Kirkjublaðið - 01.04.1896, Blaðsíða 16

Kirkjublaðið - 01.04.1896, Blaðsíða 16
80 Ijúterevarði. Annar enn stærri og veglegri Lútersvarði' en getið var í Kbl. síðast, var aíhjúpaður í Berlín árið sem leið á höfuðtorginu í miðjum bænum, og er talinn að vera eitt hið stór- gerðasta og fegursta minningarmerki í þeirri skrautlegu borg- Sjálf’ur varðinn er á háum girtum palli og liggja 10 steinþrep upp á pallinn, og eru þeir þar sem vorðir hvor á sína hönd, riddararn- ir hugprúðu Hutten og Sickingen, Tii beggja hliða við íótstall líkneskjunnar standa þeir Melankton og Bugenhagen, auk þoirra eru 4 aðrir merkir menn frá siðbótartímanum í krii.g um varðann. Svipur Lúters er á þessari Berlínarmynd kjarkmeiri og harðari en í Eisenach, kappið og fylgið skín út úr hverjum drætti Trúarhetjan Lúter stendur þar í miðjum höfuðstað hins vold- ugasta ríkis á meginlandi Evrópu og mælir orðin, sem greptruð eru á steininn: «Das Wort sie sollen lassen stahn». Sbr. sálrnab. nr. 420, 4. er. Bókakaup. Prestur á Norðurlandi fjekk fyrir skemmstu gegnum bókaverzlun Sigurðar Kristjánssonar þessar bækur: Drummond: Ascent of man, Kidd: Social evolution og Balfour: Foundations of belief. Þetta eru lang-merkustu og snjöllustu ritin í heimspekilegri guðfræði í trúvarnar-áttina, sem út hafa komið 2 síSastliðin ár. — Skyldi nú nokkur einasti prestur á öllum Norðurlöndum, að und- anteknum þessum eina íslenzka sveitapresti, hafa aflað sjer allra þessara rita? Prófastur er af biskupi skipaður 31. f. m. í BorgarfjarSar- prófastsd. sjera Jón Sveinsson á Akranesi, er sjera GuSmundur prófastur Helgason í Reykholti hafði beiðst lausnar, eptir 10 ára þjónustu. Brauð veitt, Utskálar 4. f. m. sjera Bjarna prófasti Þórar- inssyni á Prestsbakka, samkvæmt kosningu safnaðar. Kirkjur. Hjörseyjarkirkja er með landshöfðingjabrjefi 13. jan. lögð niður og sóknin lögð til Akrakirkju. Kirkjurnar í Saur- bænum í Dalasyslu, Hvolskirkja og Staðarhólskirkja verða og báðar lagðar niður (Lh.br. 10. f. m.) og ein kirkja byggS í þeirra stað í Tjaldanesi. Saineiningin, mánaðarrit hiris ev. lút. kirkjuíjel. ísl. í V.-h. 12 arkir, 10. árg. Ritstj. sr. Jón Bjarnason í Winnipeg. Verð hjer 2 kr. Hjá bóks. Sig. Kristjánssyni í Rvík o. fl. víðsv. um land. BXTSTJÓBI: POBHALLUB BJAHKAKiSOJS. Frectað i ísafoMarj'rentwniflju Keyhjavik 1806,

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.