Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Lögberg

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Lögberg

						LÖGBERG FIMMTUDAGINN, 26. AGÚST, 1948

Œttmaðurinn

Eftir

THOMAS DIXON Jr.

VI. KAPÍTULI

Met stríðsins

Fyrsti dagur þjóðþingsins eftir stríð-

ið var eftirminnanlegur. Hvert sæti á

áhorfenda pöllunum var skipað. Elsie

og Ben voru þar, og voru með öndina í

hálsinum út af ótta fyrir því að harm-

leikurinn mikli sem þar fór fram mundi

varpa skugga á lífsvonir þeirra. Hún

hafði ekki augun af föður sínum eftir

að hann kom inn í þingsalinn og haltr-

aði til sætis síns, þar sem allra augu

störðu á hann.

Porsetinn hafði fylgt stefnu L-incolns

djarflega fram með að endurreisa ríkis-

heildina, og spursmálið var, hvort þing-

ið mundi fylgja forsetanum í þeim mál-

um, eða virða boð hans og fyrirskipanir

að engu og segja honum uppihaldslaust

stríð á hendur.

Stjórnir höfðu verið settar á stofn í

öllum Suðurríkjunum og í þær valdir

hæfustu mennirnir sem völ var á. Þing

þeirra höfðu einróma samþykt þrett-

ánda viðaukann við stjórnarskrána sem

aftók alt þrælahald og þrælasölu og

þeir höfðu kosið Senitora og ríkisþing-

menn til að mæta á þjóðþinginu fyrir

ríkjanna hönd og hr. Seward ríkisrit-

arinn hafði lýst yfir, að þessi nýi við-

auki væri óaðskiljanlegur partur grund

vallarlaga þjóðarinnar samkvæmt yfir-

lýstum vilja ríkjanna sem í hlut áttu.

Hershöfðingi Grant hafði farið til

Suðurríkjanna til þess að kynna sér

vilja og aðstöðu fólksins og þegar að

hann kom til baka, sagði hann:

"Eg er sannfærður um að allur meiri

hluti af hugsandi fólki í Suðurríkjun-

um sættir sig við aðstöðuna eins og hún

er, í allri einlægni. Þrælaspursmálinu

og fráhvarfi Suðurríkjanna frá sam-

bandinu álýtur það, að hafi verið ráðið

til lykta, af því æðsta úrskurðarvaldi

sem til sé, og sem líka sé þjóðinni fyrir

beztu".

"Skyldi þingmönnum Sunnanríkj-

anna verða leyfð þingseta?"

í þögn, svo djúpri að það hefði mátt

heyra flugu anda, reis þingritarinn úr

sæti sínu til þess að kalla nöfn hinna

nýkomnu þingmanna. Pólkið lagði

hlustirnar við, til þess að heyra nafn

fyrsta þingmannsins frá Suðurríkjun-

um kallað fram. Ekki einn einasti af

Suðurríkja-þingmönnunum var nefnd-

ur á nafn. Pyrirliðinn mikli hafði skipað

fyrir og þingritarinn var auðmjúkur

þegn hans. Næsta verkefni þingsins

var að veita boðskap forsetans mót-

töku. Boðskapurinn kom, en hann var

ekki frá forsetanum — æðsta valds-

manni þjóðarinnar, heldur frá Austin

Stoneman.

í fyrstu varð fólkið undrandi yfir þess

ari uppreisn gegn forsetanum, en smátt

og smátt hjaðnaði sú undrun. Stoneman

stóð á fætur, með staurfótinn út í miðj-

um ganginum, og flutti boðskap hins

nýja herra þingsins.

Það var í fyrsta sinnið sem Ben sá

þennan mann, sem hugur hans var

festur við meira en nokkurn annan

mann. Nú blasti hann við honum frá

sætinu þar sem Ben sat.

Stoneman byrjaði að tala dauft og

gáleysislega. Honum lág hátt rómur,

en í honum var þó enginn glymjandi,

hann talaði fyrst, hryssingslega og í

kerknisfullum hálfkæringsham, seih

festi athhygli allra á honum tafarlaust.

Mál hans til að byrja með var hrotta-

hnippingar, sem menn biðu óþreyju-

fullir eftir. Sumir af þingmönnunum

hlógu að þessu í von um, að eitthvert

snjallyrðið flyti þar með.

Hann var meira en meðalmaður á

hæð, dálítið boginn í herðum, og bar

persóna hans með sér andlegt þor, og

algjört virðingarleysi fyrir öðrum. Menn

fundu ásjólfrátt til þess, að á bak við

hin bitrustu orð senl hann sagði, voru

önnur enn beturri og áhrifameiri, ef að

hann þyrfti á þeim að halda.

Limir hans voru langir og   seinir   til

hreyfinga, en þeir voru altaf á iði, eins

og í þeim byggi einhver takmarkalaus

orka. Hendur hans voru stórar og ó-

nettar, og á sífeldu ógeðslegu fíttli við

eitthvað, eins og í þeim byggi sérstök

lífæð.

Hann hafði hrokkið og hármikið

parrak á höfðinu sem var jarpt á lit

og gaf hinu svipmikla andliti hans ein-

kennilegan svip. Á arnarnefinu í andlit-

inu á honum voru þrjár áberandi hrukk-

ur. Kinnarnar voru miklar og augna-

brýrnar, eins og hellisskútar yfir þeim.

Hann var víðmyntur, og munnurinn

mikill, þegar hann var opinn, en þegar

aftur, stóð neðri vör hans nokkuð út.

Af öllum andlitssvip hans voru aug-

un eftirtektarverðust, og þau töfruðu

Ben. Þau gátu hrifið, þegar inn í þau

var litið, en þau glóðu ekki, Þau gátu

valdbundið, ógnað og skelft, en lit- og

eldlaus virtust þau vera. Ben sá þau

glöggt hinum megin í salnum. Þó voru

þau ekki stór. Tveir litlausir sverðs-

oddar sem lýsti af, virtust þau vera. —

Þegar að eiganda þeirra var mikið í

huga, þá dökknuðu þeir rétt eins og

þegar skýdimmir stjörnu úti í himin-

geimnum.

Með einu merki sem hann gaf með

hendinni, og ófimlegu látbragði, féll

keksnis- og kæruleysislátbragðið af

honum eins og flík.

Hann var að reka smiðshöggin á boð

skap sinn, en í sínu illvígasta orðakasti

virtist hann aldrei skeika, eða vera

orðlaus, eða umsagnafátt. í áherzlum

sínum var hann kærulítill, eins og að

hann fyndi hjá sér yfirburða magn og

ávalt var hann kærulaus um endalokin,

eins og spilamaður sem hefir hætt öll-

um eigum sínum og tapað þeim, en er

sér þess meðvitandi, að eiga allskostar

við þá sem hafa yfirunnið hann.

Hann reyndi aldrei til að laða aðra,

eða sannfæra. Hans aðferð var að yfir-

ganga menn, gjöra þá orðlausa, og hon-

um tókst það. Því hann sló vopnin úr

höndum mótstöðumanna sinna, rheð

því að opinbera huldar fyrirætlanir

sem sem þeir höfðu kvisað og ætluðu

sér að nota sem keyri á hann.

"Hleypið þið umboðsmönnum Suður

ríkjanna inn á þingið", þrumaði Stone-

man, þá ráða þeir, með demokrötum

sem Norðurríkin kjósa innan eins þing-

tímabils lofum og lögum á þinginu og í

kosningaskálanum — Electoral Colloge.

— Líf og vald okkar eigin stjórnmála-

flokks er í veði. Hver sá sem dirfist að

flangra við slíka hættu, er uppreisnar-

maður og svikari við flokk sinn og

fólkið".

Pagnaðar-hróp gullu frá flokksmönn-

um Stoneman, um allan salinn, er hann

lauk ræðu sinni, en mótstöðumenn

hans sátu þögulir, því dyrfska manns-

ins gekk fram af þeim.

Stoneman stakk upp á, að þingið

skipaði nefnd til að athuga Endurreisn

Suðurríkjanna. Að sú nefnd sæi um all-

ar stjórnarframkvæmdir í þeim ríkjum

og að kjörbréf hinna ný kosnu erindreka

Suðurríkjanna séu afhent.

Stoneman settist niður, en þingfor-

setinn bar uppástunguna til atkvæða og

tilkynti þinginu að hún væri samþykt.

Nefndin var tafarlaust skipuð og var

hinn háttvirti Austin Stoneman forseti

hennar.

Að því búnu leyfði Stoneman að boð-

skapur forsetans yrði lesinn.

"Svei mér, ef hann er ekki allt heila

úthaldið", sagði Ben, dró þungt andann

og leit til Elsie.

Elsie brost af aðdáuni.

"Já, hann er hreinasti snillingur. —

Hann er fæddur leiðtogi, en hann þolir

ekki að heyra barn gráta, né heldur

hlustað á kveinstafi kvenna. Hann hat-

ar, en hatur hans er bundið við hugsjón-

ir og fyrirkomulög. Hann hefir hótanir

í frami, en þegar að hann er augliti til

auglitis við fulltingismenn haturs mál-

anna, þá vaknar hjá honum velvild og

virðing til f jandmanna sinna.

"Það er þá ekki vonlaust fyrir mig?"

"Nei, en ég verð að vera dómarinn um

það, hvenær við tölum við hann". Ef að

hann þá horfir á mig, eins og að hann

gerði í dag, þá kæmi mér ekki á óvart

þó þú yrðir að vera dómarinn og tals-

maðurinn líka.

"Þér fellur hann í geð þegar þú kynn-

ist honum. Hann er einn af mikilhæf-

ustu mönnunum í Ameríku".

"Hann er að minsta kosti faðir yndæl

ustu stúlkunnar í heiminum, sem er

óendanlega þýðingarmeira".

Guðni Thorsteinsson

(Frh. af bls. 1)

sem flestum sviðum, en hann

var fátækur maður og varð að

vinna alla æfi fyrir daglegu

brauði, æfistarf hans var póstaf-

greiðslustaðan. Hann var póst-

meistari á Gimli í 56 ár. Það er

langur tími, launin voru lág en

mikið að gjöra. Þetta starf rækti

hann með hinni mestu trú-

mensku og var öll embættis-

færsla hans í bezta lagi. Á hátíð

þeirri, er haldin var í tilefni af

25 ára ríkisstjórn George V.

Bretakonungs, var Guðni sæmd-

ur silfurmedalíu fyrir langt og

trúlega unnið starf.

Eftir því sem Gimli bærinn

óx. jókst starfið við Pósthús

bæjarins. Guðni tók að gerast

aldurhniginn og hefði eigi getað

afkastað öllum þeim störfum

sem biðu hans nema fyrir hjálp

konu sinnar og dætra, einkum

Mrs. Kardal, sem tók við starfi

hans og mun verða við þá stöðu

framvegis.

Kona hans og dætur hafa unn-

iðið með honum, létt störf hans

og sýnt honum frábæra umönn-

un og samúð, og hjúkrað honum

er heilsan bilaði og seinasti

áfanginn var fyrir höndum.

Guðni var hraustur maður

með miklu starfsþreki enda varð

starfsdagur hans langur. Hann

var í eðli sínu þýðlyndur og til-

finninga maður og varð það

stundum á fyrri árum æfi hans,

að þær réðu meira en dómgreind

in, en mentalöngun hans og

lærdómur bar ætíð fegri ávexti

eftir því sem árin liðu. — Hann

reyndi ætíð að miðla málum og

koma fram til góðs, og sú var

reynsla mín af honum. — Hann

var glaðlyndur og ætíð góður og

alúðlegur í viðræðum, birtist

þar ætíð hinn mikli fróðleikur

hans og lífsþekking. Sagan var

hans uppáhalds fræðigrein, og

þegar hann talaði á mannamót-

um vitnaði hann oft til hennar

og dró þaðan dæmi. Trúmál og

leit á þeim sviðum var honum

og ljúft íhugunarefni. Hann átti

stórt og gott bókasafn íslenzkra

og enskra bóka, og var sí-lesandi

til að finna sannleikann. Hann

átti marga góða vini og kunn-

ingja, sem heimsóttu hann og

leituðu til hans, enda voru fáir

honum fróðari um sögn bygð-

arinnar og hana hefir hann ritað,

eða kafla úr henni. Þegar hann

er horfinn, þá er snauðara í

fylkingu fróðleiksmanna héraðs-

ins en áður. Hann var einn

þeirra manna, sem unnið hefir

til þakklætis fyrir starf sitt í

þágu fróðleiks og þekkingar, við

hann á það sem skáldið kvað:

Tífaldar þakkir því ber færa

þeim,  sem  að  Guðdóms  eldinn

skæra

vakið og glætt og verndað fá

viskunnar helga fjalli á.

Hann klifraði fjallið og vermdi

sig við eldinn, geislarriir lýstu

honum og veittu honum marga

glaða stund ,og þeir sendu

bjarma sinn út í myrkrið og leið

beindu honum á leið hans út

yfir landamæri þessa lífs til

betri og bjartari heima.

Hann var jarðaður frá heimili

sínu og Sambandskirkjunni á

Gimli 9. júní og lagður til

hvíldar í Grafreit Gimli bæjar.

Yfir honum mæltu kveðjuorðin

séra Sigurður Ólafsson og sá er

þetta ritar.

E. J. Melan

Minnist

BETEL

i erfðaskrám yðar

Phone   21101

ESTIMATES

FREE

J. M. INGIMUNDSON

Asphn.lt Roofs and Insulated

Siding  —  Repairs

S32 SIMOOE ST. Wlnnipeg, Man.

Business and Professional Cards

SELKIRK METAL PRODUCTS LTD.

Reykháfar,   öruggasta eldsvörn,

og  ávalt hreinir.  Hitaeining,  ný

uppfynding,   sparar   eldiviö,

heldur hita.

KELLY sveinsson

Sími 54 358.

187  Sutherland Ave., Winnápeg.

S.  O.  BJERRING

Canadian Stamp Co.

RUBBER & METAL STAMPS

NOTARY & CORPORATE SEALS

CELLULOID BUTTONS

324 Smilh Si.

Winnipeg

Office Ph. 95 668        Res. 404 319

NORMANS.BERGMAN, B.A..LL.B.

Barrister, Solicltor, etc.

617  Mclntyre Block

WINNIPEG                     CANADA

447 Porlage Ave.

Abo

123

TENTH ST.

BRANDON

Winnipeg

Manitoba	Fisheries

WINNIPEG,   MAN.	

T.   Bercovitch,	framkv.st).

Verzla 1 heildsölu	meO  nýjan  og

frosinn	flsk.

303  OWENA	STREET

Skrifst.slml 25 355	Helma 55 482

DR. A. V. JOHNSON

Dentist

506   SOMERSET   BUILDING

Telephone   97 932

Home   Telephone    202 398

Taislmi  95 826        Heimilis  63 893

DR. K. J. AUSTMANN

BérfrœSingur i augna, eyrna, nef

og kverka ajúkdómum.

209   Medical  Arte  Bldg.

Stofuttmi: 2.00 til 5.00 e. h.

DR. ROBERT BLACK

Bérfrœðingur i augna, eyrna,

nef   og   hdlssjúkdómum.

401    MEDICAL   ARTS    BLDG

Graham and Kennedy St.

Skrifstofuslmi   93 861

Helmaalml  403 794

EYOLFSON'S   DRUG

PARK   RIVER,   N.   DAK.

islenzkur lyfsáli

Fðlk  getur  pantaS   meðul  og

annað með posti.

Fljot afgreiðsla.

A.  S.   B A R D A L

848   SHERBROOK   STREET

Selur líkkistur og annast um ut-

farir.   Allur   útbúnaður   sð.   bezti.

Ennfremur selur  hann  allskonar

minnlsvarða  og  legsteina.

Skrifstofu   talslml    27 324

Helmllis   talsími   26 444

Geo. R. Waldren, M. D.

Physician and Burgeon

Cavalier,   N.   D.

Office Phone 95.           House 108.

PHONE 94 981

H. J. H. PALMASON

and Company

Chartered Accountants

219   McINTTRE  BLOCK

Winnipeg", Canada

Phone   49 469	

Radio   Service  Specialists ELECTRONIC    LABS. H.  THORKELSON,  Prop. The   most' up-to-date   Sound Equipment  System.	

130   OSBORNE   ST.,   WINNIPEG	

JOHN A. HILLSMAN.

M.D.. Ch. M.

627   Medical  Arts.  Bldg.

Office-99 349   Home-403 233

DR.  E. JOHNSON

304 EVELINE STREET

Selkirk,   Man.

Offlce hrs. 2.30—6 p.m.

Phones:    Office 26   — Res.  2J0

Office   Phone

94 762

Res   Phone

72 409

Dr. L.  A. Sigurdson

528   MEDICAL ARTS  BLDG.

Office Hours:   4 p.m.—6 p.m.

and by appolntment

Drs. H. R. and H. W.

TWEED

Tannlœknar

406    TORONTO    GEN.    TRUST8

BUILDING

Cor. Portage Ave. og Smlth St.

PHONE   96 952

WINNIPEG

Dr.   Charles   R.  Oke

Tannlœknir

For Aopointments Phone 94 908

Office Hours  9—6

404  TORONTO GEN.   TRUST8

BUILDING

283 PORTAGE AVE.

Winnlpeg,  Man.

SARGENT TAXI

Phone     76 001

FOR    QUICK    RELIABLE

SERVICE

J. J. SWANSON & CO.

LIMITED

808  AVENUE BLDG    WPG.

Eastelgnasalar.    Leigja  hús.   Ut-

vega   penlngalán   og   eldsabyrgfl.

blfreiðaabyrgö,   o.   s.   frv.

PHONE  97 538

		PHONE  87493		

Dr.	s.	J.	Jóhannesson	

SUITE		7 594	VINBORG Agnes   St.	APT8.

Viðtalstlmi			3—5  eítir	hádegl

Andrews,   Andrews,

Thorvaldson    and

Eggertson

Lögfrœöingar

209BANK OF NOVA SCOTIA BG.

Portage og Garry St.

Sfmi   98 291

GUNDRY   PYMORE

Limited

British Quality Fish Netting

68 VICTORIA ST„ WINNIPEG

Phone 98 211

Manager T. R. THORVALDBON

íour patronage wlll be appreclated

CANADIAN     FISH

PRODUCERS, LTD.

J. H. PAGE, Managing Director

Wholesale  Dlstributors  of  Frash

and   Frozen   Flsh.

811  CHAMBERS  STREET

Office Ph. 26 328      Res. Ph. 73 917

G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dlr.

Keystone Fisheries

Limited

404 SCOTT BLOCK      SlMI 95 227

Wholesale Distributors of

FRESH  AND   FROZEN   FISH

Bus. Phone 27 989   Res. Phone 36 151

Rovatzos Flower Shop

Our Speclalties

WEDDING     CORSAGES

COLONIAL    BOUQUETS

FUNERAL DESIGNS

Mrs.   S.  J. Rovatzos,  Proprietress

Formerly Robinson & Co.

253 Notre Dame Ave.

WINNBPEG                      MANITOBA

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4