er hann þar í varðhaldi. Tyrkir hafa tilkynt Bandaríkja- stjórninni að fanganum verði ekki slept og megi hún láta sækja hann. Endar hér að líkindum hinn lang- varandi eltingaleikur við Insull. Fjárbálabraskarinn kvað bera sig illa. Hann þykist vera ofsóttur af Bandaríkjastjórninni og gerir mikið úr því hve gamall hann sé orðinn og heilsutæpur. Að líkindum verða einhverjir bandarískir lögregluþjónar sendir til Týrklands til að sækja Insull.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.