Óðinn - 01.03.1907, Blaðsíða 1

Óðinn - 01.03.1907, Blaðsíða 1
ÐINN 1«. BLAÐ MARS 1007. II. AR. verður sjötugur 24. maí í vor, og hefur liann um langan aldur verið einn af duglegustu og bestu borgurum þessa bæjar. Sigfús er fæddur á Borgum í Vopnafirði 24. maí 1837 og var faðir lians, Ey- mundur Jóusson, ])á bóndi þar, en síra Einar á Kirkju- l)æ hefur rakið ættir hans til Lofts ríka á Möðruvöll- um, Guðmundar ríka, Oddaverja fornu og Sturlunga. Sigfús ólstjupp heima fram til tvítugs og lagði snemma fyrir sig bókband, bjó sjer sjálfur til verkfæri og batt bækur lyrir sveitunga sína. Vorið 1857 fór bann með Halldóri prófasti á Hofi til Reykjavíkur og var þá ráðinníað fara utan til þess að I æra ^bókbindara - iðn. I’ó sigldi hann ekki þá þegar, en lör til Asgeirs Finn- bogasonar á Lambastöðum og var þar nokkurra vikna tíma við bókband. En þá um haustið fór hann samt utan, með póstjaktinni »Haabet«, til Kaupmannabafnar, og kom Jón Sigurðsson lorseti bonum fyrir hjá kngl. hirðbókbindara Ursin. Þar var Sigfús við nám í tvö ár og fjekk þá sveinsbrjef með i)esta vitnisburði, Þetta var stærsta bók- bindaravinnustofan, sem þá var í Ivböfn. En liarður var Ursin við sveina sína og rak þá frá sjer, hvern á fætur öðrum, ef honum mislíkaði við þá, og þurfti ekki annað til, en að þeir kæmu lítilli stundu of seint til vinnu, en hún byrjaði ætíð kl. 6 á morgnana. Að náminu loknu vann Sigfús enn tvö ár lijá Ursin og var þar seinast yfirmaður, eða meistarasveinn, á vinnustofunni. En eftir fjögra ára dvöl í Khöfn hjelt hann til Nor- egs, 18(51, og var fyrst tvö ár í Krist- janíu, en síðan bálft annað ár í Bergen, og þar lærði hann að taka ljósmyndir. í Kristjaníu komst hann í náin kynni við ýmsa merka Norðmenn, svo sem Ola Bull, Björnstjerne Björnson og þó einkum Berner, sem nú er stórþingis- forseti, en þá var ungur blaðamaður. Frá Noregi fór Sig- fús aftur til Khafn- ar, setti þar þá upp ljósmynda- stofu, í Kannike- stræde, og rak þar ljósmyndaraiðn í hálft annað ár. Fór svo heim til íslands, eftir 9 ára veru utanlands, árið 18(5(5. Þegar heim kom stundaði Sigfús bæði ljós- myndun og bókband, ferðaðist um landið ásumr- um og tók myndir, en vann að bókbandi á vetr- um. Hann liefur einnig yfir 20 ár rekið bóka- verslun og bókaútgál'u, og prentsmiðju stofnaði

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.