Frækorn - 15.08.1902, Blaðsíða 15

Frækorn - 15.08.1902, Blaðsíða 15
F R Æ K O R N. 103 Hins annars ágústs sumarsól, Hún signi tíma mótin. Að bæta stjórn er brýnust þörf; Sig bæti’ og hver einn sjálfur, Og gangi alt það afl í störf, Sem eyddist fyr í gjálfur; Menn hatnr sluilu stöðva og stapp Og stríð um eigittn hagnað, Og um það heldur ala kapp, Hver ættjörð mest fær gagnað. Það geymi djúpt í sálti sér Hver systir og hver bróðir, Að sami stofninn alira er Og fsland þeirra móðír. Þau láti, — þó um þetta og hitt Sé þráföld sundurgreining, - í þvt að elska þjóðland sitt Ei þekkjast nema eining. Hinn intiri krytur — oft það sást Er eiturskaði bráður, En þar sem samhent ættlands ást í ölltt er rauðttr þráður, Þar verðitr höndin veika sterk, Þar vinnast heiliir fríðar; Þar burir feðra blessa verk í blómgun eftirtíðar. Að áhríns verði orðum það, Að andinn sá hér ríki, F.11 hinn, setn niðttr heillir trað, í heljar falli díki. I eining stundum ættlands gagn, Svo alt til gæfu vendist, Og hvetjum til þess móð og magn Á tneðan lífið endist. POLITIK. Hið nýa stjórnarskrárfrumvarp stjórnarinnar verðttr vafalatist samþykkt afattka- þinginu, sem nú er haldið. Þegar Ceres fór 8. þ. m., var frv. samþykkt og afgreitt í neðri deiid. En ekki þykir þetta frv. neitt fagnaðar- efni í samanburði við vonir þær, sem konungs- boðskapurinn vakti í vetur er leið. Móðgandi þykir það fyrir löggjafarþing þjóðarinnar, að ráðgjafinn segir til þmgsins að engu megi það breyta i frumvarpinu. í rauninni er þetta að gera ekkert úr starfi þingsins. Eitt atriði í frv. er líka mörgum þingmönnum móti skapi. Oamla stjórnarskráin gerir ráð fyrir, að ísland fái st'na eigin stjórn, út af fyrir sig, í sérmál- um sínum. Samkvæmt þessu hefur heimastjórn- arflokkurinn haldið því fram, að þessi sérmál ættu ekki að berazt upp i ríkisráði Dana, held- ur ætti þau að afgreiðast af konungi og ísl. ráðgj. En nýa frv. tekur alveg þvert fyrir þessa báráttu og ákveðttr að öll mál, sérmál engu síður en satneiginleg mál, eiga að berazt upp í ríkisráðinu., Með því að and-Valtýingar nú greiða atkvæði með þessu frumvarpi, afneita þeir í rauninni stöðu sinni áður; en neiti þeir að gera þetta, svíkja flestallir loforð sín til kjósenda sinna í vor, um að ganga að hinu nýja frumvarpi stjórnarinnar. Því er hér úr vanda að ráða, og hætt við því, að á komandi ári (d: til kosninganna að vori) verði von á harðri rimmu enn í þessu máli. FRÍKIRKJAN í Reykjavík. Verið er að reisa mjög laglega kirkju, austanvert við Tjörnina. Áhugi á því að sækja guðsþjónustur safnaðarins, sem séra Lárus Halldórsson allt frá stofnun safnaðarins hefur haldið uppi í Ooodtemplarahúsinu í Rvík, er aumlega lítill. Húsið rúmar 300 -400 manns, en tilheyrendur mjög oft milli.20 30 manns. Sá söfnuður virðist þttrfa fremur einhvers annars en stór- kirkjtt, til þess að láta standa tóma. TVEIR KAÞÓLSKIR SPÍTALAR eru nú í smíðum í Reykjavik, „systraspítalinn" ‘fog „sjómannaspítalinn". Stendur hinn fyr nefndi á Landakotstúninu, en hinn í Skuggahverft. Seinastur verðttr þá landsspítalinn úr þesstt, og óvíst, að hann skapist fyrstu árin, fyrst svona er komið. FJALLKONUNAhefursr.Ó.ÓIafsson keypt af ekkjtt Valdemars lieit. Ásmundssonar og ætlar að gefa hana út frá næsta nýári. Þar fær votr- andi kristindómurinn eintt blaði meira, en afneit- ttn og vantrú einu minna en áður. Vér ósktttn „Fjallkonunni" góðs gengis í höndttm hins nýja „húsbónda". Hann ætti að geta gert hana að verttlega góðtt blaði, gamall, góðttr og reyndur rithöfundur, sent hann cr. JSskulýðskó/i á Seyðisfirði. Hr Helgi Valtýsson heldur æskulýðs- skóla á Fjarðaröldu í vetur. Skóiinn byrjar 1. nóvember og varir minnst 6 mánuði. Nemendur mega eigi vera yngri en á fermingaraldri. Námsgreinar verða hinar sömu og á hærri æskulýðsskólum eða gagnfræðaskólum. Sérstaklega verður lögð mikil áherzla á íslenzku, réttritun, setningafræði og jafnvel lestur; reikningur og flatamálsfræði verður kennt eins fylli- Iega og unnt er; af landafræði verður lögð mest stund á landafræði íslands og því næst norðurálfu; helztu atriði nátt- úrufræðinnar með það mál fyrir augum að kenna nemendum að skilja það, sem daglega ber fyrir augu vor, áhrif Jtess og verkanir. Af sögu verður mest stund lögð á Islandssögu og því næst þann kafla úr norðurlandasögum, er grípar inní ættjarðarsöguna; en almenn veraldar- saga verður mestmegnis kennd með fyrir- lestrum og þannig reynt til þess að gefa

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.