Kvennablaðið - 19.04.1913, Blaðsíða 1

Kvennablaðið - 19.04.1913, Blaðsíða 1
Kvenn&blaðið kost ar 1 kr. 60 au. inn- anlands, erlendis 3 kr. [66 cent vestan- hafa) */• ▼‘‘Tðsina borgist fyrfram, en a/» fyrir 16. júli. UppsÖgn Bkrifleg bundin við &ra- mót, ógild nema komin sé til út- got. fyrir 1. okt og kaupandi hafl borgað að fullu. 19. ár. Reykjaví k, 19. a p r il 1913. M 4. o o )OOOOOOOGOOOOOGOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOGOOCOOCOOOO( Árni Eiríksson, Austurstræti 6. 3 o Alt af nægar birgðir af Vefnadarvöruni, Prjonafatnadi, Solik- O uni og Vetlinguin. Enn fremur ííreinlætisvörur frá Gólfþvotta- o o o klútum til Tannbursta, og fjölda margt fleira, t. d. ýmislegt hentugt til O Suinargjafa og tækifærisgjafa fyrir fullorðna og börn. 3 Gódar rörurl Gott verdl o o Fljót og lipur afgreiðsla! o OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOGOO Ú t s ý n. (Frh). í henni tóku þátt konur frá öll- um hlutum Iandsins. Tuttugu járnbraut- arlestir gengu aukreitis, til að flytja þær til og frá. í Hyde-Park, þar sem þær námu staðar, voru 20 ræðupallar reistir, og töl- uðu konur á þeim öllum í einu, en þó heyrði engin til annarar. Á hverjum ræðu- palli var borin upp tillaga til fundarsam- þyktar, sem var samþykt með miklum á- huga. Fréttaritari »Times« áætlaði, að þar hefði verið hálf miljón til 570 þús. manns saman komin. Á samskonar samkomu í Hyde-Park, sem verkamenn héldu 1884, þegar kosningarlaga-frumvarp þeirra var á ferðinni, voru þó ekki nema 40 þús. manns samankomnir. Eftir þenna mótmælafund fylgdu margir fleiri fundir hingað og þangað, og skrúðgöngur. Ein skrúðgangan var haldin í London 1912 og tók það 3 klst. að kom- ast þaðan sem hún hófst og til enda. Miðlunar-frumyarpið. Allir þessir stóru mótmælafundir höfðu engin áhrif á Asquith, sem sagðist vera enn eindregið móti kosningarrétti kvenna, og neitaði þess vegna að bera fram stjórn- arfrumvarp um það. í þessum vanda var mynduð stór nefnd af þingmönnum úr öll- um pólitískum flokkum þingsins, sem samdi miðlunar-frumvarp, sem kallað var »The Conciliation Bill«, sem þeir héldu að allir flokkar mundu sætta sig við, og mundi geta komist gegnum þingið, sem þing- mannafrumvarp. Suffragetturnar lofuðu að gera vopnahlé, þangað til afdrif frumvarps- ins væru kunn, og frumvarpið var sam- þykt við aðra umræðu með 299 atkv. gegn 189. En þá sýndi stjórnin, að hún væri ekki hlutlaus, eins og hún hefði heitið, heldur fjandsamleg kosningarrétti kvenna. Hún neitaði tíma til þriðju umræðu frum- varpsins, og svo var þingtíminn úti og málið dautt.

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.