Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 14.01.1904, Blaðsíða 4

Reykjavík - 14.01.1904, Blaðsíða 4
8 * * ‘^pórövr ý. £Jrh.orod<lsen, /esknir, býr í Þingholtsstrecti 26, lieima M. 10—11 f. m., og 4—5 e. m. *_____________________ X Rétti tíminn til þess að gerast kaupandi XVIII. árg. „í’jóðTÍljans'1. Þeir sem eigi hafa áður verið kaupendur blaðsins, _ætt,u að sæta þeim kostakjörum, sem nú eru i boði: urn 200 bls. af skcmtisogum og auk þess síðasti ársfjórðungurinn af 17. árg. „ÞjóðT.*, hvorttveggja alveg ókeypis. Eeykvíkingar geta pantað blaðið hjá Skúla I*. Sívertsen í Ingólfs- stræti. [ — 4 Heiðraðir útgerðarmenn og skipstjórar! Héi með gefst yður til vitundar, að ég, eins og að undanförnu, geri við Kompása og önnur. sjófræðileg (nautisk) verkfæri. Öllu þess konar veiti ég móttóku heima hjá mér, Laugavegi 74., og geri við það er viðgerðar þarf, íyrir mjög væga borg- un, Reykjavík 1903. Steíán Pálsson skipstjóri. Sjóvettlinga, óróna, kaupir háu verði verzlunin LIVERPOOL. Brent og malað K a f f i bezt í V. FISCHERS V E It Z L U X. úr Borgarfjarðarsýslu fæst enn á 16 aura pundið í pakkhúsdeildinni. THOMSENS MAGASÍN. Heiðruðu bæjarbúar! Þið sem þurfið að fá ykkur liúsgögn svo sem Kommóður, Borð, Rúmstæði og fl. ættuð að koma og heyra þá ódýru prísa í þingholtsstræti 8 á trésmíða- vinnustofu áður enn þið festið kaup annarstaðar. Leikhúsið „ Gja!dþrotiðu cftir Bjernson. Aðalpersóna leiksins er Tjælde stórkaupmaður og verksmiðju- eigandi í litlum sjókaupstað ekki all- fjarri Krístíaníu. Hann heflr í fyrstu grætt auð fjar, en síðan verða verzl- unarhorfur andstæðari, en í stað þess að draga saman seglin í tíma, hefir hann spent lánstraustsboganu hærra og hærra 1 von um betri tíma. En lánstraustið þver, og í því hann hygg- ur sig hafa veitt gullkálf mikinn fi'á Kristíaniu til að veita sér ærið lán og fleyta sér þannig enn í bráð, kem- ur málaflutningsmaður (Berent), um- boðsmaður bankanna, til Tjælde, sýn- ir honum fram á, að hann eigi ekki fyrir skuidum, hafi sokkið í þær dýpra og dýpra 3 síðustu árin, og heimtar, að hann framselji bú sitt til gjald- þrotameðferðar; ný lán verði að eins til að steypa honum dýpra; hann stjórni eigi með nægri gætni og spar- semi. Tjælde bregzt iila við, segist hafa nýfengið loforð am peninga og geta goldið hverjum sitt. Berent segir honum að hann hafi aðvarað gullkálflnn (Lind) og úr því verði ekkert. Svo reynir Tj. að telja B. trú um, að það sé hyggilegra að út-, vega sér peninga, til að halda sér við, en að neyða sig til gjaldþrota. B. neitar því, og T. lokar dyrum, dreg- ui upp hlaðna skammbyssu og segir að hér skuli hvorugur lifandi út kom- ast nema hann iofl að útvega sér peningana. En þegar B-. gengur að honum rólegur og hvessir á hann augun, felst honum hugur. Þetta er átakanlegasta atriðið í leiknum, og má segja að leikurinn velti á því, að leikendur sé þessu hlutverki vaxnir. Og það tekst. Hr. Jón Jónsson sagnfr. leikur Tjælde yflrleitt vel, og ef til vill hvað bezt í þessu atriði. Hr. Jens Waage leikur Berent alveg snildar- lega. Það má með sanni segja um hr. J. W., sem byrjaði á litlu hlut- verki fyrst að leika, að honum virð- ist fara fram með hverjum nýjum ieik. Hann skilur ávalt hlutverk sín og leggur auðsjáanlega mikíð og samvizkusamlegt starf í að und- irbúa sig og æfa. Tjælde á dætur tvær, Valborgu og Signýju. Signý er yngri og er heitin staðgengli (lieutenant) í riddaraliðinu, Hammer að nafni. Endinn á viðskiftum þeirra Tj. og B. verður sá, að Tj. selur- fram bú sitt. Þá hefir staðgengillinn sig á burt, yfirgefur unnustuna. Það var erfingi auðuga kaupinannsins, en ekki dóttir gjaldþrota mannsins, sem hann vildi eiga. Sannæs heitir verzlunarþjónn Tjælde, vandaður maður, en feiminn; heíir frostbóiku-rauðar hendur, en ber ást arhug til Valborgar, þó að hann hafi aldréi dirfst að biðja hennar. En hún og aðrir hafa orðið þess varir. En hún ann honum ekkk Hún er nauða- skynsöm stúlka, og undir niðri til- finninganæm, en heflr enn engumunn- að, hvergi fundið ástarþrá sinni stað ; hún heflr næma réttlætistilfinning og því megna óbeit á allri uppgerð og öllu ósönnu í lífinu. Dæmir því strangt aðra og sér meðal annars glögt, að Hammer elskar auðiim, en ekki systur hennar. Sannæs hefir komið til Tjælde ung- ur, erft lítilræði, en varið því svo vel, að hann á 7000 spesíur (28,000 ,kr.), er Tj. verður gjaldþrota. Þetta fé býður hann Tjæide, og Tj. byrjar með því smáverziun í litlu sjóþorpi. Val- boig og Sannæs eru bæði við verzl- unina og blómgást hún vel. Þessi þrjú ár, sem þau hafa unnið saman, hefur V. lært að virða og elska San- næs, og verður loks kona hans. En sjálf verður hún að biðja hans, því að hún hafði fyr meir sært hann svo djúpt, að hann var orðinn henni afhuga. Frú Tjælde er þreytt og raædd kona, en mesta kvenval. Lang-vandasamasta og vanþakkiát- asta hlutverkið í leiknurn er Sanriæs. Oss' vitanlega hefir erlendis engum leikara þótt takast þetta hlutverk, mma Wiehe. Emil Paulsen, sem síð- ar reyndi sig á því, þótti ekki takast það. Hér heflr hr. Á. Eiríksson, feng- ið þetta óþakkláta verk, og leysir það, sem vænta mátti, svo af hendi, að engin likindi eru til, að neinn, sem hér er völ á, hefði gert það eins vel. Hr. Á. E. er viðurkent að sé einn af beztu leikkröftum vorum, og það sem einkennir hann er það, að bann.nær ávalt föstum tökum á að- alseiginum (charalder) þeirra persóna, er hann leikur. Hann heflr auðsjá- anlega skilið Sannæs, og þó að hon- um hafi ekki tekist að gera neina snild úr honum, þá verðum vér að telja alveg furðu, hvað honum tekst við hann — jafnerfitt og vanþakklátt hlutverk. Frú Stefanía leikur frú Tjælde snild- arvel. Ungfrú G. Einarsson leikur Signýju prýðilega. Ungfrú G. Haild. leikur Yalborgu, og virðist hafa misskilið aðalseigini hennar, einkanlega ber á því í fyrri hluts leiksins, alt fram að því að Tjælde er orðinn gjaldþrota; hún flnn- ur þar ekkert armað í Valborgu, en geðvonzkuna, og heldur hér, eins og í öllu, sem hún leikur, þeim óþol- andi kæk, að „höggva máflnn“ eins og norn við hvert orð, sem hún seg- ir. Þetta má hún ómögulega gera, þegar hún leikur unga og vei upp alda hefðarmey, þótt það fari henni vel og eðiilega, þegar það á við (í gömlum geðvörgum). Hún hefir svo mikla leikhæflleika, að hún hlýtur að geta séð þetta og vanið sig af þeim ósið. Aftur tekst henni mjög vel, þar sem hún talar við föður sinn, er hún ræður honurn að þiggja boð San- næs’s (lok 3. þáttar). Og í síðasta þætti leikur hún vel. Á leik hr. G. Tómassonar (Hamm- er) er sá mikli galli, að hann ber sig í Hkamaburði svo unglings-slánalega (holningslm). En foringi í riddara- iiðinu á að hafa hermannlegan iima- burð. Hr. Helgi Helgason ieikur Lind kon- súl prýðilega. Hr. Kr. Þorgr. leikur Jakobsen öl- gerðarmann vel — eftir því gerfi, sem honum er gefið, En það er frá- munalegt axarskaft af þeim er tilsögn heflr um gerfl og búninga (hver sem hann er), að Jalcobsen er látinn vera gamall karl, hvítur fyrir hærum, svo iiann gæti verið faðir Tjælde, sem er óhærður í fyrri hlut leiksins. Og þó segir Jak. í 2. þætti leiksins : „rtg var lítill og fátækur drengur, er ég korn til Tjælde". („Jeg kom til Kon- sul Tj. sora en liden, fattig gut.“). Leikur þessi er svo snildar-fagur, og yflrleitt, svo vel leikinn, að meira yndi er að horfa á hann, en nokkuð annað, er hér heflr nokkru sirini ver- ið leikið. Til þessa heflr jafnan ver- ið troðfult hús, er hann hefir verið leikinn og bílætin jafnvel veiið pönt- uð fyrír fram. Eins og það er leikfélaginu inn mesti sómi að hafa valið leik þennan og ráðið við hann, eins verður það Reykvíkingum sómi, eí hann getur orðið leikinn oftar í röð, en nokkur annar leikur. 1Rq?kíavík og o^nö. —o--- t Frú Ouðhiiig Jensdóttir (Sig- urðssonar rektors) andaðist hér 7. þ. m. 53. ára að aldri. Hún var ekkja Sigurðar sýslumanns Jónssonar í Snæfellsnessýslu. Valinkunn sæmd- kona. Iir. Þórður Edilonsson, læknir í Kjósinni, heflr sagt af sér embætti því, en gerist frá Nýján aðstoðar- iæknir Reykjavíkurlæknis og er seztur að í Hafnarfirði, en er jafnframt sett- ur til að þjóna sínu fyrra embætti (Kjósinni). |- u n D u r í hlutafélagi Báruhússins verður hald- inn á morgun Föstud. 15. þ. m. kl. 6 sd. í Báruhúsinu. Rvík, 14. Jan. 1904. Otto N. Þorláhsson. Þorst. Egilsson. Helgi Björnsson. Meðala-lýsi gufubrætt fæst í Þingholtsstræti 26. Flaskan 1,50. [—4. Kol - steinolíu ættu allir að kaupa í TH0MSENS MAGASINI. Xajé Xlampenborg. Þar fæst ávalt heitur matur á hvaða tíma sem er ásamt mörgu fl. Ágást Benediktsson. Nýtt fímmskúffu skrifhorð með góðu verði til söiu hjá Jóni Magn- ússgni, Laugavegi 27. FUNDI.NN áLaugayevgi yfirfrakki, Rit- stj. Avísar finnanda. UNGUR maður regiusamur og vel að sér í skrift og reikuingi óskar eftir atvinnu við verzlun nú þegar. Ritstj. ávísar. TAFA8T IIEFIR ný-ullarbolur 7. Jan. í Laugunum. Finnandi skili til Árna Nikulássonar, rakara. 8 VARTKÁPÓTTUR KETTLINGUR er í óskilum í Bergstaðastrœti nr. 41. TAPAÐIST á Grímudansinum kven- N regnhlíf á stálteini. Sá sem hirt hefir eða fundið, skili tíl Sigríðar Ólafsson, Aðalstr. 1K__________________________________ TAPAÐIST á Sunnnd. á strætunum sílfurbrjóstnál. Fundarlaun. Ritstj. ávísar eiganda. TIL LEIGU 14. Mai stofa kamers og eldhús með geymslu. Upplýsingar ge ur Þórður Magnússon, í húsi Hróbjarts skó- smiðs. TÝND á Föstud.kvöld peningabudda með hérumbil 15—16 kr. í á götum bæ- jarins. Fundarlaun. A8m. Jónsson, Ný- lendngötu 20. FUNDlÐ vasa-úr með festi. Ritstj. á- vísar finnanda. NYTT VFSTI fanst í Þingholtsstræti 6. þ. m., með hárkambi og lykli í vösum. Eigandi snúi sér til Sveinbjarnar Jóns- sonar, Skólavörðustíg 33. Pebntsmlbja Rbykjavíkob. Vrentari DORV. PORVARÐSSON. Pappirinn frá Jóni Ólafssyni

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.