Reykvíkingur - 01.05.1900, Blaðsíða 4

Reykvíkingur - 01.05.1900, Blaðsíða 4
20 um frá því, sem áður hefur við gengizt, lof- uðu þeir fulltrúar, sem seinast. voru kosnir að framfylgja og fá framgengt í bæjarstjórninni, og er vonandi, að þeir endi það. Sá næsti er þá Sigurður Thoroddsen veg- fræðingur. H.: „En að þeir skildu fara að kjósa hann í bæjarstjórnina Hann, sem er sagður svó latur". „Og íer svo seint á fæt- ur“, bætti M. við. — N.: „Hefur nokkur ykkar haft hann í vinnu, svo sá geti borið um, að slíkt sje satt?“ M.: „Að hann fari seint á fætur get eg borið um, því eptir að hann var orðinn formaður veganefndarinnar með því að kjósa sig sjálfur". Þ.: „Nei, kaus hann sig sjálfur? hvernig fór hann að því?“ N.: „Jú, þegar nýja veganefndin kom saman til að kjósa sjer formann, þá kaus Tr. G.— G. Björnsson, G. B. kaus Thoroddsen og hann Thoroddsen kaus sig sjálfan. Hananú, skiljið þið það nú" — „Jú, jú. Kaus hann sig sjálfur. Nei — kaus hann sig sjálfur. Er slíkt gilt?“ N.: „Þrátt fyrir það, þó í þessu tilfelli ekki virtist nein ástæða til að breyta um for- mann, þar sem Tr. Gunnarsson var sá veru- lega ötuli og nýti formaður, sem veganefnd- in hefur haft um langan tíma, þá var það samt engin óhæfa, þó Thoroddsen kysi sjálf- ur sjálfan sig fyrir formann veganefndarinn- ar. Auðvitað er það sjaldgæft, að menn kjósi sjálfa sig í slíkum tilfellum.— Enn með- al annars, hvar er svo sönnunin fyrir því, að Thoroddsen fari seint á fætur?" M.: „Hún er sú, að einn morgun fór maður með reikning til Tr. til að fá hans á- ritun á hann, en Tr. vísaði frá sjer til Thor- oddsens, sem þá var orðinn veganefndar-for- maður, en þegar maðurinn kom þangað, var Th. ekki kominn á fætur, og mjer er kunn- ugt um, að þann daginn fór hann ekki á fætur fyrri enn undir hádegi". (Framh.). 7. bæjarstjórnarfundur, 5. apríl. 1. Samþykkt við aðra umræðu 300 kr. fjár- veiting til aukalögregluþjóns hjer í bænum fyrir yfir- standandi ár. 2. Frestað beiðni Sig. Briems og fl. um erfðafestuland við Sigurlaugarstíg, þar til þar á staðnuro. 3. I erfðafestulandanefnd voru kosnir: bæjarfógetinn, G. Björnsson og Þórh. Bjarnarson. 4. Prófdómari við próf við stýri- mannaskólann 1 apríl var kosinn E. Briem og til vara adjúnkt Björn Jónsson. 5. Tilboði Ásbjarn- ar Olafssonar í Þingholtsstræti 22 um lóðarspildu norðan við hús sitt til breikkunar á Bókhlöðustígn- um vísað til veganefndarinnar, og virtist hún einn- ig eiga að dæma um, hvort hjn bóðna lóð væri nú ekki íallin undir bæinn sökum vantandi girð- inga. 6. Samþykkt við aðra umræðu 750 kr. fjárveiting til áframhalds Laufásvegar að trjá- gróðrarstöðinni. 7. Sölu dr. Þorv. Thoroddsens á 876 □ föðmum af túni sínu til alþrn. Jóns Jakobs- sonar, á 2 kr. [jfaðm, samþykkti bæjarstjórnin. 8. Skýrsla frá Seltjarnarness-hreppsnefndinni um ómagaþunga hreppsins, sem Reykjavík á að taka þátt í samkvæmt lögum um tilfall Laugarness og Klepps undir bæinn, ásamt Landsyfirrjettardómi í máli því. Akveðið, að heimta nánari upplýs- ingar um hina einstöku ómaga, svo að gjörmegi sjá af skýrslunni eptirleiðis, hvort þeir órnagar, sem þar eru tilgreindir, eru bænum viðkomandi eða ekki. 9. Samþykkt að borga J/3 af kr. 99,75 — eða kr. 33,25 til Seltjarnarneshrepps í refaveiða- kostnað árini895 — 99, samkvæmt rjettum reikningi frá hreppnum. 10. Frk. Halldóru Bjarnadóttur leyfð ein kennslustofa 1 barnaskólanum frá 18. maí til 1. júlí til barnakennslu með samþykki skólanefndarinnar. 1 1. Samþykktar brunabóta- virðingar: Geymsluhús Guðm. Jakobssonar trje- smiðs 500 kr. Sighvatur og M. Ben. fjarverandi. Fundi slitið. 8, bæ]arst]órnarfundur, 19. apríl. 1. Samþykkt frumvarpsnefna frá erfðafestu- landanefndinni, ersvo hljóðar óskiljanlega,—Upp- haf 5. greinar orðist þannig: Landið skal rækt- að til túns, matjurtagarða eða annarar sáningar. —[Ögna nýmæli].— I sömu grein: I stað er full- gjört — komi: A að vera fullgjört. — Við 6. gr. I stað allt að helmingi — komi: 50%. [En nú kastar þó tólfunum]. — Aptan við 8 gr. bætist: og með tilliti til þeirrar verðhækkunar á erfðafestu- landinu, sem Ieiðir af vegalagningu eðaöðrumaf- notum í bæjarins þarfir. — Á þetta málefni verður sannarlega minnzt síðar,—2. Sam- þykkt að kaupa lóð af Jóni landritara ofan að Skálholtsstígnum fyrir 90 kr. 3. Til umbóta á Vesturgötu frá Bryggjuhúsinu og til G. Zoéga veitt- ar 80 kr. 4. Beiðni um vatnsból við Laugaveg. Vísað til veganefndarinnar, 5. Samþykkt áskor- un frá Framfarafjelagi Reykjavíkur um breyting- ar á Lögreglusamþykkt bæjarins; voru kosnir til að íhuga mál það: bæjarfógetinn, Jón Jensson, Ól. Ólafsson. Sighvatur fjarverandi. Fundi slitið. Aukafundur 23. apríl. — Fáheyrður rifrildisfundur. Samþykkt að fela Tr. Gunn- arssyni aðgjörðina á Vesturgótu, sem sje í því fólgin, að færa norður götubrúnina í línu við þá vegarbrún, sem komin er úr vesturhorni bryggju- hússins og minnka brekkuna á götunni með 1 feta þykkum ofaníburði fram undan húsi B. Krist- jánssonar. Vatnshalli sje á götunni. Svo og, að breikka götu þá í línu úr krók austan við G. Zo- éga hús í Fischers-búðarhornið. G. B, ekki á fundi. Sighv. fjarverandi. Fundi slitið. Útgefandi: W. Ó. Breiðfjörð. Glasgo w-prentsmiðj an.

x

Reykvíkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykvíkingur
https://timarit.is/publication/139

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.