Fréttir - 19.10.1918, Blaðsíða 1
w
DAGBLAÐ
171. blað.
Reykjavík, laugardaginn
19. október 1918.
2. árgangnr.
Kjósendur,
athugid vel mótstöðumenu sambandslaganna, hvert þeir* steína og hvað þeir vilja.
tJCvaó vilja þ&ir qRRí?
Þeir vilja ekki að Island verði viðurkent
fullvalda ríki.
Þeir vilja ekki að viðurkent verði að Island
se aðeins i hreinu konungssambandi við Dan-
mörku.
Þeir vilja ekki að íslensk skip hætti að vera
dönsk eign og verði islenzk eign.
Þeir vilja ekki sjá islenzkan fána.
Þeir vilja ekki vita af íslenzkum hœstarétti
og er það í samrœmi við það er Magnús Torfa-
son sagði: „Guði sé loj að hœstiréttur vor er
danskur<(.
Þeir vilja ekki að vér séum einráðir um at-
vinnulöggjöt vora og aðra löggjöf.
Þeir vilja ekki ráða mgntsláttunni.
Þeir fgrirlita hlutlegsi landsins.
Ekki vilja þeir ngta gerðadóm með sœnsk-
cXvað vilja þeir?
Þeir vilja stgðja Knud Berlin til þess, að
ver verðum framvegis í sömu niðurlœging sem
hingað til.
Þeir vilja að ver seum áfram i þeirri hœltu,
að flœkjast inn í ófriðinn jeða, ef það verður
ekki, þá inn í landabrullið eftir ófriðinn.
Þeir vilja vefja oss þjóðarskömm lítilmensk-
unuar og setjast á allar réttarkröfur vorar i ár
og i fgrra. <
Þeir vilja ginna kjósendur og regna i þvi
skgni að breiða út fáránlegustu Iggar.
Til dœmis má nefna að Þórður læknir Thor-
oddsen lætur útbijta flugriti, þar sem hann reikn-
ar út að frelsi og fullveldi se' allt of dijrt fgrir
þjóðina. Reikningurinn er eflaust sd rangasti
sem jafnvel hann hefur gert. Ginið eigi gfir
þeirri flugu, kjósendur.----
um eða norskum oddamanni,