Fréttir

Tölublað

Fréttir - 15.05.1918, Blaðsíða 4

Fréttir - 15.05.1918, Blaðsíða 4
4 F R E T T I R lj. ðe Vere Stacpooie, • , höfundur sögunnar um hlenzku símamennina, sem prentuð verður hér í blaðinu, er einn meðal hinna helztu og nafnkendustu skálda á Englandi. — Mr. Stacpoole hefur sjálfur dvalist um tíma hér á landi og þvi nokkuð kunnugur íslend- ingum og kennir þess í frásögn hans. Hann hafðist við á Hótel Reykjavík um skeið sumarið 1912 og ritaði hann mjög skemtileg bréf í ensk blöð um dvöl sína hér. Voru þau flest birt í »Vísi« í íslenzkri þýðing. í bréfum þessum gat hann um fjölfróðan öldung íslenzkan, sem hann hitti oft að máli i Reykjavík, og var gamii maðurinn oft að tala uin »styrj- ölclinaa milli Breta og Þjóðverja, — hvenær hún mundi hefjast og hversu henni inundi reiða aí. Vildi Mr. Stacpoole heldur henda gaman að þessu, og hefur landi vor verið honum framsýnni. En þungan kvartar hann um þennan aragrúa af Pjóðverjum, sem heimurinn sé að verða fullur af og hvergi sé friður fyrir — jafnvel ekki hér á hala veraldar. Hann kom hingað einmitt í sama mund, sem mann- flutningaskip »Hamburg-Amerika- línunnar« komu hér við og farþegar dvöldust hundruðum saman í laudi. Var þá heldur en ekki kvikt í bænum og víða glatt á hjalla og því ekki að kynja, þótt bre/.ka skáldinu þætti minni »einveran« á »eyðiskeri« þessu, en hann hafði búist við. Nú er öldin önnur. A'. Prenlsmiðjan Gutenberg. Afmæliskort, fjölbreytt úrval á Laugavegi 43B. Friðfinnur L, Guðjónsson. Au^lý5iriÉum| í Fréttir er veitt móttaka í! Litlu búðinni í Pingholtsstræti þegar af- greiðslu blaðsins er lokað. Grasfræ fæst lijá Suðný Ottesen. Riklingur. Ágætur riklingur til sölu. Aígreiðslan vísar á. fastir áskrifenður. Vegna fjölmargra áskorana verður nú þegar tekið á móti föstum áskrifendum að Fréttum. Menn gefi sig . fram í Söluturninum. Gölf dú kar vel vandaðir og- mjög’ ódýrir eru nýkomnir í verzlun Jónatans hrsteinssonar Nýjar vörur: Cheviot. Morgunkjólatau. Léreft, margar teg. Dúnhelt léreft. Fiðurhelt léreft. Nankin. Tvisttau. Alpacka. Flauel. Flónell. Kadettatau, hv. og misi. Sængurdúkur, Verkfataefni, margar teg. Handklæðadregill. Verkmannabuxur. Nærfatnaður. Milliskyrtur. Manchettskyrtur. Fiibbar, stííir og, linir. Gummiflibbar. Hálsbindi. Manchetthnappar. Flibbahnappar. Lífstykki. Höfuðsjöl. Bróderingar. Sflkiborðar. Sokkar úr silki, ull og baðmull, fyrir karlmenn, kvenfólk og börn. Bendlar. Saumnálar. Hárnálar. Hárspennur. — Hárnet. Skæri. Buxnatölur. Buxnaspennur. — Vestishringjur. Krókapör, svört og hvít. Léreftstölur. Skelplötutölur. Smellur. Tvinni. Skógarn. Tej'gjuböud. Barnahúfur, hvítar. Plusskantur. Handklæði. Regnkápur og Regnfrakkar. Enskar húfur. Og fleira og fleira. Marteinn Éiriarssori & Go., Laugavegi 44. Guy Boothby: Faros egypzki. 08 69 70 ekki liafi verið gengið um göludyrnar hjá sér eftir klukkan tíu í gærkvöldi. En svo sagði hún mér, að Ijós hefði logað í vinnu- stofu yðar alla nóttina og nú get eg séð með eigin augum, að þér hafið alls ekki farið í rúmið. Þess vegna vil eg nú spyrja yður, hvort þér hafið orðið var við þennan mann, eða hvort þér getið gefið mér nokkrar bend- ingar, sem geti komið okkur að liði að leita hans ?« Um leið og hann sagði þetta, var sem mér birti fyrir augum og éins og eg sæi alt, sem fram hafði farið um nóttina. Mér varð ósjálf- rátt að líta út í hornið þar sem múmían liafði verið. Mér til ótta og undrunar sá eg, að hún var þar ekki. Hvað var orðið af henni? Gat það átt sér stað, að Faros hefði stolið henni og haft liana á liurt með sér eftir að hann haíði gert mig meðvitundar- lausan? Þetta virtist vera ómögulegt, en þarna var sjón sögu ríkari, því að múmían var öll á burtu. Var Faros nokkuð bendlaður við þetta morð ? Fað var áreiðanlega milli klukk- an tólf og eitt, sem hann kom inn til mín. Og samt hafði eg enga verulega átyllu fyrir þessari hræðilegu grunsemd. En eg þóttist nú sjá, að þessi þögn min geðjaðist lögreglu- þjóninum ekki sem be/t. nFyrjrgefið þér«, sagði lögregluþjónninn með nokkuð meiri þótta en áður, »en eg verð að benda <yður á, að tíminn er mér dýrmætur. Má eg spyrja hvort þér getið leið- beint mér nokkuð eða hvort þér getið það ekki?« Eg vitna það til guðs, að eg hefði undir eins sagt honum alt eins og var og alt sem mér var kunnugt um, hetði mér verið sjálf- rált. En það var nú ekki því að heilsa. Eg var liáður einhverju óviðráðanlegu afli, sem neyddi mig þvert á móti vilja mínum lil þess að lijálpa Faros og bera fram hina fyrstu vísvitandi lýgi, sem mér hefur nokkurntíma um munn farið. Sjálfum fanst mér svar mitt bæði hikandi og grunsamlegt, en það var á þá leið, að livorki hefði eg séð þennan mann né orðið hans var á nokkurn hátt. Þegar lögregluþjónninn hafði fengíð þetta svar, bað mig á ný að afsaka, að hann hefði gert mér þetta ónæði og gekk burtu, en eg varð einn eftir með hugsanir mínar. Eg skamm- aðist mín ofan fyrir allar hellur fyrir sjálfum mér, hné niður á stól og huidi andlit mitt höndum, rétt einsog eg gæti á þann hátt umfíúið hugsanir þær, sem ásóttu mig. Eg spurði sjálfan mig hvort eg væri í raun og sann- leika svona langt leiddur, að eg hefði farið að gera sjálfan mig að lygara, eg sem ávalt hafði álitið alla lýgi fyrirlitlega og hreinustu óhæfu. Guð minn góður! Eg held þetta hafi verið einhver versta stundin á ævi minni og hafa þær þó verið æði beizkar margar hverjar. Þetta svívirðilega morð stóð mér alt at fyrir hugskotssjónum. Eg kannaðist vel við sölubúðina þar sem það hafði verið framið og sá í huga mér allan atburðinn jafn- greinilega og eg hefði sjálfur verið þar við- staddur. Eg sá sölubúðina troðfulla af ýms- um fágætum munum og gasljóstýruna, sem speglaðist í postulínsvörunum og bronzmynd- unum. Sjálfur sat fornmenjasalinn við púlt í einu horninu og írammi. fyrir honum stóð Jaunmorðinginn Faros og ræddi við hann Eg gat hugsað mér, að búðareigandinn hefði alls ekki búist við neinni árás og þó að hann hefði haft einhvern grun, þá var það mjög efasamt, hvort hann hefði trúað þessum vesala krypplingi til slíkrar mannvonzku og ætlað hann jafn aflmikinn og hann reyndist. Fá fór þetta leiflur, sem mest áhrifin hafði haft á mig, að sjást í auguni hans. Hann seildist hægt og hægt aftur fyrir sig ineð hægri hendinni, þangað til hann náði í hnífinn, sem lá á borðinu sem hann stóð við. Svo rauk hann á fornmenjasalann eins og köttur og hafði eg fulla ástæðu tit að J

x

Fréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.