Höfuðstaðurinn

Tölublað

Höfuðstaðurinn - 11.01.1917, Blaðsíða 4

Höfuðstaðurinn - 11.01.1917, Blaðsíða 4
HÖFUÐSTAÐURINN T»ux^ám-m6loir \xvxv. Enn geta menn fengið nokkra mótora í maí- mánaðarlok ef paníanir eru gerðar fyrir miðjan þennan mánuð. Það er óþarfi í augiýsingum að felja upp kosti TUXHAM-mótoranna fram yfir aðrar mótortegundir - þeir etu kurnir af reynslu. Að eins skal það tekið fram hér að þótt TUXHAM-móíorinn kosti lítið eitt meira en einhver önnur móíor- tegund, þá sparar hann yður þann kostnað margfafdlega á einu ári nuð mínni olfueyðsiu. Talið við umboðsmann verksmiðjunnar í dag fremur en á morgun. 15 á óvart að hitta hana og heilsa henni með fullkominni stilling og segja henni, hvað sér þækti undarlegt að finna hana hér. En er hún tæki að spyrja ætlaði hann að segja sögu þá, sem hann hafði sett saman. Hún mundi þá hafa sýnt einhverja hluttekning, hálfókunn- uglega, eða hálfhranalega, úr því svo var skift um stöðu hennar gagnvart honum, en það hefði verið ljúft að heyra aftur málróm hennar. En hann sá einungis augnaráð hennar, titringinn sem fór um hana og fölv- ann í rauðleitri eldsglætunni. þá var sem gripið væri heljartökum um hjarta hans og hann gat engu hljóði upp komið. Allra sízt gat hann fengið af sér að láta fyrsta orðið til hennar vera lýgi. Hann hafði gleymt að taka tillit til þess í ráðagerðum sínum. „Eg hefi komið með mann með mér úr skóginum sem þú sér“, sagði Níels. Ingigerður leit eigi tii hans að heldur. Hún leit á blaktandi skuggann fyrir aftan hann og ofan hann og skalf af tilhugsuninni að heyra málróm hans. Nú var langt síðan rödd hans var horfín úr draumum hennar. En nú vissi hún að fortíðarinnar bergmál mundi svara þeirri rödd sem fyrrum í draumum hennar. „Eg sé það“, svaraði hún og hafði eigi fleirri orð um. „Eg ætla að láta hann vera hér“, mælti húsbónd- inn ennfremur, af því að mig vantar mann og hann leitað sér atvinnu. þú verður að sjá um að hann fál sitt, Af því að þetta var svo einfalt mál gætti hann 16 þess ekki einu sinni, hvernig henni yrði við. þetta mál átti heima á yfirráðasvæði hans og fáorð skýrsla þótti honum nóg. En ef hann hefði tekið eftir henni, þá hefði hann undrast. Ingigerður varð hálfu fölari en áður og brá hend- inni í áttina aö hjartastað sem eitthvað hefði stungið hana þar inni. En hún lét höndina aldrei ná barmin- um, heldur þröngdi henni til að hverfa frá. En erfitt varð henni það og fór það fram í smákippum. Hún náði og valdi á röddinni, er hún svaraði og varð þó heldur stutt í spuna: „Einmitt! það skal verða gert“. Níels var þreyttur og grunlaus og varð því einskis var. Fólkið hugsaði: Henni fellur ekki að þetta réðst svo skjótt. Má og vera að henni mislíki að hann réð þessu einn. Hún er ekki viljalaus! En því þótti mál- ið ekki skifta miklu. Gabriel stóð einn sér og horfði og horfði, er hún sneri sér aftur að eldinum og hann logaði upp, er hún fleygði brenni á hann til þess að fá titrandi • höndum sínum eitthvert starf. En enginn tók eftir honum. Hvað veldur, er hún fölnar svo? hugsaði hann. Mun reiði valda því? Misljkar henni að eg, fyrver- andi húsbóndi hennar, minni hana á þá tíma. því hefði eg átt að gera ráð fyrir. En ekki er það góðmannlegt af henni, þegar .hún sér mig fátækan. Að heilsa mér ekki einu sinni! En hvað sem um það er, skil eg

x

Höfuðstaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Höfuðstaðurinn
https://timarit.is/publication/188

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.