Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Lögberg-Heimskringla

og  
S M Þ M F F L
. . . . . . 1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 . . . . . .
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Lögberg-Heimskringla

						8 • Lögberg-Heimskringla • Föstudagur 7. júní 1991

Bréf Frá Islandi

Hulda Karen Daníelsdóttir

Ég hef oft verið spurð að því hvort

Vestur-íslendingar séu mjög ólíkir

íslendingum á íslandi. Iðulega hef ég

svarað að munurinn sé lítill sem enginn,

og að Vestur-íslendingar séu íslenskir í

bæði húð og hár. Ég neita því reyndar

ekki, að mér þótti munurinn meiri,

fyrst eftir komu mína Vestur.

Ég hef einnig tekið eftir, að því

lengursem Islendingarfrá íslandi dvelja

hér í Kanada, því betur kunna þeir að

meta Vestur-íslendinga; Allir eru samt

sammála um að Vestur-íslendingar séu

mun kurteisari ogkunni til dæmis betur

að bíða í röðum.

Nýlega hitti ég ungan íslending

sem er við nám í Bandaríkjunum.

Hann er það sem kalla má týpískur

íslendingur. Sem dæmi má nefna, að

eitt af því sem kom honum hér á óvart,

og fór einna mest í taugarnar á

honum, var hvursu löghlýðnir

Bandaríkjamenn yfirleitt eru. ,,Ég á

heima við einstefnu götu, annað hús

frá gatnamótum", sagði hann. ,,Ef ég

fer eftir lögum og reglum, þá þarf ég

að keyra langleiðina heim. Til að

komast heim í hvelli þarf ég bara að

keyra um það bil tvo metra í öfuga

átt og auðvitað geri ég það.

Ameríkanarnir eru alveg ferlega

hneykslaðir og hissa á mér".

Ég var alveg sammála honum og

sagði að mér þætti, eins og öðrum

góðum íslendingum, það beinlínis

skylda manns, að finna stystu leið á

milli tveggja punkta, þó sú leið liggi um

blómabeð og garða nágrannans.

Nokkru seinna hitti ég ung systkini

í Toronto. Þau eru bæði fædd á Islandi

en hafa búið lengst af í Kanada. Við

töluðum um íslendinga og Vestur-

íslendinga og gerðum góðlátlegt grín

að báðum. Eitt sögðu þau, sem mér

þótti sérstaklega vænt um. Þau töluðu

um Þorrablótið sem þau höfðu nýlega

sótt hjá íslendingafélaginu í Toronto.

„Mér finnst svo frábært að þetta fólk

skuli koma saman og það eina sem

bindur það er íslenska blóðið", sagði

hún. „Já, ég meina það — ég skil ekki

fslendingana að heiman sem sjá ekki

hvað þetta er merkilegt og tauta alltaf:

Þetta er ekki eins og heima", sagði

hann. Rétt í því var okkur bent á ,af

borðfélögum okkar sem aðeins kunnu

ensku, að við hefðum talað íslensku í

samfellt klukkutíma, og að þeim væri

eiginlega farið að leiðast, og hvort við

vildum ekki trúa þeim fyrir hvað væri

svona brjálæðislega fyndið.

Jú, við urðum að viðurkenna fyrir

sjálfum okkur, að okkur kippir í kynið.

Kannski hefur lengd dvalarinnar í

Kanada orðið til þess að nú sitjum við,

eins og Humpty Dumpty, klofvega á

ósýnilegum vegg og vitum ekki í hvora

áttina við eigum að detta.


Eftir Guðrúnu H. Finnsdóttur

Framhald

í því hrökk ég upp við ógnarlegan

þrumugný, eins og himinn og jörð væru

að hrynja saman, og brast og brakaði í

hverju bandi í kirkjunni. Eg spratt á

fætur, tæplega búin að átta mi^ á, hvort

ég væri vakandi eða sofandi. I því kom

gamli maðurinn, horfði á mig og spurði,

hvort mér væri ilt. „Nei," svaraði ég,

„en ég er hrædd um, að það sé æði

loftþungt hér inni, ég sofnaði snöggvast

og dreymdi svo undarlega." — Hann

leit einkennilega á mig, um leið og

hann sagði: „Ertu nú alveg viss um, að

þig hafi dreymt? Það hefir ýmislegt

skrítið komið hér fyrir áður, eftir því

sem sögurnar segja." Forvitni mín var

nú vakin, svo að ég inti hann eftir,

hvort það orð lægi á kirkjunni, að þar

væri reimt.

Hann hagræddi á sér gleraugunum,

um leið og hann sagði:,, Hm — reimt —

ekki hannske beinlínis reimt, en sá

orðrómur hefir lengi legið á, að hér

væri ekki alt með feldu — en það stafar

líklega eingöngu af gömlum

munnmælasögum, er gengu um það,

fyrir hvaða orsök kirkjan lagðist niður."

Ég lagði nú að karlinum, að segja

mér frá öllu, er hann vissi sógulegt við

þetta gamla hús. — Hann brosti að

forvitni minni, strauk skeggið nokkrum

sinnum og horfði út í bláinn, eins og

hann væri að hugsa sig um, þar til hann

byrjaði:

„Það er með þessa kirkju, eins og öll

ónnur gömul hús, þau eiga sína sögu;

því eldri sem þau eru, þeim mun

breytilegri — alveg eins og fólkið. Mér

hefír oft komið til hugar, hvort nokkuð

mundi nú eima hér eftir af öllum þeim

messusöng, bænum og sálmum, er hér

hefírveriðflutt, hvortþaðfólk, erhingað

kom, sumt með einlægu h jarta og þar af

leiðandi af þörf, aðrir fyrir vana og

hræsni, eins og gengur, eins og við

Kæri ritstjóri,

Viljið þið vera svo góð að setja nófnin

okkar í blaðið ykkar.

Við erum tvö systkini, sem söfnum

spilum. Inga Dóra safnar líka merkjum

sem hægt er að festa í föt (barmmerki)

við getum látið íslensk frímerki og spil

í staðinn. Það væri gaman að heyra frá

einhverjum.

Þakka ykkur svo fyrir,

Kveðja

Þorgils Ragnarsson, 15 ára

Hammersminni 16.

765 Djúpivogur

ísland

Inga Dóra Ragnarsdóttir, 10 ára

Hammersminni 16.

765 Djúpivogur

ísland

Kæri ritstjóri,

Viljið þið vera svo góð að birta

nöfnin okkar í blaðinu ykkar. Við

söfnumspilum (playing cards) oglangar

að skipta við fólk í Kanada.

Bestu kveðjur

Klara Harðardóttir

Dalbraut 54

465 Bíldudal

ísland

Margrét Einarsdóttir

Dalbraut 26

465 Bíldudal

ísland

Kæri ritstjóri,

Ég er 10 ára stelpa á íslandi, og ég

safna spilum. Ef einhver vildi senda

mér spil, eða skipta við mig á spilum er

heimilisfangið mitt.

Hugrún Jónsdóttir

Steinum 5

765 Djúpavogi

ísland

gerum enn þann dag í dag, — já, þetta

fólk, er hingað kom daglega, til að

skrifta, biðja og úthella sálu sinni og ná

í frið og fyrirgefningu með ýmsum

meðulum, eins og t. d. milligöngu

prestanna og því fé, er það fórnaði á

altari drottins, — hafi ekki skilið eftir

einhvern blæ, anda eða loftslag, er fylgi

kirkjunni. Mér hefir stundum fundist

svo vera.

Fyrir löngu síðan var þetta stærsta

og ríkasta kirkjan í bænum, er þá stóð

með meiri blóma og lífi en nú. Síðan

járnbrautir voru lagðar frá hafi til hafs,

og siglingar dreifðust til annarra hafna,

hefir bærinn legið í svefni og orðið

mosavaxinn, eins og Rip van Winkle.

í þá tíð var haldið héðan út stórum

skipastól, bæði fyrir verslun og

fiskiveiðar. Einn ríkasti og stærsti

skipeigandinn var forfaðir húsmóður

þinnar. Hann kvað nú hafa verið karl í

krapinu, sjóhetja mesta og mikill fyrir

sér og lítt við alþýðu skap, harður og

óvæginn, en hreinskiptinn og mjög

kaþólskur. Hann var lengst æfínnar í

förum sjálfur, og lá orð á því, að skipum

hans hlektist aldrei á. Eitt haust, er

hann kom heim, varð uppi fótur og fit

í bænum, því að hann kom kvæntur

ungri og fríðri konu. Það fylgdi sögunni,

að hann hefði fundið hana og orðið

ástfanginn af henni á einhverri eyðieyju

norður í höfum, er öll væri þakin snjó

og klaka, þar sem sól settist aldrei á

sumrum og sæist aldrei á vetrum. Nú

veit ég, síðan ég hefi talað við þig, að

hún hefir verið íslensk. Ýmsar sögur

gengu af því, hve ríkilát og fögur þessi

útlenda kona væri, í hvað miklum

glaumi og glaðværð þau lifðu, og hve

lítt trúuð hún væri á kaþólska vísu. Er

jafnvel mælt, að prestamir hafi vandað

um það við mann hennar, að hún fengist

aldrei til að skrifta, og er þá sagt, að

hann hafi þaggað niður í þeim með

ríkmannlegum gjöfum til kirkjunnar.

Framhald í næsta blaöi

GENGISSKRÁNING			

Nr. 94 22. mai 1991			

	Kr.	Kr.	Toll-

Ein. Kl. 09.15	Kaup	Sala	Gengi

Dollan	60.25000	60,41000	61.66000

Sterlp.	104,50400	104,78100	103,52700

Kan. dollari	52,45700	52,59700	53,50300

Dönsk kr.	9.18660	9,21900	9,14160

Norskkr.	9,02620	9.05020	8,97790

Sænskkr.	9,79440	9,82040	9,82940

Fi. mark	14,97080	15.01060	15,02620

Fr. franki	10,35310	10,38060	10.33910

Belg. Iranki	1,70800	1,71250	1,69720  .

Sv. franki	41,50880	41,61900	41,50790

Holl. gyllmi	31.18130	31,26410	30,97010

Þýskt mark.	35,12610	35.21940	34.87060

it. líra	0.04733	0,04745	0.04724

Austurr. sch.	4,99590	5.00910	4,95400

Port. escudo	0,40270	0,40380	0.40520

Sp. peseti	0.56690	0,56840	0,56650

Jap. yen	0,43842	0.43959	0.44592

írskt pund	94,03500	94,28500	93.33800

SDR (Sérst.)	81,08510	81,30040	80,92390

ECU, evr.m.	72,22170	72,41350	71,97260

Tollgengi fyrir	maí er sölugengi 29. apríl		Sjálfvirkur

símsvari gengisskráningar er		62 32 70.	

ICELfiNDIC EXERCISE

e.£ú/r- ýtefa (T. Æ^/'W

:e

VtONvl^U.

<<w/.l\iev<i, <*\&6A m&t?

@

SK072A WR \

V//NíM0W4 Á V/TOötí

MÍN

1) Would you give me a ride sometimes if you had a cool car like that,

Sigga Vigga? — I would drive you to work every morning, Blíða.

'7y

©

2) You are so kind-hearted, Sigga.

3) I know!

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8