Óðinn - 01.07.1935, Blaðsíða 4

Óðinn - 01.07.1935, Blaðsíða 4
52 Ó Ð I N N Jakobína Johnson skáldkona. Síðastliðið sumar dvaldi vesturíslenska skáldkonan frú Jakobína johnson hjer á landi. Henni hafði verið boðið heim hingað í viðurkenningarskyni fyrir starf hennar vestan hafs að því, að kynna þar Island og íslenskar bók- mentir. Hún er þingeysk að ætt og fædd hjer heima 24. okt. 1883, á Hólma- vaði í Suður- Þingeyjarsýslu.en fluttist 5 ára að aldri vestur um haf með föður sínum, Sigurbirni ]óhannssyni, sem á sinni líð var eilt af helstu skáldum Þingey- inga. Hún er gift íslenskum manni, Isak Johnson, austfirskum að ætf, og dvaldi áður í Winnipeg og víðar í Manitoba, en síðastliðin 26 ár hafa þau verið búsett í Seattle, vesfur við Kyrrahaf. Frúin dvaldi hjer í Reykjavík um tíma eftir að hún kom til landsins, og aftur um tíma áður en hún fór, en annars ferðaðist hún víða um land og dvaldi um tíma í fornum átthögum sínum í Þingeyjar- sýslu. Hjer var hún alstaðar kær gestur, og með kynningunni jók hún mjög þær vinsældir, sem hún áður hafði áunnið sjer með ljóðum sínum. Hjer í Reykjavík, á Akureyri og víðar las hún upp kvæði sín við mikla aðsókn, og í Reykjavík var hún kvödd með fjölmennu samsæti. Frú Jakobína Johnson hefur á síðari árum orðið kunn fyrir ljóðagerð sína, sem birzt hefur í íslenzk- um og enskum blöðum og tímaritum vestan hafs, og eru það bæði frumsamin ljóð og þýðingar íslenzkra ljóðmæla á enska tungu. í bókinni »Icelandic Lyrics*, sem út kom hjer 1930 á kostnað Þórhalls Bjarnar- sonar, en Richard Beck prófessor hafði valið efni í, á hún margar þýðingar á ensku af íslenzkum kvæð- um. Eru þær vandaðar og vel gerðar. En hitt er eigi síður merkilegt, hve vel hún kveður á íslenzku, enda þótt hún hafi frá barnæsku dvalið vestan hafs, og sýnir þetta, eins og mörg fleiri dæmi, hve Vestur- Islendingar hafa lengi haldið trygð við tungu sína og lagt rækt við bókmentirnar heiman að. Það er aðdáunarvert, hve mikinn skerf þjóðarbrotið vestan hafs hefur lagt til íslenzkra bókmenta. í nýúfkomnu hefti af Eimreiðinni eru nokkur falleg kvæði eftir frú Jakobínu, flest ort hjer heima í sum- ar, og blöðin hjer hafa á síðustu árum prenfað ýms af kvæðum hennar upp úr íslensku blöðunum vestan hafs, einkum Morgunblaðið- — Safn af ljóðmælum sínum hefur hún enn ekki gefið út. Jakobína Johnson. hann svo: »Hann sjera Hallgrímur hefur einkenni- lega síglaða og göfugmannlega framkomu, og heilsar öllum með sínu aðlaðandi og vináttukenda brosi, og við getum ekki annað en dáðst að, hvað hann hefur haldið jafnt út í gegn um allan andbyr og allar þrek- raunir á sínum langa lífsins degi«. — Um presfs- starfið í heild fórust honum svo orð: »1 prestsstarfi sínu hefur sjera Hallgrímur jafnan sýnt trúrækni, skapfestu og skyldurækni. Hann hefur jafnan sýnt hina alúðarfylstu umhyggju fyrir undirbúningi barn- anna undir ferminguna. — — — Og þó hann hefði stundað prestsstarf sitt og embætti hinna andlegu mála með skyldurækni og skörungsskap, þá hefði hann heldur ekki vanrækt að ávaxta hið veraldiega pundið, sem auðnan hefði rjett honum í hendur, því greinilega hefði hann sýnt það, að hann hefði ekki viljað liggja á líði sínu sem liðsmaður, þar sem hann hefði, þrátt fyrir einstæðingslíf og erfiða aðstöðu, haft jafnan mikla framleiðslu, og jafnan verið einn af helstu máttarviðum sveitarinnar, til þess að bera útgjalda- þungann. — Lýsti svo góðu og hagkvæmu sfarfi hans fyrir fræðslumál sóknanna, og sýslunefndarstarfi í 38 ár. Sagði, að hann hefði jafnan komið þar fram með hyggindum og gætni, og sparsamri meðferð á fje al- mennings, og hefði því eðlilega oft orðið í andstöðu við hinn örláta og áhrifaríka framfarastraum nútímans. En hefði þó, þrátt fyrir það, nofið trausts og virð- ingar samherja sinna í sýslunefndinni. — Á sviði stjórnmálanna hefði hann jafnan verið ákveðinn og aðsópsmikill, og lagt sjerstaka áherslu á framtíðar- farsæld fósturjarðarinnar, sem hann hefði álitið að lægi mest í fjármálagætni og heilbrigði í því, að vernda eignarrjetf, framtak og frelsi einstaklingsins. Lýsti því síðan, að sjera Hallgrímur væri ósvikinn

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.