Reykjavík

Tölublað

Reykjavík - 23.11.1907, Blaðsíða 1

Reykjavík - 23.11.1907, Blaðsíða 1
 VIII, 84 Útbreiddasta blað landsins. Upplag yfir 3000. Laugardag 23. Nóvember 1907. Áskrifendur í b æ n u m yf ir 1000. VIII, 84 ALT FÆST í THOMSENS MAGASÍNI. Ofna og eldavélar selur Kristján Porgrímsson. Ofnar o<» eldavélar Neía^nokk^þvifchau ooooocoooooooooo ooooooooooooooooooooocg EDINBORG. Horace Greeley sagði einhvern tíma, að ef þér væri eins vel geflð að sjá fyrirfram eins og að sjá eftirá, þá vær- irðu skollans miklu skarpskygnari. Neytið forsjálni yðar í því, að kaupa þar varning, sem hann er beztur að gæð- um, þar sem tegundir eru margar og verð- ið hæfilegt, og þá mun reynslan sýna yð- ur, að ekki er í annað hús betra að venda en til vor. 8 g Vér erum nú að búa oss undir 8 Jóla-sýningu Q vora, og búumst við, að opna hana inn- Si an fárra daga, og mun þar verða ágætt Ö úrval af nytsömum og árstíðarhæfum O munum. O mun aldrei verða eftirsjá O að því, að eiga kaup við 1 verzl. EDINBORG. o o . ooooooooooooooooooooooooooooooooooooooí „REYKJAYlK" Árg. [60—70 tbl.] ko8tar innanlands 2 kr.; erlendis kr. 3,00—8 ah.— 1 áoll. Borgist fyrir 1. Júlí. Ella 3 kr. Auglýsingar innlendar: á 1. bls. kr. 1,50; 3. og 4. bla. 1,26 — Útl. augl. 8S1/#0/0 bœrra. — Afsláttur að mun, ef mikið er auglýst. Útgef.: Hlutafélagið „Reykjavík“. Bitstjóri, afgreiðslumaður og gjaldkeri Jón Ólafsson. Afgreiðsla Laufásvegi 5, kjallaranum. Ritstjórn: ---„ stofunni. Telefónar s 29 ritstjóri og afgreiðsla, 71 prentsmiðjan. Bakbit. „Nú er af, sem áður var“. Hannes Hafstein var varla óðara stiginn á skipsfjöl á ferð til útlanda, en blað eitt hér, sem fram undir síð- asta Nýár heflr verið heimastjórnarblað og fylgt ráðherranum fast, snýst að því að dubba upp einurð sina til þess að gera hann tortryggilegan í augum pjóðarinnar og jafnvel bera honum miðlungi vandað athæfl á brýn. Blaðið er „Þjóðólfur". Þar ritar ritstjórinn undir nafninu „Herrauður"1) grein um „taflið við Dani“ og eiga það að vera hugleiðingar um væntanlega framkomu þeirra þingmanna, er Island að sínu leyti kaus í samkomulags- nefndina við Dani. „Það verður vitið og þekkingin, sem þar mun sigri hrósa“, segir blaðið; . . . . ég er smeykur um, að Danir verði betur undirbúnir .... Þá er Matzen kemur rogandi með ríkisrétt- inn sinn og skákar fram sinni margra ára háskólavizku með Goos sem ’adjutant’, þá treysti ég elcki Hafstein okkar til að kveða þá í kútinn. Mundi ég í hans sporum þá helzt bregða Lárusi fyrir mig með Skúla að baki“ o. s. frv. Ágætlega treystum vér Lárusi Bjarna- syni í nefnd þessari, og Skúla Thor- oddsen sömuleiðis. Yér viljum ekkert draga úr lofsorði „Þjóðólfs“ um þá. En ómaklegt þykir oss það í alla staði, að nota það fyrir átyllu til að lýsa vantrausti á Hannesi Hafstein. Hann hefir á engan hátt verðskuldað það. Yér höfum oft áður sagt það, að vér Þættumst hafa ástœðu til að ætla, að Hafstein ráðherra muni halda eins fast á rétti vorum eins og nokkur annar íslendingur. !) Orðtækin sverja sig í ættina: „einhver óheppilegur samkomulags-bræðingur, eitt- hvert hrófatildurskák um samband landanna11 er sýnilega úr alkunna orðasafni ritstjóra blaðsins. Hvað þekkir „Þjóðólfur" það til skoðana hans, er gefi honum minstu átyllu, hvað þá heldur rétt, til að efa það, að Hannes Hafstein muni gæta vel sögulegra og þjóðlegra réttinda vorra. Og hvaða ástæðu heflr blaðið til að ætla, að Danir „verði betur undirbúnir" þ. e. hafl betri þékking á sögulegum og réttarfarslegum grundvelli þjóðrétt- inda vorra, heldur en íslendingarnir í nefndinni? Það verður þá í fyrsta sinni í viður- eign vorri við Dani, sem það kemur í Ijós. Yíst eru þeir vitsmunamenn miklir Matzen og Goos.. En ekki eru þeir svo skyni skroppnir, sem af vorri hálfu eru í nefndinni (þó að ritstj. „Þjóðólfs" bæri ekki traust til að vera í hana kosinn), að ætla þurfi að þeir láti fleka sig, þar sem þeir munu hafa til brunns að bera meiri þekking á málinu og betri málsstað. Auk þess efum vér, að þeir Goos og Matzen hafi mikið fylgi meðal landa sinna í nefndinni. Danir þekkja rikis- réttar-skýringar Matzens, og hafa þær ekki í hávegum, svo að vér segjum ekki meira. Hrein ástæðulaus getsök virðist oss það, hvort heldur til Hannesar Haf- steins, eða að óreyndu til nokkurra annara nefndarmanna, að þeir muni láta fleka sig á „dulklæddu afsali ein- hverra einkaréttinda vorra“. Yér ber- um engan kvíðbeyg fyrir, að nefndar- menn vorir munu ganga að samning- um um neitt annað en það, er auka má viðurkenning landsréttinda vorra og oss er í hag, og vór treystum því, að þeir gangi ekki að samningum um þau atriði einu sinni, ef því verður samfara nokkurt afsal á réttindum voruin, hvort heldur beinlínis eða ó- beinlínis. Þetta traust berum vér til allra nefndarmanna undantekningarlaust, hvorum flokknum, sem þeir tilheyra. Annað samir ekki að óreyndu gagn- vart einvalaliði flokkanna. í lok greinarinnar talar blaðið um „róg óvina“ ráðherrans „um Danadað- ur og óþjóðrækni" og heldur áminn- ingarræðu yflr honum, að láta nú ekki þessi illmæli rætast. Öll ummæli blaðsins um þetta eru svo löguð, að allir verða að álíta, að blaðið telji þó eitthvað hæft í þessum rógi, úr því að blaðið álítur þörf á að ögra honum, til þess að vera þjóðræk- inn og einarður. En vér þekkjum ekki Hannes Haf- stein að því, að hann hafl sýnt skort á þessum eiginleikum. * * * Síðustu viku flytur ritstj. „Þjóðólfs" nýja sök á hendur ráðherra H. Haf- stein. Hún er sú, að hann stryki út úr þingræðunum, eins og skrifararnir skrifa þær, það sem hann heflr sagt, en setji þar inn aftur það sem hann hafl ekki sagt. Að þingmaður breyti ræðu sinni, og það ef til vill að mun, frá því sem skrifarar hafa eftir honum, getur kom- ið og kemur oft af því, að skrifararn- ir (alloft ungir menn og þjóðmálum ó- kunnugir, sem ekki hirða heldur um að kynna sór málin) misskilja stund- um algerlega það sem sagt er og skrifa alt annað, einhvern vaðal, eða jafnvel alveg það gagnstæða við það sem sagt heflr verið. En það eru ekki slíkar breytingar, sem „Þingmaður" [Árnesinga?] á við. Því að hann gefur í skyn, að ýmsir þingmenn „kannist ekki við“ að hafa heyrt ræðurnar þannig fluttar. Með þessu er gefið í skyn, að ræða sé um verulegar e/msbreytingar, ekki að eins frá því, er skrifararnir hafa látið ræðu- mann segja, heldur og frá því sem hann talaði. Þetta getur í einstöku tilfellum komið af minnisleysi löngum tíma á eftir. En varla oft. „Þingm.“ í „Þjóð.“ segir góðgjarnlega(?): „Stafar þetta sjálfsagt mest af minnisleysi ráð- herra“. Hér er eitruð dulklædd að- dróttun fólgin í þessu orði „mest“. Með því er sagt, að það stafi ekki á- valt af minnisleysi, heldur í nokkrum tilfellum af öðrum orsökum. Hverjum þá? Er þetta ekki aðdróttun um, að stundum sé þetta gert víss vitandi, en það væri óráðvendni, sem varla öðrum en „Þjóðólfi“ mundi detta í hug að bera Hannesi Hafstein á brýn. Og þetta er gert meðan hann er fjarverandi í öðru landi. Slíkt á Hannes Hafstein ekki skilið! „Fram“. Fundur 2. og 4. Fimtudag í hv. mán. kl. 8^/2 síðd. í Templara-húsinu. Skömm er að þeim götustrákaskap, sem fram- inn var hér um kvöldið 15. þ. m., þar sem skornar vóru niður nokkrar flagg- línur. Sama kvöldið (eða um nóttina?) vóru ataðar skít rúður í ýmsum Ijós- lausum gluggum og skíðgarðar fram með lóðum. Slíkt atferli sem þetta verður aldrei orðum vítt. Höfuöskömm er það, er ísafold leyfir sór að drótta þessu athæfl að pólitískum mótstöðu- mönnum sínum, enda þótt strengir væru skornir líka úr dannebrogs-flögg- um; þannig t. d. hjá konsúl Thomsen, Verzlunarskólanum, og Jóni kaupm. Brynjólfssyni. Þessir menn hafa þó aldrei flaggað með flotaflagginu gríska. Og ísafold er ekki nóg að gera þess- ar ósönnu getsakir, heldur staðhæfir hún þar á ofan þau vitanlegu ósann- indi, að flaggi ríkisins (dannebrogs- flagginu) hafi aldrei verið nein ókurteisi sýnd hér á landi síðan flaggdeilan hófst. Er blaðið búið að gleyma því, hvað

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/206

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.