Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Lögberg

og  
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31 . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Lögberg

						LÖGBERG, FIMTUDAGINN,   5. OKTÓBER, 1950

Unnið fyrir 3 milj. að

framræslu á síðastliðnu ári

39 skurðgröfur unnu hjá 35 ræktunarsamböndum

og búnaðarfélögum

Á síðasta ári var unnið óvenjumikið að framræzlu í hinum ýmsu

byggðum landsins. Var unnið að þessum framkvæmdum fyrir sam-

.tals um 3 milljónir króna. Störfuðu að framræzlunni 39 skurð-

gröfur á vegum 35 búnaðarfélaga og ræktunarsambanda. Mest var

unnið í Árnessýslu, Borgarfirði og á Kjalarnesi.

Árið 1949 höfðu ræktunar-

samböndin í landinu 39 skurð-

gröfur í gangi. Voru þær á veg-

um 35 búnaðarfélaga, eða rækt-

unarsambandanna s j á 1 f r a.

Nægði þessi vélakostur þó

hvergi nærri til að fullnægia

hinni miklu þörf, sem er fyrir

skurðgröfurnar víðsvegar um

landið og eru heilar sveitir, sem

enn bíða eftir skurðgröfum og

hafa ekki getað fengið neina til

afnota. En þeim sveitum fer þó

fækkandi, sem enga úrlaucn

hafa fengið.

Þessar 39 skurðgröfur voru

vitanlega notaðar, eins og kostur

var allan þann tíma, sem unnt

var að vinna að framræzlu

vegna tíðarfarsins. Þó er það

jafnan svo, að verulegar frátafir

verða, vegna bilana og eins flutn

inga á milli bæja og sveita.

Þess má ennfremur geta, að

nokkrar af þessum skurðgröf-

um komu ekki til landsins fvrr

en á árinu 1949 og sumar ekki

fyrr en seint, þegar áliðið var á

þann tíma, er hægt var að vinna

að framræzlu.

Skurðgröfurnar eru flestar

eign vélasjóðs, en hann leigir

ræktunarsamböndunum,         eða

búnaðarfélögunum gegn 65 aura

gjaldi á hvern grafinn tenings-

metir.

Á síðasta ári voru því meiri

framkvæmdir við framræzlu en

nokkru sinni fyrr. Enda aldrei

áður jafn mikill vélakostur til

að vinna að framræzlunni.

Var unnið að þessum mikil-

vægu undirstöðuframkvæmd-

um ræktunarinnar fyrir um það

bil 3 milljónir króna með skurð-

gröfunum árið 1949 440513 lengd

armetrar, eða 1579712 tenings-

metrar.

Við þessar tölur er þó að at-

huga, að örlitlu getur skakkað,

þar sem skýrslur um vinnu víð

framræzluna hafa ekki borizt

frá einu félagi.

Mest framræzla í Flóa

og á Skeiðum.

Þau ræktunarsambönd, þar

sem mest var unnið að fram-

ræzlu árið 1949 eru ræktunar-

samböndin í Flóa og á Skeiðum.

Þar voru grafnir á árinu 118

þúsund m3. Næst mest var unnið

hjá ræktunarsambandi Kjalar-

nesþings 117 þúsund m3, og þar

næst í Leirá og Melasveit 111

þús. m3. Þá kemur ræktunar-

samband Áustur-Húnavatns-

sýslu með 99 þús. m3, ræktunar-

samband Eyfellinga með 80 þús.

ferm. og þá ræktunarsamband

Skagfirðinga með 75 þúsund m3.

Kostnaður við framræzluna

varð talsvert misjafn hjá hinum

ýmsu félögum. Kemur þar

margt til, sem áhrif hefir á kostn

aðinn. Valda þar mismunandi

staðhættir ef til vill mestu, en

óhöpp vegna bilana og annars

veldur einnig miklu um mis-

jafnan kostnað. Auk þess, sem

vélarnar eru nokkuð misjafnar,

hvað notagildi snertir á hinum

ýmsu  stöðum.

Með túnrækt fyrir augum.

Meginhluti hin framræsta

lands mun ætlaðar til túnrækt-

ar. Er víðast hvar þörf á því að

landið fái að standa lengi og

þorna áður en það er tekið til

ræktunar. Telja bændur einnig

að mun meiri not verði að land-

inu þannig framræstu, þótt

ræktunarframkvæmdir bíði.

Á stöku stað hefir verið ræst

fram engi og mýrar, og eru ætl-

aðar fyrir beitarlönd fyrst um

sinn.

TIMINN, 3. sept.

Úr borg og bygð

The Jon Sigurdson Chapter

I. O. D. E. will hold its regular

meeting on Friday, October 6th

at 8 p.m. in the I. O. D. E. Head-

quarters in the Winnipeg Audi-

torium.

Geíir til Sunrise

Lutheran Camp.

Mrs. Bertha Curry $300.00,

(General fund). Árdís fund $150.

00, (Memorial fund). Mrs. Pálma

son $15.30 (Memorial fund). Mrs.

B. S. Benson $25.00 (Library

fund). Mrs. Sigríður Skagfjörð

$10.00 í minningu um hjartkæra

vinkonu og nágranna, Guðnýju

Pauline Eggertson. Mrs. B.

Bjarnason $13.15.

Móttekið með innilegu þakk-

læti.

Anna Magnússon,

Box 296, Selkirk Man.

Leikíélag  Geysis-byggðar

hefir ákveðið að sýna gaman-

leikinn „Orustan á Hálogalandi"

í Sambandskirkjunni í Winni-

peg á þriðjudagskveldið 17.

október n. k. og í Selkirk á mánu

daginn þann 16. sama mánaðar.

Þessi bráðskemtilegi leikur

hefir þegar verið sýndur tíu

sinnum við feikna aðsókn á

ýmsum stöðum í Nýja-íslandi og

í Argyle og Vogarbyggð.

Leiksýning þessi verður nán-

ar auglýst í næsta blaði.

75  ÁRA  LANDNÁMSMINNING

Þjóðræknisfélag íslendinga í Vesturheimi er að efna til

minningar athafnar í tilefni af 75 ára afmæli komu

fyrsta íslendinga til Winnipeg og til Manitoba. íslend-

ingar lentu á Rauðár bökkum í Winnipeg 12. oktober,

1875. Og haldið verður upp á þann dag, 12. október n.k.

með samkomu. Hún fer fram í fyrstu Lútersku kirkju

á Victor Street með söng og ræðum og hljóðfæraslátti.

Inngangur verður ókeypis. Veitingar verða á eftir

samkomunni í neðri sal kirkjunnar og kosta 25 cent.

Á skemti skránni verður góður gestur sem kemur

frá New York, þar sem hann skipar ræðismannsstöðu,

herra Hannes Kjartanson, með kveðju frá heimaþjóð-

inni. Þar að auki flytur Mr. Wilhelm Kristjansson ræðu

á ensku og Jón J. Bíldfell ræðu á Islenzku. Mrs. Pearl

Johnson, dóttir fyrsta stúlku barnsins fætt í nýlendunni

við Winnipeg vatn, syngur nokkra einsöngva. Fleira

verður einnig á skemtiskránni, sem enn er í undirbún-

ingi. Allir Islendingar ættu að nota þetta tækifæri til

að minnast þeirra sem lögðu landnámsgrundvöllin sem

vér, sem á eftir komu, nutu góðs af á margvíslegan hátt.

FRAMKVÆMDARNEFND

ÞJÓÐRÆKNISFÉLAGSINS

FUNDUR

verður haldinn í stúkunni

Heklu I. O. G. T. núna í kvöld

(fimtudag) á venjulegum stað

og tíma.

ú

Laugardagsskóli

Þjóðræknisfélagsins hefst á

laugardaginn 14. okt. kl. 10 f. h.

í sambandskirkjunni á Banning

Street.

Er þess vænst að öll börn og

unglingar, sem sóttu skólann í

fyrra, láti sig ekki vanta og að

mörg fleiri komi.

Reynt verður að ráðstafa sem

fyrst samkomunni, sem frestað

var í vor vegna flóðsins.

— DÁNARFREGN —

Þriðjudaginn, 12. sept., andað-

ist að heimili sínu, 415 Simcoe

St., hér í borg, Mr. Oscar Ed-

ward Schoen, eftir hér um bil

árs heilsubilun. Hann var þýzk-

ur að þjóðerni, fæddur í Rúss-

landi fyrir 37 árum, kom hing-

að til Manitoba fyrir 24 árum.

Hann var kvæntur íslenzkri

konu, Ruth Louise Goodman.

Auk ekkjunnar, lifa hann ung-

ur sonur, James Edward, bróðir,

Rudolph, í Elkhorn, Man. og syst

ir, Mrs. Gross, í Virden. Hann

var jarðsunginn að fjölmenni

viðstöddu, frá útfararstofu Bar-

dals, fimtudaginn 14. septem-

ber, af Dr. R. Marteinsson. Hinn

látni var bezti drengur í hví-

vetna,   afbragðsvel   kyntur.

Björgvin Stefán Jóhannesson,

andaðist á Almenna sjúkra-

húsinu í Selkirk, Man. þann 16.

sept. eftir langvarandi sjúkdóms

legu þar. Hann var fæddur að

Litlu-Reykjum í Árnessýslu 20.

júlí 1879, sonur Jóhannesar

Sveinssonar bónda þar, af sunn-

lenzkum bændaættum kominn,

og Malenu Siggeirsdóttur prests

Pálssonar á Skeggjastöðum á

Langanesströndum, og fyrri

konu hans, Önnu Ólafsdóttur

prests á Kolfreyjustað Indriða-

sonar. Hann ólst upp með móð-

ur sinni. Útskrifaðist af Möðru-

vallaskólanum 1899, kom vestur

um haf 1903, settist að í Selkirk,

Man., en þangað fluttist Malena

móðir hans og seinni maður

hennar, Þórarinn Þorkelsson;

átti Björgvin heimili með þeim.

Á fyrstu dvalarárunum hér

stundaði hann algenga vinnu,

um hríð var hann lögregluþjónn

Síðar nam hann úrsmíði og

stundaði þá iðn þaðan af, fyrst

í annara þjónustu, en um 35 ár

í eigin þarfir.

Síðla árs 1929 kvæntist hann

Ephemíu Thorvaldson frá Win-

nipeg, en misti hana árið 1936

Einn bróðir hans Olgeir er á

lífi, og dvelur nú á Gimli.

Björgvin var mikill að vallar-

sýn og bar sig prýðilega vel,

háttprúður og höfðinglegur í

allri framkomu. Hann var mað-

ur vel mentaður og fjölfróður

um margt, las og fræddist stöð-

ugt um óskyld efni. í fram-

komu var hann fáorður og stilt-

ur, sjálfstæður í skoðunum, en

fór ekki allra leiðir. Hann var

meðlimur Lúterska safnaðarins

í Selkirk og Masonic Order.

Útför hans fór fram frá Lút-

ersku kirkjunni í Selkirk, að

viðstöddu fjölmenni.

S. Ólafsson

i!r

Hr. Soffonías Thorkelsson rit-

höfundur og frú, sem heima eiga

að 100 Uganda Avenue, Victoria,

B.C., lögðu af stað 1. þ. m., í

mánaðar ferðalag til Californíu,

Mexico City, Salt Lake City og

ýmissa annara borga, sem þar

eru á leið.

Frú Sigríður Kristjánsson frá

Geraldton, Ont., var stödd í borg

inni í fyrri viku; hún var nýlega

komin heim úr íslandsför ásamt

manni sínum, Ottó Kristjáns-

syni byggingameistara.

t(

B. Eggertson kaupmaður á

Vogar var staddur í borginni á

mánudaginn ásamt Davíð bónda

bróður sínum.

W. J. Lindal dómari fór vest-

Einn í skemtiferð á smáflugvél

yfir hið breiða Atlantshaf

Lendir í Keflavík á leið

frá Minnesota til  Sviss

I AUST FYRIR KLUKKAN 6 í

*^ gærkveldi lenti smáflugvél—

einhreyfils „Piper-Pacir" — á

Keflavíkurflugvelli eftir rúm-

lega 7 klukkustunda flug frá

flugvellinum „Bluie West One"

í Grænlandi. í vélinni var einn

maður, Max Conrad að nafni,

sem  er  á  skemmtiferðalagi  og

ur til Edmonton á sunnudaginn

til að sitja þar fund; hann bjóst

við að verða þrjá daga að heim-

an.

Nýlátinn   er   hér   í   borginni

Bertrand A. St. John, 78 ára að

aldri;  hann  var  faðir  Jack  St.

Johns bæjarfulltrúa í Winnipeg.

¦ó-

Mr. Elías Vatnsdal frá Van-

couver, B.C., sem dvalið hefir á

búgarði sonar síns, Theodórs að

Hensel, N. Dak. í sumar, lagði

af stað vestur á fimtudaginn í

fyrri viku; var Theodór í för

með honum hingað norður.

Mr. G. J. Oleson frá Glenboro

var staddur í borginni nokkra

daga í fyrri viku ásamt frú sinni.

Mr. J. J. Thorvarðsson frá

Pine Falls er staddur í borginni

þessa dagana.

&   ¦

— Hjónavígsla —

Lenore Jóhannesson og Roy

Edward Williams voru gefin

saman í hjónaband, 21. septem-

ber sfSastliðinn, í Fyrstu lút-

ersku kirkjunni. Séra V. J. Ey-

lands framkvæmdi hjónavígsl-

una.

Foreldrar brúðarinnar eru Mr.

og Mrs. Konrad Jóhannesson, en

foreldrar brúðgumans, Mr. og

Mr. George R. Williams.

Að lokinni vígsluathöfninni

var setin fjölmenn veizla. Brúð-

hjónin fóru í skemtiferð til

Bandaríkjanna.

Brúðurin lauk prófi við Mani-

tobaháskólann 1949 í Home

Economics en brúðguminn, 1950,

í Commerce. Heimili þeirra

verður St. 15 Eggertson Apts.

H

— Hjónavígslur —

Steingrímur Pálsson og Ingi-

björg Jónína Johnson voru gef-

in saman í hjónaband þ. 20. á-

gúst s.l. Séra B. A. Bjarnason

gifti, og fór athöfnin fram á

heimili hans í Arborg, Man.

Brúðguminn er sonur Mr. og

Mrs. Thorgrímur J. Pálsson, í

grend við Arborg; en brúðurin

er dóttir Mr. og Mrs. Valdimar

Johnson, Riverton, Man. Sama

daginn og giftingin fór fram,

varð afi brúðgumans, Páll Jóns-

son á Kjarna í Geysisbygð 102

ára að aldri; er hann mjög ern

og ungur í anda.

H

Guðmundur Ingiberg Markús-

son og Ethel Rose Einarson voru

gefin saman í hjónaband þ. 30.

sept. s.l. í lútersku kirkjunni í

Árnes, Man. Séra B. A. Bjarna-

son gifti. Brúðguminn er sonur

Mr. og Mrs. Jóhannes O. Markús

son, Árnes, Man., og konu hans,

Clara Freda Einarson, sem látin

er fyrir fáum árum.

Bus. Phone 27 989—Res. Phone 36 151

Rovatzos   Flower   Shop

Our  Speclaltles:

WEDDING  CORSAGES

COLONIAL  BOUQUETS

FUNERAL   DESIGNS

Miss   K.   Chrlstle,   Proprietress

Formerly  with  Robinson  &  Co.

253  Notre   Dame  Ave.

WINNIPEG                         MANITOBA

ARTHRITIC PAINS?

Rheumatic Pains? Neuritic Pains?

Sciatica? Lumbago? Back ache? Pains

in arms, shoulders, legs? Get real relief.

Take Amazing New "Golden HP2

Tablets" (1 with hot drink 4 times

daily). Quick! Effectivel 100. $2.50. At

all drug stores, drug departments or

direct from Golden Drugs, St. Mary's

at Hargrave, 1 block south of Bus

Depot, across from St. Mary's Cathe-

dral, back of Eaton's Mail Order,

Winnipeg.

og kemur frá Minneapolis í

Minnesota í Bandaríkjunum og

er á leið til að hitta fjölskyldu

sína í Svisslandi. Ferðalag hans

hefir gengið að óskum til þessa.

Þremur klukkustundum á undan

áœtlun frá Grænlandi

Conrad lagði upp frá Græn-

landi um 10-leytið í gærmorgun

og var gert ráð fyrir að hann

yrði um 11 klst. á leiðinni. En

hann fékk góðan meðbyr og varð

rúmlega þremur klst. á undan á-

ætlun til Keflavíkur. — Hann

hyggst leggja af stað héðan,

sennilega í dag, til Prestvíkur í

Skotlandi.

Flugvél hans er endurbætt

gerð af svonefndum „Piper-

Cub"' sportvélum, sem oft sjást

á flugi hér yfir bænum. En

áhugaflugmenn hér eiga nokkr-

ar slíkar vélar.

Conrad lét setja aukabensín-

geyma í vél sína, þannig að hún

getur tekið bensín til 26 stunda

flugs. Átti hann nóg bensín eftir

er hann lenti í Keflavík til að

fljúga á til Skotfands, ef þurít

hefði með.

9 Barna faðir

Max Conrad er reyndur flug-

maður. Hefir hann verið for-

stöðumaður flugskóla í Bande-

ríkjunum um margra ára skeið.

Kona hans og 9 börn þeirra

hjóna, sex stúlkur og þrír dreng-

ir, hafa verið búsett í Svisslandi

í hálft annað ár og fer hann í

heimsókn til fjölskyldu sinnar,

en ætlar að fljúga á smáflugunni

heim til Bandaríkjanna aftur

síðar í sumar. Hefir hann ekki

ákveðið enn, hvort hann fer

nyrðri eða syðri leiðina vestur

um haf.

Höfðu ekki nógu litla mæla

Einu erfiðleikarnir, sem Con-

rad sagðist hafa orðið fyrir á

leið sinni frá Minneapolis var,

að á flugstöðvunum gekk illa að

mæla honum bensín, þar sem

ekki voru til nógu litlir mælar.

Einnig á hann inni smurolíu á

flugvellinum í Grænlandi, þar

sem hann gat ekki notað alla

olíuna í einu, sem var í minnstu

ílátunum, sem flytjast þangað.

I Grænlandi var hann í tvo

daga og beið eftir, að fá flug-

leyfi. Flugstjórnin þar sendi

skeyti í svo marga staði vegna

flugs hans, að í nokkrum stöðum

kom neitun um að han mætti

halda áfram flugi sínu, en úr

öðrum samþykki. Allt fór þó vel

að lokum.             —Mbl. 7. sept.

MESSUBOÐ

Fyrsta Lúterska Kirkja

Séra Valdimar J. Eyland*.

Heimili 776 Victor Street. Sími

'9017.  -

Arborg-Riverton Prestakall

8. okt. — Geysir, messa kl. 2

e. h. — Riverton, ensk messa kl-

8 e. h.              B. A. Bjarnason

— Argyle Prestakall —

Sunnudaginn 8. okt.

(„Thanksgiving Sunday")

Brú — kl. 2 e. h.

Glenboro — kl. 7 e. h.

Séra Eric H. Sigmar

lir

Lúlerska kirkjan í Selkirk

Sunnudaginn 8. okt.

Ensk messa kl 11 árd.

Sunnudagaskóli kl. 12.

íslenzk messa kl.  7  síðd.

S. Ólafsson

"WELCOME"

'WELCOME"

HALLOWE'EN SILVER TEA

On Wednesday Oct. 25th. the

Young Peoples Society of the

First Lutheran Church will pre-

sent a Hallowe'en Silver Tea in

the Church Parlors from 7:30

p.m. to 10:30 p.m. There will be

entertainment and attractively

arranged booths for a homecook-

ing sale and a White Elephant

Sale. We hope you will give us

your wholehearted support in

this venture. The club cordially

invites you and your friends to

attend and enjoy an evening o£

fellowship with us.

Sincerely,

The Young Peoples' Executive

ir

Arnold Miller og Anna Lovísa

Danielson voru gefin saman l

hjónaband þ. 23. ágúst s.l. a*

séra B. A. Bjarnason á heimih

hans í Arborg, Man. Brúðgum-

inn er af þýzkum ættum; en

brúðurin er dóttir Mr. og Mrs.

Eymundur Danielson, sem bu-

sett eru í Framnesbygð í Nýja-

íslandi.

DORCAS      SOCIETY

Thanksgiving Concert

FIRST LUTHERAN CHURCH

MONDAY,   OCTOBER  9TH  AT  8:15  P.M.

Devotionál..................................................................Rev. V. J. Eylands

Chairman's Remarks....................................Miss Mattie Halldorson

Piano Solo..................................................................Miss Sigrid Bardal

Bass Solo                            ............................Mr. Douglas Stewart

Contralto Solo.......................................................Miss Ivy McBurney

Address...............'..............................................Mr. Norman Bergman

Duet...............................................Miss McBurney and Mr. Stewart

Accompanist................................................................Miss Alice Hives

Silver Collection

Refreshments

KAUPENDUR  LÖGBERGS

Á ÍSLANDI

Gerið svo vel að senda mér sem fyrst greiðslu fyrir

yfirstandandi árgang Lögbergs, kr. 50.00. Dragið

ekki að greiða andvirðið. Það léttir innheimtuna.

Æskilegt að gjaldið sé sent í póstávísun. Þeir sem

eiga ógreidda eldri árganga, eru vinsamlega beðnir

að snúa sér til mín.

BJÖRN   GUÐMUNDSSON

SKÓLAVÖRÐUSTIG 17 REYKJAVIK

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8