Lögberg-Heimskringla - 11.04.1980, Blaðsíða 1

Lögberg-Heimskringla - 11.04.1980, Blaðsíða 1
Sistor Laufey Olson, Jan % Advérit Luthoran Church, 3000 North Hamlino Avo., ST. PAUL, Minn. 551 1 J- Preservcs Heritage — Assures Future 94. ARGANGUR Winnipeg, föstudagur 11. apríl, 1980 NUMER13 WINNIPEG "FÁLKARNIR" HEIÐRAÐIR ÞANN 27- MARS sl. voru Winuipeg Fálkarnir svonefndu (Winnipeg Falccns) — heiöraðir við sérstaka athöfn í Holiday Inn Hótelinu í Winnipeg. Eins og margir lesendur þessa ble.ðs vita, voru Fálk- amir hockey liðið vesturíslepska, sem vann til gullverð- launa á Olympíuleikununi í Antwerpen vorið 1920. Mike Goodman er sá eini sem enn ér lífs bessara fomfrægu kappa og var hann meðal heiðursgesta við ofangreinda athöfn, sem m.a. var haldin til heiðurs Fálkunum, sem nú urðu meðal þeirra fyrstu sem skipuðu varanlegan -sess í nýstofna.ðri filanitoba Sports Hall of Fame. Á ókomnum árum mun sú stofnun geyma nöfn þess fólks sem ágæt- ust afrek hefur unnið á íþróttasviðinu. Eins og nærri má geta varð ólympíuafrek Fálkanna . á sinni tíð til þess að afla kanadísku þjóðinni, Manitóba.- fylki og síðast en ekki síst íslcnslta, þjóðarbrotinu frægð- ar. — Við heimkomuna eftir olympíusigurinn 1920 var Fálkunum óspart fagnað. íslensku blöðin nefndu þá Hauk ana og tók Heimskringla svo til orða við það tækifæri: „Sjaldan iiefir verið jafnmik- mestu viðhöfn: — fagurlega ið um dýrðir í Winnipeg og skreyttar bifreiðar þutu fram þegar íslenzku Haukarnir og aftur um borgina með komu heim úr frægðarför nöfnum þeirra og myndum; sinni. Bæjarstjórinn veitti blöðin gerðu þá að umtals- þeim móttöku með hinni efni; fluttu af þeim myndir með allskonar lofi og kvæði sem um þá var ort, þar sem þess var greinilega getið að þeir væru Islendingar- 1 öll- um búða- og skrifstofuglugg um voru skrautprentuð nöfn> þeirra og stórletruð spjöld voru á hverjum strætisvagni bæjarins, þar sem menn sögð ust vera stoltir af þeim. — Þeim var haldin hver dans- inn eftir annan og hvert heimboðið rak annað. — Is- lenzka þjóðin hefir aldrei fengið betri auglýsing hér í landi.” Einnig segir: „Allir voru Fálkarnir ísienzkir nema einn, „Huck” Woodman, varamaður. Þessi eru nöfn Fredrickson Fálkanna frægu: „Wally” Byron, markvörður; Halli (Slim) Halderson, • sækjandi í hægra armi; Frank Freder ikson, miðsóknari og formað ur flokksins; Konni Jóhan- nesson, bakvörður; Magnús (Mike) Goodman, sækjandi í vinstra armi; Bobby Benson, bakvörður; Chris Friðfinns- - son, varamaður; Óli Björns- son, aðstoðarmaður. Ráðs- maður flokksins var Hebbie Axford, en þjálfari Fálkanna Guðmundur Sigurjónsson. Af Fálkunum þótti Frank Frederickson einna beztur, enda mun Frank með þeim beztu skautaköppum, sem uppi hafa verið. Mikið var og látið af snilld Mike Good- mans, en allir voru Fálkarn- ir framúrskarandi.” Mike Goodman hefur átt heima í Florida í rúm fjöru- tiu ár. Þar hefur hann unnið við mjólkurflutninga og er enn í fullu starfi. Fyrr á ár- um var hann eins konar þjóð sagnapersóna- Sérstaklega var það talið með hreinum ó- likindum hve hraðskreiður hann var á skautum, og mynduðust ýmsar kynjasög- ur um færni hans. A Ölym- piulekunum í Antwerpen komst til að mynda sá orö- rómur á kreik aö ekki væri allt með felidu um járnin á skautunum hans. 'l'öidu ýms- ir aö þau hlytu aö hafa ver- ið huöuð með einhverri blöndu eða eini til aö auka skriö þeirra á ísnum. Varö þetta tii þess að margir föi- uöu af honum skautana fyi’- ir haar upphæðir. Sumir buð "GOD IS NOT A FISH INSPECTOR" Kvikmynd byggð á smásögu W. D. Valgardson FRÚMSÝND í WINNIPEG W. D. Valgardson er löngu orðinn einn af þekktari rit- höfundum Kanada. — Má nefna sem dæmi að smásagna söfn hans Bloodflowers og God is Not a, Fish Inspector, sem út komu fyrir fáeinum árum vöktu mikla athygli um Norður Ameriku þvera og endilanga og eins og get- ið var um fyrir nokkru í blaðinu hefur nýútkomið smásagnasafn hans Red Dust hlotið góða dóma hjá skörp- ustu rýnendum kanadísku þjóðarinnar- En Bill, eins og Valgardson er jafnan nefnd- ur, hefur síður en svo ein- skorðað sig við smásöguforai ið. Hann er þekkt ljóðskáld, og nú hefur hann sent frá sér skáldsöguna Gentle Sin- ners, 213 blaðsíður að lengd, og hefur það verk þegar ver- ið lofað á bókmenntasíðmn kanadískra blaða. Menntamálaráð Manitóba hefur nú gert kvikmynd byggða á samnefndri smá- sögu Bills úr bókinni God is Not a Fish Inspector og til viðbótar séx'staka heimilda- mynd um ævi höfundarins. Nefnist sú Waiting íor Mom- ing. Þann 15. api'íl verða báð- ar þessar myndir frumsýnd- ar á vegum Stúdentafélags Winnipegháskólans — (The University of Winnipeg Al- umni Association) og Menntamálai’áðs Manitóba (Manitoba Department of Education). — Frumsýning þessi verður í kvikmyndasal Winnipegháskólans og vei’ð- ur Valgardson viðstaddur frumsýninguna. Framh. á bls 3 ust tii að borga $1U0,UU íyrir þa. En Mike gaí sig hvergi. Skautunum var hann stað- raðinn i að haida hvað sem i boði væri. Þeim fækkar nú óðum sem muna eftir leikjum Winnipeg Fálkanna. Um þá var sagt að þeir væru prýddir öllum þeim kostum sem prýða mættu eitt hockeylið. Þeir hefðu hraða, leikni og óþrjót. andi þrek. Engu að síður áttu þeir sér stutta sögu- Eftir sigur- inn í Antwerpen léku þeir fremur sjaldan, og fyrr en varði dreifðist liðið. Frank Frederickson hélt þó áfram á iþróttabrautinni, gerðist sína að miklum mxm. Kanada menn telja hann einn af fær- ustu hockeyleikurum sem þeir hafa nokkurn tíma átt. Tveir Winnipeg Fálkanna urðu þekktir heima á Islandi vegna framlags þeirra til ís- lenskra flugmála. — Frank Frederickson var fenginn til þess að fara til Islands til þess að kenna þar flug. Mun hann hafa verið einn af þeim allra fyrstu sem hóf sig til flugs meðal íslenskra fjalla. Frank lést fyrir nokkrum ár um S Vancouver en þar hafði hann tekið mikinn þátt í op- atvinnumaður og jók frægð inberum málum, og meðal annars verið aðstoðarborgar stjóri Vancouverborgar um skeið. Konni (Connie) Jóhannes- son rak um langt skeið flug- skóla norðanvert við Winni- pegborg. — Meðal nemenda hans í þeim skóla voru sum- ir þeirra flugmanna sem síð- ar stofnuðu íslenska flugfé- lagið Loftleiðir. — Má með sanni segja að hugmyndin að stofnun þess félags hafi að nokkru leyti fæðst hér í Winnipeg. Það má einstætt teljast að Islendingar skyldu vei'ða til þess að auka hockeyfrægð Kanadamanna á alþjóðavett- vangi- Hockey hefixr ekki ver ið leikið á Islandi fyrr en hin allrasíðustu ár. — Fornmenn léku þó með knetti á ísum. Fremur lítið er þó vitað um þá iþrótt, nema hvað margur leikmaðurinn hlaut þar grá- lega meðferð, mikla pústra og jafnvel dauða, eins og lýst er hvað greinilegast í Egils sögu Skalla Grímssonar. Islerxska þjóðin hefur nú um langan aldur sent kepp- endur snjaila á Ólympiuleika Enn sem komið er hafa þeir ekki fengið þar gull i lóf a. — Þar ui'ðu frændur þeirra Winnipeg Fálkarnir fyrri til.

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.