Alþýðublaðið - 16.07.1963, Blaðsíða 10
SKÍÐADEILD ÍR gekkst fyrir
stórsvigi í KerlingarfjöIIum laug-
ardaginn 13. júlí. Þetta er fyrsta
skíðamótið, sem haldið er á miðju
sumri á íslandi. Þátttaka var öll-
um heimil, keppendur voru 29 frá
Reykjavíkurfélögunum Ármanui,
ÍR, KR og Víkingi. Keppnin fór
fram í Fannborgarjökli og vorn
öll skilyrði eins góð og frekast cr
hægt að kjósa, snjór mikill og
góður, veður bjart, en nokkuð kalt,
hitastig líklega við frostmark eða
aðeins fyrir neðan. Keppt var i
öllum flokkum karla og kvenna,
og fóru allir keppenduv sömu
braut. Rásmark var í liðlega 1300
metra hæð, endamark um 100
metrum neðar. í brautinni voru
21 hlið, lengd brautarinnav um
400 metrar.
Mótstjóri var Sigurjón Þórðar-
son og framkvæmdanefnd móts-
ins naut góðrar aðstoðar jicirra
Valdimars Örnólfssonar, Eíríks
Haraldssonar og Sigurðar Guð- t
mundssonar, en þremenningarnir l
hafa um þessar mundir vinsæl
skíðanámskéið í Kerlingarfjöll-
um. Þeir komu fyrir dráttarbraut
fyrir keppendur og aðra í Fnnn-
borgarjökli, sem dró keppendur
alla leið að rásmarki. Þá lánuðu
þeir húsnæði til mótssiita, verð-
launaafhendingar og lokakvöld-
vöku.
Úrslit í einstökum flokkum urðu
sem hér segir:
A-flokkur karla:
Guðni Sigfússon, ÍR 44.0
Sigurður R. Guðjónssor Á 44.5
Valdimar Örnólfsson, ÍR 45,2
Þorbergur Eysteinsson ÍR 46.8
B-flokkur karla:
Þorgeir Ólafsson, Á. 47.4
Björn Ólafsson, Vík. 48.6
Hrafnhildur náði
lágmarkstíma SSÍ
Á FIMMTUDAG synti Hrafnhiid-
ur Guðmundsdóttir ÍR 100 m.
skriðsund á 1:05.5 mín. í 33i/ú m.
Iaug og náði þar með lágmarks-
tíma SSÍ vegna Nórðurlandamóts-
ins, sem fram fer i Osló dagana
13. og 14. ágúst. — Áður hafði
Guðmundur Gíslason ÍR náð Iág-
markstímanum í 200 m. flug-
sundi, 2:28,6 mín.
Kristján Jónsson ÍR 49.5
Einar Gunnlaugsson, KR 50.2
C-flokkur karla:
Helgi Axelsson, ÍR 51.1
Þórður Sigurjónsson, ÍR 52 2
Jóakim Snæbjörnsson, ÍR 52.4
Drengjaflokkur:
Georg Guðjónsson, Á 53.6
Tómas Jónsson, ÍR 55.0
Eyþór Haraldsson ÍR 55.5
Jónas Lúðvíksson, Á 57.7
Kyennaflokkur:
Kristin Þorsteinsdóttir KR 106.2
Sigrún Sigurðardóttir ÍR 125.0
Stúlknaflokkur:
Ingibjörg Eyfells ÍR 62.0
Auður Björg Sigurjónsdóttir, 76.5
Sigurvegarar í öllum flokkum
hlutu verðlaunabikara t.ii ''ignar.
Sigurjón Þórðarson, mótsstjóri,
sleit mótinu með ræðu, þakkaði
keppendum þátttökuna og forráða
mönnum námskeiðanna ómetan-
Iega aðstoð. Hann lét í ijós ósk
um, að slík mót yrðu háð árlega
í framtíðinni.
Valdimar Örnólfsson þakkaði
skíðamönnunum komuna og sagði
að þeim félögum þætti leitt, hve
lítið þeir hefðu getað sinnt að-
komumönnum, en þeir voru önn-
um kafnir í sambandi við rám-
skeiðið. Hann kvaðst vona, að
síðar gætu þeir gert bet.ur og
lýsti ánægju sinni yfir því, að mót
þetta skyldi haldið. Að lokum bað
hann menn að hylla sigurveg.ir-
ann, Guðna Sigfússon, sem verið
hefði virkur skíðagarpur i sam-
fellt 20 ár, og var það gert kröft-
uglega með ferföldu húrrahrópi.
Var síðan dvalið við gleði og
söng í skálanum fram eftir kvöldi.
Hér skora Akurnesing-ar hjá KR úr vítaspyrnu.
glega me
FLESTIR knattspyrnuunnendur
bjuggust við spennandi og
skemmtilegum leik á sunnudags-
kvöldið þegar Skagamenn og KR-
ingar mættust hér í Reykjavik á
í hinum glæsilega leikvangi í Laug-
ardalnum. Ekki varð mönnum oð
von sinni, leikurinn var í alla
staði daufur, það vantaði alveg þá
spennu, sem einkennt hefur leiki
þessara aðilja á undanförnum ár-
mwwwwwwMMtiimw
Heimsmet
í 110 yds.
skriðsundi
BOBBY MC Gregor, hinn
nitján ára Englendingur setti
nýtt heimsmet í 110 yds skrið
sundi í landskeppni Breta og
Svía í Blackpool nm helg-
ina, hann synti á 54.3 sek.
Gamla metið 55.1 átti Dc-
utMmmmtuMttnmnwv
ÞAÐ er stjórn KSÍ sem hefur með höndnm niðurröðun
leikja í landsmótin í knattspyrnu og ber ábyrgð á framkvæmd
þeirra, öðrum fremur. Þessari stjórn ber og skylda til, að sjá
svo um, að Ieikirnir, hvort heldur er í I. eða II. deild, fari
fram við mannsæmandi skilyrði. En svo var t. d. alls ekki í
Hafnarfirði á sunnndaginn, og mim það ekki eins dæmi. Getl
aðilar, sem stjórn KSÍ felur framkvæmd leikja ekki „staðið
í stykkinu” og skapað viðunandi skilyrði leikmönnum og á-
horfendum, ber stjórninni fyrst og fremst að taka í taumana, og
gera viðeigandi ráðstafanir. Stjórn KSÍ er æðsta framkvæmda-
vald knattspyrnuhreyfingarinnar og sá aðilinn, sem á að kippa
því í Iag, sem ábótavant er hverju sinni — og gera það fljótt
og vel. — EB.
um. KR-ingar sigruou með 3 mörk
um gegn 1 og var sá sigur fremur
keppni en hæfni að þakka. Fyir:
hálfleikinn áttu Skagamenn mun
meira í leiknum, en framlína
þeirra var sérstaklega dauf og lít-
ilsmegandi, þegar að því kom að
reka endahnútinn á sóknarloturn-
ar. Er ékki fjarri lagi að ætla, að
hefði hin kunna kempa þeirra, —
Þórður Þórðarson, leikið með, þá
hefði öðruvísi farið í peim efnum.
Akurnesingar náðu oft allgóðum
samleik í fyrri hálfléik og voru
þeir framverðirnir Sveinn Teits-
son og Jón Leósson ötulir við að
byggja upp. Virðist Sveinn vera
nú að nálgast sína fyrri getu. Þótt
Akurnesingar ættu mestallan
fyrri hálfleikinn voru það KR-
ingar, sem skoruðu fyrsta mark-
ið. Fékk Ellert góða sendingu frá
Halldóri, þar sem hann var óvald-
aður á miðju; óð upp óhindrað og
skoraði framhjá Helga Dan, sem
kom hlaupandi út á móti honum.
Snemma í seinni hálfleik bætir
Sigþór við öðru marki fyrir KR.
Kom það fyrst og fremst fyrir mis-
tök varnar Skagamanna og átti
Jón Leósson þar mestan hlut að,
þó ekki væri Helgi alveg saklaus
heldur.
Akurnesingar .skora svo úr víta-
spyrnu, sem Skúli framkvæmdi af
öryggi. Var vítaspyrnan dæmd
vegna þess, að Garðar hrinti Skúla
á ólögmætan hátt innan vítateigs
KR. Akurnesingar herða sóknina,
þegar þeir sjá nú möguleika á að
jafna metin, en allt kemur fyrir
ekki. Lánið er ekki þeirra megin
þetta kvöldið. Síðustu 10 mínút-
ur leiksins sækja KR-ingar all
fast; eiga nokkur hröð og hættu-
leg upphlaup. Á síðustu mínútu
skora KR-ingar svo 3. mark sitt, og
enn einu sinni fyrir gróf mistök
varnar ÍA. Gaf halldór h. úther.ii
KR prýðisvel fyrir mark ÍA og
Sveinn Jónsson var ekki lengi að
afgreiða knöttinn í netið af stuttu
færi. Þetta var seinni leikur þess-
ara félaga í keppninni. Akurnes-
ingar unnu leikinn heima í vor
2:1.
Hafa því stigin skipst jafnt
milli þessara aðila þetta árið.
Það er ekki ástæða til að fjöl-
yrða um frammistöðu liðanna í
leiknum, því hún var í einu orði
léleg. Úrslitin voru ekld sann-
gjörn og hefði jafntefli verið nær
sanni eftir gangi leiksins.
Dómari var Grétar Norðfjörð og
átti hann ágætan dag.
STAÐAN
Úrslit um helgina:
★ KR - Akranes 3:1
★ Akureyyri -Fram 1:2
Staðan íl. deild:
KR 7 4 12 13:11 9
Fram 7 4 1 2 9:10 9
ÍA 8 4 13 19:15 9
ÍBA 7 2 2 3 14:15 6
Valur 5 2 12 10:8 5
ÍBK 6 1 0 5 9:15 2
Úrslit um helgina:
B-riðill:
* Hafnarfj. - Siglufj. 5:3
Þróttur 4 2 11 10:8 5
Siglufj. 5 2 12 16:18 5
Hafnarfj. 5 2 12 14:12 5
ísafj. 4 112 8:10 3
A-riðiIl:
★ Breiðabl. Vestm.eyjar
4:0
UPPHAFLEGA voru fjögur
lið í A-riðli, en tvö þeirra,
Dímon og Reynir hafa hætt
við þátttöku. Það er því að-
eins einn leikur eftir í riðl-
inum, Breiðablik-Vestmanna
eyjar og nægir UBK jain-
tefli til sigurs í riðlinum.
Sumarmót Skíðadeildar ÍR:
GUÐNI SIGFÚSSON ÍR
SIGRAÐI í A-FLOKKI
Ritstióri: ÖRN EIÐSSON
lö 16. júlí 1963 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ