Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Lögberg-Heimskringla

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31 . . . . .
Smelltu hér til aš fį meiri upplżsingar um 1. tölublaš 
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Lögberg-Heimskringla

						LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 20.  ÁGÚST,  1959

Kveðjur  fró   íslenzka   lúterska

kirkjufélaginu  í Vesturheimi


Með þessu blaði hefst nýtt

tímabil í sögu íslenzkrar blaða

útgáfu vestan hafs. Sjötíu ára

saga blaðanna, sem hér eru nú

runnin saman í eitt, er að baki.

Allir vita hvílík lífæð og

fræðslulind íslenzku blöðin

hafa verið fólki voru, alla

þessa áratugi. Það hlýtur því

að teljast lofsamleg framtak-

semi, og um leið vottur víð-

sýnis, góðvildar og trúmensku

við málstað íslendinga hér, at

forráðamenn blaðanna hafa

stigið þetta spor, till þess at

tryggja það að þörfum ís-

lenzkra lesenda verði mætt

enn um skeið, og sambandi

þeirra haldið lifandi inávið,

og sömuleiðis við stofnþjóð-

ina. Ekki er til of mikils

mælst, þótt ætlað sé, að þeir

sem hafa verið kaupendur og

lesendur beggja blaðanna að

undanförnu, sýni nú þesu nýja

fyrirtæki fulla hollustu og

stuðning. Vissulega ætti það

ekki að vera oss Vestur íslend-

ingum ofraun að halda uppi

einu blaði, og gera það mynd-

arlega úr garði. Það ætti og

að vera oss metnaðarmál, því

að á framtíð þesa blaðs veltur

að miklu leyti framtíð vor, og

samheldni, sem þjóðarbrots.

Eg samgleðst og þakka stjórn-

arnefndum blaðanna Heims-

kringlu og Lögbergs fyrir

frjálslyndi þeirra og þá fórn-

arlund sem hér er fram komin

af þeirra hálfu, og ég óska

þess að góð samvinna megi

takast með stjórnarnefnd hins

nýja blaðs. En um leið og ég

óska hinu sameinaða blaði

góðs gengis, vil ég leyfa mér,

sem forseti Hins Ev. Lúterska

Kirkjufélags Islendinga í

Vesturheimi, að mælast ein-

dregið til þess við alla ís-

lenzku-lesandi meðlimír fél-

agsins að þeir geri sitt ýtrasta

til þess að tryggja framtíð

"Lögberg-Heimskringlu" með

ráðum og dáð.

Eric H. Sigmar.

North American Publishing Co. Ltd.

Sameining  íslenzku

vikubloóonna

Glópur myndi hver sá hafa

verið talinn, fyrir nokkrum

áratugum, er spáð hefði að sá

tími mundi koma að íslenzku

vikublöðin í Winnipeg rugl-

uðu saman reitum sínum, og

drægju upp sameiginlegan

fána. En nú, með þessu tölu-

b 1 a ð i           "Lögberg-Heims-

kringla" er sú raun á orðin,

og munu góðir menn fagna

þeirri ráðstöfun. Blöðin, sem

nú eru sameinuð, hafa frá

upphafi, runnið eftir mismun-

andi farvegi, og allt landslag

hefir haft sinn sérkennilega

lit og lögun, frá sjónarmiði

hvors þeirra. Flúðir og fossa-

föll hafa orðið á vegi þeirra,

og af þeim vatnagangi hefir

stafað nokkur hávaði á stund-

um. En nú, er þau renna sam-

eiginlega út á sléttlendið,

verður straumurinn breiðari

og hægari við samrunann.

Nú, engu síður en fyrr, munu

þau bera með sér andlegt

frjómagn, fræðslu og góðvild

út um sveitir. Þessu blaði er

ætlað að vera málgagn allra

íslendinga, hverrar skoðunar

sem þeir kunna að vera um

almenn mál, og er skipan frú

Ingibjargar Jónsson, sem rit-

stjóra, fullkomin trygging

fyrir hlutleysi í þeim efnum.

Engin ritskoðun mun fyrir-

huguð, og engin skilyrði sett

þeim er rita vilja í blaðið,

önnur en sú sjálfsagða vel-

sæmisregla að forðast per-

sónulegar ádeilur.

Ef rétt er á haldið, og hið

sameinaða blað nýtur þess

stuðnings sem það á skilið

sem arfþegi fyrirrennara

sinna, og vegna hinnar ís-

lenzku arfleifðar sem það er

helgað, þá getur þetta sam-

starf   orðið   öllum   sem   hlut

eiga að máli, mikill gróði, en

engum tjón. Samruni blað-

anna er ekki sprottinn af illri

nauðsýn eingöngu, heldur af

víðsýni og auknum samfélags-

þroska forráðamanna gömlu

blaðanna. Vonandi sýnir ís-

lenzkur almenningur sambær-

ilegan þroska og góðvild með

því að kaupa, og hjálpa til að

útbreíða hið nýja blað. Öllum

er sú tilhneiging í blóð borin

að vilja halda sínu, og breyta

sem allra minnst þeirri stefnu

sem orðin er að hefð. Enginn

skyldi því ætla að þessi ráð-

stöfun hafi náð fram að ganga

án nokkurs sársauka og fórn-

ar af hálfu beggja aðila. En

nú, er forráðamennirnir hafa

riðið á vaðið, og fórnað nokk-

ru af metnaði sínum til þess

aðtryggja Vestur Islendingum

sameiginlegt málgagn, má

ætla að lesendur gömlu blað-

anna sýni engu minni stórhug

og víðsýni, og veiti hinu nýja

blaði fullan trúnað og holl-

ustu.

Vér óskum þess af heilum

hug að "Lögberg-Heims-

kringla" megi lengi lifa, og að

íslendingar vestan hafs bjóði

blaðið velkomið á þann eina

hagkvæma hátt sem að gagni

kemur, með því að kaupa það,

lesa það, og greiða andvirði

þess skilvíslega.

— Valdimar J. Eylands

TIL LESENDA:

Vegna rúmleysis í blaðinu

verður, því miður, mikið les-

efni að bíða næsta blaðs: ræð-

ur, ávörp og ljóð frá íslend-

ingadeginum, fréttabréf, ævi-

minningar og fl.

MINUTES OF A MEETING

OF THE BOARD OF DIREC-

TORSOFTHENORTH

AMERICAN PUBLISHING

CO. LTD., held on the 5th

floor of the Winnipeg Clinic,

St. Mary's Ave. and Vaughan

St., City of Winnipeg, in

Manitoba, on the 16th day of

July A.D. 1959 at 8:30 o'clock

in the evening. The follow-

ing are the Directors of the

NORTH AMERICAN PUB-

LISHING CO. LTD.:

Mr. Arni G. Eggertson, Q.C.

—President.

Rev. Philip M. Petursson—

Vice-President.

Mr. S. Aleck Thorarinson—

Secretary.

Mr. K. W. Johannson—

Treasurer.

Dr. Richard Beck.

Mr. Grettir Eggertson.

Mr. Olafur Hallsson.

Mr. Grettir Leo Johannson.

Mr. Jon B. Johnson.

Mr. Jakob F. Kristjanson.

Judge Walter J. Lindal.

Miss Margrét Petursson.

Mr. Hannes Petursson.

Mr. Hannes J. Petursson.

Mr. S. V. Sigurdson.

Dr. Larus A. Sigurdson.

Dr. P. H. T. Thorlakson.

Hon. G. S. Thorvaldson, Q.C.

The meeting was called to

order and the following Reso-

lutions were thereupon moved,

seconded and unanimously

carried:

1.  That the Executive Com-

mittee of the Board of Direc-

tors of the Company consists

of nine members of the Direc-

tors of the North American

Publishing Co. Ltd. The fol-

lowing were elected:

Mr. Arni G. Eggertson, Q.C.

Rev. Philip M. Petursson

Mr. S. A. Thorarinson

Mr. K. W. Johannson

Mr. Grettir Eggertson

Dr. P. H. T. Thorlakson

Mr. Grettir Leo Johannson

Hon. G. S. Thorvaldson, Q.C.

Mr. Jakob F. Kristjanson.

2.  That Dr. P. H. T. Thor-

lakson be Chairman, Prof.

Haraldur Bessason, Vice-

Chairman, and Mrs. Ingibjorg

Jonsson be Secretary of the

Editorial Board.

3.  That the Finance and Cir-

culation Committee shall con-

sist of Dr. P. H. T. Thorlakson,

Mr. S. A. Thorarinson, and

Mr. K. W. Johannson, and this

Committee shall have power

to add to their numbers from

the members of the Board of

Directors and the Staff of the

Company.

4.  That the Company ac-

quire the publishing rights

from the Columbia Press Lim-

ited and Viking Press Limited

of Logberg and Heimskringla

5.  That the publication Log-

berg - Heimskringla shall be

published weekly, and shall

consist of eight pages of five

columns by 15%" per column

unless altered by reasons of

economy as recommended by

the Board of Directors and/or

the Staff of the Company.

6. That a list of the paid-up

subscribers of Logberg-Heims-

kringla be completed and that

a letter be mailed as soon as

possible to all paid-up sub-

scribers expressing apprecia-

tion for their past support, and

notifying them of the new an-

nual subscription rate as well

as expressing the hope of the

Editor and the Board of Di-

rectors that these subscribers

continue their valued support

to the new publication, and

that a special letter be mailed

to those subscribers of Log-

berg - Heimskringla who are

in arrears in their subscrip-

tion requesting them to pay

these arrears up to October 1,

A.D. 1959, and at the same

time subscribe to the new pub-

lication.

7.  That the advertising rate

of the new publication of

Logberg-Heimskringla be es-

tablished on the basis of lOc

per agate line.

8.  That the Directors accept

the offer for publication of

Logberg-Heimskringla by the

Columbia Printers, 303 Ken-

nedy Street, Winnipeg, and

enter into a contract for such

publication.

(Tenders had been received

from interested printing shops

and the lowest bid was ac-

cepted.)

9.  That the Icelandic Na-

tional League be requested to

acknowledge the new paper as

its official organ, and to con-

tinue its annual support on

the basis of its previous com-

mitments to both papers.

Continued on Page 7

ATHLETIC

S'PORT SHORTS

372

Allir sem hreyfingu unna,

eru hrifnir af Watson's nær-

fötum, þeirra Athletic pouch,

og vernd á alla vegu. Milli-

band úr treyju. Óviðjafnan-

lega þægileg. Gerð af sér-

fræðingum. Auðþvegin. Eng-

in strauing. Endingar góð.

Skyrtur er samsvara.

SEH3

NÆST ÞEGAR ÞÉR LEITIÐ

AÐ EINHVERJU . . .

Muniö

Gulu blaðsíðurnar

MANITOBA   TELEPHONE   SYSTEM

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8