Verkamaðurinn


Verkamaðurinn - 11.10.1963, Blaðsíða 5

Verkamaðurinn - 11.10.1963, Blaðsíða 5
RABB VIÐ „ATÓMSKÁLD framundan, sem smáskírðist, unz hún varð að björtum degi, og út úr eggsléttu berginu brunaði lestin, en það gnæfði skuggalegt og þungbrýnt að baki, súrt á svip yfir að hafa orðið að sleppa aftur svona góðum feng úr iðr- um sínum. Síðari hluta dagsins kom glaðasólskin með steikjandi hita þar til kl. 5, að snögglega dimmdi í lofti og skall yfir rign- ingardemba, sem þó ekki varaði nema skamma stund. Kl. 6 e. m. var stanzað í 10 mínútur í þorpi nokkru, sem mér var ókunnugt nafn á, var það stórt ummáls, en strjált og óreglulega byggt. Við járnbraut- arstöðina var fallegur blóma- og trjágarður. í honum miðj- um var steinskál, á að gizka 10 metrar í þvermál. Umhverfis hana voru gróðursettar marg- faldar raðir af allskonar skraut- blómum, sem vökvuðust af gos- brunni, er var upp úr miðri skál inni. Dreyfði hann vatninu svo haglega og hæfilega, að blóma- þringurinn fékk nægilega og hæfilega vökvun. Landslagið breytti nú smám saman um svip og varð hrjóstr- ugra en áður, skiptust á berg og klettasöðlar, fúafen og flóar, en allt var þetta vaxið ljótum og óræktanlegum kjarrskógi, og fremur gaf það óyndislega út- sýn. Smám saman breyttist þó enn til batnaðar. Tóku þá við fögur tún og akrar, flákar umgirtir skógi á allar síður. Snotur en smá bændabýli voru óteljandi til og frá innan um þetta ræktaða land. Voru þau að stéerð sjáan- lega gerð aðeins til afnota fyrir eigandann og hans fjölskyldu. Á sumum þessurn búgörðum voru úti fyrir húsunum aðeins negra- og svertingjafjölskyldur. Víða á þessum stöðvum var verið að útrýma skóginum á stór um svæðum. Hafði hvert tré ver ið höggvið við jörð niðri og síð- an kveikt í rótinni. Var því land þetta að sjá eins og eitt reykjar- haf og jörðin biksvört. Rauk þar og brann þetta smám saman í daga og vikur, ef þurrkatíð var. AS því loknu var landið plægt og því næst sáð í það eft- ir því, hvort verða skyldi akur eða tún. Þessa aðferð við út- -rýming skóga og ræktun sama lands sagði kunningi mér, að algengast væri að viðhafa. • Þegar leið á daginn var far- þegum tilkynnt, að til Winnipeg yrði komið kl. 9,30 e. m. Eftir því sem nær dró borginni stækk- uðu akrar og engjaflæmin, skóg urinn að mestu horfinn nema fal legar spildur milli hinna ýmsu landeigna og óslitið haf af skógi út við yzta sjóndeildarhring. — Þegar leið á 10. tímann fóru að sjást hus á stangli meðfram brau'tinni beggja megin, sem smám saman urðu þéttari eftir því sem lengra dró, þar til lestin loks rann inn á aðaljárnbrautar- stöðina i Winnipeg kl. rúmlega 9,30. Var þá stigið af lestinni og farþegum vísað niður í hvelfdan gang, sem lá niður í jörðina. Þar kom.maður ofan í afarvíðáttumikla og skrautlega sali, sem voru bókstaflega fullir af fólki. Mun það hafa komið á stöðina meðal annars til þess að sjá þessa nýju innflytjendur, er heyrzt hafði, að kæmu frá ís- landi. Ferðafélagar mínir hurfu einn eftir annan, því vinir þeirra og vandamenn biðu þeirra á stöðinni og tóku þá burt með sér. Loks var ég einn eftir míns liðs. Taldi ég í huganum fyrsta verk mitt verða að vera, að fá mér einhvers staðar næturgist- ingu, hvað sem svo tæki við. Eg svipaðist um í því skyni að ieita að andliti, sem ég þekkti, sem ólíklegt mátti heita, eða ein hverjum, sem skyldi tala ís- lenzka tungu og gæti leiðbeint mér, því þreifandi myrkt var orðið og ekki girnilegt að leggja út í heimsborgina leiðsagnar- laust. Þá veik sér að mér kona ein og spurði á íslenzku, hvort mig vantaði nokkuð sérstaklega, og kvað ég svo vera, sagði mig vantaði húsnæði til næsta morg- uns. Ilún kvað mér heimila gist- ingu, ef ég vildi verða sér sam- ferða heim. Hún kvaðst hafa farið á stöðina til að vita, hvort hún þekkti engan, sein komið hefði að heiman með lestinni. Hún sagðist oft hafa verið svo heppin að hýsa landa að heiman eina eða tvær fyrstu næturnar í Winnipeg. Ég tók með þökkum boði konu þessarar, tók hún sporvagn og lét keyra okkur heim til sín á Simcoest. 622. Var þar fyrir' maður hennar. Tók hann vinsamlegá á móti mér, og kvað mig eltki vera fyrsta gest- inn að heiman, sem kona sín færði sér. f húsi þessu hitti ég nokkra íslendinga um kvöldið, sem bú- setlir voru í Winnipeg. Sögðu þeir árferði og atvinnuhorfur í versta lagi, og töldu mig óhepp- inn að hafa komið til landsins á þessum tíma, hér gengju menn hundruðum saman atvinnulaus- ir mánuð eftir mánuð, og fyrir nýkomna og ókunnuga menn væri óhugsandi að ná í atvinnu. Eftir að ég var háttaður um kvöldið, fór ég að liugsa allt ráð mitt. Fannst mér útlitið satt að segja allt annað en glæsilegt dftir frásögn manna þessara, vera staddur í nýrri heimsálfu mállaus og atvinnulaus, öllum ókunnugur, fannst mér nóg á- stæða til að varna mér svefns Jón frá Pálmholti er eitt af efnilegri „atómskáldunum“. -— Hann hefur gefið ut tvær ljóða- bækur í þeim dúr, og fengið jákvæða dóma. Fyrri bók hans, Okomnir dagar, kom út 1958, hin síðari, Hendur borgarinnar eru kaldar, kom út 1962. Jón leit inn til okkar við Verkamanninn, er hanri var á leið suður eftir skamma dvöl á æskustöðvunum, (Pálmholt er býli í Arnarneshreppi í Eyja- firði). Við notuðum tækiíærið til að rabba við hann um hina umdeildu formb)dtingu í ljóðlist og um yrkju almennt í víngarði skáldguða. — Þú ert algjörlega samþykk ur því, Jón, að kalla „atómskáld skap“ Ijóð? —■ Mér hefur aldrei verið það ljóst til fulls, hvað það er, sem menn kalla „atómkveð- skap“. Þetta virðist ekki vera nein fullmótuð stefna eins og t. d. rómantíska eða raunsæis- stefna og aðrar mótaðar stefn- ur í bókmenntum. Mér skilst einna helzt, að þetta orð sé not- að um þau skáld, sem fjalla á einhvern hátt um samtímann, þ. e. atómöldina sérstaklega, enda virðist nafnið dregið af henni. En spurningunni, hvað sé ljóð og hvað ekki, hlýtur að vera mjög erfitt að svara, enda er það ekkert aðalatrlði. Það skipt- ir ekki mestu máli, hvað menn kalla hlutina, heldur hvaða er- indi þeir eiga íil fólks. — Eg spurði svo vegna þess, að ég hef heyrt svo marga tala um það, að skáldskapur, sem ekki er bundinn stuðlum og rími geti ekki Jcallast Ijóð. Hver er skilgreining þín á Jwí máli? —- Ljóð, sein hvorki hefur stuðla, höfuðstafi, né heldur neins konar rím, er vissulega æfafornt tjáningarform, má þar t. d. nefna biblíuljóð og ýms önnur heimsfræg verk frá fyrri öldum. Ljóð virðist ekki vera heiti á neinu sérstöku tjáningarformi, heldur kannske öllu heldur á á- fyrri part nætur. Mér duldist ekki, að hér yrði annað hvort að duga eða drepast, oft hefði verið úr vöndu að ráða, en aldrei eins og nú. AS lokum sofnaði ég með þeim óbifanlega ásetningi að taka óhikað fyrri kostinn, livað sem það kostaði. Eg mun hafa sofið að mestu draumlaust, það sem eftir var nætur, og vaknaði ekki fyrr en sól næsta dags ljómaði um allt svefuherbergið. ENDIR. kveðinni kennd eða tilfinningu. Við tölum t. d. um ljóðrænar myndir, músíkk o. s. frv. Það er ekki útlit Ijóðsins, sem skiptir máli, heldur innihald þess. Þess vegna munu öll Ijóð- form jafngild, ef menn valda þeim. — Þú nejndir innihald.. Þar liafið þið einnig gert byltingu. Tjáning ykkar er mjög ólík hinna, er á undan fóru. Viltu rœða það? — Eg hnýt um það í spurn- ingu þinni, að þú notaöir oröið þið, sein er að vísu mjög al- gengt, en allajafna hvimleitt og virðist sprottið af misskilningi. Svo virðist, sem það sé mjög út- breidd skoðun, að hér sé um að ræða þröngan sértrúarflokk, er miði viðhorf sín til skáldskapar eingöngu við yfirborðið. Eftir þeim skilningi, sem mér virðist yfirleitt lagður í orðið „atóm- skáld“, efast ég um, að við eig- um nokkurt slíkt ennþá. Flestöll íslenzk skáld af yngri kynslóð- inni eru meira og minna bund- in af eldri hefð, enda þótt þau sleppi stuðlum og rími úr ljóð- um sínum, að meira eða minna leyti. Mér sýnist það algengur misskilningur, að stuðlarnir og rímið séu okkar einu bókmennta legu verðmæti frá fyrri tímum. — Þetta er gott, það sem það nœr, en ég átti við liin duldu, táknrœnu eða afstæðu hugtók, sem fólk þykist verða svo mjög vart við í Ijóðum ykkar og yf- irleitt í nútímalist. — Það er þetta með „nútíma- listina“, algengt er að heyra menn tala þannig, að nútímalist sé eitthvað annað en list, eitt- hvað nýtt fyrirbæri, sem sé loks nú búið að uppgötva. Og sumir menn tala eins og ekkert sé list nema nútímalist, aðrir, og þeir eru víst allmiklu fleiri, tala eins og allt sé list, nema nútímalist. Eg held, að þarna liggi ein- mitt grafið hið fræga bil, sem svo mjög liefur verið umrætt milli þeirra, sem alizt hafa upp við og notið eldri skáldskapar og þeirrar kynslóðar, sem nú er að vaxa úr grasi. Þú minntist á hið dulda, tákn- ræna. Mér virðist það ekki vera sérstakt einkenni á nútímaskáld- skap yfirleitt. Eg myndi t. d. ekki segja, -að Dagur Sigurðar- son notaði meira táknmál en Eg- ill Skallagrímsson, né lieldur að hann sé torskildari. — Golt er nú það. En viltu segja álit þitt á þeirri útbreiddu skoðun, að islenzk list sé nú í djúpum öldudal? —- Eg myndi nú ekki segja að hann væri mjög djúpur. Hér hefur vissulega margt skemmti- legt veriö gert, þótt það virðist því miður hafa farið fram hjá of rnörgum. Hér hafa verið um- brot á flestum sviðum, þó ekki séu allar þær tilraunir jafnmerk- ar. Við eigum þó Nóbelsskáld, sem talið er vel að þeirri viður- kenningu komið. Þetta þýðir það, að hið bezta í okkar nútíma bókmenntum er talið jafnast á við hið bezta í heimsbókmennt- um. ViÖ eigum nokkur „ung skáld, sem hafa dirfzku og þrek til að kanna nýjar leiðir. I öðrum list- greinum hafa einnig verið tals- verð umbrot. — Býst þú við, að bilið eigi enn eftir að breikka milli þess, (Framliald á 6. síðu.) JÓN FRÁ PÁLMHOLTI: A s t þegar ég horfi í augu þér fær landið nýjan lit og fólkið verður lifandi þegar ég strýk yfir hár þitt leikur eilífðin um fingurgómana og hverfulleikinn streymir um hjarta mitt þó eru augu þín ekki blá og hár þitt ekki með gullnum roða skáldskaparins Föstudagur 11. október 1963 Verkamaðurinn — (5

x

Verkamaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verkamaðurinn
https://timarit.is/publication/215

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.