Sunnanfari - 01.03.1896, Blaðsíða 1

Sunnanfari - 01.03.1896, Blaðsíða 1
S\S\B\5\S\5\S® ! & Veril 2 kr. í \ 50 aim árg., m | horgiat fjrir | ® fram. 5l § I '&\=WS\5\S\S\S\SA S=\SvSiS\S\S5\ Aiiglýsingar jjj 20 a. megin- JJ málslína; 25 gj aura smáletur. 8 tíesBssse v, 9 1896 hríð á eptir. Var Árni Thorlaeius er fæddur 12. Maí 1802 á Bíldudal. Var Olafur faðir hans jþórðarson frá Hlíðarhúsum, Sighvats- sonar, kauptnaður þar, en móðir hans var Guð- rún Oddsdóttir, systir séra Jóns Hjaltalíns. Olafur var einhver auðugasti kaupmaður á íslandi á sinni tíð. Hann Íézt 13. Janúar 1815 og rak Guðrún þá verzlunina um Árni snemma settur til menta, ogvar honum 13vetra göml- um komið í Westens og Brendstrups skóla í Kaup- mannahöfn, og var hann þar árin 1815—1817; nam hann þar meðal annars danska, þýzka, frakkneska og enska tungu og verzlunarfræði eptir því, sem þá gerðist. Gerðist hann og síðan kaup- maður í Stykkishólmi, en það stóð þó ekki leingi, og hætti Árni við verzlun, og bjó þar eptir að eignum sín- um jafnframt því, sem hann var langaleittgi umboðsmað- ur Stapa- og Skógarstrand- arjarða; mátti hann fjáðan kalla að fasteignum; átti meðal annars Grunnasunds- nes íStykkishólm), en eignir hans geingu allmjög til þurðar hin síðari ár. Hann lézt í Stykkishólmi 29. Apríl 1891 vetri miður en ní- ræður. Arni var merkilegur maður um marga hluti; að líkamsatgervi var hann um fram flesta menn, bæði að karlmensku og fimleik, sundmaður ágætur,siglingamaður einhver bezti og allra manna beztur skotmaður og skutlari, hæfði nær alt, sem hann vildi með handkasti. Hann var bókavinur mikill _ og fróður um marga hluti, einkum í sögu íslands og ættfræði, þótt fátt liggi prentað eptir hann í þeirri grein annað en Örnefnalýsing að fornu í jþórnesþingi (í II. b. af Safni). Hann studdi og aðra menn til bókmenta, svo sem Sigurð Breiðfjörð, og kostaði útgáfu á sumu af ritum hans, og honum tileinkaði Sig- urður Númarímur. Veðurfræðingur var hann mestur um sína daga á íslandi, og eru veður- athuganir hans orðnar víða frægar fyrir laungu; hafði hann fyrstur manna athugað veðuráttu íslands að staðaldri nokkuð á vísindalegan hátt; hélt hann nákvæmar veðurbækur nær í hálfa öld; er handrit hans af þeim alls 16 bindi í arkarbroti, og eru þær nú, fyrir milligaungu ábyrgðarmanns Sunnanfara, komnar á Landsbókasafnið í Reykjavík, ásamt dagbókum hans, sem ná yfir meir en 60 ár; höfðu mörg ár verið prentaðar veðurathuganir frá honum í ýmsum útlend- um veðurskýrslum bæði f Danmörku1) ,Austurríki2)og á Skotlandi3). Árni var kvæntur Önnu dóttur Da- níels Stenbacks kaupmanns hins norska4). Börn þeirra, sem nú eru á lífi, eru DaníeÍ kaupmaður í Stykkishólmi, Olaf'ur áGrund í Grundarfirði og Jósephína ekkja Boga sýslumanns Thorarensens. Árni Thorlacius. Vorkvæði fyrir minni íslands, sungið í íslend- ingafélagi 26. Marts 1896. f>eir ljósklæddu dagar, sem liða nú hjá og leingja í sífellu sporið, þeir halda í norður um hafdjúpin blá með hitann og sólina’ og vorið að leysa þar snjó úr leiti og mó, sem lækirnir flytja svo út í sjó. Og vorið þar heima er ákaft og úngt, það á líka mikið að gera, ‘) Meteorologisk Aarbog; a) Zeitschr. der Österr. Gesell. f. Meteorolog.; 3) Scottish meteorological Journal; 4) Hann fór til íslands 1788.

x

Sunnanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.