Óðinn - 01.01.1930, Blaðsíða 1
OÐINN
1.—6.
BLAÐ
]ANÚAR-]ÚNÍ 1930
XXVI. ÁR
Gísli Guömundsson
gerlafræðingur.
Hann andaðist 26. sept. 1928 á besta aldri og
varð þar mikill
mannskaði. Vinir
hans og fjelagar í
Iðnaðarmannastjett
Reykjavikur töldu
hann einn af sin-
um allranýtustu
mönnum, en sú
stjett á nú marga
menn, sem kunnir
eru að dáð og dugn-
aði. Gísli var fædd-
ur 6. júlí 1884 að
Hvamsvík í Kjós,
en fluttist ungur
með foreldrum sín-
um, Guðm. Guð-
mundss. og Jakob-
ínu Jakobsdótlur frá
Valdastöðum, til
Reykjavíkur, og var
síðan um eilt skeið
í Melshúsum á Sel-
tjarnarnesi, hjá Jóni
Jónssyni útvegs-
bónda. En á æsku-
árum nam hann
gosdrykkjagerð er-
lendis og gekst síð-
an fyrir stoínun gos-
drykkjaverksmiðj-
unnar »Sanitas«
1905, og fengu vörur hennar brátt svo gott orð
á sig, að þær útrýmdu að mun erlendum gos-
drykkjum frá íslenskum markaði. Nokkru síð-
ar tók Gísli að stunda nám í gerlafræði erlendis,
fyrst í Kaupmannahöfn og síðan í Þýskalandi,
og varð vel að sjer í þeirri fræðigrein. Einnig
dvaldi hann um tíma í Austurríki og Frakklandi.
Retta nám hans var hið þarflegasta og bar hjer
góðan árangur. Og þegar gerladeild var stofnsett
við efnarannsóknarstofuna hjer, var Gísli sjálf-
kjörinn til þess að
taka hana að sjer.
Eftir fráfall Ásgeirs
Torfasonar 1916
varð hann forstöðu-
maður efnarann-
sóknarstofunnar og
hafði það starf á
hendi til 1921. Á
þeim árum átti hann
mestan þátt í því,
ásamt Jóni heitn-
um Kristjánssyni
prófessor, að smjör-
líkisgerð hófst hjer
í bænum, og hefur
hún síðan þrifist
vel, svo að nú er
lítið af erlendu
smjörlíki flutt til
landsins. Hafði hann
mikinn áhuga á því
að auka og bæta
innlenda vörufram-
leiðslu og var sam-
verkamaður eða
ráðunautur flest-
allra hjer, sem rjeð-
ust í einhver slík
fyrirtæki, og með
þeirri starfsemi hef-
ur hann unnið stór-
mikið gagn. Eitt af þeim fyrirtækjum er öl-
gerðin »Egill Skallagrímsson«, sem lærisveinn
hans og starfsmaður frá »Sanitas«-verksmiðjunni,
Tómas Tómasson, stofnaði og hefur rekið með
miklum dugnaði.
Gísli Guðmundsson gerlafræðingur.