Lögberg-Heimskringla - 18.05.1961, Blaðsíða 2

Lögberg-Heimskringla - 18.05.1961, Blaðsíða 2
2 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 18. MAI 1961 MINNINGARORÐ: Ragnhildur (Benónýsdóttir) Stevens F. 17. maí 1891 D. 5. janúar 1961 Ragnhildur Stevens var fædd 17. maí 1891 að Kambs- hóli í Víðidal í Vestur-Húna- vatnssýslu. Foreldrar hennar voru hjónin Benóný Jónsson og Jóhanna Guðmundsdóttir. Faðir hennar var tvíkvæntur. Af fyrra hjónabandi hans voru þrjú hálfsystkini hennar, Guðrún, Sveinn Ágúst og Elízabet Þórunn. Elízabet gift- ist Jóni Jónssyni í Huppahlíð í Miðfirði í Húnavatnssýslu. Var hún mesta myndarkona. Þessi þrjú hálfsystkini dóu öll á íslandi. Alsystkini Ragn- hildar eru: Valdimar K. Ben- ónýsson skáld — hann bjó lengst að Ægissíðu á Vatns- nesi, V.-Húnavatnssöslu, en dvelst nú í Reykjavík; Svein- björn Ágúst Benónýsson skáld, er múrari að iðn, átti heima á ýmsum stöðum í V.- Húnavatnssýslu til þrítugs- aldurs, en flutti þá til Vest- mannaeyja og hefir átt þar heima síðan; Guðrún María Benónýsdóttir skáldkona, hún býr að Hvammstanga, Vestur- Húnavatnss.; Steinvör Ben- ónýsdóttir, hún er gift Sig- urði Pálmasyni kaupmanni á Hvammstanga; Ólafía, systir þeirra, er dó á íslandi; Sigríð- ur Benónýsdóttir, hún var gift Jóni Jónssyni frá Hrísum í Víðidal, fluttust vestur um haf árið 1901 og áttu heima á ýmsum stöðum í Norður- Dakota og Manitoba, hún dó vestan hafs árið 1917, en Jón lézt í Selkirk-bæ 22. marz 1960; Torfhildur Benónýs- dóttir, Mrs. Jim Crout — hún er búsett í McCreary, Mani- toba. Foreldrar þessara systkina voru bæði hagmælt og gekk sú gáfa í ættir. Benóný Jóns- son var smiður góður, og hafa dóttursynir hans hér á Gimli flestir orðið góðir smiðir. Tólf ára gömul kom Ragn- hildur frá íslandi til Winni- peg og hélt til hjá Jóhannesi Bergmann og konu hans, sem höfðu þar gistihús, þangað til hún fékk ferð til Norður-Dak- ota. Vann hún þar í góðum vistum í nokkur ár, þaðan kom hún til Gimli. Þann 14. apríl 1912 giftist hún Jóni Hans Stevens. Jón keypti landið Fjón af föður sínum, kapteini Jóni Stevens. (Nafnið Fjón var landinu gef- ið árið 1876 af Magnúsi Jóns- syni frá Silfrastöðum í Skaga- friði, sem fyrstur nam það land, en fluttist þaðan snemma á árum til Dakota.) Á Fjóni reistu ungu hjónin bú, bjuggu þar í þrjátíu og fimm ár og eignuðust níu mannvænleg börn. Árið 1947 brugðu þau búi og fluttu til Gimli-bæjar, og áttu þar heimili ætíð síðan. Ragnhildur Stevens var | mikilhæf kona, vel að sér bæði til munns og handa, og starfs- kona mikil .Árið 1930 gekk hún í Mínerva kvenfélagið, var forseti þess 1943-45 og starfaði þar vel eins og henni var lagið. Eftir að hún kom til Gimli, var hún í stjórnar- nefnd þjóðræknisdeildarinn- ar. Hún var meðlimur lút- erska safnaðarins og starfaði mikið og dyggilega fyrir kirkjuna. Einnig var hún for- seti djáknanefndar um árabil k I Ragnhildur (Benónýsdóttir) Sevens og var í þeirri nefnd til ævi- loka. Ragnhildar Stevens er sárt saknað af öllum vinum og samferðafólki, sem þekktu hennar trausta og trúa þrek. Öllum vildi hún rétta hjálpar- hönd í erfiðleikum. Hún mátti ekkert aumt sjá, svo að hún ekki reyndi að bæta böl þess. Ragnhildur lézt á Johnson Memorial sjúkrahúsinu á Gimli 5. janúar 1961 af afleið- ingum hjartabilunar. Útför hennar fór fram frá lútersku kirkjunni á Gimli 7. janúar, að miklum mannfjölda við- stöddum. Séra L. I. Nadiger flutti kveðjumál. Hana syrgja eiginmaður hennar, John; fimm synir: William, búsettur í Richmond, B.C., kvæntur Margaret Thor- steinsson, Laurence, kvæntur Guðrúnu Johnson, Franklin, kvæntur Emily Magnússon, Ellert, kvæntur Önnu Árna- son, Walter, kvæntur Betty Thornton, allir búsettir í Gimlibæ; einnig fjórar dætur: Violet, Mrs. Kris. Benedict- son, búsett í Winnipegborg, Ruby, Mrs. Norman Albert- son, Flora, Mrs. Tryggvi Erickson, Esther, Mrs. Guðni Magnússon, búsettar í Gimli- bæ. Tuttugu og sjö barnabörn sakna ástríkrar ömmu. Hjartans þakklæti frá eigin- manni og börnum fyrir alla ástúð og umönnun á liðinni tíð fylgir þessari minning. Guð blessi minningu henn- ar. Kristín Thorsteinsson | Gjafir í byggingarsjóð Hafnor, Vancouver Áður auglýst $17,370.85 Mr. og Mrs. S. Grim- son, Vancouver, í minningu um kær- an frænda, Hergeir Danielson, Lundar 5.00 Mrs. Anna Harvey og Mrs. Alma Lar- sen, í kærri minn- ingu um Mrs. Ena Jackson, d. í Van- couver 1961 5.00 Mrs. Helga Thorstein- son, Vancouver, í minningu um ást- kæran eiginmann, Steina Thorsteinson 50.00 John Patrick Lee Thorsteinson, Vanc. 10.00 Mr. Gunnar Johann- son, Wynyard 50.00 Icelandic Men’s Choir, samskot á samkomu 68.00 Afhent á samkomu Icelandic Men’s Choir: Mr. S. H. Sigurd- son, Höfn $1 ,000.00 Mr. S. Scheving, Höfn 30.00 Mr. Th. Bergman, Höfn 5.00 Mrs. E. Björnson, Höfn 5.00 Mrs. Th. Indriðason, Höfn 2.00 í kærri minningu um Mrs. Stefaníu Halldórson: Mrs. Lóa Skúlason, Vancouver 5.00 Mrs. Ina Johnson, Vancouver 5.00 Mr. og Mrs. Eyford, Vancouver 5.00 Mrs. Kristín Bjarna- son, Steveston 5.00 Mrs. M. Jarvis, Steveston 3.00 Mr. og Mrs. Joe Sigurgeirson, Steveston 2.00 Mr. og Mrs. Bill Sigurgeirson, Steveston 2.00 Mr. og Mrs. S. J. Sigurgeirson, Steveston 2.00 D. og P. Sigurgeir- son, Steveston 2.00 Thorsteinn Anderson, Steveston 2.00 Mr. og Mrs. Geo. Robertson, Rich- mond, B.C. 100.00 Mr. og Mrs. O. W. Jóns- son, Vancouver 50.00 Mr. og Mrs. Kris ís- feld, Surrey, B.C. 100.00 Dr. J. Thordarson, Haney, B. C. 100.00 Mrs. Rebecca Speak- man, Vancouver 100.00 Mr. og Mrs. G. Jacob- son, Vancouver 100.00 Mr. og Mrs. C. Björn- son, Burnaby, B.C. 25.00 Mr. og Mrs.1 Erling Bjarnason, Vanc. 100.00 Mr. G. J. Björnson, Vancouver 5.00 Alls $19,313.85 Ýmsar gjafir: Leirtau frá Mrs. W. H. Gale. I.eirtau, 10 rúmteppi og 18 koddaver, - 300 pd. af kartöfl- um frá Mrs. Öllu Warburton. Hanikjöt frá Mr. B. Sveinson, Höfn.' Meðtekið með þakklæti frá st j órnarnef ndinni. Mrs. Emily Thorson, féhirðir, Ste. 103 — 1065 W. llth, Seinna koma sumir daga og koma þó. ☆ Illa sést ofstopinn. ☆ » Sæll er hver sem sjálfur i®8 sína nauðsyn bæta. ☆ Erfiði og ástundun eru far sældar foreldrar. ☆ , Enginn veit á hvaða stun Vancouver 9, B.C. mælir. Subscription Blank NORTH AMERICAN PUBLISHING CO. LTD. 303 Kennedy Sl., Winnipeg 2. I enclose $ for subscription to th® Iceiandic Weekly, Lögberg-Heimskringla. NAME ........ ............... ADDRESS ........................... City Zone þegar manntalstökumaðurinn kemur, aðstoðið hann við að aðstoða okkur öll! í Kanada er manntal tekið á hverjum tíu árum. Ef þetta er í fyrsta sinn að hann kemur til þín, munið> að hann spyr alla í Kanada sömu spurninga. Meðal annarra spurninga, mun hann spyrja um nafn, menntun og atvinnu hvers eins á þmu heimih; Þegar þessum upplýsingum hefir verið safnað fra öllum í Kanada, getur þjóðin ráðgert betur framtið skólanna, opinberra framleiðslutækja og þróun við- skipta. Öllum upplýsingum, sem þér gefið manntalstöku- manninum, er haldið leyndum. Samkvæmt lögum má ekki nota þær í sambandi við skattálagningu, herþjónustu, skólaaðsókn eða til að framfylgja sam- bands-, fylkis-, eða bæjar- og sveitarlögum eða reglugerðum. Þegar manntalsmaðurinn kemur á þitt heimili, ger' ið svo vel og svarið spurningum hans nákvæmlega- Aðstoðið hann við starfið, sem varðar framtíð okkar allra. Birt samkvæmt valdsumboði The Honourable George Hees’ ráðherra viðskipta- og verzlunarmála.

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.