Dagskrá

Tölublað

Dagskrá - 13.03.1897, Blaðsíða 3

Dagskrá - 13.03.1897, Blaðsíða 3
fari að loknu dagsverki sínu með stóran böggril af ó- hreinum þvotti inn í Laugar; standa kr þar a!la nóttina við þvoltinn og koma svo með hann á morgnana heim og eru síðan stundum við vinnu ailan daginn. A seinni árum hefur farið að risa óánægja út af þessu, og tók því »kvennfjelagið«, sem margar merkar konur eru í, það ráð, að útvega vagn til að aka þvottinum á inn í Laugar; en eins og mönnum mun kunnugt hjer fór svo að þetta borgaði sig ekki; vagninn var eigi nóg notaður og var því sá einn kostur að hætta við ailt saman. Tók þá maður nokkur að sjer Laugaflutninginn á kostnað sjálfs sín og mun það hafa borgað sig skár, en þannig lítur þó út sem hann liafi ekki mikla atvinnu við þetta, þó ástæða sje til að ætla að þetta muni lagast smám saman, enda væri hart ef þessi eini vagn fengi ekki nóg að gjöra. Enn þá er að minnast á kolaburðinn fyrir kaup- mennina. Eins og allir vita, er það farið að tíðkast i mörgum smákaupstöðum landsins, að vagnspor gatigi frá versl- unarhúsunum niður á bryggju, og ganga eptir þeitn vagnar, sem kaupmenn flytja á vörur sinar, og muntt þeir bæði hafa talið sjer þetta fjársparnað og einnig talið það minnkun fyrir sig að lata menn burðast með þunga poka langan veg að verslunarhúsum sínum. Hjer í bæ er þar á móti ekki eitt einasta vagnspor niður að sjón- um, og verður því að hafa hinn gamla skrælingjas-ið, að láta karla og konur bera á bakinu poka af kolum og annari þungavöru. Blöskrar mörgutn að sjá konur ýmis- lega á sig komnar og ungar stúlkur með þungar byrðar á baki og opt svo biksvartar af kolaryki að ekki er mannsmynd á þeini. Verða þær á þennan hátt að vinna til jafns við karlmenn, en fá þó venjulega ekki nema hálf laun á við þá. Er lítt trúlegt að þetta varpi neiniun dýrðarljóma yfir vinnuveitendur, og hlýtur útlendingum aö þykja slíkt blöskrunarleg sjón í sjálfum höfuðstað landsins. - Það er og sannarleg furða að menn sem árlega eru í útlöndum og þekkia erlenda menningu, skuli geta unað við þetta. En svo lítur út sem sumir sjeu svo hræddir við allt er að framförum lítur, að þeir telji skyldu sína að sporna við því, af því að þeir í fjarska þykjast sjá sjer einhverja hættu búna af því. Þar á móti mun sá ósiður þó eigi viðgangast hjer, að kvennfólk sje látið bera fisk á bakinu, eins og surn- staðar tíðkast á landinu. Eru þess dæmi, að einn kvenn- maður ber upp frá sjónutn 4 hluti, og þegar stundum er 50—100 fiska hlutur á dag, má geta nærri hvílíkt sældarlíf þetta er. Þegar svo kvöld er komið verða þær að gera að fiskinum. Verða þær eins og auðskilið er gagndrepa á bakinu af bleytunni, og eru þess dæmi að þær eru bókstaflega meiddar á baki eins og áburðardýr, enda er þetta auðvitað gjört til þess að spara sjer hesta- hald. Auk þess hvað það er viðbjóðslegt að hafa fójk fyrir áburðardýr, hvort heldur um karla eða konur er að ræða, þá er það mjög óhollt, einkum fyrir konur. Getur það ollað sjúkdómum, sem þær aldrei losast við það sem eptir er æfinnar. Er hættan mest konum sem nýkomnar eru af barnssæng eða eru þungaðar, og er lítill efi á að þær mundu tæplega leggja á sig vinnu þessa þegar svo stendur á, ef þeim va^ri Ijóst hvílík hætta lífi þeirra og velferð er búin af því. Guðm. Guðmimdsson læknir. ísSenski fáninn. Af því sem ritað hefur verið eða rætt um íslenska fánann er ritgerð Pálma Pálssonar skólakennara (Andv., bls. 136—147) hið fróðlegasta. Hafði Sigurður Guðmundsson málari þá fyrir löngu hreift þessu máli, en nokkru eptir að ritgerð Pálma kom út hjelt dr. Valtýr Guðmundsson skörulegan fyrirlestur um það í fjelagi Hafnar-stúdeuta og er sá fyrirlestur prentaður sjer (Rvk 1885). Hjá öllum þessum höf. og ýmsum öðrurn er rætt hafa útn málið, þingmönnum o. fl. hefur komið fram heitur áhugi á því að fá viðurkennt og lögleitt þjóðar- tnerki fyrir Islendinga. En að því er virðist hefur þar ekki verið gjörður jafnglöggur greinarmunur á fána ís- lands og merki þess, sent skyldi, og sýnist svo sem þetta hafi valdið nokkrunt ruglingi á málinu og jafnvel tafið fyrir framgangi þess. Flestir sem um þetta hugsa munu einkum hafa það fyrir augum að íslendingar fai lögleiddan sjerstakan 7’erslvnarfána; um gunnfána eða sambandsmerki í ríkis- flagginu hggur auðvitað fjarri að tala. — En þessu ntáli um verslunarfánanti hefur verið illa blandað saman við annað, sem sje spurningunni um það hvort hið illa þokkaða þorskmerki sje lögleitt á bindandi hátt fyrir íslendinga, og hvort ekki beri að afmá það, sem ósætnilegt og ósam- boðið einkenni lands og þjóðar. Þessi tvö málefni eru hvort öðru alveg óháð, og verða að liðast sundur, ef ræður eða rit um þetta efni eiga að leiða til nokkurs árangurs. Merki ríkja og landa eru venjulega þannig komin til, að stjórnararnir (konungar, hertogar, greifar o. s. frv.) tólcu þau upp sem tignareinkenni sín, innsigli eða ættar- merki, og voru rnerkin síðan varðveitt mann fram af manni í stjórnarættunum, þannig að þau táknuðu jöfnum höndunt tign eða embætti stjórnarans og ijelagsheild þá er stjórnað var. Merki þessi eru opt samsett og þannig gjörð að þau eru alls ekki fallin til þess að greinast glöggt langar leiðir að, t. a. m. á siglingum. Þannig eru alls konar dýr, kórónur, vopn, skildir, turnar o. s. frv.

x

Dagskrá

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.