Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 21.01.1955, Blaðsíða 1

Verkamaðurinn - 21.01.1955, Blaðsíða 1
VERKfltnflÐURinn XXXVIII. árg. Akureyri, föstudaginn 21. janúar 1955 3. tbl. Fulltrúar verkalýðsfélaganna í Rvík og nágrenni felja nauðsynlegt að kjarasamningum verSi sagf upp miðað við 1. marz næstkomandi Kref jast þess að 8 stunda vinnudagur nægi til mann- sæmandi framfærslu meðalfjölskyldu Skákþing Norðlendinga Frá skákmótinu: Guðjón M. Sigurðsson og Jón Ingimarsson eigast við í 1. umferð. Fyrir enda borðsins mótsstjórinn Jón Hinriksson. Skákþing Norðlendinga var sett á sunnudaginn, og var fyrsta um- ferð tefld á mánudagskvöldið. í meistaraflokki keppa 8, þar á meðal sem gestur Guðjón M Sig- urðsson, skákmeistari úr Reykja- vík. í 1. flokki keppa 5, í 2. flokki 6 og í unglingaflokki 9. Aðkomu- menn eru nokkrir úr Mennta- skólanum hér og vestan úr Hörg- árdal. 1 meistaraflokki er keppt um verðlaunagrip, gefinn af þeim Alþýðusamband íslands og Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík boðuðu til fulltrúa fundar allra verkalýðsfélaga Reykjavík og nágrenni og var fundurinn haldinn í fyrradag, Voru þar mættir fulltrúar 29 fé- laga í Reykjavík og 10 félaga nágrenni bæjarins. Á fundinum urðu miklar og almennar umræð- ur um kjaramálin og var það ein róma álit nær allra fulltrúanna að segja beri upp kjarasamningum á næstunni, þegar er uppsagnar Davíð Stefánsson sextugur í dag feðgum Sigurði og Guðbrandi Hlíðar. í unglingaflokki er keppt um verðlaunagrip, gefinn af Jóni Ingimarssyni. Eftir 3 umferðir á mótinu standa leikar þannig, að í meist- araflokki hefur Júlíus Bogason 3 vinninga, Guðjón M. Sigurðsson 2% og Kristinn Jónsson 2 og eina biðskák. (Framhald á 4. síðu). Verkamannafélagið krefst auk- innar bæjarvinnu vegna hins alvarlega atvinnuástands Á fundi Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar, er haldinn var í fyrrakvöld, var einróma saiúþykkt áskorun til bæjarstjórnar að fjölga þegar í bæjarvinnunni upp í 60—70 manns og að halda þeirri tölu verkamanna þar til úr rætist með atvinnu. Eins og kunnugt er öllum bæjarbúum, má svo heita, að öil daglaunavinna hafi nær algerlega lagzt niður frá því um jól, nema við löndun úr togurunum og lítilfjör- leg bæjarvinna. Skráð atvinnuleysi nær nú til um 70 verkamanna, þótt engin almenn skráning hafi verið auglýst, en raunveru- leg tala atvinnulausra er miklum mun meiri. T. d. hafa aðeins 2 verkamenn úr Glerárþorpi látið skrá sig, þótt þorri verkamanna þar séu atvinnulausir. Er það liin mesta nauðsyn að verkamenn, sem hafa stopula eða enga atvinnu, láti ekki undir höfuð leggjast að skrá sig, svo að rétt mynd fáist af atvinnuleysinu. ###################################^####^^##################i MIR sýnir ágæta mynd á sunnudag Akureyrardeild MfR hefur sýningu á rússneslvu stórmynd- inni, EG GIFTIST GYÐINGA- STÚLKU, næstk. sunnudag kl. 4 e. h. í Ásgarði, Hafnarstr. 88. Þetta er leikin mynd, sem vak- ið hefur athygli hvarvetna, þar sem hún hefur verið sýnd. ákvæði leyfa, en flest félaganna hafa samninga lausa miðað við 1. marz, en nokkur eru bundin af samningum til lengri tíma. Að umræðum loknum var svo- felld tillaga samþykkt með öllum atkvæðum gegn 1 atkvæði, Frið- leifs Friðleifssonar: „Fundur fulltrúa verka- lýðsfélaganna í Reykjavík og nágrenni haldinn 19 jan. 1955, telur nauðsyn bera til að verkalýðsfélögin segi upp samningum sínum fyrir 1. febrúar næstk., til að knýja fram kjarabætur, svo að tekjur 8 stunda vinnu- dags nægi til mannsæm- andi framfærslu meðalfjöl- skyldu.“ Samþykkt þessi er mjög í anda þeirrar ályktunar, sem gerð var á síðasta Alþýðusambandsþingi um kjaramálin. Að sjálfsögðu er ályktunin aðeins viljayfirlýsing og munu nú hin einstöku félög snúa sér að því að taka ákvarðan- ir um uppsögn og móta kröfur sínar. Almennt mun talið að þessi samþykkt gefi rétta mynd af við- horfi verkalýðsfélaganna til kjaramálanna og að ákvarðanir þeirra muni verða í samræmi við hana. . I dag verður sextugur Davíð Stefánsson skáld frá Fagra- skógi. Dvelst hann nú í Reykja vík og er þar margs konar við- búnaður til þess að heiðra hann á þessum merkisdegi. I kvöld mun Þjóðleikhúsið hafa sýningu á Gullna hliðinu og flytur skáldið sjálft Prologus. Annað kvöld halda vinir og aðdáendur skáldsins honum heiðurssamsæti í Sjálfstæðis- húsinu. Aðalræðumenn þar verða Steingrímur Þorsteins- son prófessor og Þórarinn ; Björnsson, skólameistari. Þá ;verður Davíð helguð dagskrá ; í útvarpinu í kvöld. » Margur vottur um heiður og aðdáun mun skáldinu verða sýndur, svo sem maklegt er,; þótt slíkt geti raunar aldreij jafnast á við þá viðurkenn-' ingu, sem Davíð hefur fyrir löngu hlotið meðal hvers mannsbarns á íslandi, sem notið hefur ljóða hans og geymt þau í hug og hjarta. Stöðvun nýju aflstöðvarinnar við Laxá veldur margskonar erfiðleikum Menn gerast uggandi um að staðsetn- ing stöðvarinnar hafi verið misráðin Skömmtuninni var aflétt í gærkvöldi L Síðastl. sunnudag stöðvaðist hin nýja aflstöð við Laxá og hefur verið óvirk síðan. Krapastífla myndaðist í ánni neðan við nýja stöðvarhúsið og breytti farvegi Laxár, svo að hún rennur nú um 1 km. sunnan við sinn eðlilega farveg, en allt svæðið milli núveranædi farvegs og hins gamla er eitt stöðu- vatn. Heldur stöðuvatn þetta sográ:sinni frá aðalvél nýju stöðvarinnar fullri af krapi, svo að ekki hefur verið unnt að láta vélar hennar ganga, enda hefur vatnið staðið það hátt, að flotið hefur upp undir vélargólf hússins, þótt reynt hafi verið að verja það með því að dæla vatninu út. Vatnið fer lækkandi. Stöðuvatn það, sem þannig hef- ur myndast, er víðáttumikið og allt hulið snjó og krapi og hafa því allar tilraunir til þess að sprengja það fram reynzt alger- lega haldlausar. Á þriðjudag tók vatnið þó mjög að lækka og var á miðvikudag orðið 1 meter lægra en þegar það stóð hæst. Enn hélt það áfram að lækka í gær og töldu forráðamenn virkjunarinn- ar það benda til þess að áin kynni að grafa sig fram, jafnvel þótt ekki kæmi þýðvióri, enda er það mál þeirra, sem kunnir eru staðháttum og dutlungum Laxár, að hún brjóti slíkar stíflur af sér eða grafi sig fram á fáum dögum þótt hláka komi ékki þar til hjálpar. Vélamar settar í gang í gær, í gær reyndist unnt að setja vélar nýju stöðvarinnar í gang, en enn var þá ekki hægt að keyra þær með litlu álagi, þar sem frá- rennsli var þá ekki orðið nægi- lega greitt. Þótt spennan væri því mjög lág varð úr að skömmtun- inni var aflétt í gærkvöldi. Eftir fáa daga verður vélasamstæða gömlu stöðvarinnar, sem verið hefur í lamasessi einnig komin í lag. Ný vandkvæði. Slíkar truflanir á framleiðslu raforkunnar eru að sjálfsögðu áhyggjuefni öllum þeim, sem búa á orkusvæði Laxár. Og þessi síð- asta truflun jafnvel enn meira áhyggujefni en allar þær mörgu, sem á undanfömum árum hafa dunið yfir og valdið margs konar vandræðum og stórtjóni á at- vinnu manna, vegna þess að hér koma til greina ný vandkvæði í (Framihald á 4. síðu).

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.