Fréttir

Tölublað

Fréttir - 16.05.1918, Blaðsíða 4

Fréttir - 16.05.1918, Blaðsíða 4
4 FRETTIR Leikhúsið. Leikfélagið hefur nú tvisvar sinn- um sýnt gamanleik eftir Björn- stjerne Björnsson, er nefnist »Landa- fræði og ást«. Gamanið er græsku- laust, heldur gáskakent og hrúgað saman skringilegum atvikum. Eg hef séð annan gamanleik eftir sama höfund leikinn í Osló. »Nár den ny vin blomstrer«, heitir hann. í*ar eru öll sömu einkennin, en heldur minna Qör. Enda var hann síðasta rit skáldsins. En gaman þótti mér að sjá, að íslenzku leik- endurnir höfðu lagt sama skilning í gaman þessa norska skálds, sem Austmenn gera. Var leikurinn allur sama eðlis og svo líkur hinum sem innihaldið leyfði. Þó hefur enginn þeirra séð meðferð Aust- manna á hinum leiknum. Annars lék alt fólkið prýðilega, en þó bar frá um Ane vinnu- konuna. Aldrei hef eg verið svo í leik- húsi tvö kvöld í röð, að meiri munur hafi verið áhorfanda. — Fyrsta kvöldið náðu leikendur þegar í upphafi tökum á þeim og sátu menn síðan og grétu af hlátri og það svo, að vart heyrði til leik- anda með köflum. En síðara kvöldið var svo mikill andlegur þræsingur í húsinu og þyrkingur, að leikend- ur áttu mikið erfiði, að ná inn úr skelinni. Leikendur höfðu þingmenn í boði sínu síðara kvöldið, og mun því mega búast við, að þeir sjái nú um, að eigi falli niður leiklistin hér, er þeim var boðið svo gott. Bjarni Jónsson frá Vogi. T i 1 s ö 1 u kjöttunnur og- síldartunnur. Friðrik Magnússon & Co. Sími 144. Nokkrir sjómenn geta fengið góða atvinnu hjá mér í sumar á Vattarnesi. Jón Sveinsson. Til viðtals í Hótel ísland, nr. 19 lcl. 6—S. Skrifstofa A. V. Tulinius er flutt á Bókhlöðustíg* 8. Fréttir eru viSlesusta blaðiS i bæaem. €kkert ðagblað bæjartns selst ja/n vel. Áreiðanlega bezt að anglýsa í fréttum. Cymbelina hin fagra. Pe ssi óviðjafnanlega ágætissag^a fæst nú hjá Þór. B. Þorlákssyni, bæði öll og eimiio einstök lieíti. Prentsmiðjan Gutenberg. Guy Boothby: Faros egypzki. 71 72 73 muna eftir þeirri hreyfingu hans, greip fyrir kverkar manninum og stakk hann undir herðablaðið. Kom þetta svo flatt upp á mann- inn, að hann veitti í fyrstu enga mótspyrnu, en svo kom sjálfsbjargarfýsnin honum til að hefjast handa gegn hinum djöfulllega and- stæðing sínum og varð það að eins til að færa honum heim sanninn um hve rammur að afli þessi uppgerðarvesalingur var. Smám- saman þvarr búðareigandanum þróttur og féll hann að síðustu til jarðar. Eg þóttist sjá Faros lúta ofan að honum til þess að aðgæta, hvort hann væri örendur og hlæja svo af fögnuði yfir sigri sínum. Þegar hann var genginn úr skugga um þetta, tók hann lykil úr vösum hins dauða, gekk að skáp, sem múraður var í vegginn og opnaði hann. Litlu síðar fann hann þar hring, steingreypt- an í gullumgerð, og stakk honum í vasa sinn. Að því búnu fór hann að ihuga, á hvern hátt sér yrði vænlegast undankomu. Hann heyrði skóhljóð lögregluþjóna á gangstéttinni fyrir utan og brá grönum svo að skein í gular rándýrstennurnar. Sá hann af slægð sinni fyrir hættu þá, sem honum var búin, ef hann freistaði útgöngu um aðaldyrnar. Hann skundaði því gegnum dagstofuna bak við búðina og komst út í garðinn og var kominn til mín eftir örlitla stund, en ekki gat eg um það dæmt, hvort það var af til- viljun eða að yfirlögðu ráði. Ekki hreyfði eg við morgunmatnum, sem stóð þar á borðinu, heldur stóð upp og gekk út að glugganum og horfði ofan á eyðilegt strætið. Himininn var orðinn dimmur og draugalegur svo að ekki sá til sólar, en regn- ið tekið að streyma niður. Það var eins og náttúran gréti blygðunartárum yfir synd og svívirðingu mannanna. Eg gekk þangað sem múmían hafði staðið þangað til fyrir skemstu — þessi aumi smurlingur, sem hafði verið undirrót alls þessa ófagnaðar. Mér var vel kunnugt um, að hún var allþung, eða svo þung, að eg gat ekki hugsað mér að jafn gamall maður og Faros gæti valdið henni, auk heldur haft hana burt með sér. Eg skoðaði gólfið til þess að gæta að, hvort kassinn hefði verið dreginn eftir því, en ekki gat eg séð þess nein merki og vissi ekkert, hvað gat verið orðið af múmíunni. Sömu- leiðis aðgætti eg þilið í herberginu, sem þar var til hliðar, en ekki var þar heldur neitt að sjá. Og nú datt mér eitt í hug. Eg hafði þurft að snúa lyklinum og taka slagbrand- inn frá þegar eg hleypti lögregluþjóninum inn og eg var aleinn í húsinu. Hvernig hafði þá Faros komist út með byrði sína, harðlæst hurðinni og sett slagbrandinn fyrir að innan- verðu? Eg gekk inn í vinnustofuna aftur. Það gat hugsast, að hann hefði alls ekki farið út um aðaldyrnar, heldur komjst út um gluggann ofan í garðinn. Eg grannskoð- aði gluggann, en hann var jafn vandlega lokaður og vant var að vera. Mér var ómögu- legt að ráða þessa gátu. Gat það átt sér slað að mig hefði dreymt þetta alt saman? Að eg hefði sofnað út af í hægindastólnum og dreymt svo alla þessa viðureign við Faros, sem aldrei hefði átt sér stað í raun ogveru? Æ, betur að svo hefði verið, og hve æviferill minn hefði þá orðið alt annar! En hvernig sem eg velti þessu fyrir mér, þá var sjón sögu ríkari — múmían var horfin! Þegar eg reis upp úr stólnum var eg búinn að ráða yið mig hvað gera skyldi. Eg ætlaði mér að leita Faros uppi og ekki að eins að bera á hann þjófnaðinn, heldur einnig morðið Og láta hann vita í fullri alvöru, að réttvísinni yrði að verða fullnægt og að eg ætlaði mér ekki lengur að firra hann vandræðum út af fantabrögðum hans. En nú fyrst mundi eg eftir því, að eg vissi ekkert hvar hann átti heima. Frú Medenham var auðvitað sú eina af málkunningjum mínum, sem áreiðanlega gat leiðbeint mér með þetta og það mátti næstum ganga að því vísu, að hún þekti lieimilisfang hans fyrst hún hafði boðið

x

Fréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.