Kvennablaðið - 01.02.1896, Blaðsíða 1

Kvennablaðið - 01.02.1896, Blaðsíða 1
Kvennablaðið. 2. ár. Reykjarík, febrúar 1896. Nr. 2. Frú Elín Eggertsdóttir (Briem). ún hefir í mörg ár stýrt kvenna- skólanum í vesturhluta Norðurlands, og er svo góðkunn, að Iesendum Kvennablaðs ins mun þykja mikið gaman að sjá mynd af henni. Hún er fædd á Espi- hóli í Eyjafirði, dótt- ir Eggerts sýslumanns öunnlaugssonar Briem ogkonu hanslngibjarg- ar Eiríksdóttur sýslu- manns Sverrissonar. — Briems-ættin er svo al- kunn, að ekki þarf að rekja hana. Kvennaskóli í vest- urhluta Norðurlands var fyrst stofnaður haustið 1877; var sá skóli fyrst settur að Ási í Hegranesi; það- an var hann fluttur ári síðar að Hjaltastöðum. Tók þá frú Elin að sjer forstöðu skólansog kenndi þar 1878—1880. Þá höfðu Hún- vetningar einnig komið upp kvennaskóla hjá sjer og tók Elínforstöðu þess skóla, sem haldinn var á Lækjamóti í Víðidal; kenndi hún þar árið 1880—81. Sumar- ið 1881 fór hún til Danmerkur og gekk á kennslustofnun frk. N. Zahles í Kaup- mannahöfn. Hún kom aftur hingað 1883. Þá vóru kvennaskólar Húnvetninga og Skagfirðinga sameinaðir og skóli settur á Ytriey, og var Elín fyrir honum í tólf ár, eða til 1895. Hún giftist árið sem leið kand. theol. og bú- fræðingi Sæmundi Eyj- ólfssyni. Kvennaskólinn á Ey fjekk mikið orð á sig undir stjórn henn- ar og var farið að sækja hann meira enn aðra kvennaskóla landsins, einkum þegar tekið er tillit til þess, að hann liggur miklu ver við samgöngum enn hinir kvennaskólarnir, enda var frú Elín bæði mjög lagin kennslukona og mun fullt svo vel hafa fylgt tímanum, sem forstöðukonur hinna skólanna. Hún var líka yngst þeirra. Frú Elín hefir samið og gefið út kennslubók í matreiðslu o. fl., sem nefn- ist „Kvennafræðarinn". Var þeirri bók

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.