Alþýðublaðið - 16.07.1963, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 16.07.1963, Blaðsíða 3
PRETORIA 15. júll (NTB-Reut- er)í Ilendrik Verwoerd, forsætis ráðherra Suður-Afríku tilkynnti í dag að Suður-Afríka mundi segja sig úr efnahagsmálanefnd Sþ fyrir Afríku. Ástæðan er sögð fjand- sairjk g afstaða, sem Afí-íkuríki sýni. Dr. Verwoerd hélt því fram, að Suður-Afríka hefði lítinn hag af aðild að nefndinni. Suður-Afr- íka hefði aðallega gengið í nefnd ina til þess að veita Afríkuríkjum tæknilega og efnahagslega aðstoð. Þar sep þessi ríki sýna nú fjandsamlega afstöðu þrátt íyrir óeigingjarna ósk Suður-Afríku um að hjálpa, hefur stjórnin ákveðið að taka ekki þátt í frekari starfi nefndarinnar fyrr en Afríkuríkin breyta afstöðu sinni segir í til- kynningu forsætisráðherrans. Forsætisráðherrann lýsti því yfir að hvað snertir önnur sérsamtök eða stafnanif Sþ og Sþ sjálfar mundi stjórn Suður-Afríku taka afstöðu í hverju einstöku tilfelli eftir að hafa íhugað ástandið vand lega. ARTELLI ÝKNADUR Giuseppe Martelli, kjarneðlisfræð ingurinn ítalski sem er fertugur að aldri, var I dag sýknaður í öllum ákæruatriðum. Martelli var ákærður fyrir að hafa njósnaútbúnað undir hönd- um og gengizt undir þjálfun í því skyni að stunda njósnir í þágu Rússa. Kviðdómurinn sat saman í níu og hálfa klukkustunr áður en hann kvað upp úrskurðinn. Áður en J Páll konungur heimsækir Aþos GRÍSKU konungshjónin hvíla sig á eynni Korfu eftir hina stormasömu heimsókn til Bretlands í síðustu viku. Skömmu áður en þau fóru til Bretlands var Páll kon- ungur viðstaddur hátíðahöld á Aþos-fjalli í sambandi við þúsund ára afmæli munka- reglunuar þar. Myndin er þaðan og er Konstantín krónprins í fylgd með kon- ungnum. Friðrika drottning var ekki með, enda er kvenfólki meinað aö koma þangað. Engin kvenvera má lifa þar, jafnvel burðardýr eru karl- kyns. Heimsókn konungshjón- anna til Bretlands hefur ekki vakið deilur svo teljandi sé á Grikklandi, að sögn frétta- ritara. Karamanlis forsæt- isráðherra sagði af sér vegna þess, að hann væri henni andvígur. Grikkir velta því fyrir sér, hvort það hafi ver- ið rétt. Martelli var handtekinn 26. apríl starfaði hann á rannsóknarstofum kjarnorkuyfirvalda Breta við Chul ham, en þangað var hann fenginn frá Euratom. í réttarhöldunum í London hélt Martelli því fram að hann hefði haft samband við brezk yfirvöld um allt sem milli hans og Rússa hefði farið. Áður en kviðdómurinn kom sam an til fundar í dag til þess að kveða upp dóm sinn, sagði dóm- arinn, að ekkert benti til þess, að Martelli hefði verið félagi í komm únistaflokknum eða staðið í sam bandi við hann. Martelli hefur skýrt hegðun sína á þá lund, að sovézkir flugumenn hafi kúgað hann. Viöræðus Washington,' 15. júlí (NTB—Reuter) Fyrrverandi sendiherra Noregs í Bandaríkjunum, Wilhelm von Munthe af Morgenstierne, lézt í dag á sjúkrahúsi í Washington, 75 ára gamall. Morgenstierna lét af sendiherra- embættinu 1958. Hann hafði þá um árabil verið aldursforseti er- lendra sendimanna í höfuðborg Bandaríkjanna. London, 15. júlí. John Strachey, < fyrrverandi -her- málaráðherra í stjórn brezka Verkamannaflokksins, er látinn, 61 árs að aldri. Strachey var hermálaráðherra 1950—1951. Hann var matvæla- ráðherra 1946—50. Moskva, 15. júlí NTB - Reuter) VIÐRÆÐUR Kínverja og Rússa héldu áfram í Moskvu í dag, eftir að Rússar höfðu birt daginn áður uýja og harða árás á kínverska kommúúistaflokkinn. Kínverjar voru meðal annars sakaðir um að reyna að kljúfa ríkin i hinum kommúnistíska heimi. Þrálátur orðrómur er á kreiki um það í höfuðborg Sovétríkj- anna að hugmyndaviðræðurnar séu í þann veginn að fara út um þúfur. Fiokkarnir héldu fund, sem stóð í þrjár og hálfa klukkust. í gestahúsinu á Leninhæð. Seinna óku kínversku fulltrúarnir til sendiráðs síns sennilega til þess að ráðfærast við valdhafana í Pe- king. Haft var eftir áreiðanlegri sov- ézkri heimild, að viðræðunum væri ekki lokið. Sennilega yrði haldinn annar fundur á þriðju- dag. | Viðræðurnar hafa farið fram með mikilli leynd allan tímann. En sovézkum blöðum hefur nú verið leyft að kynna milljónum íbúa Sovétríkjanna víðtækan klofning hinna tveggja stórvelda I kommúnista. 1 ■k „Kínverjar vilja klofning” Aðalmálgagn savézka kommúnista fiokksins, „Pravda", sem birti hið „opna bréf” til kínverzku leiðtog- anna á sunnudaginn, birti í dag þriggja dálka ritstjórnargrein um deiluna. Jafnframt vék stjómarmálgagn- ið „Izvestia” nánar að nokkrum dulbúnum ásökunum í opna bréf- inu, sem fyllti fjórar síður í sunnudagsblaði „Pravda”. „Izvestia” segir, að sjónarmið Kínverja séu á mörkum beinnar áskorunar um skiptingu heims- hreyfingar kommúnista og um stofnun nýrrar alþjóðamiðstöðv- ar kommúnista. Kínverjar reyna — vitandi eða óvitandi — að koma því inn hjá Afríkumönnum og Asíumönnum, að þeir séu sérstaklega útvaldir, að þeir séu hvíta kynþættinum fremri, segir „Izvestia”. Enn fremur eru Kínverjar sak- aðir um að reyna að einangra ein- ingar hreyfingu Afríku og Asíu. ★ Hörðustu árásirnar Þessar árásir sovézku blaðanna eru taldar hinar hörðustu, sem gerðar hafa verið til þessa á Kín- verja. í árásunum á sunnudaginn var sagt, að Kínverjar væru fúsir KOSNINGAR í ZANZIBAR Zanzibar 15. júli (NTB Reuter) Flokkasamstepan, sem fer með stjórn mála um þessar mundir í Zanzibar í Austur-Afríku, Þjóð- ernissinnaflokkur Zanzibars og Zanzibar-Pemba alþýðnbandalagið, hafa samanfagt fengið meirhlut- i ann á hinu nýja þjóðþingi í kosn- ingunum nm hegina. til að fórna hundruðum milljóna mannslífa til þess að innleiða heimskommúnisma. „Pravda” birti auk þess í dag ummæli ýmissa sovézkra rithöf- unda. Þeir saka Kínverja um að skýla sig á bak við ýmsar tilvitn- anir, einkum í Lenín. En Kínverj- ar gæti þess ekki, að ástandið í al- þjóðamálum sé ekki lengur eins og það var fyrir hálfri öld. ★ „Engar viðræður”. k Haft var eftir sovézkri heimild í dag, að engar raunveru- legar samningaviðræður hefðu átt sér stað síðan Kínverjarnir komu til Moskvu fyrir 11 dögum. Haft var eftir þessari heimild, að aðil- arnir hefðu aðeins gefið út yfir- lýsingar um afstöðu sína. ★ Forsætisráðherra Ung- verjalands, Janos Kadar, sem um þessar mundir dvelst í Sovétríkj- unum, lýsti yfir stuðningi í dag við afstöðu Rússa í deilunni. ★ í Peking gerði aðalmál- gagn kínverska kommúnistaflokks ins kröftuga árás á „títóíska lið- hlaupa”. Þeir væru sakaðir um að reyna að grafa undan viðræðun- um í Moskvu og eitra samskipti Sovétríkjanna og kínverska al- þýðulýðveldisins. ★ Krústjov fari frá. ★ Áreiðanlegar heimild-i ir í Moskvu hermdu í dag, að vest- rænar fréttir þess efnis, að Kin- verjar hefðu hvatt til þess í við- ræðunum, að Krústjov forsætis- ráðherra og fylgismenn hans yrðu fjarlægðir úr sovézku forystunni, væru harla ósennilegar. Heimildarmennimir sögðu, að slík krafa mundi hafa leitt til þess, að viðræðunum hefði verið um- svifaiaust slitið. ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 16. júlí 1963 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.