Alþýðublaðið - 23.07.1963, Blaðsíða 1
MYNDIR FRÁ SKÁLHOLTI í OPNUNNI
hinir íslenzku vígslubiskupar og
síðastur biskupinn yfir íslandi,
herra Sigurbjöm Einarsson. Yar
hann skrýddur fagurri biskups-
kápu og með gullið mitur með
rauðum kolli. Gengu vígsluvottar
og biskup í kór og tóku sér sæti.
Gerði biskup bæn sina við alt-
arið, en simginn var Davíðssálmur
og andstef úr Þorlákstíðum. Söng
fólk var úr héraðinu og hefur dr.
Róbert A. Ottóson, æft það og
stjórnaði hann öllum tónflutningi.
Einnig sungu nokkrir nemendur
úr Guðfræðideild Háskólai s undir
BRAUZT INN
EFTIR FÁRRA
TÍMA FRELSS
Afbrotamenn fengu uppgjöf
saka af tifefni vígsiu Skálholts-
kirkju. .Munu 17 hafa verið náð-
aðir. Einum var sleppt út úr hegn-
ingarhúsinu við Skólavörðustíg
skömmu eftir hádegi í fyrradag,
en sá var aftur kominn inn nokkr |
um klukkustundum síðar, — tek-
inn fyrir innbrot.
í fyrstu var talið, að þarna hefði
verið að verki einhver piltanna,
sem losnuðu út af Litla-Hrauni.
Innbrotið var framið í verzlun að
Bergstaðastræti 3 og þaðan stolið
rúmlega 140 dölum og 700 kr. ís- j
lenzkum. Þjófurinn náðist nokkru
seinna, og átti hann þá eftir 70
dali og rúmar 100 kr. Það tók hann
því ekki nema nokkrar klukku-
stundir að fyrirgera frelsi sínu.
Piltarnir, sem sleppt var af
Litla-Hrauni, komu töluvert við
sögu lögreglunnar í fyrrinótt. Voru
þeir yfirleitt mikið ölvaðir, og
sváfu margir í Síðumúla í nótt.
Ekki var vitað um það í gær hvart
þeir hefðu gert alvarlegan óskunda
en flestir þeirra hittust á einu
veitingahúsi borgarinnar í fyrra-
kvöld.
Einn af þcim, sem var náðaður
var Jóhann Víglundsson, sem oftar
en einu sinni hefur komið mjög
við sögu í fréttum útvarps og
blaða.
Einn af blaðamönnum Alþýðu-
blaðsins hitti Jóhann á ónefndum
stað hér í borginni á sunnudag1
kvöldið. Jóhann féllst fúslega á a
rabba stuttlega við blaðamannim
— Ertu ekki ánægður í dag?
Framhald á 12. síðu.
Ivö umferðar-
slys urðu
austanfjalls
RÉTT fyrir miðnætti á
sunnudag valt bifreið á móts
við bæinn Hólakot í Hruna-
mannahreppi. í bílnum voru
sex manns og slösuðust fimm
þeirra eitthvað, og þar af
einn talsvert mikið, að því
er lögreglan á Selfossi tjáði
blaðinu í gær. Fólkið var
flutt á Slysavarðatofuna í
Reykjavik og það'an á Landa-
kot.
Ennfremur flutti Selfoss-
Iögreglan fernt, sem slasazi
hafði, er tveir Reykjavíkur-
bilar rákust saman skammt
frá Kirkjubæjarklauatri. V?.r
það fólk flutt á sjúkrahúsið
á Selfossi. Mun a.m.k. ein
stúlka hafa verið talsvert
míkið slösuo og þurfti að
sauma hana allmikið í and-
liti.
Dauða-
slys
Dauðaslys varð í umferð-
inni í Reykjavík í gæriag.
Fjögurra ára gömul stúlka
varð • fyrir bifreið og beið
bana.
Samkvæmt upplýsingum
rannsóknarlögreglunnar varð
þetta slys um kl. 15.10 i gær
dag, á móts við húsið nr. 18
við Mýrargötu, skammt fyrir
vestan Slippinn.
Tiídrög slyssins voru þau,
að fólksbifreið var ekið' vest-
ur Mýrargötu. Á móts við
húsið nr. 18 kom litla stúlk-
an hlaupandi út á götuna og
lenti á hægra framhorni bif-
reiðarinnar og kastaðist síð-
an í götuna. Hún var flutt á
Slysavarðstofuna og þaðan á
Landakotsspítala og þar and
aðist hún skömmu síðar.
V'ð rannsókn slyssins mun
það hafa komið' fram, að
fói'ksbifreiðinni hefur verið
ekið fremur hægt, eða á 25-
30 km. hraða.
SKÁLHOLTSKIRKJA var vígð
á sunnudag að viðstöddum 6000
manns, sem ekið höfðu á staðinn
þrátt fyrir leiðindaveður, rok og
rigningu. Er leið á morguninn
síytti upp og um það leyti, að
prestar gengu til kirkju gerði
glaðasólskin, sem hélzt allan dag
inn. Allmikið hvassviðri var þó en
hlýtt.
Tíu mínútum fyrir hálf ellefu
gekk forseti íslands í kirkjuna sem
var þéttsetin og rétt á eftir komu
prestar í prósessíu frá embættis-
bústaðnum og gengu í tvöfaldri
röð inn kirkjuna og tóku sér sæti
í norðurstúku kirkjunnar. Voru 91
íslenzkur prestur í kirkjunni af
rúmlega 100 þjónandi klerkum.
Rétt á eftir gengu vígsluvottar og
Ljuoui. Aiþ.bl.: Jóh. Vilberg