B LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 4. OKTÓBER 1962 Úr borg og byggð Messa á íslenzku, þakkar- gerðar sunnudaginn þann 7. þessa mánaðar kl. 7 e.h. í Únitara kirkjunni á Banning Street; síra Philip M. Péturs- son predikar. Miss A n n a Maríeinson, bókavörður Air Material Com- mand Headquarters í Ottawa kom nýlega hingað vestur í heimsókn til ættingja og vina í Nýja Islandi. Hún lauk B.A. prófi í Ottawa og lagði síðan stund á bókavarðarnám við Cornell háskólann í Ithaca og lauk þar Masters prófi í þeirri grein. Hún fór til íslands í fyrsta sinn í fyrra haust og dvaldi þar í þrjár vikur, heim- sótti ættingja á austurlandi og á Egilsstöðum. Hafði mikla ánægju af ferðinni ,og þá ekki sízt af að skoða Landsbóka- safnið í Reykjavík. Hún fór heim á fimmtudaginn. k Miss Jennie A. Johnson frá Pasadena kom í sumar í heim- sókn til bróðurbarna sinna og fjölskyldna þeirra, en þau eru Sigurður Austfjörð, Riverton; Mrs. M a r g r é t Schwabbe, Winnipeg og Mrs. Kristín Grahn, The Pas, Manitoba. Hún heimsótti einnig vini og ættingja í Argyle. Hún hélt heimleiðis í sl. viku. Hún er mjög íslenzk í anda, og hefir styrkt íslenzka vikublaðið rausnarlega. ir Mannslát Þjóðkunnur maður Björn Rögnvaldsson, 66 ára, bygg- ingarmeistari hjá Húsameist- ara ríkisins og eftirlitsmaður með opinberum byggingum fyrir Húsameistaraembættið lézt nýlega. ¦ír Civil Deíence says: If war comes a nuclear attack is possible, do you know how to protect your family? METRO CIVIL DEFENCE. 1767 Portage Avenue, Winnipeg 12, TUrner 8-2351 Leiðrélling á frétt um gull- brúðkaup Bjargar og Varða Havardsson: 22. júlí er gifting- ardagurinn (ekki í ágúst). Börn þeirra hjóna buðu þeim til Winnipeg til miðdegis- verðar á heimili eldri dóttir þeirra (Rúnu) Mrs. W. D. Sutclisse, á Iþeirra nýa heimili á Thomson Drive, St. James, þar voru saman komin öll börn þeirra, og systkini beggja hjónanna og tengdafólk. Það voru því börn þeirra sem stóðu fyrir þessu en ekki bræður Bjargar. ÍT Leiðrélting 1 L.-H., er út kom þann 20. sept., á fimtu blaðsíðu í síð- asta dálki endar þriðja greinin þannig: er skapast við að skaka, vinda, grípa og kreppa hnefann." Upprunalega var þ e 11 a þannig: er skapast við að skafa (scraping), vinda, grípa og kreppa hnefann." A.S.M. T&r Eric Stefanson M.P. for Selkirk has announced the awarding of the, following Federal Government certif- cats. Wharf repairs to the Gov- ernment Dock at Gimli, Mani- toba (concrete chesk on new section) awarded to Gimli Construction Co. Ltd. Gimli, Manitoba, $4,907.50. Six tend- ers were received. Wharf repairs to the Gov- ernment Dock at Selkirk, Manitoba (concrete curbs, etc.) awarded to Peter Boorberg Enterprises Ltd. Garson, Manitoba for $6,519.00. One tender received. Mr. Stefanson left Sept. 24th to take up his duties at Ottawa. Skrúðsýning á Fort Garry Hótel Þjóðræknisfélag Islendinga í Vesturheimi tók þátt í skrúð- sýningu (pageant) sem fór fram undir umsjón Winnipeg Y.M.C.A. í sambandi við fim- tugasta ársþing aðalfélagsins (National Council of Y.M.C.A) í Fort Garry Hótelinu s.l. viku. Sýningin fór fram á fimmtudagskvöldið 27. sept- ember og tóku átta þjóðarbrot þátt í samkomunni, en hana sóttu um fjögur hundruð manns, flest fulltrúar Y.M.C.A. víðsvegar um Kan- ada, og nokkrir gestir þeirra. Frú Hólmfríður Daníelson sá um þátttöku íslendinga, sámdi leikþáttinn og umsögn þá er lesin var um leið og sýningin fór fram. Sýningin var táknræn og gaf til kynna bókhneigð og bókmenntastarf Islendinga og béimillsstörf að nokkru leyti. Þátt tóku í sýn- ingunni frú Guðrún Blondal, frú Sylvia Storry, og frú Shirley Johnsson, í Islenzkum búningum. Ungu konurnar sungu tvö ísl. þjóðlög. Frú Kristín og ungfrú Margrét Pétursson lánuðu búninga. Sýningin þótti mjög til- komumikil og var Islending- um til sóma. Frú Hólmfírður Daníelson brá sér norður til Neepawa á fimmtudaginn til þess að flytja fyrirlestur um leiklist á ársþingi North Central Teach- ers' Association. Stjórnar- n e f n d kennarasambandsins hafði beðið hana að koma til þess að gefa tilsögn í leiklist. Námskeiðið stóð yfir í þrjá klukkutíma og innifól klukku- stundar fyrirlestur, samtal og kennslustund. Um 250 kenn- arar sóttu þingið en fyrirlest- urinn flutti frú Hólmfríður fyrir miðskóladeildina. Hún MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol. Heimili 686 Banning Street. Sími SUnset 3-0744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku: kl. 9.45 f. h. 11.00 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. Sunnudagaskóli kl. 9.45 f. h. kom til Winnipeg aftur um kvöldið í tæka tíð til þess að sækja skrúðsýninguna í Fort Garry hótelinu. Dánarfregn Elizabeth Ellen Kometz, 92, passed away in the Blaine Ice- landic Rest Home, Stafholt, Friday, August 24, 1962, fol- lowing an ertended illness. Born in Czechoslovakia, Mrs. Kometz had celebrated her 92nd birthday on the day preceeding her death. In 1885 Mrs. Kometz immigrated to the United States and in 1901 moved to Canada near Furney where she made her home for many years. Fourteen years ago She moved to Whatcom County, living in the Custer area for a number of years. For the past few years she had made her home with her daughter, Mrs. John Hovan at Route 3, Lynden, Wash. Mrs. Kometz was preceeded in death by her husband, George, in August of 1916, and by daughter, Annie in 1923. Surviving are 3 sons, George of Everett, John of Leth- bridge, Alberta, and A. W. Kometz of Vancouver B.C. 2 daughters, Mrs. Sus'ie Hovan, Route 3, Lynden and Mrs. Lewis Krall of Natal, B.C. Also 16 grand children, 38 great grandchildren, and 4 great great grandchildren. Funeral services were held in the McKinney Funeral Home, Blaine, Monday, Au- gust 27th, at 2 o'clock p.m. with the Rev. G. P. Johnson officiating. Fréttir frá íslandi Frá bls. 7. Suðurlands, eða um e i 11 hundrað og fimmtíu þúsund fjár. Félagssvæði félagsins er líka mikið flæmi, þar eð það nær yfir Suðurland allt frá Skeiðarársandi og allt að Hvítá í Borgarfirði, þótt fleiri aðilar slátri raunar á svæðinu. Aðrir aðilar, sem miklu er slátrað hjá, eru t.d. Kaupfélag Héraðsbúa, en á þess vegum mun slátrað rúmlega fimmtíu þúsund fjár. Á vegum KEA mun slátrað állíka miklu, eða um 52 þúsund. Hjá Kaupfélagi Þingeyinga er áætlað að slátra um f jörtíu þúsund fjár og er það um þrem þúsundum fleira en í fyrra. Hjá Kaupfélagi Skag- firðinga er áætlað að slátra um þrjátíu og sex þúsund f jár og hjá Sölufélagi Austur-Hún- vetninga um fjörtíu og fjögur þúsund. it Hafnargerð í Þorlákshöfn 1 Þorlákshöfn er iþessa dag- ana allt að komast í fullan gang með framkvæmd hinnar miklu hafnaráætlunar þar. Verkið á að kosta tæpar 45 milljónir króna og taka um 30 mánuði. Lánsfé til framkvæmdanna var fengið frá Bandaríkjun- um. Mikill áhugi ríkir á öllu Suðurlandsundirlendinu fyrir þessum miklu framkvæmdum, en Þorlákshöfn er ein al- mennilega höfnin á þessu svæði. Mikil uppbygging í þorpinu um þessar mundir, og má nefna, að 22 íbúðarhús eru þar í smíðum. Lánið nemur 1,05 milljón dollara eða rúmlega 45 millj. íslenzkra króna. Það er með 6,5% ársvöxtum og endur- greiðist á 10 árum. Ríkis- stjórnin tók lánið en endur- lánar það hafnarsjóði smám saman. <r Kornskurður Akureyri, 20. sept. í dag var hafinn kornskurð- ur við Öxará í Bárðardal í Bárðardal í Þingeyjarsýslu. Þar eru þrjátíu og þrír hekt- arar lands undir byggi. Bygg- ið er linþroskað, enda hefur haustið verið óvenju kalt. Sem dæmi um kuldana má geta þess, að fyrir viku mældist átta stiga frost við akurinn hjá Öxará. Þrettán hektara byggakur er einnig í Reykjadal, sem líka bíður kornskurðar. Þetta eru fyrstu stóru akrarnir nyðra, en undanfarna áratugi hafa verið gerðar tilraunir með kornrækt hjá Akureyri og i Eyjafirði. Það er félag bænda í Bárðardal og Reykjadal, sem stendur fyrir þessari kornrækt. Við kornskurðinn er notuð stór ensk sláttu- og þreskivél. Kemur það sér vel að hún er stórVirk, enda er hér um að ræða fyrstu akrana nyðra sem eitthvað kveður að. Bændur hafa haft mikinn áhuga fyrir kornrækt, en hún hefur yfir- leitt strandað á vélaskorti, fyrr, en nú hefur úr rætzt í því efni. ED. ^r Friðrik V. Olafsson látinn Friðrik Valdimar ;Ólafsson, skólastjóri, andaðist í Reykja- vík í gær, 67 ára að aldri. Friðrik heitinn fæddist árið 1895 á Vopnafirði, og voru foreldrar hans Stefanía Þor- varðsdóttir og Ólafur F. Da- víðsson, verzlunarstjóri á Vopnafirði. Friðrik stundaði nám bæði hérlendis og í Kaupmanna- höfn og lauk prófi í sjómæl- ingafræði við Sökora-Arkivet í Khöfn 1931. Hann var skip- herra á varðskipum ríkisins 192529 og 193234. Forstjóri sjómælinga ríkisins varð hann árið 1932 og forseti Slysa- varnafélags íslands var hann frá 1937 40. Friðrik var skólastjóri Stýrimannaskólans frá 1937. Kvæntur var Friðrik Láru Mikkaelínu Sigurðar- dóttur. iLASSESon 30DAYTRIAL PrófiS sjón yðar SPARIÐ $15. Sendið nafn yðar, addressu og aldur, og við sendum þér Home Eye Tester, F'wíf nýustu vörubók, | ril. og fullkomnar uppdýsingar. VICTORIA OPTICAL CO., Dept. N-574 276VÍ2 Yonge St. Toronto 1, Ont. Agents Wonted ROSE THEATRE SARGENT ot ARLINGTON CHANGE OF PROGRAM EVERY FOUR DAYS Foto-Nite Every Tuesday and Wednesday SPECIAL CHILDREN'S MATINEE Every Saturday I ÆTLARÐU AÐ I FERÐAST? Hvert sem þú 1 ferð, spara ég I þ é r peninga | og létti af þér áhyggjum án auka kostnað- ar. Ég er um- boðsmaður Icelandic Airlines og allra aðal flug- og skipa- ferðafélaga; skipulegg ferðir innanlands og erlendis. Ég leiðbeini þér varðandi vega- bréf, visa og hótel, ókeypis, og með 30 ára reynslu get ég ábyrgzt ágæta fyrirgreiðslu. ARTHUR A. ANDERSON ALL-WAYS TRAVEL BUREAU 315 Horgrove St., Winnipeg 2 Offico Ph. WH 2-2535 - Res. GL 2-5446 (openhagen Heimsins bezto munnfóbak