Frækorn


Frækorn - 27.09.1906, Blaðsíða 13

Frækorn - 27.09.1906, Blaðsíða 13
FRÆKORN 309 farið er stjórninni í Vashington að lítast illa á blikuna Leiðangursvið- búnaði er sagt að fullu lokið. Áð- stoðarforingi herstjórnarráðsins fyrir landher Bandamanna kvaddur heim í skyndi frá Lundúnum. Enn segja allra nýjustu fréttir, að þeir Taft og Bacon séu orðnir nærri úrkulavonar um að geta jafnað málum á Kuba án íhlutunar Roosevelts forseta, en hann hefir lagt fyrir þá Taft að gera sitt ítrasta heldur en að því reki. Ekki er borið á móti því, að íhlutun Banda- ríkja hljóti að fylgja drottinvald yfir Kuba. I. C. Poestion um ísland. I. C. Poestion ríkisráð segir í við- tali við danskan blaðamann, er hitti hann að máli í Danmörku á heimleið héðan: >>.... ísland er að mörgu leyti fyrirmyndarland; þar er enginn stórmunur á kjörum manna, engin sérleg fátækt til, og ekki heldur nein auðsöfn í einstakra manna höndum. Öreigalýðurinn, sem er plága margra hinna stóru landa, er þar ekki til. Og þar eru engir þjófar; ráðvendnin er þjóðareinkenni. — Pótt skólaskipun- inni sé mjög áfátt, er þjóðin vel að sér. Og svo er það líka skáld- gefin þjóð. Bændurnir uppi í sveií- unum lesa gömlu sögurnar og skrifa greinar í blöðin, góðar greinar. Peir standa að mörgu leyti framar þýzkum og austurrískum bændum. Eg hafði mikla ánægju af að kynnast þeim.« Slysfarir. Hraðlestin skozka frá Lundúnum að kvöldi þess 24. þ. m. steyptist út af brautarhleðslu hjá Grantham (í miðju landi, Englandi). Par fengu 13 manns bana og 16 stórmeiddust. Enginn yeit hvað valdið hefir. Sumir segja að lestarstjóri hafi orðið brjálaður skyndilega. Landsbókasafnið nýja. Byrjað er á því fyrir nokkru, á Arnar- hólstúni miðju, norðan við Hverfis- götu, veggir komnir langt upp úr jörðu, úr steinsteypu. Pó var kallað að lagður væri undir það hyrningar- steinn sunnudaginn var. En það var raunar undirstaða undir riðið við höf- uðdyr hússins. Pað gerði ráðgjafinn, að dæmi þjóðhöfðingja erlendi (keis- ara og konunga), sletti kaiki milli steina o. s. frv. utan um blýstokk, er geymir fáorða skýrslu um hvenær húsið hafi reist verið, og af hverjum, ásamt sýnishorni af þá gildandi pen- ingum — hér voru látnir í stokkinn allir íslenzkir seðlar, sem nú eru í gildi. Ræðu flutti ráðgjafinn, aðallega sögu landsbókasafnsins, og kvæði var sungið, eftir Porstein Erlingsson. Bókaverzlun Guöm. Gamalíelssonaró Innan skamms koma þessar bækur út og fást hjá bóksölum um land alt áður en langt um líður. Arne Garborg: Huliðsheimar (Haugtussa), B. J. frá Vogi þýddi. Vin- sælasta bók í Noregi. Ágúst Bjarnason: Nitjánda öldin. Nauðsynleg bók fyrir livern fróð- Ipiksgjarnan mann. Pétur Zophoníasson: Kenslubók í skák. Hver og einn á að geta lært tilsagnarlaust að tefla af bókinni. Jónas Helgason: Kirkjusöngsbók, aukin og endurbætt af Sigfúsi Einars- syni tónskáld.

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.