Lögberg-Heimskringla - 04.10.1973, Blaðsíða 1

Lögberg-Heimskringla - 04.10.1973, Blaðsíða 1
Eergsteinn Jonsson, Box 213 BEYKJAVnc; Icsland Jan. 73 Fjandans skollaleikur Allir vita að „blindman's blufí" heiiir skollaleikur á íslenzku, og það er engu líkara en að sá lilli skolli, prentvillu-púkinn, hafi bundið fyrir augun á okkur þegar við vorum að lesa prófarkir að fyrsta blaðinu sem kom út í september. — Ekki var það nú samt. — Hann bara brá á leik á meðan við vorum í símanum. Fólk hringdi í okkur frá Gimli, Riverton, Kaliforníu og North Dakota til að herða á eftir blaðinu. Við vorum í flýti og galsi í púk- anum. En nú eru lesendur farnir að segja okkur til syndanna. Þegar orðið „bjargar" breytist í „bjagar", brosir hann í kcimpinn snillingurinn gamli hann Gísli Jónsson. * Jleímökringla Stofnað 14. jan. 1888 —.... i___________________________ 87. ARGANGUR Stofnað 9. sept. 1886 WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 4. OKTÓBER 1973 -------1 NÚMER 29 Árið 1935 var dr. Percival Johnson ungur maður með ársgamla gráðu í læknis- fræði frá Manitoba háskól- anum, og var því til í að verja tveim árum ævinnar norður í nýbyggðum Mani- tobafylkis, þar sem Hudson Bay Mining and Smelting Co., var að koma upp iðnaðar þorpi, og dr. Pétur Guttorms son hafði tekið við lækna- stofu (clinic) og þurfti að- stoðarlæknir. En svo tognaði úr vistinni og margt breytlist. Árið 1937 um það leyti sem þessi tvö ár voru að taka enda, kvænt- ist dr. Johnson Miss Eliza- beth Swain frá Morris, Man., hjúkrunarkonu útskrifaðri ai Wiimipeg tíeneial Scliooi of Nursing. Bæði kunnu vel við sig norður í fylki, féll vel við fólkið þar og fór að þykj a vænt um það. Dr. Guttorms- son flutti burt árið 1943, en dr. Johnson varð eftir. — Læknastofan óx með vax- andi íbúafjölda. Nú þjóna 11 læknar þar sem áður voru 3 og margar nýungar innleidd ar, þar á meðal eitt af beztu læknaþjónustukerfum fylkis ins. Stærsta kveðjuathöfnin var naldin í siærzia samkomu- húsinu í Flin Flon, því ann- arsstaðiar komust ekki vel- unnarar þeirra hjóna fyrir. Taldist svo til að 592 manns hefðu sitið þar að máltíð. — Mun læknirinn, kona hans og börn, sem bæði eru fædd og uppalin í Flin Flon, hafa ver-' ið aðal umtalsefni einstakl- inga undir borðum ekki síð- ur en ræðumanna er tóku þar til máls, og flestir hafa víst kallað lækninn „Percy“. Formaður Hudson Bay Mining and Smelting, Mr. W. A. Morris, gerði sér ferð frá Toronto ti’l að taka þátt 1 at- höfninni. í ræðu sem hann hélt sagði hann meðal ann- ars: „Fólkið hér í Flin Flon horfir á eftir Percy með söknuði ,en það ber höfuðin hátt og segir „þar fer mað- ur.“ — Stéttabróðir hans, dr. Harvey McNicol frá Winni- peg, sagði í aðalræðunni sem haildin var við þetta tæki- færi: „Aldrei aftur fáið þið raann sem jafnast á við dr. Percy Johnson í Flin Flon.“ Hann sagði að dr. Johnson væri viðurkenndur um allt fylkið sem fær og ósérplæg- inn læknir, og vel að sér í sinni grein. Manndómur hans og mann úð komu fram í starfinu. — Flin Flon Clinic þjónar stóru umhverfi, sem tekur yfir Cranberry Portage, Snow Lake, Lynn Lake og ótal smærri staði í Manitoba, svo og Pellican Narrows í Sask- Flugfélögin taka saman höndum Loflleiðir og Flugfélag íslands gengu undir sameiginlega stjórn 1. ágúsf sl. Að loknum slofnfundi „Flugleiða" þann dag tókust forstjórar beggja hlutaðeigandi félaga í hendur. — Alfreð Elíasson, til vinstri á myndinni, of hálfu Loftleiða, og örn Ó. Johnson fyrir hönd Flugfélags íslands. Áður var skýrt frá því í Lögberg-Heimskringlu að sam- einingin hefði verið samþykkt á aðalfundum beggja félag- anna 28. júní sl. Hvort um sig, halda félögin áfram starfi innan eigin starfssviðs. Fellibylurinn /#Ellen#/ lét illum látum í Reykjavík Fellibylurinn „Ellen," sem nýlega geisaði sunnar í At- lantshafinu, kom við að skiln aði í Reykjavík og víðar á ís- landi nóttina 23. seplember. Segir í Morgunblaðinu að kröpp lægð hafi gengið yfir vesturhluta landsins. Vindhraði í mestu hviðun- um komst upp í 108 hnúta (um 120 mílur) á klukku- stun*d. — Tjón varð á mann- virkjum og lausamunum, og gífurlegt eignatjón, einkum í Breiðholtshverfinu. „Hreint neyðarástand skapaðist um tíma í Breiðholtshverfinu og víðar í Reykjavík,“ segir í Morgunblaðinu. Um þrjúleyt ið um nóttina var veðurofs- inn verstur og ástandið svo slæmt, að hjálparsveitir voru yfirleitt ekki á ferð nema í bifreiðum, enda stór- hættulegt fyrir fólk að standa á bersvæði vegna foks. En aila nóttina var ver- ið að flytja konur, böm og sjúklinga úr húsum í Breið- holts- og Árbæjarhverfum. Járn fauk af húsþökum 13 biðskýli fuku um koll. Trjá- gróður í Reykjavík fór mjög illa. Stór tré féllu víða eða lögðust alveg niður, önnur klofnuðu og greinar brotn- uðu af. — Mikið tjón varð í skógræktarstöðinni í Foss- vogi, einkum á gróðurhús- um. Aðrar gróðrarstöðvar í Reykjavík urðu einnig mjög illa úti. Sjógangur var ekki mikiil og því minna tjón en á horfð ist í Reykjavíkurhöfn. Menn voru í sumum bátunum alla nóttina og yfirleitt hafði ver- ið vel búið um bátana fyrir nóttina. Þrjár til fjórar trill- ur sukku samt í höfninni, — bæði við Ægis- og Granda garð. Um morguninn lægði veðr- inu. Hafði orðið gífurlegt tjón á eignum, og fjölmargir höfðu hlotið meiðsli af völd- um g'lerbrota og foks, en ekki var vitað til þess að neinn hefði slasast alvarlega af völdum veðurofsans. 25 ára hjúskaparafmæli Þann 3. september 1973. — Attu hin góðkunnu hjón Iris og Björn læknir Jónsson í Swan River, 25 ára hjúskap- arafmæli. — Og var okkur hjónunum boðið að vera þar viðlátin, og njóta kaffineyzlu að þeirra ágæta heimili, með þeim og börnum þeirra og mökum, og hópi af kunningj- um þar í bæ og nágrenni. — Skemmti fólk sér lengi dags með fjörugum samræðum og ámaðaróskum. — Við hjónin dvöldum í nokkra daga í bezta yfirlæti. — P. Hallson. Sigurður Magnússon tekur við nýju starfi Sigurður Magnússon, hinn vinsæli blaðafulltrúi Loft- leiða síðastliðin 20 ár, er Vestur-íslendingum að góðu kunnur. — Hann var . heiðursgestur á einu árs- þingi Þjóðræknifélags Is-. lendinga í Vesturheimi, — flutti þar ræðu og sýndi myndir. Nú hefir Sigurður verið skipaður forstjóri Ferða- skrifstofu ríkisins á Is- landi og tók við þeirri stöðu 1. september sl. Lögberg-Heimskringla þakkar þessum holla vini landanna vestan hafs góð kynni, og óskar honum og hans nánustu gæfu og góðs gengis í framtíðinni. Læknirinn bæfti 36 árum við vistina í Flin Flon atchewan. — Af íbúa fjölda norður byggðanna eru um tveir þriðju starfsmenn Hudson Bay Mining and Smelting Co„ og vildi félagið koraa á heilsuverndarkerfi fyrir sína menn og þá sem þeir þurftu að sjá fyrir. — Ungu læknarnir urðu fljótir til að leggja þessum hugsjón- um lið. Gengu tveir íslenzkir læknar fram í því að hjálpa til við skipulegginguna, þeir dr. Percival Johnson og dr. Norman Stephansson. sem nú stjórnar Northern Health Unit. — Hann er sonur dr. Stephans Stephansson, sem eitt sinn veitti forstöðu Flin Flon Clinic. Hudson Bay Mining and Smeiling Health Association varð fyrr til með sjúkratrygg ingu en fylkið með MMS — (Manitoba Medical Services) Framhald á bls. 5.

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.