NI. 132 ^Ammam^ma^ öðrum kosti bæri mér að greiða skipseiganda sextíu Sterlingspund fyr- ir hvern dag, sem skipið tefðist fram yfír þann tíma, og er þetta lítið dæmi þess hve afarerfitt er að fá skip til flutninga. Skipið hefir nú orðið að liggja 5 daga f Burntisland áður en það fékk sig afgreitt, eða 48 klukku- stundum lengur en heimilað var, auk þess er mér óhætt að fullyrða, að 6- mögulegt verður, með þeim tækjum og- mannafla, sem hér er fyrir hendi, að afferma skipið (sem flytur ca. 500 tonn af kolum), á 36 tímum, og get því ekki búist við að- sleppa með minna en 1 2 daga (60120 Ster- lingspund) íyrir skipið við afTermingu hér á höfninni. Kaupgjald er nú orðið afarhátt hér f bænum og grendinni og síðast er eg fékk kol, með >Kronprinsesse Victoria«, um 20. f. m., kostaði upp- skipunin á kolunum tæpar 3 krónur fyrir hvert tonn, en nú býst jeg við að þetta verði nokkuð meira. Með tilliti til þess, sem á undan er sagt og sérstaklega með það fyrir augum, að eg nú þegar hefi selt til útgerðarmanna öll þau kol sem eg nú hefi, sá eg mig knúðan til, fyrir 5 til 6 dögum síðan, að hækka kola- verðið upp í 115 krónur fyrir hverja smálest, til útlendra fiskiskipa, með- an eg þó, tii bæjarbúa, frá sama tíma hefi selt kolin fyrir 10 krónur pr. 100 kfló, eða kr. 100.00 tonnið. Hér fer á eftir sundurliðaí vcrð>, Vfir hvað kolin frá s/s »Actio« kosta mig hingað komin á pláss, tii hægð- arauka fyrir hina háttvirtu verðlags- nefnd. pr. ton Sjílf kolin 37/6 f.o.b. á ca. %o kr. 33 .75 Fragt incl. biðpen. fr. skipið 65 00 Sj6- og stríðsvátrygging 2.00 Uppskipun og plássleiga 3.75 Aðflutningsgjald í landssjóð 1.00 Kr. 105.50 Við þetta verð bætist svo kostnað- ur við afhending á kolunum og ef um sölu til skipa er að ræða, þá enn- fremur keyrsla og útskipun, sem má gera ráð fyrir að verði alt að 3 krón- um fyrir hvert tonn yfir sumartímann. Auk þessa má svo reikna vexti af peningum, brunavátryggingar, húfia leiga, opinbera skatta og ýms bein gjöld og er þá auðvelt að sjá að hreinn ágóði verður ekki næsta mik- ill, eða f öllu falli ekki ósanngjarn, þar sem erfiðleikarnir eru miklir og áhætta mikil að fást við kolaverzlun nú þegar þetta geypiverð er á þeim. Til sönnunar máli mínu læt eg fylgja hérmeð: 1. Certeparti skipsins, sem ,'ýnir leigu og aðra skilmála skipseig- anda. 2. Sfmskeyti frá Chs. Mauritzen í Leith dags. II. þ. m. sem sýn- ir hvað eg borga fyrir kolin f. o. b. Óska eg eftir að fá skjöl þessi til baka. Eg þykist hé> að framan hafa fært nægileg rök fyrir þvf, að ekki hefir verið okrað á kolum hér við kola- verzlun mína né heldur verðið sett óhæfilega hátt undir ntíverandi kring- umstæðum. Hefi hinsvegar ek ert við það að athuga, að verðlagsnefndin setji hámark útsöluverðs kola á þvf sem selt er til almennings hér, ef hún finnur ástæðu til, en verðlagi á þeim kolum sem seld hafa verið til útlendra skipa hefir verðlagsnefndin hingað til ekki skift sér af og hefir væntanlega heldur ekkert með að gera Eg fyrir mitt leyti tel' annars mjög óheppilegt ef verðlagsnefndin skiftir sér af vöruverði kaupmanna, þegar bein ástæða er ekki íyrir hendi, og gæti það enda haft aivarlegar afleið- ingar f för með sér, þegar jafnerfitt er að ná vörum að sér og nú er, en þeir menn sem hrópi hæst um að- stoð verðlagsnefndar og yfirvalda, æsa aftur oft á hinn bóginn, án þess þó að gera sér Ijóst hvað þeir eru að gera, eða hvaða ábyrgð þeir taka sér á hendur, ef annars sómatilfinning nokkur er fyrir hendi. Með mikilli virðingu. Ragnar Ólafsson. Slysfarir. Einar Guðjónsson, er um skeið var veitingaþjónn á »Hótel Akureyri* og verzlunarmaður við Carl Höepfners verzlun hér í bænum, druknaði 28. þ. m. í Soginu syðra. Hann var þar við laxveiði á bát og lá fyrir atkeri, en ætlaði eitthvað að flytja sig og var búinn að draga upp atkerið, en þá tókst svo slysalega til, að straum- strengur tók bátinn og bar hann að gljúfrum þar rétt við og fórst Einar í gljúfrunum. Einar var nú forstjóri fyrir »Hótel ísland* í Reykjavík, tók við því starfi f vetur. Hann var lipurmenni, góður drengur og hæfileikamaður um margt. \ llm láð og lög. Undirbúningur er mikill til slld- veiða á Vestfjöröum og verða þær reknar þaðan bæði frá fleiri stöðum en áður og t stærra sttl, af innlend- um mönnum og Norðmðnnum, er halda úti 2 gufuskipum frá hval- veiðastbðinni á Hesteyri. Frá báðum gömlu hvalveiðastbðvunum l Álfta- firði verða nú reknar sildveiðar. Prjár sildveiðastbðvar eru og að komast upp d ísafirði. Landsstjórnin hefir leigt skip til vbruflutninga milli íslands og Ameriku, 1500 smál. að stærð og leigan 65 þús. kr. á mánuði. Fyrst á skipið að koma með kolafarm frá Englandi, en siðan að sækja til Ame- riku matvbrur og ef til vill steinollu. Ekkja slra Árna fónssonar heit- ins á Hólmum, fru Auður Gisladótt- ir, er sezt að i Reykjavík. Pegar sóknarmenn i Hólmaprestakalli kvðdda hana, gáýu þeir henni fallega minn- ingargjðf: silfurkrans i ramma, með skildi i miðju, sem á var grafið: Prófastur Árni Jónsson, f. 9. júli 1849, d. 27. febr. 19Í6. Með þakk- lti frá sbfnuðinum I Hólmapresta- kalli," Jónatan Porsteinsson kaupmað- ur i Reykjavlk hefir pantað steinoliu- farm frá Ameriku og leigt skip til að flytja hann til tslands. Fluinings- gjaldið kvað vera 24 kr. á tunnu. Guðm. E. Guðmundsson er ný- kominn vestan frá kolanámunum og segist nú sannfærður um að kolin séu steinkol, Losuð hafa verið 60 tonn sem mestmegnis verða fluit til útlanda til rannsókna. Guðmundur segir að kolin batni stöðugt eftir þvi sem lengra komi inn i kolagðngin. X, Frá blóðvellinum. Frakkar reka Þjóverja undan sér við Estrée-St.-Denis. Þjóðverjar reyna gagnáhlaup í Champhagne en urðu að hörfa undan við svo búið. Hindenburg hefir játað því að verða yfirhernaðarforingi (General- issimus) á öllum vígstöðvunum að austan bæði yfir Þjóðverjum og Austurríkismönnum). Þjóðverjar hættir að sækja á við Verdun en leggja alla áherzlu á orustuna við Somme er geysar dag og nótt með ógurlegu marrnfalli. Sókn og vörn er til skiftis. Hindenburg og Kuropatkin (her- inn undir stjóm þeirra) eru í stór- kostlegri orustu hjá Dwinsk. Rússar vinna stöðugt á Austur- ríkismðnnum og eiga skamt ófarið til Lemberg. Búisí við að Austur- ríkismenn og Tyrkir veiti viðnám hjá víggirðingunum á Lemberg orustulínunni. % ^kureyri. Þingeyingar ýmsir eru hér staddir þessa dagana, þeirra á meðal mývetnsku öldung- arnir Einar Friðriksson í Reykjahlíð, Hall- grímur Pétursson f Vogum og Jón Péturs- son í Neslöndum og eru þeir i skemtiferð hingað. Ennfremur Sigtr. Helgason sýslu- nefndarmaður á Hallbjarnarstöðum í Reykja- dal. Lögreglustjóri á Siglufirði, er Júlíus Hav- stéen candt júris í sumar, eins og undan- farin ár og er hann fyrir nokkru farinn vestur. Hljómleikur. Þórarinn Quðmundsson fiðlu- leikari hefir þrisvar efnt til hljómleika f leikhúsinu. Jón ívarsson og Sveinn Árnason aðstoðuðu í fyrsta sinn en Jón ívarsson einn í síðari skiftin þvf Sveinn er á skemtiferð vestur í Skagafirði. í öll skiftin hefir verið svo illa sótt að Akureyringum er blátt áfram til minkunar. Þórarinn er orðinn svo kunnur nneðal þeirra er sönglist og fögrum hljóðfæraslætti unna að óþarfi er að fjölyrða um hann frekar í þetta sinn, en ef það er rétt, að hann muni ekkí ó- fáanlegur til þess að gefa bæjarbúum enn- þá kost á að heyra list sína áður en hann fer héðan, í þetta sinn ættu þeír að muna eftir því og troðfylla þá leikúsið að síðasta sæti. Ferðafðlk. Hér eru staddir: Jóhann Kristjánsson húsagerðarmeistari, Þórólfur Sígurðsson í Baldursheimi og Páll Sigurðs- son stöðvarstjóri á Húsavík. Til Reykjavfkur fór nýlega Margrét Thorarensen verzlunar- mær. Frá Reykjavlk eru nýlega komin Þórhallur Björnsson listmálari og frú hans. Hérmeð tilkynnist að elskuleg kona mín, Elísabet Guðnadóttir, and- aðist 25. þ. m. að Breiðabóli á Svalbarðsströnd. Jarðarförin er ákveðin 2. ágúst næstk. hér frá kirkj- unni og hefst kl. 12 á hádegi. Þetta tilkynnist vinum og vandamönnum. Akureyri 28. júlí 1916. Sigurgeir Quðmundsson. M Zadigs pvottaduft með fjóluilm er ómissandi hverri húsmóður. Hin gamla aðferð að nudda þvottinn upp úr sápuvatni er orðin úrelt, allir vita að fatnaður og dúkar slitna óhæfilega með þeirri þvotta-aðferð og eru þvf að hætta við hana, en taka upp þvotta- aðferð með M. Zadigs þvottadufti 1 staðinn. Duftið er leyst upp í vatni þvotturinn svo lagður f þann lög og þegar hann hefir legið þar hæfilega lengi, er aðeins skolað úr honum, ÁN þess hann sé nuddaður. ZADIGS ÞVOTTADUFT SPARAR því mikið erfiði og tlma, SPARAR sápu og sóda og slítur ekki þvottinum. Biðjið því kaupmenn yðar um ZADIGS ÞVOTTA- DUFT. Það fæst í öllum vel birgum verzlunum og ryður sér hvervetna til riims. Því það er margfalt ódýrara og betra en sápa og sódi. Sápur og ilmvötn.tannmeðalið »Oral«, Lanolin Hudcréme, raksápuna Barbe- rin, og gólfþvottaduftið fræga frá JVI. Zadig konungl. hirðverksmiðju f Malmö ættu allir, yngri og eldri að kaupa. Prentsmiðja Odds Björnssonar. Þeir sem vilja taka upp ný fjármörk í sumar eða haust, snúi sjer til Sigurðar Sigurðssonar járn- smiðs á Akureyri, sem fyrir mína hönd útbýtir nýuppteknum fjármörkum, gegn þóknun eftir samkomulagi fyrir ómök sín. Hálsi, 15 júlí, 1916. BenediKt Einarsson,