Sunnanfari - 01.07.1892, Blaðsíða 1

Sunnanfari - 01.07.1892, Blaðsíða 1
|pvS\S\S\S\5NS\Sv 'j Verí 2 kr. \ g 50 aiira árg., ffj S borgist fjrir S 15. október. SUNNANFAR |'3SSQS\^’| í Aiiglvsingar í 61 D' . ul 0 20 a. megin- 0 I málslina; 25 | @ anra sináletnr. § J tsoseses II, l JIJL X 1892 Páll Melsteð er fæddur á Möðruvöllum í Hörgárdal 13. Nóvem- ber 1812, og er sonur Páls amtmanns pórðarsonar og fyrri konu hans Onnu Sigríðar Stefánsdóttur amtmanns,5»órarinssonar. Hann fór i Bessastaða- skóla 16 ára gamall og útskrifaðist þaðan 1834. Páll fór utan sama ár til háskólans í Kaup- mannahöfn og tók þar undirbúningspróf þau, sem þá tíðkuðust. Eptir það las hann lög, en stundaði jafnframt sagna- fræði og fagrar listir, einkum saung. þegar Páll hafði dvalið 6 ár við háskólann kom hann út aptur 1840, og kvænt- ist sama árið Jóruni dóttur ísleifs Einarssonar háyfirdómara; bjó hann nú á Brekku á Alpta- nesi nokkur ár og ritaði þar hið fyrsta rit, sem prentað var eptir hann: »Agrip af merkisatburð- um mannkynssögunnar« (Viðeyarklaustri 1844). Um þessar mundir hafði Páll í hyggju að semja ágrip af sögu íslands og hafði þegar ritað tals- vert í þá átt, en 1844 brann hús hans á Brekku og bækur hans og handrit fóru sömu leið. P-ptir óhapp þetta flutti Páll sig til Reykjavíkur og átti mestan þátt í stofnun Reykjavíkurpósts- ins; var það hið nauðsynlegasta fyrirtæki, því þá kom ekkert blað út á íslandi. Páll átti þátt í ritstjórn blaðsins tvö fyrstu árin 1846—48, en gaf einn út seinustu númerin af 3. árinu 1849. Páll var frumkvöðull að stofnun jþjóðólfs 1848. Einnig átti hann mikinn þátt í útgáfu fyrstu þriggja áranna af íslend- ingi eldra (1860—63) og var ritstjóri Víkverja 1873—74. Páll hefir ritað mikið í öll blöð, sem hann hefir átt þátt í og eins í önnur islenzk blöð og eru margar af blaða- greinum hansmerkilegar. 1848—49 gegndi hann sýslumannsstörfum í Ar- nessýslu, í fjærveru föður síns, en í Mai 1849 var hann settur sýslumaður í Snæfellsnessýslu og gegndi því starfi til 1854; bjó Páll þá i Bjarnar- höfn. Snæfellingar kusu hann til þingmensku 1851 og svo seinna, 1859 og 1860. 1855 fór Páll utan í annað skipti til laganáms, því ekki hafði orðið úr því að hann tæki próf í fyrra skiptið, og tók nú próf í dönskum lögum 28. Janúar 1857. 1858—62 gegndi Páll sýslumannsstörfum í Gullbringu- og Kjósar- sýslu, fyrst fyrir Baumann sýslumann, en svo á eigin ábyrgð. þenna tíma sat Páll í Reykjavík og hefir búið þar síðan. 1858 misti hann konu PÁLL MELSTED.

x

Sunnanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.