Norðurland - 17.02.1917, Blaðsíða 1
NORÐURLAN D.
Ritstjóri og útgefandi: JÓN STEFANSSON.
~ ------------------■---------
6. blað. Akureyri 17. febrúar 1917.
XVII. árg.
Kjebenhavns JMargarinefabrik
(ramleiðir hið vandaðasta smérlfki sem
unt er að fá, notar aðeins hreint og
óskemt efni, og litar alls ekki marga-
rínið, en selur það hvftt eins og á-
sauðasmér, svo allir geti fullvissað sig
um að engu misjöfnu sé blandað f það.
Margarfnið faest í I og 2 punda skök-
um, 5 °g 10 punda öskjum og stærri
dunkum og er þrátt fyrir gæði sfn hið
ódýrasta smérlfki sem flutt er til lands-
ins, enda fer neyzla þess vaxandi ár
frá ári. Areiðanlegir kaupendur fá lang-
an gjaldfrest. Pantanir sendist annað-
hvort beint til verksmiðjunnar, Bro-
Iæggerstræde 9 Köbenhavn, eða Jóns
Stefánssonar Akureyri.
cd
ea p ÍO
ÖJOJ* cð
.£<3
•O -
g or«H
-a O
D £ Æ
«*s"
so'rt
c« 25 w
1-c‘l.
«0
r=
I “E “
u 5 m
> ,5 tuo
. ■*-» TD 4>
■••S3 G~
B c
ío 2
a> O.
e
.2J»a>
*0 "O w u,
c *o
« £
>-r- . JJh
+-* .M
C
JVI- Zadigs
þvottaduft
með fióluilm
er ómissandi hverri húsmóður. Hin
gamla aðferð að nudda þvottinn upp
úr sápuvatni er orðin úrelt, allir vita
að fatnaður og dúkar slitna óhæfilega
með þeirri þvotta-aðferð og eru því
að hætta við hana, en taka upp þvotta-
aðferð með M. Zadigs þvottadufti í
staðinn. Duftið er leyst upp f vatni
þvotturinn svo lagður í þann lög og
þegar hann hefir legið þar hæfilega
íeng'i er aðeins skolað úr honum,
nN þess hann sé nuddaður. ZADIGS
ÞVOTTADUFT SPARAR því mikið
erfiði og tfma, SPARAR sápu og sóda
og slítur ekki þvottinum. Biðjið því
kaupmenn yðar um ZADIGS ÞVOTTA-
DUFT. Það fæst í öllum vel birgum
verzlunum og ryður sér hvervetna til
rtims. Þvf það er margfalt ódýrara og
^etra en sápa og sódi.
Sápurogilmvötn.tannmeðalið »Oral«,
Danolie Hudcréme, raksápuna Barbe-
rio> °g gólfþvottaduftið fræga frá
M. Zadig
konungi. hirðverksmiðju f Malmö
Httu allir yngri og eldri, að kaupa.
Pjóðmálafund ur
var haldinn hér í Ieikhúsinu á þriðju-
dagskvöldið, samkvæmt fundarboði
frá nokkrum borgurum bæjarins
(sbr. síðasta blað). Alþingismaður
M. J. Kristjánsson lofaði að koma á
fundinn til þess að svara fyrirspurn-
um kjósenda og segja þingtíðindi
og gerði hann það vel og rækilega
svo fundarmenn voru hinir ánægð-
ustu yfir. Fundurinn var prýðisvel
sóttur, svo leikhúsið var fult uppi
og niðri.
Otto Tulinius konsúll setti fund-
inn í nafni fundarboðenda og stakk
upp á Stefáni Stefánssyni skóla-
meistara fyrir fundarstjóra. Var það
samþykt með lófaklappi, en vegna
þess að menn höfðu komið sér
saman um að gera ekki neinar fund-
ar-ályktanir voru engir fundarskrif-
arar kosnir.
Þessi mál voru tekin til umræðu:
Kosningakœrurnar. Málshef jandi, Jón
Stefánsson ritstjóri, kvaðst álíta, að
hann tæki ekki ofdjúpt í árinni, þó
hann segði að þjóðin hefði orðið
undrandi yfir því hvernig Alþingi
afgreiddi kærumálin og óskaði því
að þingmaðurinn vildi gefa upplýs-
ingar um á hvaða grundvelli meiri
hluti þingsins hugsaði sér að verja þar
gerðir sínar. Þakkaði annars þ.m.
fyrir að hann hefði verið einn af
þeim fáu sem vildu láta rannsaka
kærumálin til fullnustu en lýsti yfir
í lok umræöanna um málið, að hann
teldi meðferð þingsins á þeim hreina
og beina svívirðing. Gegn aðferð
þingsins töluðu einnig, mjög ein-
dregið, þeir lögfræðingarnir Bjarni
lónsson útbússtjóri og Júlíus Hav-
steen og Stefán skólameistari. Al-
þm. M. J. Kristjánsson varði þingið
drengilega, hélt að það sem kært
var yfir mundi ekki hafa raskað
úrslitum kosninganna í hverju kjör-
dæmi fyrir sig og það væri aðalat-
riðið. Annars hefði þingið gert ráð-
stafanir til þess að koma fram á-
byrgð laganna á hendur þeim mönn-
um í kjördæmunum sem yrðu sann-
ir að sök að því að hafa brotið
kosningalögin. Vildi láta menn hafa
hugfast að tala og skrifa ávalt virðu-
lega um Alþingi og gerðir þess.
Stjórnarski/lin. Málshefjandi, Sig.
Einarsson dýralæknir, gerði fyrir-
spurn til þingmannsins um, hvers
vegna ráðherrum hefði verið fjölg-
að nú, þrátt fyrir það þó frumvarp
sem var til meðferðar um það á síð-
asta þingi hefði ekki náð samþykki.
Alþingismaðurinn svaraði að ráð-
herrum hefði bæði verið fjölgað
vegna ófriðarafleiðinga og svo mundi
enginn gætinn maður í þinginu
hafa viljað verða til þess að taka
stjórnina einn að sér. Jón Stefáns-
son sagði sér vera kunnugt um að
svo væri látið heita sem þetta bræð-
ingsráðaneyti hefði verið stofnað af
þörf vegna ófriðarins að dæmi ann-
ara þjóða, þó orsökin hefði verið
alt önnur í raun og veru, en ósk-
aði uppiýsinga unr hvernig stæði á
að fyrirmynd útlendra þjóða hefði
þá ekki einnig verið fylgt í því að
fráfarandi ráðherra tæki aftur sæti
sem meðlimur í hinu nýja ráðaneyti.
Alþm. svaraði að sér væri ekki til
fullnustu kunnugt um hve miklar
tilraunir hefðu verið gerðar til þess
við Einar Arnórsson, en kvaðst á-
líta að hann mundi hafa verið ófá-
anlegur til þess og það væri ekki
undarlegt um mann sem hefði reynt
jafnmikið af óverðskuldaðri tor-
tryggni éins og E. A. þann tíma er
hann hafði stjórn landsins á hendi.
Ennfremur töluðu í þessu máli Þor-
kell Þorkelsson kennari o. fl.
Brezku samningarnir. Málshefjandi,
Otto Tulinius konsúll, spurði hvort
alþm. sæi sér ekki fært að gefa
meiri upplýsingar um það mál en
mönnum enn væru kunnar. Alþm.
svaraði með langri og ítarlegri ræðu
en kvað þagnarskyldu þingmanna
um málið vera Þránd í Götu fyrir
öllum nákvæmari upplýsingum. —
Miklar umræður urðu um málið og
tóku þátt í þeim Jón Bergsveinsson,
Páll Einarsson bæjarfógeti o. fl.
Dýrtíðaruppbótin. Málshefjandi, Sig.
Einarsson dýralæknir, gerði fyrir-
spurn eftir hvaða grundvallarreglu
uppbótin yrði reiknuð þegarákveða
skyldi hana eftir föstum launum og
aukatekjum einstaklingsins og svar-
aði alþm. því. Erlingur Friðjónsson
spurði um hvað þingið hefði gert
fyrir dýrtíðarmál smælingjanna og
svaraði alþingismaðurinn því einnig.
Þegar hér var komið hafði fund-
urinn staðið fram á nótt og margir
farnir að hugsa til heimferðar. Karl
Nikulásson konsúll gerði þá fyrir-
spurn um samgðngumálin og Júlíus
Havsteen lögmaður aðra um síldar-
tollinn. Alþingismaöurinn svaraði
þeim báðum en ekki uröu um þau
mál frekari umræður. Var svofundi
slitið og þakkaði fundarstjóri fund-
armönnum fyrir rósemd og siðprýði
á fundinum. En áheyrendur létu al-
ment í ljósi ánægju sína yfir hve
glögt og greinilega alþingismaður
inn svaraði öllum fyrirspurnum er
fyrir hann voru Iagðar og hve ræki-
lega hann hefði skýrt fyrir fundar-
mönnum allan gang málanna nema
í því málinu sem hann var bund
inn þagnarskyldunni.
X
f
I Gagnfræðaskólanum
eru f vetur rúmir 90 nemendur og er
það furðanlega margt nú f dýrtfðinni.
Meiri hlutinn af nemendum er eins
og vant er úr sveitum norðan- og
austanlands, að eins tæpir 2h hér af
Akureyri og þó tiltölulega með lang-
flesta móti. Meira en helmingur nem-
enda er f heimavist. í vor eiga að
útskrifast úr skólanum hálfur fjórði
tugur, og má búast við að margir
þeirra haldi áfram námi f lærdóms-
deild Mentaskólans syðra. Er það mik-
ið mein og all tilfinnanlegt oss Norð-
lendingum að nemendur skuli ekki
geta lokið hér stúdentsprófi. Sérstak-
lega er oss Akureyringum þetta mjög
bagalegt. Með núverandi fyrirkomu-
lagi á skólanum er oss Norðlending-
um gjört ólíku örðugra fyrir að menta
börn vor en Sunnlendingum að vér ekki
töluin um Reykvfkinga, sem geta notið
allrar þeirrar mentunar sem landið
veitir, án nokkurs auka kostnaðar.
Höfum vér þegar heyrt raddir um það
hér nyrðra að meiri jöfnuður þyrfti á
þetta að komast og má búast við að
þær verði æ háværari er framlíða stund-
ir, og sú krafa rísi áður langt um
Hður að Hólastifti hið forna fái skóla
sinn aftur, er illu heilli var frá þvf
tekinn, að öllu jafnfullkominn og rétt-
háann og skólann syðra.
\
Rangar sagnir.
Hér hafa gengið ýmsar sögur í vet-
ur um rannsóknarmál sem Stjórnar-
ráðið hefði látið höfða gegn alþingis-
manni Barðstrendinga hr. Hákoni J.
Kristólerssyni í Haga. *N1,« hefir
fengir upplýsingar um að úlfaldi hefir
verið gerður úr mýflugu í þessum efn-
um og ekkert er það um að ræða
sem Hákoni er nein vansæmd í, enda
munu þeir sem honum eru kunnugir
heldur ekki hafa átt von á þvf.
Mannalát.
Rósa Jónasdóttir kona Guðmundar
Friðfinnssonar bónda í Seljahlíð er
nýlega látin. Þau áttu einn aon, sem
orðinn er fulltíða, Pál að nafni.
R. A. Arngrímsson skrifari (Kontorist)
f Kaupmannahöfn er dáinn þar 4.
desbr., samkv. dánarlista Khafnar, en
engar upplýsingar gefnar um manninn
aðrar. Eftir nafninu að dæma hefir
hann verið íslendingur.
Prentsmiðja
Odds B/örnssonar
leysir af hendi alla
P-R-E-N-T-U-N
fljótt — vel — ódýrt,
Talsími 45.
Símnefni Oddbjöri).