Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Sębjörg

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Sębjörg

						SÆBJÖRG.

8

heldur en styðja að þvi, að sem mestuverði

til vegar komið.

»Kæru systur, berjist ótrauðar gegn and-

stæðingum, og fellið þá með framkvæmdum,

þá munuð þjer uppskera hinn bezta ávöxt,

sem fátækt land vort getur framleitt«.

Vjer látum hjer staðar nema, með þeirri

ósk og vissri von, að þjer gjörið allt, sem í

yðar valdi stendur, landi voru til blessunar

og sjálfum oss tíl gagns og sóma.

Oskandi yður góðs og gleðilegs árs, iJesú

nafni, erum vjer yðar, með vinsemd og

virðing.

Keflavík á Nýársdag 1892.

Bjargrdðanefndin».

Sæbjörg leggur þannig upp, í Jesú nafni,

til framsóknar og varnar bjargráðamálum

sjómanna á íslandi, og treystir góðum við-

tökum karla og kvenna, allra þeirra, sem

annt er um líf og lífsvon sjómanna; hún

kviðir hvorki fátækt nje klæðleysi, ef sjó-

menn vilja hlynna að henni; hún á viða góða

vini, og vinir hennar eru vinir sjómanna:

The  Religions   Tract   Society,    í   London,

skreytir hana myndum; The Mission to D. S. F.

í London, hlúir að henni með skýlum; Dr. F.

A. Walker biður fyrir henni og sjómönnum

og vinum fjölgar með vexti.

Sjómenn! sinnið bjargráðum í Drottins nafni.

Hætturnar vofa yfir. Feygðarfáninn er á

lopti. Holskeflan fellur. Tvívegis manntjón

frá Akranesi nálægt árslokum síðustu! For-

menns!can,formennsl<an og aptur formennslian!

Bjargrdðanefndir, neytið bjargráða, biðjið,

leiðið, laðið sjómenn til þess, að hafa varúð

á lífi sínu, að minrast Guðs og angistar ást

vinanna, konu, barna og vina, að minnast

skyldunnar við Guð, sjálfan sig og náungann.

Prestar, embœttismenn, kaupnienn, styðjið

að því, að hver formaður hafi lýsi eða olíu

á skipi sínu, í hvert skipti sem á sjó erfar-

ið; að þeir æíi sig í notkun lýsisins, áður

lifsháskann ber að hóndum.

Sjómenn, verið vakandi! Vetrarvertíðin

fer i hönd, með hættum lopti og lagar;

hvetjið hver annan að leita aflans í Drottins

nafni, því opt er þörf, en nú er nauðsyn, ,en

gætið þess jaínframt að áminna hver annan

að fara gætilega, svo mönnum og skipi sje

síður hætta búin. Lýsið er bezta bjargráð,

það er viðurkennt um allanheim, oghneyksl-

ist ekki á því, þótt þeir gárungar og gikkir

finnist, sem segi við yður: »jeg hefi verið

formaður í svo mörg ár og komist af til þessa,

án þess að hafa lýsi með mjer á sjó; þessir

sjálfbyrgingar verða sjálfum sjer til skamm-

ar, og ef til vill, sjálfum sjer og öðrum til

tjóns, því Guðs tími er ekki altjend þeirra

timi; hafið lýsið með yður, ef ske kynni að

þjer þyrftuð að bjarga sjálfum yður eða öðr-

um; veiðarfærum yðar eða jafnvel afla.

Horfið ekki í þann litla kostnað að eyða 1

eða 2 kútum af lýsi, til að æfa ykkur á, áð-

ur í raunirnar rekur. Formaður hefir dbyrgð

á lífi skipshafnar sinnar! hún er alvarleg.

Konurnar áminni menn sína, sjer til hugar-

bægðar.

Sæbjörg felur nú Bjargráðanefndum að

gjöra það, sem þær með eptirdæmi og í orði

geti gjört, að vekja áhuga sjómanna á

Bjargráðum, halda fundi við sjómenn, ræða

nauðsynlegustu mál þeirra, koma á samtök-

um að eitthvað sje gjört, því í mörg horn

er að líta og margt er um að ræða, en fyrst

af öllu er lífið og viðhald þess.

Til tryggingar lífinu er:

Góð formennska;    góð   skip    og útbúnaður ;

bindindið, lýsið, kjalfestupokar, sundið m. fi.

Til tryggingar afla og efna er:

Sjósóknin, dugnaðurinn, líísábyrgðin, hirðing-

in, nýtnin m. fl., og vona jeg, að Bjargráða-

nefndir og sjómenn fræði »Sæbjörg« svo, að

hún geti flutt mál þeirra til framfara og

bóta.

Lífi sjómannsins er hætt, allur út búnaður

hans þarf að vera góður bæði á sjó og landi,

en hvorutveggju mun býsna ábótavant;

klæðnaður opt ljelegur og húsakynni lítil og

óheilnæm, þótt þau sjeu heldur að lagfærast;

og set jeg hjer skýrslu Bjargráðanefndarinn-

ar í Grindavík.

Búðir  sjómanna    og  viðgjörðir   m. fl. i

Grindavík.

Útvegsmenn í Grindavík eru 18, og hafa

4 þeirra sjómenn sína í heimahúsum, 2 í

timburhúsum og 2 í baðstofum.

					
Fela smįmyndir
1-2
1-2
3-4
3-4
5-6
5-6
7-8
7-8
9-10
9-10
11-12
11-12
13-14
13-14
15-16
15-16